Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1993, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1993, Blaðsíða 46
58 LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1993 Afmæli Sveinn S. Pálmason Sveinn Skagfjörð Pálmason, fram- kvæmdastjóri verktakafyrirtækis- ins Stálbær hf., til heimilis að Lerki- hlið 13, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Sveinn fæddist á Reykjavöllum í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði og ólst upp í Skagafirðinum. Hann lærði jámsmíði hjá Björgvini Frede- riksen við Lindargötu í Reykjavík og starfaði síðan í tæp þrjátíu ár við Vélsmiðjuna Héðin hf., þar af í tutt- ugu ár við hönnun og sölu á stál- grindarhúsum. Fyrir tæpum fjórum árum stofn- setti Sveinn svo, ásamt nokkrum frændum sínum, verktakafyrirtæk- ið Stálbæ hf. og er nú framkvæmda- stjóri þess. Sveinn var formaður Starfs- mannafélags Héðins í tíu ár, for- maður eldri félaga Karlakórs Reykjavíkur í tólf ár, einn af stofn- endum Skagfirsku söngsveitarinnar í Reykjavík og starfaði um langt árabil í Skagfirðingafélaginu í Reykjavík. Fjölskylda Kona Sveins er Guðný Ásdís Hilm- arsdóttir, f. 4.5.1936, húsmóðir og læknaritari, dóttir Hilmars Jóns- sonar, b. í Tungu í Fljótum, og konu hans, Magneu Þorláksdóttur hús- freyju frá Gautlandi. Systkini Sveins: Herdís, f. 5.9.1922, húsmóðir á Sauðárkróki; Hólmfríð- ur, f. 11.11.1923, húsmóðir í Reykja- vík; Rósa, f. 26.9.1925, húsfreyja í Hraunum í Fljótum; Pétur, f. 19.8. 1930, b. á Reykjavöllum Foreldrar Sveins voru Pálmi Sig- urður Sveinsson, f. 13.12.1883, b. á Reykjavöllum, og kona hans, Guð- rún Andrésdóttir, f. 2.3.1889, hús- freyja. Ætt Pálmi var sonur Sveins, b. og hag- yrðings á Mælifellsá, Gunnarsson- ar, oddvita að Syðra-Vallholti, Gunnarssonar, hreppstjóra á Skíða- stöðum, bróður Þorvalds, afa Ragn- heiðar, langömmu Magnúsar, ráð- herra frá Mel. Þorvaidur var einnig afi Ingibjargar, móður Jóns, alþing- isforseta frá Akri, föður Pálma, al- þingismanns á Akri. Gunnar var sonur Gunnars, b. á Skíðastöðum, ættfoður Skíðastaðaættarinnar, Guðmundssonar. Móðir Pálma var Margrét Þórunn, hálfsystir Margrétar, ömmu Ehn- borgar Lárusdóttur rithöfundar. Hálfbróöir Margrétar Þórunnar var Sæmundur, langafi Jóhönnu, móð- ur Sighvats Björgvinssonar iðnað- ar- og viðskiptaráðherra. Annar hálfbróðir Margrétar var Magnús, snikkari í Reykjavík, faðir Ólafs, prófasts og stórb. í Amarbæli, afa Ásdísar Kvaran lögfræðings. Bróðir Ólafs er Jósef, faðir Guðmundar gjaldheimtustjóra en systir Ólafs, Anna, amma Gísla Alfreðssonar, skólastjóra Leiklistarskólans. Margrét var dóttir Áma, silfur- smiðs í Stokkhólma, Sigurðssonar. Guðrún, móðir afmælisbamsins, var dóttir Andrésar, b. á Reykjavöll- um, Bjömssonar, b. á Starrastöðum, Björnssonar, b. á Valabjörgum, bróður Andrésar á ÁlfgeirsvöUum, afa Konráðs, móðurafa Eyjólfs Konráðs Jónssonar alþingismanns. Andrés var einnig afl séra Jóns í Hvammi, föður Magnúsar, dósents og ráðherra, og Þóris Bergssonar rithöfundar. Björn var sonur Ólafs, b. í Valadal, ættföður Valadalsættar- innar eldri, Andréssonar. Móðir Bjöms í Valabjörgum var Björg, systir Ingiríðar, ömmu Erlends, langafa Orlygs og Steingríms Ust- málara, Sigurðssona. Bróðir Bjarg- ar var Guðmundur „ríki“ í Stórad- al, langafi Sigríðar, ömmu Matthías- ar Bjamasonar alþingismanns. Björg var dóttir Jóns, b. á Skeggs- stöðum, ættföður Skeggsstaðaætt- arinnar, Jónssonar. Móðir Bjöms á. Starrastöðum var Margrét yngri, systir Ólafs, föður Arngríms, prests og alþingismanns á Bægisá. Annar bróðir Margrétar yngri var Guð- mundur, langafi Jóhönnu, móður Tryggva Ófeigssonar útgerðar- manns, föður Páls Ásgeirs sendi- herra, föður Tryggva bankastjóra. Margrét var dóttir Bjöms, b. á Auð- ólfsstöðum, Guðmundssonar „Skagakóngs", ættföður Hafnarætt- arinnar eldri, Björnssonar. Móðir Andrésar á Reykjavöllum var Hall- dóra Jónsdóttir yngra, b. á Leifs- Sveinn Skagfjörð Pálmason. stöðum, bróður Björns Blöndal, sýslumanns í Hvammi, ættföður Blöndalsættarinnar. Móðir Guðrúnar Andrésdóttur var Guðrún, systir Jóhannesar Reykdal, afa Jóhannesar Reykdal, tæknistjóra DV. Guðrún var dóttir Jóhannesar, b. á Litlu-Laugum, Magnússonar. Til hamingju með afmælið 26. júní Suðurgötu97, Akranesi. HóhnfríðurÞ. Ingimarsdóttir, Fálkagötu 23 A, Reykjavík. Pétur Gauti Hermannsson, Holtsbúð42, Garðabæ. SigríðurÁrnadóttir, v Dvalarheimilinu Höfða,Akranesi. 75 QfB Óli Kristinn Jónsson. HjallaseU 55, Reykjavík. Marselía Kristjánsdóttir, áður lengst af á HjaUavegi 29, Reykjavík, en dvelurnúá Hrafnistuviö Kleppsveg, Reykjavik. Eiginmaður Marselíu var Sigurgeir Jó- hannssonen hann lést fyrir tuttugu árum. 80 ára Magnús Þorvaldsson, Teigagerði 8, Reykjavík. Alexander Stefánsson, Sólheimum 23, Reykjavík. Ragnheiður Magnúsdóttir, Bólstaðarhlíö 36, Reykjavík. Hansina Guðmundsdóttir, Björn Auðunn Blöndal, Melabraut l, Seltjarnarnesi. Svanhildur Vígfúsdóttir, Hæðargarði 56, Reykjavík. Svanhíldur verður að heiman. Þormóður Torfason, Þelamörk 7, Hveragerði. Sigríður Elíasdóttir, Þiljuvöllum 25, Neskaupstað. Helga Júlíusdóttir, Skjólbraut 11A, Kópavogi. Helga verður að heiman. Sigvaldi Pétursson, Arnarholti við Vesturlandsbraut, Reykjavík. Einar Gíslason, Lyngholtsvík við Suöurlandsbraut, Reykjavík. 60ára Erling Jóhannsson, Bröndukvisl 13, Reykjavik. Birna Baldursdóttir, Aratúni 23, Garðabæ. Lilja Bóthildur Alfreðsdóttir, Ferjubakka 2, Reykjavík. Gunndís Sigurðardóttir, Fagurgerði2, Selfossi. Inga Guðjónsdóttir, Minni-Borg, Miklaholtshreppi. Halldór Gunnarsson, Gilsfjarðarmúla, Reykhólahreppi. GuðmundurTómasson, Aragötu 10 A, Sauðárkróki. Kristín Jónsdóttir, Hraungerði II, SkaftárhreppL Jóhannes Kjarval, Grenimel 2, Reykjavík. 40 ára Guðbjörg Jónsdóttir, Frakkastíg 24, Reykjavík. Sigurður Pálsson, Steinahlíð 8 C, Akureyri. Steindór Gestsson, Kambahrauni 43, Hveragerði. Guðmundur Gíslason, Hjallalundi 20, Akureyri. Árni Þorsteinsson, Furugrund 66, Kópavogi. Þorbjörn Daníelsson, Þverbrekku 4, Kópavogi. Steinunn Njalsdottir Steinunn Njálsdóttir, leiðbeinandi, húsmóðir og löggiltur læknaritari, Bragavöllum 13, Keflavík, er fertug ídag. Starfsferill Steinunn fæddist í Vestri-Leirár- görðum í Leirársveit í Borgaríjarð- arsýslu og ólst þar upp. Hún lauk Samvinnuskólaprófi 1975, lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1983 og hefur sótt nám- skeið í tölvufræðum og uppbygg- ingu mannlegra samskipta. Fjölskylda Eiginmaður Steinunnar er Guðjón Sigurðsson, f. 14.9.1954, skrifstofu- stjóri hjá Landsbanka íslands í Keflavík, en hann er sonur Sigurðar Einarssonar, bifreiðastjóra og starfsmanns Essó í Keflavík, og Sigrúnar Guðjónsdóttur, húsmóður og gæslukonu á leikvelli. Sonur Steinunnar frá því áður er Hróðmar Ingi Sigurðsson, f. 21.12. 1970, vinnslustjóri á frystitogaran- um Höfrungi III frá Akureyri, sonur Sigurðar Inga Halldórssonar lög- fræóings. Börn Steinunnar og Guð- jóns eru Sigrún Dögg Guðjónsdóttir, f. 3.12.1979, nemi, og Bjartmar Steinn Guðjónsson, f. 9.6.1986, nemi. Systkini Steinunnar eru Klara Njálsdóttir, hjúkranarfræðingur í Reykjavík; Þórdís Njálsdóttir, kenn- Steinunn Njálsdóttir. ari við Heiðarskóla í Leirársveit; Ingibjörg Njálsdóttir, fóstra á Akra- nesi; Marteinn Njálsson, b. og húsa- smiður á Vestri-Leirárgörðum; Sveinbjöm Markús Njálsson, kenn- ari á Dalvík; Hjalti Njálsson, bifvéla- virki á Akranesi; Smári Njálsson, vélvirki á Akranesi; Kristín Njáls- dóttir, félagsráðgjafi í Reykjavík; Sæunn Njálsdóttir, uppeldisfræð- inguríSvíþjóð. Foreldrar Steinunnar: Njáll Mar- kússon, f. 18.12.1913, d. 15.12.1978, bóndi að Vestri-Leirárgörðum, og Fríða Þorsteinsdóttir, f. 26.8.1925, húsfrúogbóndi. Kristján L. Möller Kristján Lúðvík Möller, verslunar- stjóri og bæjarfulltrúi á Siglufirði, erfertugurídag. Starfsferill Kristján er fæddur á Siglufirði. Hann tók iðnskólapróf frá Iðnskóla Sigluíjarðar 1971 og íþróttakennara- próf frá íþróttakennaraskóla ís- lands. Auk þess sótti hann íþrótta- námskeið í Noregi, Svíþjóð og Dan- mörku árin 1977 til 1982. Kristján var Æskulýðs- og íþrótta- fulltrúi Siglufjarðarkaupstaðar 1971-74 og aftur 1978-88. Verkstjóri hjá Hitaveitu Sigluíjarðar 1975-76. íþróttakennari í Bolungarvík 1976-78 og stundakennari á Siglu- firði 1978-88. Hann hefur veriö bæj- arstjómarfulltrúi á Siglufirði frá 1986 og verslunarstjóri hjá Torginu hf. frá 1988. Kristján hefur unnið margvísleg störf fyrir Alþýðuflokkinn. Hann var stjómarformaður í Þormóði Ramma 1982-85. Hann hefur verið formaður veitusölunefndar Siglu- fjarðar frá 1991 og stjómarformaður í Síldarverksmiðju ríkisins frá 1986. Aukinheldur hefur Kristján átt sæti í fjölda nefnda og ráða á vegum bæjarstjórnar á Siglufirði. Þá hefur hann ritað fjölda greina í blöð og tímarit. Fjölskylda Kristján er kvæntur Oddnýju Her- vöra Jóhannsdóttur, f. 19.10.1956, verslunarmanni. Hún er dóttir Jó- hanns Kristjánssonar eggjabónda og Evaliu Sigurgeirsdóttur húsmóð- ur. Börn Kristjáns og Oddnýjar era Jóhann Georg, f. 22.3.1979; Almar Þór. f. 29.10.1983 og Elvar Ingi, f. 23.11.1988. Systkini Kristjáns era: Helga Kristín, f. 30.10.1942, d. 15.3.1992; Ingibjörg, f. 12.7.1944; Alda, f. 27.5. 1948, matvælafræðingur; Jóna, f. Kristján Lúðvik Möller. 24.6.1949, yfirkennari; Alma, f. 24.6. 1961, læknir. Krisfján er sonur Jóhanns Georgs Möllers, f.27.5.1918, verkstjóra, og Helenu Sigtryggsdóttur frá Ytri Haga á Árskógsströnd, húsmóður. Sigurjón Ólafsson Sigurjón Ólafsson vegaeftirlitsmað- ur, Heiðarvegi 2, Reyðarfirði, er sjö- tugurídag. Sigurjón fæddist á Reyðarfirði og ólst þar upp. Hann hefur starfað hjá Vegagerð ríkisins frá 1962. Þar var hann fyrst vélamaður, síðar verk- stjóri og loks eftirlitsmaður. Fjölskylda Sigurjón kvæntist 26.12.1948 Sig- ríði Eyjólfsdóttur, f. 28.12.1924, verkamanni. Hún er dóttir Eyjólfs Jónssonar og Þórstínu Eyjólfsdóttur en þau era bæði látin. Börn Sigurjóns og Sigríðar eru Rúnar Viðar, f. 19.6.1949, hafnar- vörður á Reyðarfirði, kvæntur Jór- unni Sigurbjömsdóttur kennara og eiga þau þrjú böm; Hilmar Smári, f. 9.11.1951, kennari á Reyðarfirði, kvæntur Halldóru Baldursdóttur kennara og eiga þau þijú böm; Ey- gló Kristín, f. 1.9.1953, bankamaður á Reyðarfirði og á hún eina dóttur; Þórstína Hlín, f. 27.6.1964, verka- maður á Reyðarfirði, gift Jóni Sigurjón Ólafsson. Gunnarssyni, starfsmanni hjá Reyðarflarðarhreppi, og eiga þau þrjásyni. Foreldrar Sigurjóns vora Óh Sig- urður Bjamason, f. 1896, d. 1939, sjó- maður á Reyðarfirði, og Kristín Hólmfríður Nikulásdóttir, f. 1896, d. 1981, húsmóðir. Sigurjón verður að heiman á af- mælisdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.