Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Page 20
20
MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993
Fréttir
Miklar vegaframkvæmdir austur af höfuðborginni:
Fjórar akreinar
vestur og suður
Vegfarendur um Vesturlandsveg
hafa tekiö eftir miklum framkvæmd-
um viö veginn milli Höföabakka og
Hestháls. Aö sögn Rögnvalds Jóns-
sonar, umdæmisverkfræðings hjá
Vegagerð ríkisins, er verið að
breikka Vesturlandsveg og gera tvær
akreinar í hvora átt. Samhliða er
verið að vinna að sömu framkvæmd-
um við nýjan Suðurlandsveg en þar
kemur fjögurra akreina vegur frá
Rauðavatni niður á Vesturlandsveg.
í framhaldi af þessu verður Breið-
holtsbraut stækkuð og breikkuð og
hún tengd Suðurlandsvegi.
„Þessi framkvæmd léttir á umferð
um Höíðabakkabrúna. Umferð úr
Breiðholti og Garðabæ vestur og suð-
ur á land verður þá um Breiðholts-
braut og áfram. Þessi umferð verður
utan við borgina í stað þess að fara
í gegnum hana,“ segir Rögnvaldur.
Suðurlandsvegur og Vesturlands-
vegur undirbyggðir á þessu ári og
slitlag lagt á sumarið 1994. Vestur-
landsvegur verður opnaður fyrir
fjögurra akreina umferö 1994 en Suö-
urlandsvegm- líklega 1995. Byggð
verða undirgöng fyrir gangandi um-
ferð viö Rauðavatn og á móts við
Golfskálann. Undirgöng fyrir bíla
verða undir Vesturlandsveg við
Hestháls.
Þar sem Vesturlandvegur og Suð-
urlandsvegur mætast er gert ráð fyr-
ir ljósum fyrst um sinn. í framtíðinni
er gert ráð fyrir slaufum og aörein-
um sem tengja umferð um þessar
tvær meginumferðaræðar út úr
borginni.
Gísli Karel Halldórsson, verkfræð-
ingur hjá Almennu verkfræðiskrif-
stofunni, hefur gert teikningar að
hinum nýju vegum. í samtali við DV
sagði hann að milli tveggja akreina
yrðu 10 metra eyjar. Á Suðurlands-
vegi frá Rauöavatni að Smálöndum
þarf að sprengja fyrir veginum. Jarð-
efni, sem fellur tíl, fer í hljóðmanir
og stóra grjótíð verður notað í öldu-
vöm við Ánanaust.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
328,1 milljón en lægsta tilboð, sem
var tekið, var 165,3 milljónir. Af því
greiöir Reykjavíkurborg 36,4 miHjón-
ir en Vegagerö ríkisins 128,9 milljón-
ir. -JJ
í sumar verður unnið að því að breikka og undirbyggja Vesturlandsveg. Þar verða fjórar akreinar opnaðar fyrir
umferð á næsta ári. Einnig er verið að undirbyggja nýjan fjögurra akreina Suðurlandsveg.
DV-mynd Brynjar Gauti
% GRAFARVOGUR
ÁRTÚNSHÖFÐI
Akbraut
jg: breikkuð
ARBÆJARHVÉRFI
Nýr vegur
Rauða■
vatn
BREIÐHOLT
j) Bakkar
Nýr vegur
Seljahverfl
Elliðaárvatn
Nýtt sveitarfélag á Suðurlandi:
Landsveit fékk f lest atkvæði
Jón Þórðaisan, DV, Rangárþingi:
Langflestir þeirra sem tóku þátt í
skoðanakönnun um nafn á hinu nýja
sveitarfélagi í Rangárvallasýslu,
sameinuðum Holtahreppi og Land-
mannahreppi, sem gerð var nýlega,
vildu að sveitarfélaginu yrði válið
nafltíð Landsveit.
Kosið var á Brúarlundi fyrir Land-
mannahrepp en að Laugalandi fyrir
Holtahrepp. Kjörsókn var dræm,
rúmlega 50% að Brúarlundi, þar sem
tæplega 60 manns greiddu atkvæði.
Kjörsókn var innan við 50% á Lauga-
landi þar sem 88 manns greiddu at-
kvæði.
Hreppsnefndir gömlu hreppanna
höfðu sameinast um tvær tillögur að
nafni, Land- og Holtahreppur ann-
arsvegar en Þjórsárhreppur hins
vegar, en auk þess var skilin eftír auð
lína þar sem fólki gafst kostur á að
koma með sína hugmynd að nafni.
Auk skoðanakönnunarinnar stóðu
fráfarandi hreppsnefndir fyrir forv-
ali vegna lista til sveitarstjórnar.
Gömlu hreppsnefndimar voru fimm
manna en nýja sveitarstjórnin verð-
ur sjö manna svo að fækka þurftí um
þijá. Ef ekki berast fleiri framboð
telst sá listi sjálikjörinn en annars
verður kjördagur í kringum 26. júní.'
stjórnin - frábær! vægast sagt
RIGG
stjórnin - fer alla leið (í sumar)
j U N I
16. júní
SJALLANUM, AKUREYRI
17. júní
RAFMAGNSLAUSIR í
SJALLANUM, AKUREYRI
18. júní
VALASKJÁLF,
EGILSSTÖÐUM
19. júní
VALASKJÁLF,
EGILSSTÖÐUM
25. júní
INGHÓLI, SELFOSSI
26. júní
ÍÞRÓTTAHÚSINU
HÖFN, HORNAFIRÐI
jULÍ
2. júlí
FÉLAGSHEIMILNU,
PATREKSFIRÐI
3. júlí
SJALLANUM, ÍSAFIRÐI
5. & 6 JÚLÍ
GAUKUR Á STÖNG
REYKJAVÍK
9. júlí
SKJÓLBREKKU,
MÝVATNSSVEIT
10. júlí
MIÐGARÐI, SKAGAFIRÐI
17. júlí
NJÁLSBÚÐ VESTUR
LáNDEYJAR
24. júlí
ÞOTUNNI, KEFLAVÍK
A G U S T
6. ágúst
SJALLANUM, AKUREYRI
7. ágúst
SJALLANUM, AKUREYRI
13. ágúst
VÍKURRÖST, DALVÍK
14. ágúst
ÝDÖLUM, AÐALDAL
20. ágúst
OSLÓ, NOREGI
21. ágúst
OSLÓ, NOREGI
VERSLUNARMANNAHELGIN
30. & 31. júlí
MIÐCARÐI, SKAGAFIRÐI
—
M-U-ShK
M' Y-ND-bti
P0STKR0FUSIMINN ER 91-1 16 20
AUSTURSTRÆTI 22 s: 2 83 19 • ÁLFABAKK114 (Mjódd) s: 7 48 48
BORGARKRINGLAN s: 67 90 15
SiOVAnjlHALMENNAR
Akstur og áfengi fara aldrei saman!
\ REYKJAVÍKURVEGUR 64 (H.fj.) s: 65 14 25