Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1993, Side 12
12
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ1993
Spumingin
Syngurðu í baði?
Jóhanna Svavarsdóttir: Já, ég syng
í baði, oftast Rokklingalög.
Ingólfur Guðmundsson: Nei, ég hef
nóg annað aö gera.
Ámundi ívarsson Björklund: Já,
bítlalögin, maður hefur svo sem ekk-
ert annað að gera.
Guðlaug Sigurðardóttir: Nei, yfirleitt
syng ég ekki. En kannski maður
prófi.
Magnús Þór Þorbergsson: Já, stund-
um. En bara þegar ég er einn heima.
Eyrún Sigurðardóttir: Nei, en ég
hlusta á útvarp.
Lesendur________
Með kveðju
frá Gregory
Gregory segir að aldrei hafi verið verra að reka fiskverkun en þegar geng-
ið hafi verið fellt.
Gregory skrifar:
Sl. miövikudag, 30. júní, skrifar
Dagfari grein undir fyrirsögninni
„Rétt gengi var rangt gengi“. Niður-
stöður hans um hver græði á gengis-
falli krónunnar eru mjög hæpnar.
Skýring mín er sú að ríkissjóður
græði mest á gengisfellingunni því
hann byijar strax að taka tolla og
aðflutningsgjöld af hærri upphæð-
um, og síðan VSK ofan á smásölu-
verð þar sem margfeldisáhrif hafa
virkað rækilega. Er því von að
skattamálaráðherrann, Friðrik Sop-
husson, sé ánægður þar sem slík
gengisbreyting bjargar honum með
að jafna óhóflega eyðslu þeirra félaga
í ríkisstjóminni. Ekki hefur verið
gefið út neitt um hliðarráðstafanir
gengisfalisins, svo sem um gengis-
munahagnað af birgðum, en frá
stofnun Seðlabankans hafa pólitík-
usar notað gengisfellingu til að
greiða eyðslu fram yfir getu.
Framkvæmd gengisfellingar hefir
alltaf verið sóðalegur stórþjófnaður,
ef til vill löglegur en siðlaus með öllu
vegna þess að við dagsetningu geng-
isfellingar voru útflutningsfyrirtæk-
in skylduð til að afreikna til framleið-
enda birgðir ógreiddar með gömlu
gengi, en mismun skyldi skilað á
gengismunarreikning í Seðlabanka
Islands til ráðstöfunar, sem síðan var
úthlutað með pólitískum brellibrögð-
um og oft til fyrirtækja sem ekkert
höföu lagt til af verðmætum í þennan
sjóð.
í hvert sinn sem pólitíkusar þurftu
að fella gengi til að hirða gengishggn-
að og meiri tekjur af tollum o.s.frv.,
áttu t.d. frystihús 3-4 mánaða birgðir
óafskipað á lager heima og oft þriggia
mánaða framleiðslu afskipaða í Am-
eríku en óselt og ógreitt. Var því al-
gengt að fiskverkandi fengi ekki
greitt nýtt verð afurða fyrr en hálfu
ári eftir gengisfellingardag, en dag-
inn eftir Vcir hann strax krafinn um
allan kostnað umbúða og kaupið og
fiskverðið var fljótt að hækka strax
eftir gengisfall. Sá sem þetta ritar er
mjög kunnugur rekstri fiskvinnslu
og getur fullyrt að aldrei er verra að
reka fiskverkun en þegar gengið er
fellt og gengishagnaður birgða hirtur
af réttum eigendum og notaður til
pólitískra aðgerða.
Clinton klikkar
Ólafur Reynir GuðmundsSon skrifar:
Eftir að demókratar dönsuðu inn í
húsið hvíta stigu íslenskir vinstri-
menn, eins og Ólafur Ragnar Gríms-
son, sigurdans. Þeir sögðu frjáls-
hyggjuna útbrunna, að frjálshyggjan
hefði vikið fyrir hugsjónum vinstri-
manna. Nú skyldi sigurdans velsæld-
annnar stiginn.
í kosningabaráttunni síðasta sum-
ar hafði Clinton deilt á stefnu George
Bush en haustið 1992 kom í ljós að
hagvöxtur fór vaxandi og við það
veiktust rök Clintons. Hins vegar
hefur efnahagslægð einkennt fyrsta
ársfjórðung þessa árs og efnhagstil-
lögur Clintons hafa fallið í grýttan
jarðveg.
Loforö Clintons um að einbeita sér
að innaniandsmálum var umdeilt.
Forsetinn gaf þar í skyn að hann
myndi lítinn gaum gefa erlendum
málefnum. Hins vegar hafa erlend
mál tekið mestan tíma hans hingað
til og t.d. bólar enn ekkert á tillögum
um breytingar á heilbrigðiskerfinu.
Annað loforð Clintons var að leyfa
inngöngu samkynhneigðra í herinn.
Og nú er svo komið að þessi málefni
viröast í upplausn þar. Hershöfðingj-
ar, eins og C. Poweli, eru á móti
ákvörðun forsetans, þeir hræðast
ósætti sem mögulega mun verða. Og
her ekki sá vettvangur þar sem deil-
ur og upplausn eiga að herja.
Eitt er þó hvað undarlegast. Clin-
ton, sem komst hjá herskyldu á sín-
um tíma, getur nú sjálfur sent unga
menn á vígvelli. Það er því engin
furða þótt hermenn, sérstakleg fyrr-
verandi, séu ekki dyggustu stuðn-
ingsmenn forsetans.
Flestir sjá nú hver staðan er. Fyrra
dómsmálaráðherraefni stjórnarinn-
ar þurfti að draga sig til baka, núver-
andi ráðherra riðaði næstum til falls
á dögunum og nú síðast dró Clinton
umdeilda tilnefningu sína í dóms-
máiaráðuneytið til baka. Og repú-
blikanir sigruðu nú síðast í öldunga-
deildarkosningum í Texas með K.B.
Hutchinson sem var áfail fyrir Clin-
ton. Frumvarp Clintons um atvinnu-
leysisúrbætur var fellt og Clinton er
nú vantreyst, ekki síst af demókröt-
um. Framganga Clintons í málefnum
Júgóslavíu hefur ennfremur verið
máttlaus og W. Christopher utanrík-
isráðherra hefur ekki haft sömu tök
á verkefnum sínum eins og forveri
hans, J. Baker.
Níðingsverk unnið
Sigríður skrifar:
Mikið ódæði frömdu skipveijar á
Guðnýju ÍS frá Bolungarvík með þvi
að hengja ísbjörn sem var á sundi
rétt við skip þeirra.
Þeir segja (sér til málsbóta) að
skepnan hafi verið aðframkomin á
sundinu en það er mjög ólíklegt því
ísbimir eru miklar sundskepnur og
geta synt í marga daga samfleytt.
Engin vitni voru að ásigkomulagi
skepnunnar nema þeir einir. Það
Hringið í síma
632700
milli kl. 14 og 16
- cða skrifið
ATH.: Nafn og símanr. verður
að fylgja bréfum
Bréfritari segir að skipverjar á
Guðnýju ÍS frá Bolungarvík hafi
framið mikið ódæði með því að
hengja ísbjörn sem var á sundi rétt
við skip þeirra.
heföi ekki verið eins ómannúðlegt
að skjóta skepnuna í hausinn, en
mannúðlegra og öllum um borð til
sóma að leyfa skepnunni að ná landi.
Þar hefði hann (vonandi) fengið
mannúðlega meðhöndlun.
Að hengja slíkan stórgrip sem ís-
bjöm er ekkert annað en níðingsverk
og engum til sóma sem að því stóð
og hefur verið mjög kvalafuOt fyrir
skepnuna. Mér datt helst í hug að
óviti væri að tala þegar yfirmaður
skipsins líkti drápinu við hengingar
á mönnum í villta vestrinu í kúreka-
myndum. Ætli skipveijar hengi
hesta sína þegar á að lóga þeim, ef
þeir em hestamenn?
Ég vona að tekið verði fram fyrir
hendumar á skipverjum og komið í
veg fyrir að þeim verði greitt fyrir
ódæðið. Þeir hafa ef til vill verið að
vemda feldinn með því að skjóta
ekki skepnuna í hagnaðarvon, ljótt
ef satt væri.
Sími pantaður
Regína Thoiarensen skriíar:
í fyrrasumar báðum við hjónin
um síma í sumarbústaðinn okkar
á Gjögri. Þorbjörg stöðvarstjóri á
Hólmavík tók því mjög vel en
sagði jafnframt að það gæti oröiö
nokkur biö á því vegna þess að
styrkja þyrfti iínuna vegna of
mikiis álags.
Synir okkar sendu okkur sinn
símann hvor vegna þessa því nú
tíðkast víst ekM lengur að maöur
fái símtól með tengingunni.
Þessi saga minnir mig á bónda
austur í Landeyjum fyrir áratug
síðan þegar hann kom til Reykja-
víkur í fyrsta skiptið. Hann var
svo heillaður að sjá alla ljósa-
dýröina í Reykjavík að hann
keypti sér ljósakrónu og fjórar
perur. Hann fór meö ljósakrón-
una heim til sín og hengdi upp i
loftið en ekkert ijós kom.
Hann fór því öskureiður aftur
suður, þangað sem hann keypti
ljósakrónuna, og sagði að það
kæmi ekkert ljós. Þá fór kaup-
maðurinn að spyrja hver heföi
iagt rafmagnið til hans og sagði
þá maðurinn að aldrei hefói kom-
ið rafmagn í sitt hús.
Áfyllingindýr
Hulda hringdi:
Mig langar til að koma hér með
smáábendingu til eigenda Macin-
tosh-tölva. Ég þurfti aö kaupa áfyll-
ingu fyrir Style Writer prentara og
hélt að það yröi ekki mikið mál en
raunin varð önnur þvi að smá-
stykki kostaði mig 2.200 krónur.
Mér finnst það skjóta skökku
við þegar verið er að selja ódýrar
vörur að allir varahlutir eru seld-
ir á háu verði.
Einkennilegir
kantsteinar
Seltjarnarnesbúi hringdi:
Fyrir stuttu var ég á ferð með
barnavagn eftir Noröurströnd-
inni. Það er í sjálfu sér ekki í frá-
sögur færandi ef ferð min heföi
ekki verið heldur brösótt vegna
þess að þegar ég fór yfir hliðar-
götur lenti ég alltaf í erfiðleikum
meö barnavagninn öðrum megin
götunnar þar sem kantsteinninn
var svo hár og ekki hafði veriö
gert ráð fyrir umferð fólks í hj óla-
stólum, með bamavagna eða
kerrar, eða reiöhjóla.
Mér fannst þetta vægast sagt
stórfurðulegt þar sem ég lenti i
þessu hvaö eftir annað, ekki bara
viö eina götu.
Breyttveðurkort
íslendingur hringdi:
Óttalega leiðast mér þessar
breytingar á veðurfréttunum og
kortunum. Gömiu kortin voru
miklu betri. Allavega urbu veður-
fræöingarnir ekki svona álappa-
iegir. Það voru líka mikil mistök
af Sjónvarpinu að slita í sundur
fréttimar og veöurft-éttimar.
Fólk vill fa þetta í einum pakka,
ekki sitt í hvoru lagi.
Breytingamar em fárániegar.
Það er ekki nóg að breyta breyt-
inganna vegna.
Engangolfvöll
íbúi í Fossvogi hringdi:
Ég tei fyrirætlanir um golfvöll
í Fossvogsdal vera alveg út í hött.
Dalurinn er skemmtilegt útivist-
arsvæði og margt er hægt að gera
til að lífga upp á hann án þess
endilega að fara að pútta þar nið-
ur golfVelli.
Fyrst og fremst þarf aö gróður-
setja þar tré og mynda gróðurvin
meö miklum og fallegum gróöri.
Einnig mætti ieggja fleiri göngu-
stíga og koma upp almennu úti-
vistarsvæði með bekkjum. Nauð-
synlegt er að lagfæra og betmm-
bæta brýr sem em í dalnum,
Hvemig væri aö leita álits hjá
íbúum Fossvogsdalsins um nýt-
ingu dalsms?