Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1993, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1993, Blaðsíða 52
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. LAUGARDAGUR 10. JÚU 1993. Forráðamenn Sky sjónvarpsstöðv- arinnar í Bretlandi og reyndar allar gervihnattastöðvarnar í Evrópu ætla að læsa öllum útsendingum sínum á næstunni og hefja sölu á áskriftum. Viðræður eiga sér nú stað milli for- ráðamanna Sky og fjölda annarra sjónvarpsstöðva um sameiginlegan dagskrárpakka sem seldur verði í áskrift. Einn afruglari opnar þá dag- skrá allra stöðvanna. „Þeir dæla þessu ekki lengur frítt út í himinhvolfið heldur ætla þeir sér að innheimta áskriftargiöld hjá þeim ■‘v 'F' sem horfa á viðkomandi rásir. Stóru sjónvarpsstöðvarnar sameinast um dreifmguna til að einfalda inn- heimtukerfið," segir Jónas R. Jóns- son, dagskrárstjóri Stöðvar 2. Búist er við að dagskrá stóru sjón- varpsstöðvanna verði læst mjög fljót- lega og geta þá íslendingar ekki horft á erlendar sjónvarpsstöðvar fyrr en endurvarp gervihnattarása verður að veruleika hér á landi síðar í sum- ar eða í haust. íslendingur sem vill horfa á efni á Sky 1 og fréttasending- ar Sky eða annarra stöðva verður þá að kaupa áskriftina að Sky í gegn- um Stöð 2 og segir .Jónas að verðinu verði stillt mjög í hóf. -GHS Formaðurinn sagði þessum kaf la í lífi sínu lokið - segir Rúna Baldvinsdóttir, stjómarmaöur í samtökunum „Formaðurinn sagði að þessum kafla í lífi sinu væri lokið. Ekki væri lengur þörf á samtökum at- vinnuiausra eftir að kirkjan hefði opnað dyr sínar fyrir okkm'. Hann virðist hafa lagt samtökin niður upp á sitt eindæmi. Þetta eru furðu- leg vinnubrögö og mikil óvirðing við okkur sem starfað höfum innan samtakanna," segir Rúna Bald- vinsdóttir, stjórnarmaður i Lands- samtökum atvinnulausra. Rúna kom að lokuðum dyrum er hún hugðist mæta á skrifstofu sam- takanna í Ármúlanum í vikunni. Frá miðjum maí hefur skrifstofan verið lokuð og hefur símsvari sam- takanna gefið upp þá ástæðu að starfsmaður hennar væri í sum- arfrii til l. júlí. Nú hefur síminn hins vegar verið aftengdur og nýir aöilar yflrtekið húsnæðið. „Mér fannst það furðulegt á sín- um tíma að skrifstofa atvinnu- lausra akyldi vera lokuð vegna sumarfría. Sjálf hef ég veriö at- vinnulaus i tvö ár. Ég fæ ekki séð hvemig atvinnulaus maður getur tekið sér sumarfrí." DV reyndi ítrekað í gær aö ná sambandi við Reyni Hugason, formann samtakanna, en í hvert sinn sem blaðamaður hafði kynnt sig rofnaði sambandið fyrirvara- laust. Ekki reyndist því unnt að fá álit Reynis á málinu. Ekki náðist í aðra stjómarmenn sem starfað hafa í samtökunum undanfarna mánuöi. Að sögn fyrrum stjórnarmanns lofuðu samtökin góðu til að byrja með. Hugur hafi verið í mönnum. Sumir hafi þó verið nokkuö æstir og um tíma hafi starfsemi samtak- anna nær lamast vegna deilna. Landssamtök atvinnulausra vom stofhuð 21. október í fyrra i kjölfar vaxandi atvinnuleysis. Á félagaskrá voru á annað þúsund einstaklingar. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti gengið hefur verið frá fjárreiðum samtakanna en um- talsveröir fiármunir runnu til sam- takanna í gegnum félagsgjöld og ýmsa starfsemi á vegum þeirra. -kaa Sól og blíða í borginni Þessar tvær stúlkur skemmtu sér konunglega i bliðviðrinu í tívolíinu sem sett hefur verið upp við Reykjavíkurhöfn. Samkvæmt spá Veðurstofunnar á að vera blíðviðri um helgina og því tilvalið að bregða sér í tívolíið eða niður í bæ og fá sér ís og skoða mannlifið. DV-mynd Brynjar Gauti Sky sjónvarpsstöðin: Ruglar útsendinguna og selur áskrift Eigandi Rúmfatalagersins: Stefnir að opnun tveggja verslana með ódýra matvöru - fleiri verslanir 1 bígerð ef vel gengur Jákup Jacobsen, eigandi Rúmfata- lagersins í Reykjavík og á Akureyri, íhugar nú aö opna tvær matvöru- verslanir með lágu vöruverði eftir svipuðu kerfi og þær tvær matvöru- verslanir sem hann rekur í Færeyj- um. Jákup fyrirtiugar að reka aðra verslunina í Reykjavík og hina úti á landi og ef vel gengur segist hann ætla að opna fleiri verslanir í sama dúr. „Þetta er ekki öruggt en ég á í við> ræðum við íslenska matvörufram- leiðendur og heildsala. Það tekur ekki nema hálfan mánuð að ganga frá málunum og opna en það er ekki víst að af þessu verði. Það kemur fljótlega í ljós,“ segir Jákup. Jákup byrjaði að kanna grundvöll- inn fyrir rekstri matvöruverslana hér á landi fyrir viku og segir að flest- ir taki mjög vel í hugmyndir sínar og séu jákvæðir. Hann sé nú að skoða markaðinn og kanna hvort hægt sé að bjóða lægra verð en nú er í versl- unum. Hann hefur mestan áhuga á því að hafa verslanimar litlar með stuttan opnunartíma til að sem minnstur kostnaður fari í þjónustu en segist gera sér grein fyrir þvi að hann verði að hafa margar einingar til að ná hagstæðum innkaupum. Þá hefur færeyskí kaupmaðurinn Jákup Jacobsen fullan hug á því að flytja út íslenskar matvörur tO Fær- eyja og er að kanna það mál. „Verð á matvöm hér er mjög lágt,“ segirhann. -GHS Dóminískir togarar landa áÞórshöfn Togarinn Zaandam frá Dómin- íska lýðveldinu landaði 120 tonn- um af ísuðum þorski úr Barents- hafi á Þórshöfn í gær. Aflann kaupa fiögur frystihús á Norðausturlandi og vænta íbúar þar mikils af samstarfinu. Búist er við að togarinn landi ísuðum þorski aðra hverja viku og von er á að annar togari frá sömu útgerð geri slíkt hið sama innan skamms. Auk þess að landa afl- anum hér á landi koma skipin til með að sækja alla sína þjónustu hingað, svo sem kost, viðgerðir og olíu. Það em færeyskir aðilar búsett- ir í Karíbahafi sem gera út togar- ann. Hann hefur veiðileyfi í Bar- entshafi þar sem Dóminíska lýð- veldið er aðih að samkomulagi frá 1926 um nýtingu fiskistofna á því hafsvæði. -PP LOKI Formaðurinn er greinilega búinnað fá atvinnu! Veðriö á sunnudag ogmánudag: Bjart veður sunnanlands ogvestan Á sunnudag og mánudag verð- ur norðan- og norðvestanátt, nokkuð hvöss, um austanvert landið. Bjart verður sunnanlands og vestan en skýjað norðaustan til á landinu og dálítil súld eða rigning öðra hverju. Kalt verður áfram norðanlands en tíu til fiórt- án stiga hiti um hádaginn sunn- anlands. Veðrið í dag er á bls. 61

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.