Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1993, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
Vísnaþáttur_
Þið
skuluð
ekkihafa
hátt
Það eru ár og dagar síöan Guð-
mundur Sigurðsson gamanvísna-
höfundur sá um vísnaþátt í Ríkis-
útvarpinu. Hann vakti strax mik-
inn áhuga vísnavina um land allt
en Guðmundi var ljóst að sá áhugi
yrði enn meiri gæti hann komið
hagyrðingum „í hár saman“ eins
og greinilega kemur í Ijós í eftirfar-
andi ummælum hans:
„Ég hef reynt með aUs konar
skætingi að leysa úr læðingi þá
margumtöluðu þingeysku hag-
mælsku, en með litium árangri.
Þeir fóru þá fyrst af stað fyrir al-
vöru, er Böðvar Guölaugsson gauk-
aði að þeim þessari vísu:
Ef ykkur skortir efnivið
ykkur vil ég benda
á mývetnskt grobb í miðrímið
og mont í báða enda.
Fyrstur til svars þar nyröra verð-
ur Valdimar Hólm Hallstað en
veröur það á að eigna Böðvari
ljóðabók, sem hann ekki á, það er
bókina í fölu grasi. Valdimar segjr:
Fátt er satt í þinu þrasi
þar var öllum dygðum rænt.
Feyskið strá í fölu grasi
fannst það vera orðiö grænt.
Þessu svaraði Böðvar af hóg-
værð:
Jcifnvel skáldum skýzt á marga
lund
skírieikurinn bæði í sögu ogljóði,
í fölu grasi fól ég ei mitt pund
farðu heim og lestu betur - góði.
Nú kemur til sögunnar Karl Sig-
tryggsson á Húsavík og vill einnig
rétta hlut þeirra nyrðra:
Ósköp hljótt er mn þann völl
sem ól þig sinuskúfur.
Aldrei þekktu íslenzk íjöll
allar hundaþúfur.
Æðir að sunnan ylgja grá
einhver þekkti veðraharann.
Af monti situr suðrið á
svikráðum við norðurþjarann.
Þó geti okkar innra flör
ennþá dalaö hérna nyröra
virðist andleg afturför
útilokuö syðra.
Böðvar er ekkert mjúkmáli frek-
ar en fyrri daginn þegar hann svar-
ar Karli:
Skörulega skal mér hegnt
skeytin ekki vanda.
Betur heföi eg aldrei egnt
á mig þennan fjanda.
Stormar fram með stélið sperrt
stefja brýnir gogginn
skáldahjörðin hnakkakert
hnýfilyrt og roggin.
Líkja þeir við landsins fjöll
ljóðasmíði sinni.
Vitieysan er ekki öll
eins í framkvæmdinni.
Ég vil biðja fremst og fyrst
filelfd kvæðatröllin
að salla á mig að sinni lyst
en svívirða ekki fjöllin.
Nú fór að berast allmikið af bréf-
um frá móðguðum Þingeyingum,
sem von var. Jón Bjamason í
Garðsvík sendi mér t.d. gott ljóða-
bréf. Og þrátt fyrir ergelsi yfir þess-
um skætingi í garð sýslunga sinna
er hann með vinsantiegar hugleið-
ingar um mig persónulega og segir
meðal annars:
Ekki veit ég ætt þess manns
en eitthvað minnið stingur.
Mikið ef hún amma hans
er ekki Mývetningur.
Auðvitað varð ég að leiðrétta
þetta:
Þótt í mývetnsk myndarfljóð
margt sé kannski spunnið
frá þeim er ei hið bláa blóð
Borgfirðinga runnið.
Þessi vísa varð tveimur þing-
eyskum konum hneykslunarhella.
Þær kváðu okkur Borgfirðinga
hafa af litlu að státa og engan hag-
yrðing heföum við átt á borð við
Égti Jónasson á Húsavík. Ekki vtidi
ég samþykkja það:
Þið skuluð ekki hafa hátt
hugsast jafnvel getur
að við höfum líka Egti átt
sem orti kannski betur.
Eftir síðustu kveðju Böðvars til
Karls Sigtryggssonar biður Karl
mig að svara þessari spumingu:
Fékk hann oft svona andleg flog
alltaf stærri og stærri?
Því var honum komið í Kópavog
fyrst Kleppur er svona nærri?
Ég svaraði þannig:
Auðnan gerist endaslepp
og íslenzk byggð í vanda.
Ef þið dæmið alla á Klepp
sem ykkur framar standa.
Þegar Böðvar heyrði vísu Karls
varð honum að orði:
Það veit guö ég þykist heppinn
þegar birtast skeyti slík.
Að eiga styttra í aðalkleppinn
en útibúið á Húsavík.
Karl Sigtryggsson sendi mér
þessa vísu fýrir síöasta útvarps-
þátt:
Loksins tapað öllu er
ekkert mína læging stöðvar
ef að Gvendur ýtir mér
ofan fyrir sig og Böðvar."
Lengra kemst ég ekki að sinni en
lofa framhaldi í næsta þætti.
Torfi Jónsson
Vísnaþáttur
.... ... ..
Torfi Jónsson
IVtatgæðingur vikuimar
ftalskar
svínalimdir
„Þetta er einfaldur og þægtiegur réttur þegar gesti
ber að garði og alltaf vinsæll,“ segir Guðný Jakobsen,
sjúkraliði og matgæðingur vikunnar. Hún ætiar að
bjóða lesendum upp á svínalundir að ítölskum hætti
og bakaða kartöflumús með. Guðný segir að þetta sé
mjög vinsæll réttur enda góður. Það sem þarf í réttinn
er eftirfarandi:
2 svínalundir
salt og pipar
50-70 g smjör
200 g svínaflesk
dijon sinnep
ostsneiðar, helst 27%
1 laukur
karrí
1 Zi dl ijómi
1 dl tómatpurré
Svínalundimar em skomar í um það bti 2 sm sneið-
ar og barðar létt. Kryddaðar með salti og pipar og
steiktar á pönnu þar tti þær hafa fallegan ljósbrúnan
lit. Þá er sneiðunum raðað í eldfast fat, fleskinu raðað
ofan á og smurt með sinnepinu. Loks er ostinum rað-
að ofan á sneiðamar.
Karríið er brúnað í smjöri á pönnu ásamt lauknum,
sem hefur verið hakkaður smátt, og ijómanum hellt
yfir ásamt tómatpurré. Bragðbætt með salti og pipar.
Sósunni er hellt yfir kjötiö og allt bakað í 225 gráða
heitum ofni í ca 30 mínútur. Sósuna má þykkja eða
þynna eftir því sem fólki finnst best. Með kjötinu er
borin fram bökuð kartöflumús en í hana fer:
Bökuð kartöflumús
750 g kartöflur
50 g smjör
Zi dl ijómi
2 egg *
1 dl hakkaðar heslilhnetur (má sleppa)
salt og pipar
Þegar kartöflumar em soðnar em þær músaðar og
hrærðar með smjöri og ijóma. Þá era eggjarauður
þeyttar samanvið, ein og ein. Hnetunum, salti og pipar
bætt út í. Loks er stífþeyttum eggjahvítum hrært var-
lega í blönduna. Kartöflumúsinni er skipt í litlar truff-
Guðný Jakobsen, sjúkraliði og matgæðingur vikunn-
ar.
leskálar, ef til eru, annars sett í eina stóra eldfasta
skál. Mjög skemmttiegt er aö hafa músina í litiu skál-
unum og setja þær beint á borðið. Músin er bökuð við
225 gráður í 25 mínútur í htiu skálunum en við 200
gráður í 35 mínútur í stóra skáhnni. Gott salat passar
vel við og einnig rauðvin.
Guðný segist hafa mjög gaman af að prófa nýja rétti
og bæta við gamla. Hún bjó lengi í Danmörku og þar
segist hún hafa getað vahð mun fjölbreyttara hráefni
en hér. „Það var miklu oftar boðið í mat í Danmörku,
þó maður reyni að gera þaö hér heima líka þá mætti
það vera meira,“ segir Guðný. „Það er svo gaman að
bjóða gestum í mat,“ segir hún.
Guðný ætlar að skora á Önnu Margréti Stefánsdótt-
ur, afgreiðslustúlku í Kópavogi, að vera næsti matgæð-
ingur. „Hún er eldklár í matargerð og mikti og góð
húsmóðir.“ -ELA
Hinhliðin
Æfi 5-6 sinnum í viku
- segir Helgi Sigurðsson fótboltakappi
„Fótboltinn tekur mestahan
minn frítíma. Ég æfi 5-6 sinnum í
viku og svo era það leikimir," seg-
ir Helgi Sigurðsson, fótboltakapp-
inn góðkunni, sem leikur í meist-
araflokki Fram. Helgi er nú marka-
hæsti leikmaðurinn í 1. detidinni.
Hann segir að fótboltinn eigi hug
sinn allan. Persónulega hafi hon-
um gengið vel að undanfömu og
hðið sé nú að komast í gang. „Ég
er handviss um að þvi á eftir að
vegna miklu betur,“ segir Helgi
sem sýnir á sér hina hhðina að
þessu sinni.
Fullt nafn: Helgi Sigurðsson.
Fæðingardagur og ár: 17. septemb-
er 1974.
Maki: Er á lausu.
Böm Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Nemi í Menntaskólanum við
Sund og vinnur við garðyrkju hjá
Borgarspítalanum í sumar.
Laun: Um 60.000.
Áhugamál: Fótbolti og skemmtan-
ir.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Fjórar, en vann
ekki nema um 2000 kah.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Spila fótbolta, skemmta mér
með vinum mínum, fara í bíó og
ferðast.
Hvað finnst þér leiðinlegast aö
gera? Tapa í fótbolta og taka til
Helgi Sigurðsson.
heima.
Uppáhaldsmatur: Hamborgara-
hryggur með tilheyrandi eða
McDonalds hamborgarar.
Uppáhaldsdrykkur: Gamla góða
kókið.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Marco van
Basten.
Uppáhaldstímarit: íþróttablaðiö.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð? Cindy Crawford.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjóminni? Hlutiaus.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Marco van Basten.
Uppáhaldsleikari: Steve Martin.
Uppáhaldsleikkona: Kim Bassing-
er.
Uppáhaldssöngvari: Ég hef ahtaf
haldið mikið upp á Freddy Merc-
ury sem nú er látinn.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Grettir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir
og góðar bíómyndir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
vamarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM 95,7
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón og
Gulh.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?Bjami
Fel. er ahtaf traustur.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Glaumbar.
Uppáhaldsfélag í iþróttum: Fram
og Víkingur.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku i
framtíðinni? Ég reyni að stefna á
atvinnumennsku í fótboltanum en
auk þess að standa mig í námi og
klára það.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég fæ ekkert sumarfrí því
sumarið nota ég tti að vinna mér
inn peninga fyrir veturinn.