Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1993, Síða 29
MÁNUDAGUR 5. JÚLl 1993
41
Sviðsljós
Það var Páll Stefánsson auglýsingastjóri sem kynnti hópnum sögu DV og
útskýrði markaðsstefnu fyrirtækisins. DV-myndir RaSi
Stokkið út í sjó
Hafnardagur var haldinn í Reykjavík á laugardag. Það var margt athyglis-
vert í boði en óhætt að segja að Árni Kópsson hafi hlotið mestu athyglina
þegar hann gerði „heiðarlega tilraun" til að stökkva frá bryggju Samskipa
við Holtaveg yfir i Grafarvog. Bilinn dreif ekki aila leið, svo þeir enduðu
báðir í sjónum, bílstjóri og bíll. Árni var fljótur upp úr en bílinn fór alveg
niðurábotn. DV-myndHMR
Eistlendingar
kynna sér DV
Ríkisstjóm Islands hefur asamt
öðrum vestrænum ríkjum heitið
Eystrasaltsþjóðunum stuðningi til að
koma efnahag sínum á réttan kjöl
eftir að þessar þjóðir hlutu sjálf-
stæði. íslendingar hafa talið betra að
bjóða fólki hingað til náms og þjálf-
unar frekar en að senda út peninga
sem ekki er vitað í hvað fara.
Á síðasta ári komu hingað til lands
12 Litháar á vegum ríkisstjórnarinn-
ar, bæði til að sitja námskeið hjá
Stjórnunarfélaginu og til að kynna
sér rekstur og stöðu íslenskra fyrir-
tækja. í ár er röðin komin að Eist-
lendingum. Hér á landi er staddur
12 manna hópur háskólafólks sem
situr nú námskeið hjá Stjórnunarfé-
laginu. Auk þess koma þau til með-
að heimsækja um 20 íslensk fyrir-
tæki á ýmsum sviðum viðskiptalífs-
ins. Síðan mun hvert og eitt fara í
fyrirtæki að eigin ósk og fá að fylgj-
ast með starfseminni.
Fyrsta fyrirtækið sem þessi hópur
heimsótti var DV. Það voru þau Páll
Stefánsson auglýsingastjóri og Sig-
ríður Sigurðardóttir auglýsingafull-
trúi sem tóku á móti þeim. Eftir að
hafa horft á kynningarmyndband og
hlýtt á stuttan fyrirlestur, fóru þau
í skoðunarferð um fyrirtækið og
kynntust þeirri tækni sem fylgir
vinnslu á dagblaöi.
Áætlað er að halda þessu staríi
áfram á næsta ári. Þá verða það Lett-
ar sem sækja okkur íslendinga heim.
HMR
Eistlendingarnir voru sérstaklega áhugasamir um það hvernig DV hefur
nýtt sér töivutæknina við vinnslu blaðsins.
Veiðivon
Theódór Hansson með 30. laxinn úr Korpu í gærkvöldi á maðk en stærsti laxinn var 8 pund og veiddi Grímur
Jónsson fiskinn. DV-mynd G.Bender
Korpa:
Þrítugasti laxinn
veiddist í gærkveldi
„Það er töluvert af.fiski en þeir eru
tregir að taka hjá okkur,“ sagði The-
ódór Hansson við Korpu í gær-
kvöldi, en hann veiddi 30. laxinn í
Korpu á þessu sumri seinni partinn
í gær í Fossinum. Fiskurinn tók
maðk og var 3,5 pund.
Það eru Fossinn, Berghylur og Pall-
urinn sem hafa gefið best. Flestir
hafa laxarnir veiðst á maðk en rauð
franses og collie dog hafa gefið á
flugu.
Það er stórstraumur í dag svo lax-
inn ætti að hellast inn þessa dagana
ef hann kemur yfirhöfuð. Það virðist
hann gera í einhverjum mæli.
Veiddu 40 laxa
á tveimur dögum í Ásunum
„Við fengum 40 laxa á tveimur dög-
um og við lentum í göngu, það eru
komnir 110 laxar úr Laxá á Ásum,“
sagöi Jón Þ. Jónsson en hann var að
koma úr Laxá á Ásum með þeim
Sverri Kristinssyni og Jóni Arnars-
syni.
„Það var þónokkuð af laxi að ganga
í ána, mest voru það smálaxar en
einn og einn vænn lax með,“ sagði
Jón sem ætlaði beint í Selá í Vopna-
firði.
Hofsá hefur gefið
yfir hundrað laxa
„Á þessari stundu hefur Hofsá gef-
ið 104 laxa og er sá stærsti 18 pund,“
Pétur Jónsson með 17 punda hrygnu
í Straumunum í Borgarfirði fyrir
fáum dögum. DV-mynd M
sagði Garðar H. Svavarsson í Vopna-
firði í gærkvöldi er við spurðum
frétta af svæðinu.
„Það eru rífandi göngur í Hofsá og
Selá þessa dagana og veiðin í Hofsá
er miklu betri veiði en á sama tíma
í fyrra. Það er veitt á sex stangir í
Hofsá en fjórar í Selá. Selá hefur gef-
ið 43 laxa og hann er 17,5 punda sá
stærsti. Selá í vatnsmikil og mórauð
þessa dagana. Vesturdalsáin verður
opnuð í fyrramálið," sagði Garðar í
gærkvöldi.
Fyrsti laxinn
kominn á land í Krossá
„Við fengum einn 4 punda grá-
lúsugan lax á maök og svo silunga
líka, ég held að næstu veiðimenn eigi
eftir að veiða vel,“ sagði Ragnar
Karlsson en hann var að koma af
bökkum Krossár á Skarðsströnd.
„Þetta var fyrsti laxinn úr ánni en
mikið vatn er þessa dagana í Krossá.
Fiskurinn veiddist í Klapparfljótinu.
Það kom mér á óvart hvað það eru
margir skemmtilegir staðir í ánni. í
Efri- og Neðri-Fossi á eftir að veiöast
vel í sumar svo einhverjir staðir séu
nefndir,“ sagði Ragnar ennfremur.
Rangárnar hafa gefið 7 laxa
„Veiðimenn voru við ósinn á
Hvolsá og veiddu tvo laxa á stuttum
tíma í kvöld og misstu tvo, ég held
að þetta sé allt að koma,“ sagði Þröst-
ur Elliðasson við Rangárnar í gær-
kvöldi.
„Það hafa veiðst 7 laxar og silungs-
veiðin hefur veriö mjög góð. Það
veiddust á svæði þrjú 10 og 8 punda
urriðar fyrir fáum dögum," sagöi
Þröstur í lokin.
-G.Bender
Tilkyimingar
Ný ijóðabók
Út er komin ljóðabók eftir Ólaf Tryggva-
son lækni. I bókinni, sem ber heitið
„Ljóð“, eru 35 frumort ljóð og tvær ljóða-
þýðingar úr þýsku. Ljóðin eru samin á
árunum 1956-1993. Höfundur bókarinnar
fæddist 11. október 1913 á Víðivöllum
fremri í Fljótsdal. Hann nam læknisfræði
við Háskóla íslands og stundaði sémám
í húðsjúkdómum í Svíöþjóð árið 1945-47.
Aö námi loknu rak hann eigin lækna-
stofu í Reykjavík allt þar til hann lét af
störfum i árslok 1990. Hann lést 20. júní
sl. Bókin er prentuð í Steinholti hf. Hún
er 95 síður, bundin í vandað harðband
með kápu. Útgefandi er Steinholt hf.,
Reykjavik. Bókin er til sölu í helstu bóka-
verslunum í miðbæ Reykjavíkur, Kringl-
unni og versluninni Úlfarsfelli við Haga-
mel.
Nýr sendiherra Bretlands
á Islandi
Nýskipaður sendiherra Bretlands á fs-
landi er Michael Hone. Hann hefur verið
starfandi landstjóri á St. Helenu, eyju
undir breskri stjóm í sunnanverðu Atl-
antshafl, sl. þrjú ár. Aðalmarkmið sitt
sem sendiherra Bretadrottningar á ís-
landi telur Michael Hone vera að við-
halda nánum og aldagömlum tengslum
Bretlands og íslands.
Fundir
Aglow, kristilegt
félag kvenna
Júlífundurinn verður haldinn í kvöld, 5.
júlí kl. 20, í safnaðarsal Áskirkju. Ræðu-
kona kvöldsins er Mirjam Óskarsdóttir.
Allar konur em velkomnar.
Vinafélagið
Aðalfimdur kl. 20 stundvíslega í kvöld,
5. júli, í safnaðarheimili Bústaðakirkju.
Allt í veiðiferðina
ÞORISVATN OG ODDASTAÐAVATN
GOÐ VEIÐI
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751