Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Side 12
12
Spumingin
MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993
Hvað lestu helst?
Gylfi Þórisson: Námsbækumar,
nema kannski í sumar.
Bjarni Gunnarsson: Allt nema
kennslubækur, enda kennari sjálfur.
Agla Björk Róbertsdóttir: Dagblaðið,
maður! Hvurslags spurning er þetta
•eiginlega?
Sigurður Valur Ásbjarnarson: Þessa
dagana les ég sögur sem þeir settu
saman Sverrir Kristjánsson og Tóm-
as Guðmundsson - holl lesning.
Höskuldur Sigurðsson: AUt sem ég
kemst yfir.
Pálina G. Guðmundsdóttir: Morgun-
blaðið og Dagblaöið þegar tími gefst
- og tímarit.
Lesendur
Strætisvagnar Reykjavlkur breytist í hlutafélag:
Gegn vilja fólksins
Fulltrúar starfsmannadeildar SVR
skrifa:
Meirihluti sjálfstæðismanna í
borgarstjóm Reykjavíkur hefur tek-
ið trú á einkavæðingu. Þess vegna á
nú að breyta Strætisvögnum Reykja-
víkur í hlutafélag og líklegt er að
næsta skref verði einkavæðing þess-
arar eignar borgarbúa.
Nú eru erfiðir tímar hjá mörgum,
atvinnuleysi og slæmt ástand á
mörgum heimilum. Færri og færri
munu því hafa efni á því að reka
einkabíl. Aldrei má heldur gleyma
þeim fjölda borgarbúa sem hafa enga
möguleika á að ferðast á annan hátt
en með almenningsvögnum. í nýlegri
viöhorfskönnun, sem gerð var fyrir
Borgarskipulag og Borgarverkfræð-
inginn í Reykjavík, kemur fram að
75% aöspurðra töldu æskilegt að
minnka umferð einkabíla. Flestir
töldu bætta þjónusta SVR, tíðari
ferðir og lægri fargjöld vera heppi-
legustu leiðina til að draga úr notkun
einkabílsins.
í fjósi alls þessa væri eðlilegt aö
þeir sem stjóma kæmu til móts við
vilja og þarfir fólksins og sætu nú
og skoðuðu möguleikana á bættri og
aukinni þjónustu. Svo er ekki.
Tíminn er nýttur til að undirbúa
hlutafélagsstofnun sem fyrsta skref
yfir í einkavæðinguna. Því hefur ver-
ið haldið fram að reksturinn verði
nútímalegri og pólitísk afskipti
hverfi. Hvemig verður reksturinn
nútímalegri? Engin svör hafa borist
viö þvi. Raunar segir í plaggi sem
starfsmenn fengu boðsent í leigubíl
mánudaginn 7. júní: „í hlutafélagi
verða stjómendur að standa sig og
er umbunað eftir því. Starfsmenn
„Flestir töldu bætta þjónusta SVR, tíðari ferðir og lægri fargjöld vera heppi-
legustu leiðina til að draga úr notkun einkabílsins," segir í bréfi ritara.
verða að gera slíkt hið sama.“
Hvað þýðir þetta? Að stjómendur
og starfsmenn þurfi ekki aö standa
sig ef þeir vinna hjá hinu opinbera?
Þá höfum við alltaf misskilið okkar
störf hjá borginni. Við höfum alltaf
álitið að við þyrftum að standa okkur
í okkar vinnu. og þær kröfur hafa
alltaf verið gerðar til okkar. Hafa
stjómendur fyrirtækisins ekki staðið
sig í sinni vinnu og þar með stjómar-
formaður SVR, Sveinn Andri Sveins-
son?
Kommúnisti í f lokksforystu?
Lúðvíg Eggertsson skrifar:
Það er kunnara en frá þurfi að
segja aö margir leiðandi menn í Sjálf-
stæðisflokknum voru fyrrum komm-
únistar. Þeirra á meðal voru Jónas
Haralz, sem fluttur er til Bandaríkj-
anna. Annar var Benjamín H.J. Ei-
ríksson, sem hætti með öllu pólitísk-
um afskiptum þegar Bjöm Bjarna-
son móðgaði hann í Morgunblaðinu.
Þriðji áhrifamaðurinn af þessum
toga var Ólafur Björnsson, sem í
nýlegum sjónvarpsþætti lýsti komm-
únískri fortíð sinni í Kaupmanna-
höfn. Ólafur var hættur kennslu í
HÍ og gamall orðinn. Allir þessir
menn áttu dijúgan þátt í stefnumót-
un Sjálfstæðisflokksins í gegnum ár-
in.
Ýmsir sjálfstæðismenn telja að
brotthvarf þeirra af vettvangi stjórn-
málanna sé ein ástæðan fyrir veikri
stöðu flokksins í dag og minnkandi
fylgi meðal kjósenda samkvæmt
skoðanakönnunum. Mæna þeir á
nýjan forystumann úr röðum komm-
únista. Þar kemur helst til greina
Ólafur Ragnar Grímsson, sem er
póhtískur fimleikamaður. Hann hef-
ur verið kommúnisti, krati og fram-
sóknarmaður. Skrifar hann nú títt í
Morgunblaðið og leggur á ráðin um
lausn vandamálanna.
Er svo komið að jafnvel Davið
Oddsson hefur boðið honum í þjóð-
stjórn. Eftir nokkra vist í Sjálfstæðis-
flokknum gæti Ólafur Ragnar leitað
fyrir sér í Kvennalistanum.
Konur og jaf nrétti
Sigrún skrifar:
Ég las viðbrögð Önnu Ólafsdóttur
Bjömsson kvennalistakonu í einu af
dagblööum landsins nú nýlega þar
sem hún fordæmir ráðningu Össurar
Skarphéðinssonar í embætti um-
hverfisráöherra. Anna segir ráðn-
inguna vera skilaboð til kvenfólksins
í Alþýðuflokknum um að þeim séu
ekki ætlaðar neinar valdastöður þar
á bæ. Ekki veit ég hvaö það var ná-
kvæmlega sem réð því að Össur var
valinn umfram Rannveigu, en bæði
eru þau eflaust hæfir einstaklingar
og með mikla reynslu á sínu sviði.
Kvennalistakonur og aðrar konur
eru samt alveg vissar um að þama
var það kynferði Össurar sem réð
úrslitum.
Mér.finnst það til skammar að kon-
ur ætiist til þess aö konur séu ráðnar
umfram karla í stöður aðeins vegna
þess að þær eru konur. Ef málinu er
þannig háttað þá hefur eitthvað farið
úrskeiðis í kvennabaráttunni. Þá eru
konur ekki lengur að beijast fyrir
jafnrétti heldur sérréttindum.
Mér finnst konur oft gleyma aö líta
í eigin barm þegar þær benda á hin
og þessi dæmi í þjóðfélaginu þar sem
þeim finnst að þeim hafa verið mis-
munað. Hvað myndu þær til dæmis
segja ef karlar tækju upp á því að
stofna sérflokk bara fyrir karla, sam-
anber Kvennalistann? Hvað myndu
þær segja ef karlprestar héldu sér-
stakar messur fyrir karla, eins og
þessar kvennamessur sem nú em í
gangi einu sinni í mánuöi. Já, þá
held ég að margar konur yrðu fljótar
að hlaupa í Jafnréttisráð og gera allt
vitiaust.
Vissulega hafa konur ástæðu til að
berjast fyrir því að þeim sé ekki mis-
munað vegna kynferðis, en það verð-
ur að gerast á réttan hátt. Karlmenn
eiga ekki að líða fyrir það að vera
karlmenn eins og konur hafa þurft
að líða fyrir sitt kynferði í gegnum
aldirnar. Þá erum við konur engu
betri en karlrembumar.
Það má líka benda á að það eru
margir karlmenn í þjóðfélaginu sem
eru sama sinnis og kvenréttindakon-
ur. Þessir karlmenn væru reiðubún-
ir að vinna með konum að jafnrétti
en þeim er samt meinað það ogaettir
í sama bás og öll hin karlrembusvín-
in. Hvar er allt jafnréttið?
„Mér finnst þaft til skammar að konur ætlist til þess að konur séu ráðnar
umfram karla í stöður aðeins vegna þess að þær eru konur," segir bréfritari.
Halldór hringdi:
Stöð 2 hefur tekið sig til og sýn-
ir leiki bandarísku körfuboltalið-
anna Chicago Bulls og Phoenix
Suns i beinni útsendingu. Leik-
irnir fara að vísu fram á næturn-
ar að íslenskum tíma en það aftr-
ar mér ekki frá þvi að fylgjast
með. Ég veit að það á viö um
marga aðra, menn láta þetta eftir
sér, jafhvel þó að þeir séu í vinnu
en ekki í sumarfríi.
Að horfa á beina útsendingu á
úrslitaleik í NBA-deildinni er
ógley manleg skemmtun og Stöð 2
á þakkir skildar fyrir þetta fram-
tak.
Hugmyndarík-
■........■■..........
Hulda skrifar:
Ég las frétt i DV fimmtudaginn
10. júní að unglingar í Hafnarfirði
tækju að sér að þvo bíla fyrir við-
skiptavini Fjaröarkaups fyrir Jiti-
ar 300 krónur á bíL Framtakið
var liður í „Tækifæri", samtök-
um sem stefnt er gegn atvinnu-
leysi ungs fólks.
Framtak þessa unga fólks lýsir
hugmyndaauðgi og er til fyrir-
myndar. í þessu blessaða kreppu-
tali, sem ætiar alla lifandi að
drepa hér á landi, eru það svona
fréttir sem fylla mann bjartsýni.
Það þarf ekkert nema viljann til
að bjarga sér.
Kemur lækk-
uninframhér?
Baldvin hringdi:
Ég las um það á viðskiptasíðu
DV aðheimsmarkaðsverð á bens-
íni hefur lækkað mjög undan-
íkrnar 5 vikur. Verðið var 202
dalir á tonnið en hefur lækkað á
þessumfimm vikum niður í 188,5
dollara. Það samsvarar um 7%
lækkun verðs og maður skyldi
ætla að það komi fram í bensín-
verði hérlendis. En sá möguleiki
hefur ekki einu sinni verið rædd-
ur, því hann er eflaust fjarlægur.
Bensínfélögin eru jafnan fljót
að heimta hækkun á bensínverði
þegar heimsmarkaðsverðið
hækkar, en einhvern veginn eru
þau alltaf seinni til að leggja til
lækkun útsöluverösins þegar
þróunin er i hina áttina.
Þessvirði
aðhorfaá
Óskar skrifar:
Eins og öðru ungu fólki, þá þyk-
ir mér afskaplega gaman að
bregða mér á bíó. Fiestar myndir
sem maður sér hafa eingöngu af-
þreyingargildi og gegna því eina
hlutverki að fá mann tti að
skemmta sér í skamman tíma og
gleyma hinu daglega amstri. Þó
eru einstaka kvikmyndir sera eru
framleiddar með annað í huga,
myndir sem skilja eitthvað eftir.
Ein slík er nú sýnd í Stjörnu-
bíói en það er gamanmyndin
Groundhog Day. Þar fer hinn
stórskemmtilegi Bill Murray á
kostum í mynd sem eflaust á eftir
að verða sígild. Hún er allt öðru-
visu én raaður á að venjast en
kemur ánægjulega á óvart.
Sýniðtil-
litssemi
Kári hringdi:
Þeir sem hafa gaman af að
hlaupa sér tti hetisubótar skipta
hundruðum hér á höfuðborgar-
svæðinu. Þeir eiga þó erfitt um
vik því bifreiðastjórar sýna
hlaupurum mjög litia tillitssemi
í umferðinni.