Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1993, Blaðsíða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRlL 1993
Fólk í fréttum
Steingrímur Óli Einarsson
Steingrímur Óli Einarsson,
Kvennaskólanemi og verslunar-
maður hjá Skeljungi, er einn hinna
vösku íjórmenninga sem björguðu
sér á sundi fyrir norðan Geldinga-
nes er bátur þeirra sökk fimm
hundruð metra frá landi á laugar-
daginn var. Þetta kom fram í DV-
fréttígær.
Starfsferill
Steingrímur fæddist í Reykjavík
23.3.1973 og ólst þar upp og þrjú ár
í Mosfellsbæ. Hann stundaði nám í
eitt ár við MR og síðan við Kvenna-
skólann í Reykjavík. Á sumrin hef-
ur hann stundað ýmsa sumarvinnu
en starfar nú með náminu hjá Skelj-
ungi.
Fjölskylda
Steingrímur á óskírðan son, fædd-
an 15.1.1993.
Bróðir Steingríms er Erlendur Jón
Einarsson, f. 4.3.1971, rafvirkjanemi
íReykjavík.
Hálfbróðir Steingríms er Kristján
Einarsson, búsettur í Mosfellsbæ.
Foreldrar Steingríms eru Einar
Páll Einarsson, f. 16.3.1947, tækni-
maður hjá ríkissjónvarpinu, og
Edda Steinunn Erlendsdóttir, f. 25.9.
1947, húsmóðir í Reykjavík.
Ætt
Einar Páll er sonur Einars, skrif-
stofustjóra Raunvísindastofnunar
HÍ, sem nú er látinn, bróður Jó-
hanns, garðyrkjustjóra Reykjavík-
urborgar. Einar var sonur Páls,
járnsmiðs við Bergstaðastræti,
Magnússonar, b. á Lambhaga í Mos-
fellssveit, Pálssonar, b. á Blikastöð-
um, bróður Halldóru, ömmu Björns
Þórðarsonar forsætisráðherra,
Matthíasar Þórðarsonar þjóðminja-
varðar og Ágústs Flygenring, afa
Páls Flygenring ráðuneytisstjóra.
Halldóra var einnig amma Alberts,
föður Kristjáns rithöfundar og rit-
stjóra. Dóttir Halldóru var Guðrún,
langamma Ragnars Amalds alþing-
ismanns. Páll var sonur Ólafs, b. á
Blikastöðum, bróður Ragnheiðar,
langömmu Guölaugar, ömmu Pét-
urs Sigurgeirssonar biskups. Ólafur
var sonur Guðmundar, Utara og b.
í Leirvogstungu, Sæmundssonar, b.
á Kjarlaksstöðum, Þórðarsonar,
prófasts á Staðastað, Jónssonar,
biskups á Hólum, Vigfússonar, lang-
afa Sigríðar, ömmu Bjama Thorar-
ensens skálds. Jón var einnig lang-
afi Önnu, langömmu Jónasar HaU-
grímssonar, og Einars, afa Einars
Benediktssonar. Móðir Ólafs var
Guðrún, systir Bjama, langafa Jóns,
afa Jóhannesar Nordals. Guðrún
var dóttir HaUdórs, b. í Skildinga-
nesi, Jónssonar, b. á AmarhóU,
Tómassonar, ættfoður Amarhóls-
ættarinnar, Bergsteinssonar.
Móðir Einars skrifstofustjóra var
Guðfinna, systir Sigurðar HUðar,
yfirdýralæknis og ættfræðings, fóð-
ur séra Jóhanns HUðar. Guðfinna
var dóttir Einar, organista og smiðs
í Hafnarfirði, Einarssonar, b. í Lax-
árdal í Gnúpveijahreppi, Einars-
sonar, ættfoður Laxárdalsættarinn-
ar, Jónssonar. Móðir Einars smiðs
var Rannveig Einarsdóttur, ættfoð-
ur Urriðafossættarinnar, Magnús-
sonar. Móðir Guðfinnu var Sigríður
Jónsdóttir, ættfoður Hörgsholtsætt-
arinnar, Jónssonar. Móðir Sigríðar
var Guðrún, systir Guðlaugar,
ömmu Ásgríms Jónssonar Ustmál-
ara. Guðrún var dóttir Snorra, b. á
Kluftum, bróður Helgu, ömmu Ein-
ars Jónssonar myndhöggvara.
Snorri var sonur HaUdórs, b. í Jötu,
Jónssonar, ættföður Jötuættarinn-
ar. Móðir Einars Páls Vcir Guðlaug
Ágústsdóttir, sjómanns á Eskifirði,
Nikulássonar.
Steingrímur Óli Einarsson.
Edda Steinunn er dóttir Erlends,
lengst af skipstjóra hjá Eimskip í
Reykjavík, bróður Steingríms, yfir-
læknis í Svíþjóð. Erlendur er sonur
Jóns Guðmundar, skipstjóra á Pat-
reksfirði, Ólafssonar, b. í Skápadal
Jónssonar. Móðir Jóns Guðmundar
var Guðrún Ólafsdóttir Thorlacius.
Móðir Erlends var ÓUna Jónína
Erlendsdóttir, b. á HvaUátrum í
Rauðasandshreppi, Kristjánssonar
og Steinunnar Thorlacius. Móðir
Eddu er Ásta Margrét, húsmóðir í
Reykjavík, Jensdóttir, stýrimanns
hjá Landhelgisgæslunni Stefáns-
sonar, og Guðmimdu Jónsdóttur.
Afmæli
Til hamingju me ð afmaelið 27. apríl
80 ára 50ára
Ragnheiður Sigurgeirsdóttir, Einar Þorbj örnsson,
ÞórhaUur Pálsson, Hafnarstræti39, Akureyri. 40 ára
75 ára Anna Gerður Richter,
Sigurbjörg Sæmundsdóttir, Jóhanna Njálsdóttir,
Mjöll Bj örg vinsdóttir,
70 ára I ogafold43,Reykjavlk Björgvin Þorsteinsson, Hfisthnmrmn 3. Rftvkiavík
Valgerður Ágústsdóttir, Mýrarbraut27, Blönduósi. Kj artan Bjarnason,
Guðrún Björnsdóttir,
Skúlagötu 40, Reykjavík. HöfðahrautlS Hvammstanga
Magnús Bjarni Ragnarsson, Miöstræti 15, Bolungarvík. Anna Kristín Kristinsdóttir, Npiíhala 23 Sftltiflrnarnpsi.
Magnús verður að heiman á af- mælisdaginn. Ólafur Ásgeirsson, Meistaravöllum 5, Reykjavík.
Sigurborg Gísladóttu-,
Norðurbraut 11, Hafnarfirði. Valþjófsstað 1, Fljótsdalshreppi.
* Oddgerður Oddgeirsdóttir,
ou ara Árni Guðmundsson, Gunnar Bill Björnsson, Stapasíðu 17e, Akureyri.
VaOD16KKU i, JOKlUUdlSíu vppi. Helga Jóna Guðjónsdóttir, Þúfubarði 10, Hafnarfirði. RánarvöUum 9, Keflavík. Jóna Lilja Pétursdóttir,
Vilhjálmur Gislason, Nónvörðu 1, Keflavik. Kjarrhólma 20, Kópavogi. Guðrún Þ. Ingimundardóttir,
Seiðakvisl 23, Reykjavík. Eiríkur Björn Barðason, Lyngbergi 13b, Hafnarfirði.
Baldvin Elí as Albertsson
Baldvin EUas Albertsson heildsaU,
Norðurvangi 1, Hafnarfirði, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Baldvin fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk unglinga-
skóla og stundaði um tíma nám í
Englandi og Danmörku.
Baldvin hóf nám í Samvinnuskól-
anum að Bifröst árið 1979 og útskrif-
aðist þaðan með samvinnuskólapróf
þremur árum síðar. Hann varö
stúdent frá framhaldsdeUd Sam-
vinnuskólans í Reykjavík árið 1984.
Baldvin var einnig eitt ár í lagadeUd
HÍ, 1984-85.
Baldvin var við verslunarstörf hjá
SÍS1960-62, deUdarstjórihjá Kaup-
félagi Ámesinga og síðar verslunar-
stjóri þar 1964-66. Hann var sölu-
stjóri bókaútgáfu á árunum 1966-68
og verslunarstjóri hjá Kaupfélagi
Hafnfirðinga 1968-80. Einnig hefur
hann verið sölumaður hjá ýmsum
fyrirtækjum.
Frá árinu 1987 hefur Baldvin rekið
eigiö innflutningsfyrirtæki í Hafn-
arfirði, HeUdverslun B.E. Alberts-
sonar sf., ásamt eiginkonu sinni.
Baldvin var um tíma í stjóm
Knattspyrnufélagsins Hauka og
starfaði í Landssambandi íslenskra
samvinnustarfsmanna. Hann lék
knattspyrnu með öUum yngri flokk-
um í Knattspymufélaginu Val.
Baldvin hefur verið félagsmaður í
Lionsklúbbi Hafnaríjarðar frá árinu
1973 og gegnt flestum trúnaðarstörf-
um innan klúbbsins. Einnig hefur
hann tekið þátt í félagsmálastörfum
hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga og
Kaupfélagi Árnesinga.
Hann hefur verið félagi í Fram-
sóknarflokki Hafnartjarðar og er nú
formaður framsóknarfélags Hafn-
arfjarðar.
Fjölskylda
Fyrsta eiginkona Baldvins er
Gerður Gunnarsdóttir, f. 6.12.1942,
húsmóðir. Þau sUtu samvistum.
Önnur kona Baldvins er Inga Þyrí
Kjartansdóttir, f. 4.5.1943, snyrtisér-
fræðingur, þau shtu samvistum.
SambýUskona Baldvins frá 1983
er Elna Þórarinsdóttir, f. 8.9.1943,
skrifstofustúlka og húsmóðir. Hún
er dóttir Þórarins Helga Jónssonar,
verkamanns í Reykjavík sem nú er
látinn, og JennýjarL.S. Olsen Jóns-
son, húsmóður í Reykjavík.
Sonur Baldvins og Ingu Þyrí er
Baldvin Albert, f. 6.6.1974, nemi.
Stjúpböm Baldvins, böm Elnu,
era: Matthías Sigurður, f. 31.7.1960,
bókaútgefandi, búsettur á Álftanesi;
Sólveig, f. 10.11.1963, nemi í snyrti-
fræði, búsett í Reykjavík; Sigríður
Elín, f. 18.7.1968, nemi, búsett í
Reykjavík; BjarkUnd Þór, f. 17.6.
1971, nemi, búsett í Reykjavík; og
Inga EUnborg, f. 10.11.1979, nemi,
býríheimahúsum.
Alsystir Baldvins er EUsabet Aal-
en Albertsdóttir, f. 4.10.1945, hús-
móðir í Bandaríkjunum.
Hálfsystkini Baldvins era: Óskar
Baldvin Elías Albertsson.
Jörundur Þorsteinsson, f. 13.3.1924,
defidarstjóri hjá Rafmagnsveitu
Reykjavficur; Esther S. Þorsteins-
dóttir, f. 15.4.1926, húsmóðir; Stein-
unn Þorsteinsdóttir, f. 18.6.1928, d.
13.8.1979; Laufey Símonardóttir, f.
20.1.1939, húsmóðir; og Ingvi Rafn
Albertsson, f. 13.8.1939, sjómaður á
Eskifirði.
Foreldrar Baldvins em Albert
Baldvin Jóhannesson Aalen, f. 18.4.
1910 á Eskifirði, d. 5.6.1981, sjómað-
ur, verkamaður og vélstjóri í
Reykjavík, og María Hrómundsdótt-
ir Áalen, f. 14.11.1902 að HUði á
Álftanesi, d. 8.12.1974, húsmóðir í
Reykjavík.
Baldvin og Elna taka á móti gest-
um að Hraunholti (áður Skútan),
Dalshrauni 15, Hafnarfirði, laugar-
daginn 1. maí næstkomandi eftir kl.
20.
Andlát
Hafsteinn Kristinsson
Hafsteinn Kristinsson, forstjóri
Kjöríss hfi, tfi heimiUs að Þelamörk
40, Hveragerði, lést sunnudaginn
18.4. sl. Jarðarfor hans fer fram frá
Hveragerðiskirkju kl. 14 í dag.
StarfsferiN
Hafsteinn fæddist að Ámesi á Sel-
fossi 11.8.1933 og ólst þar upp. Hann
stundaði nám í mjólkurfræði hjá
Mjólkurbúi Flóamanna 1956 og við
mjólkurfræðiskólann Dalum Mej-
eriskole 1957. Lauk prófi sem mjólk-
urverkfræðingur frá Landbúnaðar-
háskóla Kaupmannahafnar 1960,
stundaði framhaldsnám í mjólkur-
fræði við Landbúnaðarháskólann í
Ási í Noregi 1961-62 sem Rotary
Fund-styrkþegi og hlaut OECD-
ársstyrk til að kynnast ráðunauta-
og fræðslustarfsemi danska mjólk-
uriðnaðarins 1963-64.
Hafsteinn var ráðunautur'hjá
Mjólkurbúi Flóamanna 1960-61, hjá
Osta- og smjörsölunni 1961-63 og hjá
Búnaðarfélagi íslands 1964-66.
Hann var framkvæmdastjóri Osta-
gerðarinnar hf. í Hveragerði
1966-68, stofnaði ísgerðina Kjörís hf.
1968 og var framkvæmdastjóri
hennarsíðan.
Hafsteinn var fyrsti formaður
Mjólkurtæknifélags íslands 1965-66,
var formaður Sjálfstæðisfélags
Hveragerðis 1972-74, varaformaður
í hreppsnefnd Hveragerðis 1970-74,
oddviti hreppsnefndar Hveragerðis
1974-78 og 1982-87, sat í bæjarstjórn
Hveragerðis og var fyrsti forseti
bæjarstjómar 1987-89, átti sæti í
stjóm Landsvirkjunar 1987-91 og
starfaði í Lionsklúbbi Hveragerðis
frá stofnun 1971.
Fjölskylda
Hafsteinn kvæntist 9.3.1963 eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Laufeyju
Sveinfríði Valdimarsdóttur, f. 26.1.
1940, húsmóður. Laufey er dóttir
Valdimars Siguijónssonar, b. að
Hreiðri í Holtum, og Guðrúnar
Margrétar Albertsdóttur húsfreyju.
Böm Hafsteins og Laufeyjar em
Aidís, f. 21.12.1964, kerfisfræðingur
í Hveragerði, í sambýh með Lárasi
Inga Friðfinnssyni matreiðslu-
manni og eiga þau tvö böm; Valdi-
mar, f. 9.2.1970, iðnrekstrartækni-
fræðingur í Hveragerði, kvæntur
Sigrúnu Kristjánsdóttur nema og
eiga þau tvo syni; Guðrún, f. 9.2.
1970, skrifstofumaður í Reykjavík,
gift Davíð Jóhanni Davíðssyni
nema; Sigurbjörg, f. 18.7.1975, nemi
íHveragerði.
Bræður Hafsteins era Guðmund-
ur, f. 31.12.1930, fyrrv. aðalféhirðir
og fræðimaður á Selfossi; Sigfús, f.
27.5.1932, byggingameistari á Sel-
fossi.
Foreldrar Hafsteins vora Kristinn
Vigfússon, f. 7.1.1893, d. 5.1.1982,
húsasmíðameistari á Selfossi, og
Aldís Guðmundsdóttir, f. 24.2.1902,
d. 9.8.1966, húsfreyja.
Ætt
Kristinn var sonur Vigfúsar, sjó-
manns á Eyrarbakka, bróður Ragn-
heiðar, ömmu Sigurðar Guðmunds-
sonar, húsasmíðameistara og stofii-
anda SG-einingahúsa á Selfossi.
Önnur systir Vigfúsar var Sigríður,
amma Gísla Hafidórssonar leikara.
Bróðir Vigfúsar var Kári, afi Guð-
mundar Sveinssonar, húsasmíða-
meistara á Selfossi. Vigfús var son-
ur Hafidórs Vigfússonar, b. á Ósa-
bakka, bróður Guðmundar, langafa
Magnúsar Kjartanssonar, ráðherra
og ritstjóra. Móðir Vigfúsar á Eyrar-
bakka var Þorbjörg Jónsdóttir.
Móðir Kristins var Sigurbjörg
saumakona, hálfsystir Guðjóns,
langafa Péturs Gunnarssonar rit-
höfundar. Sigurbjörg var dóttir
Hafliða, b. í Brúnavafikoti, Þor-
steinssonar, b. þar Jörundssonar,
b. á Laug, IUugasonar, staðarsmiðs
í Skálholti, Jónssonar. Móðir Sigur-
bjargar var Guðbjörg Guðmunds-
dóttir, á Núpum í Ölfusi, Jónssonar.
Móðir Guðbjargar var Guðbjörg
Jónsdóttir, sfifursmiðs og ættfoður
BfidsfeUsættarinnar, Jónssonar.
Bróðir Aldísar var Lýður, hrepp-
stjóri í Litlu-Sandvík, faðir Páls,
hreppstjóra og stjómarformanns
Hafsteinn Kristinsson.
Sláturfélags Suðurlands. Aldís var
dóttir Guðmundar, hreppstjóra í
Litlu-Sandvík, bróður EUsabetar,
móður Þovarðar, aðalféhirðis í
Landsbanka og Seðlabanka, Kristj-
áns læknis og Jóns, prests í Háteigs-
sókn. Guðmundur var sonur Þor-
varðar, hreppstjóra í Litlu-Sandvík
Guðmundssonar, hreppstjóra þar
Brynjólfssonar vefara. Móðir Al-
dísar var Sigríður Lýðsdóttir,
hreppstjóra í HUð í Gnúpveija-
hreppi, Guðmundssonar og Aldísar
Pálsdóttur frá Brúnastöðum.