Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1993, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 26. JÚXÍ 1993
13
Kraftaskáld í myndlist:
Ef lífið
er saltíiskur
þá er ísland
grásleppa
Kristján Einarssaii, DV, Selfossi;
Þegar erlendur listamaður, sem
helgar sig algerlega list sinni, flyst í
lítiö þorp eins og Stokkseyri vekur
það athygli. Hvað er þessi maður að
vilja og hvað er hann að gera? spyr
fólkið. Lástamaðurinn Willem Labey
svarar þessum spumingum með því
að bjóöa fólki að skoða verk sín í
Gimli, félagsheimili Stokkseyringa.
Fréttamaður DV brá sér eitt kvöldið
niður að strönd og heimsótti Willem
og konu hans, Magdalenu Labey.
ísland er
mínvinnustofa
Maður er ekki búinn að vera lengi
í nærveru listamannsins þegar mað-
ur skynjar kraftinn og áhugann sem
býr í manninum.
„Ég er vanur að vera rúmlega eitt
ár í hveiju landi til að kynnast því
og mála það sem fyrir augu ber. Á
íslandi hef ég verið frá því árið 1990
og hef ekki fengið nóg,“ sagði Wiilem
sem sat við eldhúsborðið í litlu og
vinalegu íbúðarhúsi sem stendur rétt
við sjóinn.
„Landið er mín vinnustofa. Ég kem
frá Hollandi, fluttist fyrst til Stykkis-
hólms vegna þess að konan mín fékk
vinnu þar. Þaðan lá leiðin til Siglu-
fjarðar, síðan á Selfoss og nú erum
við hér á Stokkseyri. Mt bæir sem
hafa upphafsstafinn S. Ástæðan fyrir
því að við komum hingað til lands
var sú að ég kynntist íslendingi á Jan
van Eyck akademíunni, hann vakti
áhuga okkar á íslandi og hér erum
við komin.“
í listaskóla
í Rotterdam
Hvað er svo Willem að fást við og
hver er maðurinn?
„Þegar ég var ungur drengur í
Hollandi stóð hugur minn til þess að
verða listmálari. Foreldrar mínir
voru þessu ekki meðmæltir og
hvöttu mig til þess að leggja stund á
eitthvað annað sem þeir töldu hag-
nýtara. Ég fór í stýrimannaskóla til
að læra að stýra kaupskipi. Fimm
ár var ég á sjónum en þá fór ég í land
og settist á skólabekk í lista9kóla.
Tæplega þijú ár var ég í listaskóla í
Rotterdam, fór þá til Frakklands og
var þar í átta mánuði en innritaðist
síðan í svokölluðu Hagnýtu hstaaka-
demíuna í Eindhoven. Þaðan lá leiðin
í Jan van Eyck Akademie í Maas-
tricht þar sem ég lagði áherslu á olíu-
og vatnslitamálun. Þetta er af mér
að segja í stórum dráttum hvað varð-
ar mín upphafsár í listinni," sagði
Willem og bauö blaðamanni að skoða
vinnustofu sína sem stendur við sjó-
vamargarðinn í gömlu veiðarfæra-
húsi sem Óskar heitinn „ríki“ átti.
Olía, blek,
mosi ogbless-band
í vinnustofunni, sem snýr gluggum
að sjónum, er margt að sjá. Mynda-
skissur eru um allt og penslar og
önnur áhöld sem listamaðurinn not-
Hér er allsérstæður kontrabassi,
gerður úr fiskkassa, spýtu og girni.
Á hann eru spiluð sérstök lög til-
einkuð Iffinu við og í sjónum. Willem
hefur mikinn áhuga á tónlist.
ar eru allsráðandi á borðum.
„Hann er hér öllum stundum,"
sagði Magdalena, eiginkona Willems,
sem kom með í vinnustofuna.
Magdalena er sjúkranuddari og
vinnur á Selfossi.
„Myndimar sem ég er að sýna í
Gimli era allar unnar hér á Stokks-
eyri,“ sagði Wfllem. „Þar er einnig
sýnt myndband sem ég tók af náttúr-
unni sem ég er að mála. Það auöveld-
ar fólki að skilja myndimar."
Undir þetta tekur blaðamaður
heilshugar; þetta framtak er mjög
athyglisvert. Það fer ekki fram hjá
neinum sem kynnist Willem Labey
að hann er um margt ákaflega flöl-
hæfur og sérstakur listamaður.
Hann hefur mikinn áhuga á náttúru
og gróðurfari, sérstaklega mosa. í
vinnustofunni er mikið saín af mosa-
sýnum sem Willem hefur tekið á
ferðum sínum um heiminn. Þessi
sýni skoðar hann í smásjá og festir
athugasemdir sínar á blað.
í vinnustofunni er einnig að fmna
nokkur nyög svo sérstæð hljóðfæri.
Stór kontrabassi stendur á gólfinu,
gerður úr fiskkassa, spýtu og grófu
gimi. Mörg minni híjóðfæri svipaðr-
ar gerðar em einnig á víð og dreif
um vinnustofúna.
„Ég er að leika mér að því að semja
óð til grásleppunnar," sagði hstmað-
urinn og glotti út í annað. „Ég kalla
eins manns hljómsveitina, Icelandic
bless-band. Ef lífið er saltfiskur þá
er ísland grásleppa."
Grásleppa á 100-kall
„Ég má tíl með að segja þér frá því
þegar ég komst í kynni við gráslepp-
una. Lítill strákur hér á Stokkseyri
kom til mín einn daginn og vildi selja
mér furðulegan fisk sem hann kall-
aði grásleppu. Mér leist ekki á fisk-
inn í fýrstu en skoðaði hann þó hjá
stráknum. Svo fór að ég keypti einn
fisk sem ég skoðaði mjög vel. Grá-
sleppa er stórkostlegur fiskur, ís-
lenskt landslag er mótað í útiiti hans;
fjöll og dahr, snjór og sjór. Mt sem
stórbrotin náttúra landsins býður
upp á er að finna í úthti grásleppunn-
ar. Þessar vangaveltur mínar er m.a.
að fmna á sýningunni í Girnh," segir
Wihem sem skoðar hlutina frá
óvenjulegu sjónarhomi og skemmti-
legu.
ísland er
stórkostlegtland
„Víðáttan hér er stórkostleg; að
maður skuh geta séð Heklu og Vest-
mannaeyjar samtímis þótt langt sé á
milli er ólýsanlegt. Ég get ekki skýrt
það svo vel fari hvað ég sé og skynja
í náttúrunni hér á landi, ég reyni þó
að koma því á framfæri í ohu og
bleki. Fjölhn, fossamir, steinninn og
mosinn, þetta er aht öðravísi en ég
á að venjast frá Hohandi. Fólkið er
líka þægfiegt hér á landi, ekki árásar-
gjamt eins og sums staðar annars
staðar í heiminum. Það er ekki allt
stórkostlegt í jákvæðri merkingu hér
á landi þótt náttúran sé það í sínum
mikiheik. Verðlag hér er aht of hátt,
það er t.d. mjög dýrt að kaupa í mat-
inn. íslendingar munu eiga í erfið-
leikum með að laða til sín ferðamenn
til að skoða þetta faUega land á með-
an verð á mat er svona hátt,“ sagði
Willem og kona hans kinkaði kolh
sem merki um samþykki.
Sýningin á Stokkseyri
WUlem Labey hefur sýnt verk sín
víða, t.d. i Hohandi svo og nokkrum
öðrum þjóðlöndum. Á íslandi hafa
verk hans verið sýnd í þeim bæjum
sem hann og kona hans hafa búið í
- fyrir utan Reykjavík og Hafnar-
fjörð. Sýningin í Gimli verður opin í
dag, laugardag, og á morgun, simnu-
dag, frá kl. 14.00 tU 18.00. í sýningar-
skrá skrifar Aðalsteinn Ingólfsson
m.a:
„Labey grandskoðar sjávarklappir
við ólíkar aðstæður, færir þær tíl
vasakompu sinnar, brýtur útht
þeirra og innviði síðan tU mergjar í
hverri teikningunni á fætur annarri
uns þær fara að lifa sjálfstæðu lifi í
myndum hans.“ Á öðrum stað í
skránni standa þessi lokaorð: „í Wih-
em Labey hafa Stokkseyringar eign-
ast kraftaskáld í myndhst."
Hér standa þau hjón saman vlð sjóvarnargarðinn á Stokkseyri. Willem og
Magdalena Labev. DV-myndir K.E.
Off við brosum íuinfci'ðinní
Arc 591 MW/FM sterió hljómgæöi, útvarp og segulband
(sama tæki. Magnari 2x7 wött. Sjálfvirkur stoppari á snældu.
■; ARC 754 MW/FM sterió W|IM|
i H útvarp meö segulbandi,
i mllm sjálfvirkur stoppari á snældu. Bassa og hátóna
stilling. Magnari er 2x10 wött. Stafrænn gluggi sem sýnir bylgjulengd og fleiri
upplýsingar. Tengi aö framan fyrir CD geislaspilara.
!■/Bnríf'rctiLiM ARC801 MW/FMsterió
WlfmBjjmUrSmmmSfWW hágæöa útvarp meö
BitfílilMmMmillMlMMlilámM segulbandi. Sjálfvirkur leitari á bylgju
og „skanner,, sem finnur allar rásirnar og spilar brot af hverri þeirra - Stafrænn
gluggi er sýnir bæöi bylgjulengd og klukku. Möguleiki á 4 hátölurum.
Tengi fyrir CD geislaspilara.
ÍMl r llv fl'i i .T/TJMÍ arc 350 MW/FM sterió
WfEjBímmmmmjflfW útvarp og segulband. Sjálfvirkur
■ÍKMiillÉiiÉMikiCáÉltÉlÉtifll leitari og „skanner,, Magnari 2x25 wött.
Frábær hljómgæöi. Sfspilun. Tenging fyrir CD geislaspilara.
ARQ 707 Alvöru tæki
MW/FM sterió útvarp og
segulband. Kraftmikiö 4x25
/upefleih
Tækiö er i sleöa og hægt er
ÞJOFAVORN
Tækiö er i sleöa og hægt er
aö taka þaö méö ser
þegar bifreiöin er yfirgefin.
wött. Upplýstur stafrænn gluggi sem sýnir allar aögeröir. Allar aögerðir
framkvæmdar meö snerti-tökkum. Tenging fyrir CD geislaspilara.Sfspilun.
Viö bjóðum þér í heimsókn í Scetún 8,
þar getur þú hlustað ísérútbúnu hátalaraberbergi
og notið þess besta sem völ eráí dag.
öóðfljk*^; © .
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 ■ SÍMI 69 15 00