Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1993, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
Vísnaþáttur
Seltjamar-
nesið
var lítiö og
lágt
Guðmundur Illugason, rann-
sóknarlögreglumaður í Reykjavík,
fræðimaður og hagyrðingur, var
af vinum sínum og kunningjum
ávallt kallaður „Guðmundur Mi“,
sen; var - í raun og veru - eins
mikið rangnefni og hugsast gat því
friðsamari og ljúfari maður í allri
umgengni var vandfundinn. Hann
var um aMangt skeið hreppstjóri
Seltjarnarr.eshrepps.
Þegar hann varð áttræður var
mikil veisla haldin honum til heið-
urs í samkomuhúsi Seltjamarness
og var þar, eins og geta má nærri,
fullt út úr dyrum því maðurinn var
bæði vinsæll og vinamargur. Með-
an á veislunni stóö barst honum
svohljóðandi kveðja frá Kristjáni
Snorrasyni á Snorrastööum í Kol-
beinsstaðahreppi:
Ég ætlaði að semja við aldna
Braga
um afmæliskvæði til þín.
En hann sneri í mig höminni og
sagði:
Ég hlusta ekki á neitt grín.
Þú kemur eins og álfur af fjöllum
og aldrei skapast nein list.
Ég sný mér heldur að hinum öll-
um
sem hafa „gyðjuna" kysst.
Og með það fór hann, en eg sat
eftir.
í æðunum sitraði blóð.
Svo greip mig reiði og ég grenjaöi
af krafti:
Hann Guömundur skal fá ljóð.
Þó andans fleyið ekki beri
yfir listanna hrönn,
ég þakka hið liðna af heilum huga
og heMaóskin er sönn.
Meðan veislan stóð yfir kom mág-
ur Guömundar, Sveinbjörn Mar-
kússon kennari, til hans og hvíslaði
í eyra hans:
Seltjarnamesið var lítið og lágt
og leiðinlegt endanna á milli.
En nú er bað orðiö svo helvíti hátt
- og hæstur er Guðmundur Illi.
Þegar Jakob Thorarensen skáld
var sjötugur, þann 18. maí 1956,
barst honum svofelld kveðja frá
séra Sigurði Einarssyni í Holti:
Angrið sefar söngur þinn,
sögur, stef og ljóðin.
Enginn hefur heilli um sinn
hjartanu gefið óöinn.
Kveif er sá, er kalt og hart
kenna þykist frá þér.
Sönnu nær, að svalt og bjart
sérhvað muni hjá þér.
Hlær við brá und sól að sjá
sýn um lá og ögur.
Þínum háu hæðum frá
hvergi smá en fógur.
Þegar Halldóra Guðmundsdóttir,
sem lengi var formaður Nótar, fé-
lags netagerðarmanna, varð fimm-
tug þann 29. apríl 1956 fékk hún
svohljóðandi skeyti frá Guðmundi
Ólafssyni frá Hólum í Dýrafirði:
Á frelsisleiðum fátækra
fram þú gekkst til siðbótar,
haltu áfram Halldóra
hálfa öld til viðbótar.
Og Jón Rafnsson erindreki sendi
henni svohljóðandi afmæliskveðju:
Draumi fomum, Dóra mín,
dreifi ég út í vindinn.
En Ma fór hún ástin þín,
öll í kvenréttindin.
Hún var ei nógu heimsk né smá
handa einum granna,
þurfti stærri þraut að fá
þrek sitt til að kanna.
Ei sig brímann eyða lét
ektastands né vina,
en úr sér hnýtti öll sín net
utan um rangsleitnina.
Auðgaðu netin, ung og horsk,
öllu sem þú fórnar,
svo að þau veiði sérhvern þorsk,
sem að okkur stjórnar.
Þessi ósk til þín er frá
þeim sem netin granda.
Geturðu ekki giskað á
gamlan aðdáanda?
Frá Halldóri Kristjánssyni frá
Kirkjubóli barst henni svohljóð-
andi kveðja:
Þeir gömlu fara í fortíðina að
rýna,
þar festu á hugann ótal myndir
sig.
Þú vildir aldrei hálfverk hafa að
sýna
en heil og óskipt ganga ævistig.
Þú varst þú sjálf og sagðir mein-
ing þína
og svona vil ég alltaf muna þig.
Kunningi minn frá fyrri árum,
Valdimar Eyjólfsson að nafni (sem
ég vissi raunar lítil deM á), leyfði
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
mér að skrifa upp eftir sér eftirfar-
andi stökur (sem hann orkti til Rík-
aröar Jónssonar myndhöggvara á
fimmtugsafmæli hans, 20. sept.
1938), er ég hitti hann í síðasta sinn
(hann átti þá aðeins fáa daga eftir
ólifaða):
í náttúrunni lífsins lög
listamaöur sérðu.
Sker og meitlar hönd þín hög.
Hæst af öllu berðu.
Listin þín er stór og sterk.
Starf þitt lengi geymist.
Þú ert fimmtugt furðuverk,
frægð þín aldrei gleymist.
Sigurður Jónsson, bóndi í Stafa-
felli í Lóni, sendi Jóni H. Fjalldal
bónda á Melgraseyri í N-ís. svo-
hljóðandi skrautritað ávarp á 70
ára afmæli hans þann 6. febr. 1953:
Þú sigraðir bæði eld og eim
og áttir þrek móti hverjum tveim,
þín sókn, hún er sigurvissa.
Sjötíu ár hafa sótt þig heim -
í sjötíu ár varstu einn af þeim,
sem ísland mátti ekki missa.
Ekki amalegur vitnisburður það.
Jón Halldórsson Fjalldal lést 14.
nóv. 1977, níutíu og íjögurra ára
gamal - gaman væri ef maður hefði
þar komið í manns stað.
Matgæðingur vikunnar
Bambussoðin
laxaíiðrildi
„Ég ætla að bjóða upp á lax meö
grænmeti sem eldað er í bambus-
potti," segir Hjördís Þorfinnsdóttir,
matgæðingur vikunnar. „Þetta er
einfaldur, fljótlegur og uinfram allt
mjög bragðgóður réttur. í hann má
nota hvaða grænmeti sem er. Til
dæmis blómkál, spergilkál, gulræt-
ur, sætar kartöflur, rófur, sveppi,
súkíni, papriku, strengjabaunir,
lauk, sellerí og ólífur eða bara hvað
hver vill,“ segir Hjördís. Hug-
myndaflugiö verður að ráöa í
grænmetisvalinu.
„Maður byrjar á að skera allt
grænmetið niður, síðan er því öllu
blandað saman og sett í bambus-
pottinn. Ofan á grænmetið er hægt
að setja hvaða tegund af fiski sem
menn vilja en ég ætla að nota lax.
Ég flaka fiskinn og sker flökin í ca
fimm sm stykki. Síðan sker ég nið-
ur í það í miðju að roði og legg síð-
an roð að roði. Með því bý ég til
laxafiðrildi. Þau eru síðan lögð ofan
á gænmetið í pottinum, sjávarsalti
og píkantakryddi stráð yfir, jafnvel
möluðum rósapipar. Þá er lokið
sett á, vatn sett í stóra pönnu, bam-
buspotturinn settur ofan í og aUt
gufusoðið í tuttugu mínútur. Með
þessu eru borin fram soðin hýðis-
hrísgrjón eða cous cous (fæst í
Heilsubúðinni). Svo finnst okkur
sólskinssósan frá Búbót alveg
ómótstæöileg með þessu,“ segir
Hjördís.
Rétturinn er borinn fram í bamb-
uspottinum og segir Hjördís mjög
Hjördís Þorfinnsdóttir er lærð
fóstra en starfar um þessar mund-
ir á tannlæknastofu. Hún er í kven-
veiðifélagi og er matgæðingur vik-
unnar. DV-mynd GVA
gaman að bera þennan rétt á borð
fyrir gesti. Hjördís fékk þennan
rétt fyrst hjá konu sem vann með
henni á barnaheimili. „Ég rakst
síðan á þennan pott þegar ég var á
ferðalagi erlendis en þeir hafa verið
til hér í Pipar og salti. Laxinn fær
alveg sérstakt bragð þegar hann er
eldaður á þennan hátt.“
Komu heim með
þrettán laxa
Hjördís segist hafa mjög gaman
af að prófa nýja rétti og ekki sakar
að hún veiðir sjálf laxinn þegar hún
er ineð laxarétti. Hún er nefnilega
í veiðifélagi kvenna, Óðflugu, sem
var einmitt í veiðiferð um síðustu
helgi. „Við erum sjö konur sem
veiðum saman og vorum einmitt í
tveggja daga túr og komum heim
með þrettán laxa úr Straumum í
Borgarfirði."
Hjördís sagði aöspurð að eigin-
menn þeirra segðu ekkert við þessu
áhugamáli. „Af hveiju ættu þeir
að gera það?“ spurði hún á móti.
Laxveiði hefur þótt fremur karla-
sport en kvenna og þess vegna
verður að telja það sérstakt að kon-
ur stofni með sér veiðifélag. „Þetta
hefur verið svakalega skemmtilegt
enda leggjum við mikið upp úr að
hafa góðan mat og elda eitthvað
sérstakt. Auk þess leggjum við á
borð með hvítum dúk og höfum
þetta mjög sparilegt. Yfirleitt för-
um við eina veiðiferð á sumri og
þetta er í þriðja skipti sem við fór-
um á þennan stað,“ segir Hjördís.
Hún ætiar að skora á Sigríði Erlu,
leirlistakonu í Hafnarfirði, að vera
næsti matgæðingur. „Hún er algjör
seiðkona yfir pottunum. Það er
hrein unun að horfa á hana galdra
fram réttina sem hún gerir með
stóískri ró svo ekki sé talað um
bragðið sem alls ekki er hægt að
lýsa með orðum."
-ELA
Hmhliðin
Gaman að leita að
skipum á hafsbotni
- segir ofurhuginn Ámi Kópsson
Ofurhuginn Árni Kópsson gerði
sér lítið fyrir og ók á bifreið af palh
út í sjó í Sundahöfn um síðustu
helgi og sýndi þar enn einu sinni
að hann lætur sér ekki allt fyrir
brjósti brenna. Árni er löngu lands-
þekktur fyrir ævintýramennsku
sína og framúrskarandi aksturs-
hæfni i torfæruakstri. Árni er
hættur keppni, í bili að minnsta
kosti, og hefur selt bíl sinn, Heima-
sætuna. Það er ofurhuginn sem
sýnir hina hliðina að þessu sinni:
Fullt nafn: Árni Kópsson.
Fæðingardagur og ár: 12. septemb-
er 1963.
Maki: Enginn.
Börn: Stelpa, sjö ára, og strákur að
verða sex.
Bifreið: Toyota LandCruiser árgerð
Turner.
Uppáhaldssöngvari: Bubbi Mort-
hens.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Al-
bert Guðmundsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Tommi og Jenni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég horfi
aldrei á sjónvarp.
Uppáhaldsmatsölustaður:Ég borða
oftast á Bæjar-Nesti en ef ég ætla
eitthvað sérstakt fer ég til Úlfars í
Þremur frökkum og fæ mér hval-
kjöt.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég stilli bara á þá rás sem
býður upp á tónlist.
1988.
Starf: Kafari.
Laun: Veit þaö ekki.
Áhugamál: Ferðalög, köfun, bíla-
sport, byssur, flug og margt fleira.
Reyndar þykir mér ofboðslega
gaman að leita að gömlum skipum
sem sukku fyrir óralöngu.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Eg spila sjaldan í
lottói og ef ég geri það hef ég gleymt
að athuga hvort nokkur vinningur
hafi komið upp.
Hvað fmnst þér skemmtilegast að
gera? Vinna krefjandi köfunarstarf
sem þarf að skipuleggja af ná-
kvæmni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Allt sem viðkemur pappír
finnst mér óþolandi.
Arni Kópsson.
Uppáhaldsmatur: Mér finnst reykt
svínasteik meiri háttar.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Ég fylgist
ekkert með þessum venjulegu
íþróttum.
Úppáhaldstímarit: Andrés önd.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð? Ég á eftir að finna hana.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Ég spái ekkert í það.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Mel Fisher. Honum hefur
tekist að ná mestum auðæfum úr
sjónum.
Uppáhaldsleikari: Harrison Ford.
Uppáhaldsleikkona: Kathleen
Uppáhaldsútvarpsmaður: Ég þekki
enga útvarpsmenn og pæli ekkert
í þeim.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Hvoruga.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng-
inn.
Uppáhaldsskemmtistaður: Yfirleitt
kíki ég bara inn á krárnar, oftast
Amsterdam.
Uppáhaldsfélag i íþróttum: Ég hef
aldrei veriö í íþróttafélagi.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að hafa alltaf nóg aö
gera.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfri-
inu? Ég vinn sjálfstætt og veit aldr-
ei hvenær ég get tekiö frí. Mig lang-
ar samt til að skreppa til austur-
landafjær. -ELA