Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1993, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1993, Side 4
4 LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1993 Fréttir Guðmundur Ami Stefánsson, nýr heilbrigðis- og tryggingaráðherra: Guðmundur Árni Stefánsson, heiibrigðis- og tryggingaráðherra: „Mér finnst við í sumum tilfellum vera komn- ir aö leiðarlokum þegar kostnaöarþátttaka sjúklinga er annars vegar.“ DV-mynd GVA - Þú boðar nýtt verklag í ráðuneyt- inu og breyttar áherslur. Skýrðu það nánar. „Verklagið hlýtur að mótast af þeim ráðherra sem er í starfi hveiju sinni. Ég þekki mikilvægi þess, sem framkvæmdastjóri stórs sveitarfélags, að fá fólk til sam- starfs, ekki síst þegar þarf að stíga á bremsuna og hagræða til að ná fram spamaöi. Ég mun freista þess að halda þeim vinnubrögöum áfram sem ég hef viðhaft í Hafnar- firði. Á hinn bóginn geri ég mér einnig ljóst að ákvörðunin og ábyrgðin er ráðherrans. Þó ég reyni að halda góðu sambandi viö samstarfsfólk mitt í heilbrigðis- geiranum er ekki þar með sagt að ekki kunni hressilegir vindar að blása. Ég mun láta verkin tala og vil vera dæmdur af þeim verkum sem ég skil eftir mig en ekki af ein- hverjum fyrirheitum sem nóg er af í íslenskri pólitík." - Niðurskurður er orð dagsins. Hvar ætlar þú að skera niður og hvaða stofnanir eru þá á niður- skurðarlistanum? „Ég ætla ekki að segja þér ná- kvæmlega til um það en ég vil ekki segja að um verði að ræða niður- skurð á þjónustu við almenning, þannig að fólk fái ekki þá nauðsyn- legu þjónustu í velferðarkerfi heil- brigðismálanna sem því ber. Nið- urskurðarhugtakið hefur fengið á sig þann blæ að þá fari um vondir menn með stóra hnífa og séu vond- ir við menn og málleysingja. Þegar um takmarkað fjármagn er að ræða í svo stórum og viðamiklum málaflokki er verkefni mitt fyrst og fremst að fá sem mesta þjónustu fyrir fólkið fyrir sem minnsta pen- inga. Hvort það þýðir að stofnanir þurfi að sameinast eða aðrar geti ekki opnað á áætluðum tíma verð- ur tíminn að leiða í ljós. En eftir reynslu mína af sveitar- stjómarmálum er ég eindregið þeirrar skoðunar að við eigum að færa verkefni frá ríkinu til sveitar- félaganna. Mér finnst að heilsu- gæslu eigi flytja yfir á sveitar- stjómimar, þrátt fyrir að ríkið hafi tekið við henni með verkaskipta- lögunum 1990.“ Styö ekki gjaldtöku á sjúkrahúsum - Þú gagnrýndir oft niðurskurð velferðarkerfisins hjá forvera þín- um og flokksbróður, sagðir að verið væri að víkja frá grundvallar- markmiðum jafnaðarstefnunnar. Hvernig ætlar þú að halda í þessi markmið? „Ég gagnrýndi einstakar tillögur forvera míns og stend við þá gagn- rýni. Ég hef ekki veriö stuðnings- maður gjaldtöku á sjúkrahúsum, að fólk þurfi að greiða innritunar- gjöld á sjúkrahús. Ég tel hins vegar að kostnaðahlutdeild notenda heil- brigðisþjónustunnar eigi aö vissu marki rétt á sér. Kostir þjónustu- gjalda em að við fáum eftirlitsaðila í neytandanum sjálfum, sem skynj- ar hver kostnaður við einstök læknisverk er hverju sinni og hef- ur eftiriit með framkvæmd þeirra. En gallamir koma í ljós ef menn ganga svo langt að notandinn, sem nauðsynlega þarf á þessari þjón- ustu að halda, getur það ekki vegna fjárskorts. Þama þurfa menn að gæta mjög vel að og mér finnst við í sumum tilfellum vera komnir að leiðarlokum þegar kostnaöarþátt- taka sjúklinga er annars vegar. Heilbrigðiskerfið er orðið til fyrir fólkiö og ekki síst þá sem lakar standa fjárhagslega, félagslega og heilsufarslega. Það má aldrei taka einn þátt þessara mála, hinn fjár- hagslega, út úr. Eg mun gæta að því og vænti þess að fá ábendingar og gagnrýni ef ég vík af vegi dyggð- arinnar.“ Óttastu óvinsældir í sama mæli og forveri þinn ávann sér? „Ég geri mér grein fyrir að ýmsar ákvarðanir sem ég mun taka munu skapa óvinsældir á ýmsum stöðum en ég væri yfirhöfuð ekki í pólitík ef ég óttaðist að taka ákvarðanir. Stundum em ákvarðanir óvinsæl- ar þegar til skemmri tíma er litið en njóta vinsælda þegar frá líður. Ég læt sögunni eftir að dæma þær.“ Útiloka ekki erlenda lántöku - Styður þú skattahækkanir og er- lendar lántökur? „Við þá erfiðleika sem nú em hef ég alls ekki viljað útiloka erlendar lántökur til arðbærra verkefna sem væm atvinnuskapandi til skemmri og lengri tíma, ekki síst þegar horft er til stefnumörkimar í nýgerðum kjarasamningum, meö mjög ákveðinni hlutdeild ríkisins, þar sem markmiðið er aö efla at- vinnu og smyija hjól atvinnulífins. Þá tel ég óráðlegt að útiloka skatta- breytingar. Ég er sannfærður um að fj ármagnstekj uskattur er rétt- látur skattur í okkar samfélagi. Ég Yfirheyrsla Haukur Lárus Hauksson styö skattabreytingar og skatta- hækkanir." - Hvað um tekjuskattinn? „Ég ætla ekki að leggja dóm á það. Hann verður ríkisstjómin að skoða í samhengi." - Haft er eftir Rannveigu Guð- mundsdóttur að i Alþýðuflokknum séu harðir framapotarar verðlaun- aðir með ráðherraembættum, ekki þeir sem láta sér nægja vinnusemi og samviskusemi. „Ég held að Rannveig hafi alls ekki beint þessum orðum til mín. Við ákvörðun um breytingar á rík- isstjóminni hlaut tillaga formanns um mig sem heilbrigðisráðherra einróma stuðning, þar með Rann- veigar. Þvi fer fjarri að svona lýsing geti átt við mig að öðm leyti þar sem ég hef starfað í flokknum í 20 ár og gegnt ýmsum trúnaðarstörf- um. Ég vil láta dæma mig af verk- um en ekki yfirlýsingum." Leysum sjálfir okkar mál - Haft er eftir Matthiasi Bjarnasyni að ráðherraskiptin sýni veikleika Alþýðuflokksins og nú sé heimilis- vandamál Jóns Baldvins orðið að heimilisvandamáli forsætisráð- herra. „Ég ætla ekki að „kommentera" á þessa yfilýsingu Matthíasar. Hann sagðist heldur ekki hafa nema gott eitt um nýju ráðherrana að segja. Andinn í viðtalinu, sem vitnað er til, var á þeim nótum að hann vildi lægja öldurnar í Sjálf- stæðisfloknum og kanna horfur á friði. Þá er ósköp þægilegt að víkja talinu að samstarfsflokknum. Við alþýðuflokksmenn leysum sjálfir úr okkar málurn." - Hverjusvararþúþeimfullyrðing- um að Jón Baldvin hafi múlbundið þig með ráðherrastarfi? „Það er ein af mörgum vitleysis- kenningum sem eru í gangi. Ég hef ekki setið á þingi sem þingmaður og hef ekki haft bein tök á því að leggja mín lóð á vogarskálarnar í málfutningi flokksins í landsmál- um. En ég hef haft mínar skoöan- ir.“ - En áttu ekki erfiðara um vik að gagnrýna af sama krafti þegar þú ert sjálfur sestur í ráðherrastól? „Ég sest ekki í ráðherrastól til að láta múlbinda mig eða til að vera samsekur eins og einhvers staðar heyrðist. Ég sest í ráðherrastól til að vera samábyrgur og taka þátt í þeim erfiðu störfum sem við blasa, að leiða þjóðina upp úr öldudaln- um. Það yerður að koma í Ijós hvort ég verð gagnrýninn á einstakar til- lögur. Ég lofa engu til eða frá um það.“ - Munt þú, með ráðherradóm í far- teskinu, sækjast eftir formennsku á næsta flokksþingi Alþýðuflokks- ins? „Það er algjörlega út í bláinn að velta því fyrir sér nú.“ - Hefur þú hugleitt örlög vinsælla borgarstjóra sem farið hafa í lands- málapólitík og valda þau þér ein- hveijum áhyggjum? „Nei, ég hef ékki velt fyrir mér framtíðinni í þessu ljósi. Þessi innáskipti í ríkisstjóm voru tíma- mótandi í þá vem að hreyfanleiki í íslenskri pólitík verður kannski regla frekar en undantekning." Allir vildu Lilju kveðið hafa - Skuldir bæjarsjóðs Hafnarfjarðar eru 1,9 milljarðar þegar þú skilur við. Skýtur það ekki skökku við þegar Hafnfirðingar njóta mikilla umframtekna vegna álversins í Straumsvik? „Það er ein bábiljan um fjármál Hafnarfjarðar þegar menn halda að bæjarsjóður njóti umframtekna vegna álversins. Beinar tekjur bæj- arsjóðs af álverinu em innan við eitt prósent af heildartekjunum. Raunskuldir hvers manns í Hafn- arfirði, þegar útistandandi kröfur eru dregnar frá, eru 780 milljónir króna eöa 48 þúsund §_.íivert mannsbarn. Skuldir hvers íslend- ings í útlöndum eru hins vegar ein milljón. Hafnarfjörður er fjárhags- lega stöndugt bæjarfélag." - Vegna ágreinings um byggingu háhýsis i Hafnarfirði lést þú hafa eftir þér að því óvinsælli sem mál væru því betri væru þau. Muntu beita sömu röksemdafærslu við ákvarðanatöku í heilbrigðisráðu- neytinu? „Þetta er mgl úr Fjarðarpóstin- um. Ég sagði að allur þorri Hafn- firðinga mundi fagna af heilum hug þegar húsið væri risið. Enda er það svo að þegar húsið var aðlagað ábendingum mótmælir varla nokk- ur maður. Mál geta verið óvinsæl til að byrja með en það þarf að ryðja málum braut og fylgi með kynn- ingu og umræðu. Það gildir um þetta mál og mun sjálfsagt gilda um mörg mál sem ég kem nálægt hér í ráðuneytinu.“ - Voru ekki sjónhverfingar í gangi varðandi lækkun hússins? „Það eru fullyrðingar út í bláinn. Fólk sem hefur skoðað þessi mál fyrir og eftir breytingar með hlut- lægum hætti er ekki í vafa. Þetta mál verður rós í hnappagat þeirra sem unnu að því. Allir vildu Lilju kveðið hafa þegar upp verður stað- iö.“ _________________________________ ' - Munt þú sækja alla bæjarstjórn- arfundi í ráðherraönnum þínum og þiggja laun fyrir? Ég ætla að sækja bæjarstjórn- arfundi og taka virkan þátt í starfi bæjarmálaflokksins í Hafnarfirði eftir þvi sem kostur er. Bæjarstjóm- arfundirerubaratoppurinnáísjak- . anum í því starfi sem fram fer í ; sveitarfélögum. Þrátt fyrir annir í | ráðuneytinumunégallavegamiöla ' af reynslu minni til þeirra félaga minnasemviðtaka." -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.