Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1993, Blaðsíða 28
40
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
íþróttir
Stuttar
KA-fréttir
Frá því KA tapaöi fyrir Val í
úrslitaleik Mjólkurbikarsins í
ágúst í fyrra hefur allt gengið á
afturfótunum hjá KA. Síðan þá
hefur hðíö unnið einn deildaleik,
gert eitt jafntefli en tapað 10 sixm-
um.
Sártbikartap
KA-maður sagði við DV að það
væri eins og tapið í bikarúrslitun-
um heföi drepið aht niður hjá fé-
laginu - merm væru enn ekki
búnir að jafna sig á því að hafa
tapað 2-5 eftir framlengingu, eftir
að hafa verið 2-1 yfir þar til 7
sekúndur voru eftir.
Fáirmeistarar
Af núverandi leikmönnum KA
voru fimm fastamenn í íslands-
meistaraliði félagsins 1989 og
tveir til viðbótar léku nokkra
leiki. Af hinum 11 sem spiluðu
með 1989 eru 5 hættir, tveir eru
með Val og hinir hjá Þrótti R.,
Stjörnunni, Þór og Stoke í Eng-
landi.
Eittárí3. deiid
KA hefur einu sinní leikiö í 3.
dehd, árið 1975. Þá hófu KA og
Þór keppni í 3. deild eftir að Uð
ÍBA var lagt niöur, og þau kom-
ust þæði upp í 2. deUd i fyrstu
tilraun, og KA var síðan komiö í
1. deildina 1978.
Veður og ferðir
NjáU Eiðsson segir að aUt hafi
lagst á eitt um að gera sumariö
til þessa ömurlegt. „Við höfum
spUað nær alla leiki í leiðinda-
veðri og í bikarkeppninni höfum
viö þurft að ferðast eins langt og
hægt var í hverri umferð, á
Blönduós, Hofsós og til Vest-
mannaeyjaU
Átta eru famir
Átta leikmenn, sem léku með
KA í 1. deildinni í fyrra, eru
horfnir á braut. Gunnar Már
Másson í Leiftur, Gunnar Gísla-
son tU Hácken, Pavel Vandas til
Tékklands, Örn Viöar Arnarson
og Páll V. Gíslason í Þór, Sigþór
Júlíusson í Völsung, Árni Þór
Freysteinsson í Stjörnuna og Haf-
steinn Jakobsson er hættur. Þá
missti Bjami Jónsson af fyrstu 7
leikjunum og Ámi Hermannsson
bytjar að leika með í 10. umferð.
Njáll lék með KA
NjáU Eiðsson er ekki ókunnug-
ur hjá KA því hann lék með liðinu
í 1. deUdinni 1978 og 1979, samtals
33 leiki í deildinni. NjáU þjálfaði
FH í fyrra og lék þá tvo leiki meö
Uðinu en aftekur alveg að hann
freisti þess aö styrkja KA-liðiö
með því að spila sjálftxr með.
DV
íslandsmeistaramir frá 1989 neðstir í 2. deild:
Horfum með hryll-
ingi til þess að
falla niður í 3. deild
Eitt af því sem mesta athygli hefur
vakið á yfirstandandi íslandsmóti í
knattspyrnu er slæmt gengi Akur-
eyrarliðsins KA í 2. deildinni en
KA-menn léku í 1. deildinni í fyrra
og spiluðu úrslitaleik Mjólkurbikars-
ins. Þeir sitja nú á botni 2. deildar
með aðeins 4 stig og hafa tapað sex
af fyrstu 8 leikjum sínum í sumar.
KA varð íslandsmeistari fyrir að-
eins fjórum árum, 1989, og virtist
vera að skapá sér sess meðal fremstu
knattspyrnuliða landsins. Þá óraði
engan fyrir því að staða félagsins
gæti oröið svona slæm á ekki lengri
tíma. En knattspyrnan er óútreikn-
anleg og það er fljótt að halla undan
fæti. Við KA-mönnum blasir að falla
í 3. deUd sem yrði ótrúlegt hlutskipti
svo skömmu eftir meistaratitilinn en
þeir hafa tíu umferöir til að rétta sig
af og eru aðeins tveimur stigum á
eftir liðinu sem er í áttunda sæti.
Margir KA-menn
hafaáttmargar
andvökunætur
Þórarinn Sveinsson er formaður
knattspyrnudeildar KA og hann
sagði við DV að KA-menn væru ekki
famir að örvænta þó staðan væri
slæm. „Það eru enn 30 stig í pottinum
og enn má segja að öll lið i deildinni
getið faUið. Eins og liðið hefur spilað
ætti það að vera um miðja deild en
við virðumst leika á sama plani og
mótherjarnir, spilum vel gegn sterk-
ari liðum en dettum niður gegn
botnliðunum."
Um viðbrögðin á Akureyri og inn-
an félagsins við genginu sagði Þórar-
inn að vissulega væru menn
áhyggjufullir. „Margir KA-menn
hafa átt margar andvökunætur í
sumar en ég held að menn séu ekk-
ert að flýja skútuna, heldur vilji
þjappa sér saman. Aðsókn á heima-
leikina hefur hrunið, en slæmt gengi
er kannski ekki öll skýringin því það
hefur verið 2ja stiga hiti á öUum
leikjum okkar hér á Akureyri í sum-
ar. Auðvitað horfa menn með hryll-
ingi til þess ef lið sem varð íslands-
meistari fyrir fjórum árum, hefur
aUar aðstæður og sterka yngri
flokka, fer að falla í 3. deUd. En þaö
er ekkert móralsleysi hjá KA-mönn-
um - við þurfum að klífa þessa 10
leikja brekku sem framundan er og
þá blasir framtíðín björt við.“
Deildin skuldar
of mikið
Fjárhagsstaða KA er ekki góð en
Þórarinn vildi ekki nefna tölur í því
sambandi. „Deildin skuldar of mikið
eftir undanfarin ár og við fórum ekki
út í það að sækja okkur aðkomu-
menn í liðið eins og oft áður. Stefnan
er að byggja á okkar mönnum og til
lengri tíma ætti það að duga tU að
byggja upp sterkt 1. deUdar Uð á ný,“
sagði Þórarinn Sveinsson.
Markmiðið úr þessu
ekki annaö en
að hanga í deildinni
„Ég gerði mér grein fyrir því í byrj-
un að þetta yrði erfitt en átti ekki
von á því að það yrði svona erfitt.
Við þurfum að berjast fyrir lífi okkar
það sem eftir er mótsins og úr því
sem komið er getur markmiðið ekki
verið annað en að hanga í deUd-
inni,“ sagði Njáll Eiðsson, þjálfari
KA, þegar DV ræddi við hann um
gengi liðsins.
„Það má segja að við séum að búa
til nýtt lið því það eru aðeins 4-5 leik-
menn eftir sem voru í 16 manna hópi
í fyrra og ég er að staðaldri með 3-5
stráka úr 2. flokki í byrjunarliðinu.
Það eru strákar sem standa sig vel í
2. flokki en það er mikiU munur að
koma þaðan í erfiða meistaraflokks-
leiki, eins og þeir hafa fengið að
reyna.
Þeir sem standa eftir frá í fyrra eru
Haukur Bragason, Gauti Laxdal,
Ormarr Örlygsson, Steingrímur
Birgisson og Bjarni Jónsson, og svo
verðúr Árni Hermannsson með í síð-
ari umferðinni. Gauti og Steingrímur
hafa misst úr leiki vegna meiösla, og
Bjarni var erlendis og lék fyrst með
í síðasta leik.“
Yfir í lokin en
töpuöum samt
„Það vantar breidd og reynslu og
svo höfum við ekki klárað leiki sem
við áttum að geta unnið. Á Ólafsfirði
vorum við 2-1 yfir þegar 4 mínútur
voru eftir en töpuðum samt og eins
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan Erlingur Kristjánsson lyfti ís-
landsbikarnum sem fyrirliði KA í
september 1989.
áttum við að geta unniö heimaleikina
við Stjörnuna og Þrótt frá Neskaup-
stað sem báðir töpuðust," sagði Njáll.
Hann er á því að KA geti átt bjarta
framtíð fyrir höndum ef baráttan
vinnst í sumar. „Efniviðurinn er fyr-
ir hendi hjá félaginu og ef vel er stað-
ið að málum er hægt að rétta þetta
við. Ungu mennirnir hafa komið inn
í liðið á erfiðum tíma og þetta er
spurning um að vinna leik og ná upp
sjálfstraustinu - spurningin er hve-
nær sá leikur kemur,“ sagði Njáll
Eiðsson.
Erfiöasta verk-
efni sem KA-þjálfari
hefur fengið
Þrátt fyrir slæmt gengi neita KA-
menn að skella skuldinni á þjálfar-
ann og segja að breytingar þar standi
ekki til. „Njáll tók við erfiðasta verk-
efni sem nokkur KA-þjálfari hefur
fengið til þessa,“ sagði einn stjórnar-
manna félagsins við DV og það eru
líklega orð að sönnu.
-VS
Skagamenn
prúðastir
Þegar sjö umferðum er lokið í Get-
raunadeildinni í knattspyrnu hafa
íslandsmeistarar ÍA staöið sig best,
þeir eru ekki aðeins á toppi deildar-
innar heldur hafa þeir fengið fæst
spjöld í leikjum sínum. Þeir eru með
7 gul spjöld og ekkert rautt, og aðeins
þrír leikmenn hafa fengið spjöldin,
tvö hver, og þjálfarinn eitt! Fram er
númer tvö með 6 gul og eitt rautt.
Leikmenn ÍBV hafa hins vegar ver-
ið dómurum erfiðastir því þeir hafa
fengið að líta 18 gul spjöld og tvö
rauð og verma því botnsætið í „hátt-
vísideildinni." Þór, Víkingur og FH
eru líka í „fallbaráttunni.“
-VS