Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1993, Page 2
2
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
Fréttir_______________________________________
Ólga meðal Bolvíkinga:
Tvö fyrirtæki gera
tilboð í eignir EG
- frestur til að skila inn tilboðum í frystihús og rækjuverksmiðju rennur út á mánudag
Búist er viö aö tvö fyrirtæki, Ósvör
hf. í eigu Bolungarvíkurbæjar og
rækjufyrirtækið Þuríöur í Bolungar-
vík, geri tilboö í eigur Fiskveiðasjóðs
íslands í Bolungarvík áður en frestur
til að senda inn tilboð rennur út á
mánudag.
Fiskveiðasjóður leysti til sín frysti-
hús og rækjuverksmiðju sem voru í
eigu þrotabús útgerðarfyrirtækisins
Einars Guðfmnssonar hf. fyrir
Biskup íslands:
Skuldir há
safnaðarstarfi
„Þessar skuldir eru náttúrlega
óskaplega slæmur hlutur og þaö
hefur alltaf verið keppikeflið aö
fá þessum skuldum dreift meö
þægilegum hætti yfir lengri tíma
en aðeins tekur að koma kirkj-
unni upp og svo hefur sami hópur
veriö að berjast viö skuldimar,“
segir herra Ólafur Skúlason,
biskup íslands, urn frétt blaösins
i gær um að heildarskuldir kirkn-
anna í Reykjavíkurprófastsdæmi
væru 225 milljónir króna.
„Þetta hefur verið mjög erfitt
því að kirRjan hefur verið í fjár-
hagslegu svelti. Háar skuJdir
koma niður á starfi þeirra safn-
aða sem skulda mest þegar næst-
um því hver einasta króna, sem
kemur inn í sóknargjöldum, fer i
það aö borga skuldir eða byggja
nýtt hús. Það er alveg ljóst. Það
sjá það allir að söfnuðirnir rísa
ekki undir þeim væntingum sem
eru tengdar nýjum kirkium og
safiiaðarheimUum,'‘ segir bískup.
„Við höfum átt í viðræðum að
undaníomu viö banka og spari-
sjóði um skuldbreytingar lána og
ég vona aö okkur takist þaö. Það
er verið að vinna í þvi núna og
verður líklega greint frá því á
kirkjuþinginu i haust,“ segir
hann. -GHS
Norðurá
bláaflaxi
„Það var holi að hætta á hádegi
í dag og þáð veiddl 125 laxa, samt
voru ekki allar stangirnar í gangi.
Þetta var meiri háttar veiði. Eg
var við Stekkinn í morgun og áin
var blá af fiski á stóru svæði ár-
innar. Núna eru komnir 700 laxar
á Iand,“ sagði Halldór Nikulás-
son, veiðivörður í Norðtirá.
Þessir 700 laxar tryggja Norö-
urá örugglega fyrsta sætið en svo
kemur Þverá i Borgarfirði.
-G. Bender
Mýrdalssandur
lokaðist
Lögreglan í Vík lokaði Mýr-
dalssandi um hádegisbiiiö i gær
í þrjá til fióra tima
Nokkrar tafir urðu á umferð
fyrir vikið og myndaðist röð bfla
sem beið þess að sandrokinu
linnti. Einhverjir höfðu þó ekki
þolinmæði til þess og fóru yfir
þrátt fyrir ábendingar lögreglu
og voru bflar þeirra sandblásnir
fyrirvikið. -pp
nokkru eftir aö tilboöi Ósvarar hf. í
eignirnar var hafnað. Samkvæmt
heimildum DV er talsverð ólga í Bol-
ungarvík út af þessu máh.
„Ég hefði auövitað kosiö að það
heíði aðeins eitt tilboð borist frá Bol-
ungarvík en ég vona bara að Bolvík-
ingum takist aö halda í þessar eignir
og halda fiskvinnslunni gangandi.
Ég kannast ekki við að það sé nein
ólga hér varðandi þetta mál. Rækju-
„Lögreglan sparkaöi og barði allt
að utan h)á Haiim. Hann er kominn
með massíva hurð með þremur læs-
ingum. Það virtist enginn vera inni.
Lögreglumennimir voru öskuillir og
sögðu húsverðinum að það væri
mjög alvarlegt fyrir hann að ljúgá
fyrir Halim. Þeir fóru síðan niður til
húsvarðarins og leituöu alls staöar í
kjalíaranum. Þeir voru ansi harðir
og reiöir. Þegar lögreglumennimir
ráku þaö ofan í húsvörðinn að Halim
væri að undanfómu búinn að vera í
Istanbúl viðurkenndi hann að hann
kæmi þama á kvöldin," sagði Sophia
Hansen í samtali við DV í gær. Hún
fór með lögreglumönnum heim til
Halims A1 í gær tfl að freista þess að
fyrirtækið Þuríður tók rækjuverk-
smiðjuna á leigu eftir að Einar Guð-
finnsson hf. varö gjaldþrota og þeir
eru að spá í að bjóða líka," segir Ólaf-
ur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bol-
ungarvík.
„Við höfum lýst því yfir að viö hefð-
um áhugá á að kaupa þessa rækju-
verksmiðju og við áttum ekki von á
að aðrir myndu bjóða í hana. Ég hef
látið bæjarstjórn fylgjast með því
hitta dætur sínar eins og dómsúr-
skurður kveður á um. Sophia átti að
hafa dætumar fram á sunnudag.
Þetta var önnur helgin í röð sem
Halim brýtur rétt bamanna og Sop-
hiu í að fá að hittast. Athæfi hans
verður kært eftir helgina á sama
hátt og brot hans frá fyrri helgi. Sop-
hia kvaðst reikna með aö fá dómsúr-
skurð í síöasta lagi á þriðjudag sem
heimilar henni að hafa uppi á Halim
hvenær sem er og hvar sem er.
Halim A1 bauð Sophiu óvænt að
hitta dætur þeirra á heimfli fóðurins
á fimmtudag - í einn sólarhring. Sop-
hia hafhaði því:
„Stúlkumar hefðu ekkert fengið að
tjá sig við mig og tveir menn hefðu
sem við höfum verið að gera frá upp-
hafi, henni er fullkunnugt um það
sem er að gerast. Við höfum ekki
verið beðnir um aö draga okkur til
baka en við höfum heldur ekki verið
hvattir áfram," segir Jón Guðbjarts-
son, annar tveggja eigenda rækjufyr-
irtækisins Þuríöar.
-GHS
vaktaö herbergið þeirra. Þetta hefði
því ekki þýtt annað en kvöl fyrir alla
aðila, niðurlægingu og jafnvel hættu
fyrir mig.
Eins og framkoma þessa fólks hef-
ur verið er ég þræll djöfulsins í þeirra
augum. Aö hafa mig fyrir innan
þeirra dyr myndi saurga þeirra
heimili. Halim hótaöi mér auk þess
oft lífláti og hefur gert þaö stans-
laust," sagði Sophia Hansen.
Síðustu fréttir:
Rétt áöur en DV fór í prentun barst
frétt um aö lögreglan heföi haft app
á Halim Al. Samningafundur máls-
aöila og lögfræðinga þeirra hófst í
gærkveldi. -Ótt
Stuttar fréttir dv
mn--------« - ■’ «_s_hj
naOOOfla SKOrH néliniKI
Ólaf G. Einarsson menntamála-
ráðherra skorti heimild til að lofa
Hrafni Gunnlaugssyni skiiyrðis-
laust að kaupa af honum tvær
myndir. Þetta er áht Ríkisendur-
skoöunar og RÚV greindi frá. Ár
er siöan Ölaiur gaf yfirlýsingu
um kaupin en samningur var
undirritaður í febrúar.
Færri eyðibýli
Jarðir í áfaúð voru 4.691 í árslok
1991 og hefur fjölgað um 32 frá
árinu 1970. Á sama tíma hefur
jörðum í eyði fækkað um 453 og
voru 1.771 í lok síðasta árs.
Lítill tekjuhallí
Á síöasta ári nam tekjuhalh
hins opinbera 2,7% af landsfram-
leiðslu. Til samanburðar var
tekjuhalli Evröpuríkja 5,45 og
OECD-ríkja 3,8%. Á öðrum Norð-
urlöndum var tekjuhalhnn að
meðaltali 5,5%.
Róna’fiariæsðir
Lögreglan í Reykjavik hefur að
undanfomu fjarlægt utangarðs-
menn úr miðborginni. Bylgjan
hefur eftir lögreglunni að menn-
irnir séu sjálfum sér og borginni
til vansæmdar.
Nýstörf ískólum
Tugir manna verða ráðnir til
starfa vegna vistunar barna í
grunnskólum Reykjavíkurborg-
ar i vetur. Samkvæmt RÚV mun
foreldrum bjóðast að laga vistun
barna sinna að eigin vinnutíma.
Hármeðalaldurbænda
Alls teljast ábúendur jarða vera
4.849 og er meðalaldur þeirra 52
ár. Elstir eru hændur í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, eða 58 ára
að meðaltali. í Norður-Múlasýslu
eru bændur yngstir, eöa 49 ára
að meðaltali.
Vextir hækka
Forvextir víxla hækka hjá ís-
landsbahka um 2,5% á sunnudag-
inn. Kjörvextir víxla verða 12,7%
í stað 10,2% áður. Gert er ráð fyr-
ir frekari breytingum á vöxtum
bankans. Landsbankinn hækkar
sína vexti um 1 prósentustig.
Nefhd sérfræðinga hefur veriö
skipuö til aö kanna vaxamyndun
á lánsfjármarkaði. Bylgjan hefur
eftir Sighvati Björgvinssyni að
vaxtamyndunin sé óeðlileg.
Fieirisveppir
Alls vom framleidd 210 tonn af
sveppum á síðasta ári. Á árinu
1991 vom framleidd 103 tonn af
sveppum.
Fundaðumaðgerðir
Forsvarsmenn náttúrufræð-
inga æfla að ákveða um helgina
hvort gripið verði til frekari aö-
gerða vegna deöunnar við Rann-
sóknarstofu Háskólans í meina-
fræðum. Bylgjan skýrði frá
þessu. Málið hefta- verið i bið-
stöðu undanfama daga.
Alls rak við í um 300 þúsund
staura á land á síðasta ári eða
svipað magn og undanfarin ár. Á
árinu 1992 voru 3.186 selir veiddir
og 581 hreindýr. Æðardúnn aö
verömæti 61,8 mflljónir var týnd-
ur, afls um 1,7 tonn.
ÍdandfddHnu
Alþjóðamálastofnun HÍ hefur
gefið út bókina Island 1 eldlínu
alþjóðamála, - stefnumótun og
samvinna inna SÞ 1946 tfl 1980.
Bókin er að meginstofhi til dokt-
orsritgerð eftir Valdimar Unnars
Valdimarssonar er lést iangt um
aldur fram.
-kaa
Börn á skóladagheimilinu Höfn, sem voru hætt komin úti i Gróttu um siðustu helgi, fóru á hættuslóðir í gær og
settu upp aðvörunarskilti sem þau bjuggu sjálf til og varar fólk við sjávarföllunum. Með þeim á myndinni er Árni
Kolbeins, formaður björgunarsveitarinnar Alberts, en hann bjargaði þeim þegar flæddi að á eiðinu á milli lands
og Gróttu. Eftir að hafa sett upp skiltið fóru þau með Árna og skoðuðu tækjakost björgunarsveitarinnar og skemmtu
sér vel. -pp/DV-mynd BG
Sophia fór meö lögreglumönnum aö heimili dæfra sinna í gær:
Lögreglan sparkaði
og barði á hurðina
heima hjá Halim Al
- það heföi þýtt kvöl að taka boði Halims, segir Sophia