Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1993, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
25
Fréttir
Leikhús
Pramma rak
upp í fjöru
- reynt að ná honum á flot 1 dag
Malarflutningapramma rak vélar-
vana upp í stórgrýtta íjöru á Skaga-
strönd klukkan rúmlega fjögur í
gær. Pramminn, sem notaður hefur
verið til malarflutninga við höfnina
á Blönduósi, var á leið þaðan þar sem
hann gat ekki legiö við bry ggj u vegna
suðvestanhvassviðris. Þá komst kað-
all í skrúfuna með þeim afleiöingum
að prammann rak upp í fjöruna.
Tveir menn, sem voru um borð,
reyndu að kasta út ankeri til að forð-
ast að pramminn strandaði en án
árangurs. Mennimir komust í land
án teljandi vandræða og aðstoðuðu
við að binda prammann fastan til að
forða honum frá þvi að lemjast í
gijótinu í fjöruborðinu. Bátar gátu
ekki athafnað sig á vettvangi í gær
vegna sjógangs og brims. Freista átti
þess að ná prammanum á flot á flóði
í gærkvöldi en vind hafði ekki lægt
nógu mikið.
Pramminn, sem að sögn lögregl-
unnar á Blönduósi er ekki mikið
skemmdur, hggur nú í fjörunni og á
að gera tilraun til að ná honum út á
flóðiídag. -pp
Sjálfboðaliðar og slökkviliðsmenn að berjast við sinueldinn við Sjúkrahus
Suðurlands. DV-mynd Kristján
Selfoss:
Logandi sígaretta
kveikti í sinunni
Kristján Einarssan, DV, Selfossi;
Sinubruninn mikh við Sjúkrahús
Suðurlands á Selfossi í síðustu viku
var ekki af völdum tveggja drengja
eins og sagt var í baksíðufrétt DV
23.apríl. Það var hins vegar fuhorð-
inn maöur sem fór óvarlega með
vindhng og varð þannig valdur að
fyrmefndum eldi.
Hann hefur haft samband við for-
ráðamenn sjúkrahússins og beðist
afsökunar á þessum verknaði sínum.
Maðurinn hafði kastað frá sér vindl-
ingi í þurrt grasið og örskömmu síð-
ar gaus upp ótrúlegur eldur sem
barst um aha sinuna við sjúkrahúsið.
í samtah fréttaritara DV við lög-
regluna brunadaginn kom fram að
ekki langt frá sjúkrahúsinu hafði
verið kveiktur sinueldur á sama tíma
af þeim drengjum sem um ræðir.
Lögreglan taldi að þeir hefðu einnig
orðið valdir að sinubrunanum við
sjúkrahúsið en svo var ekki.
Um tíma var ráðgert að rýma aht
húsið sem fyhtist af reyk vegna þess
að ekki tókst að slökkva á loftræsti-
kerfinu í tæka tíð. Tijálundur norð-
an við húsið er talinn ónýtur.
Leita að bátnum
þegar veður leyfir
„Við fórum út á sunnudaginn th
að leita að bátnum en veðrið var svo
vont að við snerum við. Við ætlum
að fara út aftur strax og veður leyfir
og leita þá skipulegar að bátnum. Við
eigum að geta fundið hann og náð
honum upp en það er bara langt og
tímafrekt verkefni," segir Sófus Sig-
þórsson, einn eigenda plastbátsins
sem sökk 500 metra frá landi á laug-
ardag. Sófús var búinn að eiga bátinn
ásamt tveimur félögum sínum í mán-
uð þegar hann sökk. Einn fjórmenn-
inganna fór með lögreglu í gær í íjör-
una á Geldinganesi th að finna föt
og björgunarvesti sem þeir köstuðu
af sér þegar þeir komu í land eftir
sundiðálaugardag. -GHS
Æf ing var það
Arrisulum íbúum í Kleppsholtinu
brá í brún í morgun er þeir htu niður
að Sundahöfn. Þar mátti heyra hróp
og köh og sjá lögreglubíla með blikk-
andi ljós. Ekkert var að óttast því
þama var sérsveit lögreglunnar á
æflngu eða víkingasveitin eins og
hún nefnist í daglegu tah. -pp
&W)l
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Sími 11200
Stórasviðiðkl. 20.00.
KJAFTAGANGUR
eftir Neil Simon.
Þýðing og staðfærsla: Þórarinn Eldjárn.
Lýsing: Ásmundur Karlsson.
Leikmynd og búningar: Hlin Gunnars-
dóttlr.
Leikstjórn: Asko Sarkola.
Leikendur: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Örn Árnason, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Pálmi Gestsson, Ólafia Hrönn Jónsdóttir,
Sigurður Sigurjónsson, Ingvar E. Sig-
urðsson, Halldóra Björnsdóttlr, Randver
Þorláksson og Þórey Sigþórsdóttir.
Frumsýnlng fös. 30. apríl kl. 20.00.
2. sýn. sun. 2/5,3. sýn. fös. 7/5,4. sýn.
fim.13/5.
MY FAIR LADY söngleikur
eftir Lerner og Loeve.
Lau. 1/5, nokkur sæti laus, lau., 8/5, nokk-
ur sæti laus, fös. 14/5, lau. 15/5.
Ath. Sýningum lýkur í vor.
MENNINGAKVERÐLAUNDV 1993
HAFIÐ eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Aukasýningar sun. 9/5 og miðvd. 12/5.
DÝRIN í HÁLSASKÓGI eftir
Thorbjörn Egner.
Sun. 9/5 kl. 14.00, örfá sæti laus, sun.
16/5 kl. 13.00, örfá sæti laus (ath. breyttan
sýningartíma), fimmtud. 20/5 kl. 14.00.
Litla sviðið kl. 20.30.
STUND GAUPUNNAR eftir
PerOlov Enquist.
Lau. 1/5, lau. 8/5, sun. 9/5.
Síðustu sýningar/
Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn
eftir að sýning hefst.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00.
STRÆTI eftir Jim Cartwright.
Sun. 2/5 kl. 15.00 (ath. breyttan sýningar-
tima), þri. 4/5 kl. 20.00, mið. 5/5 kl. 20.00,
fim. 6/5 kl. 20.00.
Allra siðustu sýningar.
Ath. að sýningln er ekki við hæfi barna.
Ekki er unnt aö hleypa gestum i salinn
eftir að sýning hefst.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Aðgöngumiðar greiðist viku fyrir sýningu
ellaseldiröðrum.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13-18 og fram
að sýningu sýningardaga.
Miðapantanir frá kl. 10 virka daga i sima
11200.
Greiöslukortaþj. - Græna linan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
Þjóðleikhúsið - góða skemmtun.
Tilkyimingar
Miðstöð fólks í
atvinnuleit
Lækjargötu 14. Opið mánudaga til fóstu-
daga kl. 14-17. í dag, 26. apríl, kl. 15 ræð-
ir Olafur Ólafsson landlæknir um heilsu-
far og atvinnuleysi. Föstudaginn 30. apríl
kl. 15 verður skemmtidagskrá. Eftir úti-
fund á Lækjartorgi laugardaginn 1. maí
verður miðstöðin og Námsflokkar
Reykjavíkur með kynningu á starfsemi
sinni í Miðbæjarskólanum í Reykjavík.
Ókeypis kafflveitingar.
Silfurlínan
Sími 616262. Síma- og viðvikaþjónusta
fyrir eldri borgara alla virka daga kl.
16-18.
Bogart-vika í ameríska
bókasafninu
Sjöunda og næstsíðasta kvikmyndavika
Ameríska bókasafnsins stendur yfir. Að
þessu sinni er vikan helguð bandaríska
kvikmyndaleikaranum Humphrey Bog-
art (1899-1957). í dag kl. 14 verður sýnd
myndin Casablanca og The Big Sleep kl.
16. Miðvikudaginn 28. april verður sýnd
myndin Dark Passage og hefst sýning
hennar kl. 14. Fimmtudaginn 29. apríl kl.
14 gefst svo færi á að sjá myndina The
Treasure of Sierra Madre. Kvikmynda-
viku aprilmánaðar lýkur síðan fóstudag-
inn 30. apríl en þann dag verða tvær
Bogart-myndir í boði. Kl. 14 verður sýnd
hin nafntogaða The African Queen. Lest-
ina rekur svo myndin The Harder They
Fah en sýning hennar hefst kl. 16 á föstu-
daginn. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimiU.
Sumardvöl fyrir þroskahefta
I sumar verður starfrækt á Selfossi sum-
ardvöl fyrir þroskahefta. Meðal annars
verður boðið upp á styttri ferðir um Suð-
urland og sumar vikumar verður farið í
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið:
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
eftir Astrid Lindgren
Tónlist: Sebastian.
Lau. 1/5, sun. 2/5, næstsíðasta sýning, fáein
sæti laus, sun. 9/5, siðasta sýning, fáein
sætl laus.
Miðaverö kr. 1.100, sama verð fyrir börn
ogfullorðna.
Skemmtilegar gjafir: Ronju-gjafakort,
Ronju-bolir o.fl.
Stórasviðkl. 20.00.
TARTUFFE ensk leikgerð á verki
Moliére.
Fáar sýningar eftir.
Lau. 1/5, lau. 8/5.
Coppelía
íslenski dansflokkurinn.
Uppsetning:
Eva Evdokimova.
Sunnud. 2/5 kl. 20.00.
Laugard. 8/5 kl. 14.00.
Síðustu sýningar.
Litia svið kl. 20.00.
DAUÐINN OG STÚLKAN eftir
Ariel Dorfman
Fimmtud. 29/4, föstud. 30/4, laugard. 1/5.
GJAFAKORT, GJAFAKORT
ÖÐRUVÍSIOG SKEMMTILEG GJÖF!
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miðapantanir i sima 680680 alla virka
dagafrá kl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta -
Faxnúmer 680383.
Leikhúslinan, simi 991015.
Aðgöngumiðar óskast sóttir þrem
dögum fyrir sýn.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús.
Þórsmörk og dvalið þar í 4-5 daga. Öll
tilboð munu þó að sjálfsögðu miðast við
áhuga og getu þeirra sem í sumardvöl-
inni eru hverju sinni. Ekkert aldurstak-
mark er. Þetta gildir fyrir 0-120 ára. Allar
nánari upplýsingar veitir Katrín Klem-
enzdóttir meðferðarfulltrúi, sími
98-22357, og Sigrún Jensey Sigurðardóttir
þroskaþjálfi, s. 98-22101.
Apple-umboðið með sýningu
Dagana 28. til 30. apríl nk. mun Apple-
umboðið halda sýningu í ráðstefnusai
Hótel íslands á annarri hæö. Sýningin
verður opin alla dagana kl. 13-17. Yfir-
skrift sýningarinnar er „Macintosh í
blönduðu umhverfi" og verður sýndur
ýmis tölvubúnaður þar sem aðaláherslan
verður lögð á tengingar Macintosh-tölva
við mismunandi tölvukerfi. Sýningunni
er ætlað að höfða til umsjónarmanna
tölvumálafyrirtækja með tilliti til þess
að nota Macintosh-tölvur samhliða með
öðrum tölvum fyrirtækjanna. Aðgangm-
er ókeypis og öllum heimill.
Opið hús hjá Ferða-
félagi íslands
í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30-22 verður
opið hús í Ferðafélagshúsinu, Mörkinni
6 (risi). Kynntar verða hugmyndir að
nýjum gönguskálum og rætt um göngu-
leiðir 1 óbyggðum. Áhugafólk um ferðalög
í óbyggðum er hvatt til að koma. Heitt á
könnunni. „Opið hús“ er nýbreytni sem
fallið hefur í góðan jarðveg hjá félags-
mönnum og hafa þá verið kynntar ferðir
og annað sem efst er á baugi í starfi
Ferðafélagsins. Síðasta myndakvöld
vetrarins verður miðvikudagskvöldið 5.
maí.
Ársrit Flugmódel-
félagsins Þyts
Ársrit Flugmódelfélagsins Þyts er komið
út. í blaðinu er umfjöllun um flugmódel
og allt sem viðkemur því sporti. Útgef-
andi blaðsins er Flugmódelfélagið Þytur
og ritstjóri Ingólfur Jónsson. Blaðið Ugg-
ur ffammi í Tómstundahúsinu og RC
módel.
Leikfélag Akureyrar
^£le&uvblnkzm
Óperetta
Tónlist
Johann Strauss
Föstud. 30.4. kl. 20.30. Uppselt.
Laugard. 1.5. kl. 20.30. Uppselt.
Sunnud. 2.5. kl. 20.30.
Föstud. 7.5. kl. 20.30. örfá sæti laus.
Laugard. 8.5. kl. 20.30. Uppselt.
Föstud. 14.5. kl. 20.30.
Laugard. 15.5. kl. 20.30.
Miövikud. 19.5. kl. 20.30.
Miðasala er í Samkomuhúsinu,
Hafnarstræti 57, alla virka daga kl.
14 til 18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu.
Símsvari fyrir miðapantanir ailan
sólarhringinn.
Greiðslukortaþjónusta.
Simi i miðasölu:
(96)24073.
I'SLENSKA ÓPERAN
__iiiii
(Sardasfurstynjan
eftir Emmerich Kálmán.
Föstudaginn 30. april kl. 20.00.
Laugardaginn 1. maí kl. 20.00.,
örfá sæti laus.
SÍÐUSTU SÝNINGAR.
Miðasalan er opin frá kl.
15.00-19.00 daglega en til kl.
20.00 sýningardaga. SÍM111475.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
LEIKHÚSLÍNAN 99-1015.
Tónleikar
Óperutónleikar í
Gerðubergi
í kvöld, þriðjudagskvöld, verða haldnir
óperutónleikar í Gerðubergi. Þar mun
Helgi Maronsson tenór syngja, ásamt
Kristínu R. Siguröardóttur og Bjama
Thor Kristinssyni. Undirleikari er Kryst-
yna Cortes. Fluttar verða þekktar aríur
og dúettar úr ýmsum óperum. Helgi lauk
einsöngvaraprófi frá Tónlistarskólanum
í Njarðvík, kennari hans þar var Ragn-
heiður Guðmundsdóttir. Kristin R. Sig-
urðardóttir og Bjarni Thor em bæði nem-
endur í Söngskólanum í Reykjavík.
Kennari þeirra er einnig Ragnheiður
Guðmundsdóttir. Tónleikamir hefjast kl.
20.30.
Gpðný og Peter með tónleika
í Operunni
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og
Peter Maté píanóleikari koma frarn á tón-
leikum í íslensku óperunni í dag, 27.
apríl. Á efnisskránni verða verk eftir
Ludwig van Beethoven, Hafliða Hall-
grímsson, Giuseppe Tartini, Pjotr
Tsjajkovskí og Pablo de Sarasate. Tón-
leikarnir eru haldnir á vegum Styrktarfé-
lags íslensku óperunnar og hefjast kl.
20.30.
Auglýsing
Frá Tónlistarskólanum
Seltjarnarnesi
Innritun fyrir næsta skólaár verður dagana 29. og
30. apríl nk. kl. 13.00-17.00.
Skólastjóri