Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Síða 44
F
E
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjalst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993.
EMíbridge:
Sigur og tap
íslendinga
íslenska landsllðiö í bridge tapaði
í gærkvöld fyrir landsliði írlands
með 22 stigum gegn 8 í Evrópumeist-
aramótinu í bridge. Fyrr um daginn
hafði íslenska liðiö lagt Ungverja að
velli með 20 stigum gegn 10.
Tyrkir eru í fyrsta sæti með 46 stig
en í dag spila íslendingar, sem eru í
20. sæti eftir tvær umferðir, við Kró-
ata, sem eru í 23. sæti, og Þjóðverja,
sem eru í 22. sæti.
29 þjóðir mættu til keppninnar sem
fram fer í Frakklandi og komast 4
efstu þjóðirnar á heimsineistaramót-
ið sem haldið verður í Chile í ágúst.
Tveir nýirráð-
herrar í dag
Ráðherraskipti verða í ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar í dag. Össur
Skarphéðinsson tekur við sem um-
hverfisráðherra af Eiði Guðnasyni
og Guömundur Árni Stefánsson tek-
ur við sem heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra af Sighvati Björgvinssyni.
Sighvatur sest í stól Jóns Sigurðsson-
ar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Boðað hefur verið til tveggja ríkis-
'ráðsfunda vegna þessa á Bessastöð-
um í dag og hófst sá fyrri klukkan
10.30 í morgun. Að loknum fundun-
um býður Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti ísland, ráðherrunum til hádegis-
verðar. Síðdegis fara síðan fram
lyklaskipti í fyrrnefndum ráðuneyt-
um. -kaa
Uppreksfiri frestað
umfimm daga
Gylfi Kristjáasson, DV, Akureyri:
Samkomulag hefur náðst milli
Landgræðslunnar og aðila í Mý-
.-ivatnssveit um að bændur þar fresti
upprekstri á sauðfé sínu um fimm
daga frá því sem áður var ákveðið.
Bændur máttu samkvæmt eldra
samkomulagi reka 15% fjárins upp á
öræfin í síðustu viku og gerðu það.
Nú í vikunni máttu þeir fara með
25% fjárins og síðan það sem eftir
var á tveimur næstu vikum. í eldra
samkomulaginu var ákvæði um að
fresta mætti upprekstri eftir aðra
skoðunarferð um upprekstrarlöndin
og það var ákveðið sl. fostudag.
Kærði nauðgun
Kona í Reykjvík kærði mann í
morgun fyrir nauðgun. Maðurinn
- sem talið er að hafi verið ölvaður er
nú í haldi lögreglu og hefur málið
veriðsentRLRtilrannsóknar. -pp
LOKI
Það má eiginlega segja að
ísfirðingar hafi gefið skít í
sorpið!
Vangoldnir tollar
nema 80 milijónum
Allur innflutningur á frönskum
kartöflum frá því áriö 1989 er til
athugunar hjá embætti Ríkistoll-
stjóra samkvæmt heimildura ÐV,
Tvö fyrirtæki hafa verið kærð til
ríkissaksóknara fyrir brot á tolla-
lögum og mál þriðja fyrirtækisins
hefur verið sent rannsóknarlög-
reglu til rannsóknar. Mál fjóröa
fyrirtækisins verður iiman
skamms kært til ríkissaksóknara.
Samkvæmt heimildum DV eru
mál tveggja til þriggja annarra inn-
flutningsaðila franskra kartaflna í
rannsókn hjá embætti Rikistoll-
stjóra og nema tollasvik þeirra fyr-
irtækja milljónum króna.
Jöfitunargjald á frönskum kart-
öflum var 190% árið 1988 en var
lækkað niður í 120% árið 1989 og
er það enn 120% í dag. Á þessum
tíma var einnig 30% tollur á inn-
fluttum frönskum kartöflum.
Fyrirtækin hafa öll staðið að inn-
flutningi á frönskum kartöflum og
eru talin hafa greitt lægri tolla og
jöfiiunargjöld en verðmæti inn-
flutningsins nemur. Vangoldnir
tollar og jöfnunargjöld fyrirtækj-
anna nema 80 milljónum króna og
hefur rannsókn þeirra mála sem
send hafa verið ríkissaksóknara
staðið í meira en hálft annað ár.
í tilviki annars fyrirtækisins, sem
kært hefur verið til rikissaksókn-
ara, voru tveir reikningar sendir
frá söluaöila frönsku kartaflnanna
erlendis og við tollafgreiöslu fram-
vísaði fyrirtækið aðeins öðrum
reikningnum og greiddi því aðeins
tolla og jöfnunargjald af hluta
þeirra kartaflna sem fluttar voru
inn.
í tilviki annars fyrirtækis voru
frönsku kartöflurnar upprunalega
keyptar; frá; Hollandi. Hollenski
söluaðilinn sendi reikningana fyrir
kartöflunum til dansks fyrirtækis
sem svo aftur sendi þá með lægri
upphæð til innflutningsaðilans á
íslandi. Það fyrirtæki borgaði því
tolla og jöfnunargjald af lægri upp-
hæð en ekki verðinu sem kartöfl-
urnar voru keyptar á í Hollandi.
Þriðja fyrirtækið flutti inn
franskar kartöflur frá Kanada og
lék svipaðan leik og fyrstnefnda
fyrirtækið; greiddi aðeins brot af
þeirri upphæð sem það hefði átt að
greiða í tolla og innflutningsgjald
við innflutning.
„Auðveldara er að ná utan um
þessi mál og Iiafa eftirlit með þeim
ef tollar eru greiddir af magni en
ekki verðmæti. Frumvarp þess efn-
is liggur fyrir Alþingi en ekki tókst
að koma því í gegn á seinasta
þingi," sagði Kristinn Ölafsson toll-
gæslustjóri í samtali við DV í gær.
Hann sagði að ef þessi breyting á
lögunum næði fram að ganga yrði
allt eftirlit miklu auðveldara. -pp
150 Norðmenn ætla
til Islands til að
kaupa sér hesta
Himdrað og fimmtíu Norðmenn
hafa lýst yfir áhuga sínum á að koma
með bát til íslands til að kaupa hesta.
Þessiferðhefurveriðauglýstnokkuð,
í Noregi í vetur.
„Það verður tekin ákvörðun nú í
júní um hvort ferðin verður farin í
sumar eða næsta sumar. Við eigum
von á íslendingum hingað nú á næst-
unni til fundar við okkur,“ segir Pett-
er Skogvold frá Suðurmæri sem
skipulagt hefur ferðina.
Hann segir öll tilskilin leyfi hafa
fengist frá norskum yfirvöldum fyrir
hrossakaupunum. Að sögn Skog-
volds verður pláss fyrir um hundrað
hesta í bátnum sem tekinn verður á
leigu og ekki útilokað að fleiri verði
keyptir. Aðilar alls staðar að í Noregi
hafa áhuga á kaupum á íslenskum
hestum.
„Það er ekki til að hagnast á þessu
sem menn leggja í svona ferð heldur
til að styrkja íslenska hestastofninn
hér.“ í Noregi eru nú um það bil þijú
þúsund íslenskir hestar.
Jón Friðriksson frá Vatnsleysu í
Skagafirði hefur verið í sambandi við
Norðmennina fyrir hönd Félags
hrossabænda. Hann segir að hér sé
um mjög athyglisverða hugmynd að
ræða og framkvæmanlega en hún
þurfi hins vegar nokkum undirbún-
ing. Jón sagðist hafa haldið að Norð-
mennirnir væru hættir við allt sam-
an en það væri ánægjulegt ef af ferð-
inni gæti orðið.
-IBS/Ari
Ingaló fékk fern verðlaun
Fjöldi fólks lagði leið sína á Þingvöll um helgina til þess að skoða letrið
sem Þórarinn Þórarinsson arkitekt fann þar. Unnur Eir og Ragnar Logi sáu
stafina greinilega. DV-rnynd ÞÖK
Sólveig Amarsdóttir fékk silfur-
höfrung fyrir best leik í kvenhlut-
verki og Ásdís Thoroddsen fékk
einnig silfurhöfrung fyrir besta
handritið á alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni í Troia í Portúgal nýlega.
Þá fékk Ingaló aðalverðlaun alþjóð-
legu, kaþólsku dómnefndarinnar
Ocic. Sólveig Arnarsdóttir hlaut
einnig verðlaun fyrir besta leikinn á
kvikmyndahátíð í San Remo á Ítalíu.
„Ég er mjög ánægð með þetta.
Portúgalska kvikmyndahátiðin er
vel virt og kaþólsku verðlaunin em
dálítið sérstök vegna þess að dóm-
nefndarmenn leggja líka siðferðilegt
mat á myndimar,“ segir Ásdís Thor-
oddsen. -GHS
Veðriðámorgun:
Víða létt-
skýjað
Á morgun verður hæg breytileg
átt og viða léttskýjað inn til lands-
ins. Einnig verður léttskýjað á
Suður- og Austurlandi. Ánnars
staðar skýjað en þurrt. Hiti verð-
ur 5-7 stig viö ströndina en ann-
ars 8-15 stig. Hlýjast verður inn
til landsins.
Veðrið í dag er á bls. 52
ORYGGI - FAGMENNSKA
LANDSSAMBANÐ
ÍSL. RAFVERKTAKA
r
f
f