Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1993, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
Dagur í lífl Stefáns Hilmarssonar tónlistarmanns:
Stefán Hilmarsson hefur í ýmsu að snúast þessa dagana. Hér er hann ásamt syninum, Birgi Steini.
DV-mynd ÞÖK
„Klukkan var orðin níu þegar ég
vaknaði á mánudagsmorgiminn.
Fyrsta verk mitt var að skipta á syni
mínum, honum Birgi Steini, sem er
tæplega eins árs, og klæða hann. Að
því búnu settist ég við símann og
hringdi svo sem fjögur símtöl. Ég
þurfti meðal annars að hringja í
hljóðmenn vegna fyrirhugaðrar
stúdíóvinnu og eins þurfd ég að út-
vega segulbönd. Þetta var raunar
fyrsti dagurinn minn í stúdíói í þetta
sinn þar sem nú eru að hefjast upp-
tökur á sólóplötu minni.
Um hálftíu fór ég í sturtu og klæddi
mig. Því næst gaf ég Birgi Steini að
borða en stökk síðan út í bakarí. Þar
festi ég kaup á glænýjum rúnstykkj-
um. Ég og konan mín skiptum gjam-
an morgunverkunum með okkur eft-
ir því hvemig vindar blása. Stimdum
leyfi ég henni að sofa fram undir
hádegi og sé þá um það sem þarf að
gera. Hún leyfir mér svo að sofa leng-
ur hafi ég veriö að vinna lengi fram
eftir kvöldiö áður. Ég kann þessu
fyrirkomulagi vel og finn mig ágæt-
lega í heimilisverkunum."
Fleiri símtöl
„Þegar ég kom heim úr bakarís-
ferðinni fékk ég mér te og rún-
stykki. Síðan settist ég aftur viö sím-
ann. Að þessu sinni var hringt í
nokkra hljómlistarmenn, svo og
Ýdali í Aðaldal og Blönduós þar sem
við ætlum að halda dansleik um
næstu helgi. Mér þótti vissara að at-
huga hvort ekki væri allt í standi
þar. Loks hringdi ég og pantaði aug-
lýsingar. Ég sé um kynningarmálin
fyrir hijómsveitina og það er satt að
segja í nógu að snúast á þeim vett-
vangi. Ég geri ráð fyrir aö ég hringi
allt að 50 símtöl á dag þegar mest er
að gera.
HJjómsveitin er fullbókuð aiiar
helgar í sumar og það getur veriö
talsvert stress að sjá um rekstur
hennar auk bamauppeldis og þess
að vinna sólóplötu. Óneitanlega
fylgja mikil ferðalög því að vera að
spila allar helgar. En þetta á ágæt-
lega við mig, þótt þaö sé erfitt og
stressandi á köflum, og mér finnst
þaö skemmtilegt. Á haustin hægist
gjaman um og þá er hægt að slaka
á eftir sumartömina."
Tækin á ísafirði
En hvað um það. Næst þurfti ég
að hafa samband við ísafjörð því þar
vom tækin okkar enn eftir að við
höfðum spilað þar um helgina. Þau
komu reyndar ekki fyrr en daginn
eftir en málin björguöust þrátt fyrir
það. Raunar tafði þetta mig svolítið
í stúdíóinu þannig að ég þurfti að
endurskipuleggja daginn.
Þegar ég var búinn að stússa í
kringum tónlistarmáhn sneri ég mér
að veraldlegri efnum og setti í þvotta-
vélina. Að því búnu þurfti að panta
gistingu fyrir hljómsveitina á
Blönduósi og Akureyri. Síðan fór ég
í bankann, sinnti erindum mínum
þar, hélt svo aftur heim og hringdi
nokkur símtöl.
Nú lá leiðin í stúdióið þar sem hafn-
ar vom upptökur á fyrirhugaðri
sólóplötu. Hún á að koma út i haust,
vel fyrir jólin. Ég hef samiö lög og
texta í góðri samvinnu við nokkra
aðra. Ég er með valið hð manna sem
mun aöstoða mig við verkið. Það var
satt að segja dáUtið puð að koma
þessu af stað, eins og alltaf viU verða.
Ég var í stúdíóinu fram eftir degi
en hafði þó tækifæri til að splæsa á
mig ís og kóki. Það er segin saga að
þegar maður er í stúdíói er gott veð-
ur, helst brennadi sól. Við köUum
þetta gjaman stúdíóveður.
Ég á heima rétt hjá stúdíóinu og
gat því skroppið heim um kvöldmat-
arleytið. Þá var konan með griUmat-
inn kláran, þessi elska, þannig að þaö
stefndi í dýrindismáltíð. Ég notaði
tækifærið og skellti nokkrum barna-
fótum í þvott meðan steiking stóð
yfir. Eftir matinn fór ég aftur niður
í stúdíóið og vann þar við gerð plöt-
unnar til miðnættis. Þá fór ég heim
og horfði á Simpsonfjölskylduna,
kíkti aðeins í DV og kyssti strákinn
góða nótt þar sem hann lá sofandi.
Síðan skreið ég upp í rúm og reyndi
að semja smátexta en sofnaöi fljót-
lega áður en mér tókst að koma hon-
um saman. Eftir sátu þó nokkrar
hugmyndir í kolUnum þannig að
textasmíðin komst af stað þótt ekki
lyki henni um kvöldið.“
Finniir þú fímm breytingar? 215
„Reyndu nú að læra eitthvað af þessu, hundkvlkindi!" Nafn:..........
Heimilisfang:
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Aö tveimur vikum hðnum
birtum við nöfh sigurvegara.
1. verðlaun: Aiwa vasadiskó
að verðmæti 4.480 krónur frá
Radíóbæ, Ármúla 38.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækumar, sem eru í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Sonur Ott-
ós, Kolstakkur, Leikmaðurinn og
Víghöfði. Bækumar em gefnar út
af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 215
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö
hundruðustu og þrettándu
getraun reyndust vera:
1. Kristín Jóhannsdóttir,
Stóragerði 2, 860 HvolsveÚi.
2. Guðrún P. Gunnarsdótt-
ir,
HÍíðarlundi 2-103, 600 Akur-
eyri.
Vinningamir verða sendir
heim.