Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1993, Blaðsíða 50
58
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
Afmæli
Þórður Skúlason
Þórður Skúlason, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra sveitarfé-
laga, Funafold 57, Reykjavík, verður
fimmtugur þriðjudaginn 27. júlí
næstkomandi.
Starfsferill
Þórður er fæddur á Hvammstanga.
Hann tók gagnfræðapróf frá Héraðs-
skólanum að Reykjum í Hrútafirði
1960, var verslunar- og skrifstofu-
maður hjá Kaupfélagi Vestur-Hún-
vetninga á Hvammstanga 1960-73,
framkvæmdastjóri Prjóna- og
saumastofunnar Drífu hf. á Hvamm-
stanga 1973-78, sveitarstjóri á
Hvammstanga 1973-90 og fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Lánasjóðs sveitarfé-
laga og Bjargráðasjóðs frá 1.11.1990.
Þórður hefur átt sæti í stjómum
ýmissa félaga og atvinnufyrirtækja,
m.a. Steypuþjónustunnar hf., Mjöls
hf. og Drífu hf. á Hvammstanga þar
sem hann var stjórnarformaður
1972-90. Hann átti sæti í stjóm
Sjúkrahúss Hvammstanga 1974-90,
þarafsemformaðursíðustuárin,í
hreppsnefnd Hvammstangahrepps
1970-74, í sýslunefnd V-Húnavatns-
sýslu 1974-88, í Hérðaðsnefnd V-
Húnavatnssýslu 1988-90, í stjóm
Fjórðungssambands Norðlendinga
1978-86, formaður 1982-84,1 stjóm
Sambands íslenskra sveitarfélaga
1982- 90, Lánasjóðs sveitarfélaga
1983- 91 og í Orkuráði 1987-91.
Þá var Þórður í stjórn Alþýðu-
bandalagsfélags V-Húnavatnssýslu
og miðstjóm Alþýðubandalagsins
til 1991, varaþingmaður Alþýðu-
bandalagsins á Norðurlandi vestra
1983-91. Hann hefur setið í ýmsum
nefndum á vegum sveitarfélaga á
Norðurlandi og á vegum Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Þórður hef-
ur ritað greinar í blöð og tímarit um
sveitarstjómarmál og fleira.
Fjölskylda
Þórður kvæntist Elínu Þormóðs-
dóttur, f. 6.11.1944, aðstoðarmanni
tannlæknis. Hún er dóttir Þormóðs
Eggertssonar, b. á Sauðadalsá, og
Ingibjargar Þórhallsdóttur húsmóð-
ur.
Böm Þórðar og Elínar em: Skúli,
f. 19.1.1964, stjómmálafræðingur,
sambýhskona hans er Sigurbjörg
Friðriksdóttir tannfræðingur og
eiga þau tvö börn; Hjördís, f. 27.1.
1968, kennari, sambýlismaður Þór
Þorsteinsson blikksmiður og eiga
þau eina dóttur; Sunna, f. 30.4.1975,
nemi.
Systir Þórðar er Hólmfríður, f.
26.6.1947, iðnverkakona, gift Þor-
valdi Böðvarssyni, rekstrarstjóra
Vegagerðar ríkisins á Hvamms-
tanga, og eiga þau þrjú böm.
Þórður er sonur Skúla Magnús-
sonar, f. 9.8.1916, d. 17.11.1969, vega-
verkstjóra á Hvammstanga, og Hall-
dóm Þórðardóttur Líndal, f. 20.6.
1914, d. 30.6.1987, húsmóður.
Ætt
Skúli var sonur Magnúsar Þor-
leifssonar, verkamanns á Hvamms-
tanga, og Hólmfríðar Sigurgeirs-
dóttur húsmóður. Magnús var son-
ur Þorleifs jarlaskálds Kristmunds-
sonar og Steinvarar Gísladóttur.
Gísh var síðari maður Skáld-Rósu
og sonur Gísla Gíslasonar, prests í
Vesturhópshólum og á Gilsbakka.
Hans kona var Ragnheiður Vigfús-
dóttir, sýslumanns á Hlíðarenda.
Hún var systir Bjarna amtmanns
og skálds Thorarensen.
Hólmfríður var dóttir Sigurgeirs
Sigurðssonar frá Meiðavöllum í
Kelduhverfi og síðast í Hrauntanga
á Öxarfjarðarheiði.
Halldóra var dóttir Þórðar Þ.
Líndal, b. í Þórukoti og síðar vm. á
Hvammstanga, og Guönýjar Bene-
Þóröur Skulason.
diktsdóttur. Þórður var sonur Þor-
steins Líndal Salómonssonar, b. í
Síðumúla og víðar, og Halldóru
Þórðardóttur frá Fiskilæk. Meðal
bræðra Halldóru voru: Matthías
þjóðminjavörður og Albert, faðir
Kristjáns rithöfundar. Guðný var
dóttir Benedikts Bjömssonar, b. í
Þórukoti, og Ingibjargar Sigurðar-
dóttur.
Þórður og Elín taka á móti gestum
í Þorfinnsstaðaskóla í Vesturhópi í
dag, laugardag, frá kl. 20.30.
Til hamingju með afmælið 24. júlí
ara
Þórhallur Árnason,
Hrísalundi 16G, Akureyri.
Guðrún Konráðsdóttir,
Boðagranda 7, Reykjavík.
70 ára
Marteino Bry njólfur Sigurðsson,
Klapparátíg4, Njarðvík.
Björg Runólfsdóttir,
Hlíðarhúsum, Hlíðarhr.
Guðrún K. Karlsdóttir,
Unufelli 48, Reykjavík.
Hugi Jóhannesson,
Rauðarárstig 3, Reykjavík.
Guðbjörg M. Guðlaugsdóttir,
Háalundi4,
AkureyrL
Eiginmaður
hennarerólaf-
urHalldórsson
læknir.Þau
takaámóti
gestumáheim-
ilisínuáaf-
mælisdaginn
millikl. 15.00 og 18,00.
Jón Sigurðsson,
Básenda 3, Reykjavík.
Jóhanna Elly Sigurðardóttir,
Lækjarseli 6, Reykjavík.
Viiborg Pótursdóttir,
Nýbýlavegi32, Kópavogi.
Hún og eiginmaöur hennar, Sig-
urður K. Haraldsson, taka á móti
gestum í félagsheimili Lionsfélaga
í Kópavogi, Auðbrekku 25-27, á af-
mælisdaginn frá kl. 18.00-21.00
Marel Einarsson,
Vesturfold 39, Reykjavik.
Pétur Stelngrímsson,
Eyrarbraut 26, Stokkseyri.
Dagmar Jóhannesdóttir,
Litlubæjarvör 1, Bessastaðahr.
Guttormur ólafsson,
Hesthömrum 17, Reykjavík.
Guðríður Jónsdóttir,
Blönduhlíð l, Reykjavík.
60 ára
Buldvin Lárus Guðjónsson
verslunarmaö-
ur, Sunnuflöt
43, Garöabæ,
verðursextug-
urmánudag-
inn26.júll.
Eiginkona
hanserHalIa
Stefánsdóttir.
Þau hjónin
taka á móti gestum á heimili sínu
í dag, laugardag, kl. 17.00-20.00.
Helga Elisabet Pétursdóttir,
Svalbarði 4, Höftt í HomafirðL
Hulda Jónsdóttir,
AðalbrautálB, Raufarhöfn.
Lilja Auðunsdóttir,
Vesturbergi 193. Reykjavík.
Friðrik Þorsteinsson,
Rauðarárstíg 41, Reykjavík.
Matthías Þórðarson,
Hvassaleiti 12, Reykjavik.
Halldór Gústafisson,
Stigahlið 97, Reykjavík.
Hofdís Sigurbjömsdóttir,
Rauöalæk 47, Reykjavík.
Kolbrún B. Kjartansdóttir,
Álfaskeiöi 59, Ilafnarflöröur.
Svanhvít Jakobsdóttir,
Áifabrekku 1, Fáskrúðsfirði.
Sævar Pétursson,
Tjarnargötu 38, Keflavik.
FriðrikÓlafsson,
Reykjafold 14, Reykjavík.
Magnús Þór Stefansson,
Breiðumörk 8, Hverageröi.
PállHelgason,
Hringbraut 88, Reykjavík.
Öskar Ólafur Elisson,
Kirkjubæjarbraut 6, Vestmanna-
eyjum.
Freymóður Jensson,
Sunnubraut 19, Garður.
Guðmundur Hinrik Hjaltason,
Skeljagranda 15, Reykjavík.
Guðrún K. Karlsdóttir
Guðrún Kristjana Karlsdóttir
húsmóðir, Unufelli 48, Reykjavík,
ersjötugídag.
Fjölskylda
Guðrún er fædd aö Vetleifsholti í
Rangárvallasýslu. Hún bjó í 23 ár á
Öldugötu 23 í Hafnarfirði en hefur
síðustu 26 árin búið í Reykjavík.
Fyrri maður Guðrúnar var Sigur-
geir Gíslason, f. 6.6.1919, d. 3.3.1953,
sjómaður. Hann var sonur Gísla G.
Guðmundssonar frá Tiamarkoti í
Njarðvíkum og Ingunnar Ólafsdótt-
ur frá Höfða á Vatnsleysuströnd.
Guönin og Sigurgeir áttu sex
böm: Gísh Ingi, f. 1942, búsettur í
Hafnarfirði, rannsóknarmaður hjá
Hrauni hf., og á hann eitt bamn;
Klara, f. 1944, danskennari í Hafnar-
firði og umsjónarkona í Hvaleyrar-
skóla, gift Sigurði L. Jónssyni hús-
gagnasmíðameistara og eiga þau
þrjú böm; Hrönn, f. 1947, rekur lik-
amsræktarstöð í Kópavogi, í sam-
búð með Gunnari Þór Birgissyni
símsmiði og á hún eitt bam; Guð-
laugur Heiðar, f. 1948, fulltrúi hjá
Reykjavíkurborg, hann á fjögur
böm og eitt fósturbam; Sigurgeir
Rúnar, f. 1950, húsasmiður í Reykja-
vík og starfsm. Hagvirkis-Kletts,
kvæntur Maríu B. Gunnarsdóttur,
rannsóknarmanni á Keldum, og á
hann eitt bam og eitt fósturbam.
Seinni maður Guörúnar var
Sveinn Stefánsson, f. 9.9.1919, d. 3.3.
1982, bílstjóri hjá Vegagerð ríkisins.
Hann var sonur Stefáns Sveinsson-
ar kennara frá Neðri-Rauðalæk á
Þelamörk í Eyjaíírði og Rannveigar
ólafsdóttur frá Rangá í Fellum.
Guðrún og Sveinn áttu sex börn.
Þau eru Stefán, f. 1955, verkstjóri
hjá Reykjavíkurborg, búsettur í
Vogum á Vatnsleysuströnd, kvænt-
ur Díönu B. Sigurðardóttur hús-
móður og eignuðust þau fjögur
böm, þrjú þeirra em á lífi; Karl
Hallur, f. 1957, símsmíðameistari,
kvæntur Hafrúnu Magnúsdóttur
bankamanni og eiga þau eitt barn;
Soffía, f. 1960, starfsmaður GYM 80
í Reykjavík, gift Jóni Gunnarssyni,
tækjamanni hjá Gunnari og Guö-
mundi; Ólafur, f. 1962, símsmíða-
meistari í Kópavogi, kvæntur
Margréti Gylfadóttur bankamanni
og á hann eitt fósturbam; Rannveig,
f. 1964, býr í Garðabæ; Sveinn, f.
1965, býr í Reykjavík.
Guðrún er dóttir Karls Guðvarðar
Guðrún Kristjana Karlsdóttir.
Guðvarðssonar og Höllu Sæmunds-
dóttur. Fósturfaðir Guðrúnar var
Guðlaugur Jónsson, bóndi á Heiði í
Holtum ogvíðar.
Systkini Guðrúnar, sammæðra,
vom 7 og þar af em þrjú látin.
Bamaböm hennar eru 16 og bama-
bamabörn9.
Guðrún tekur á móti gestum á
heimih sínu milli kl. 15.00 og 19.00 á
afmælisdaginn.
Sviðsljós
Islenskumælandi sendi-
herra kom með flugklúbbi
Guðfinnur Finnbogasan, DV, Hólmavik:
Það var stóratburður í bæjarlíf-
inu hér er félagar úr flugklúbbi
Mosfellsbæjar heimsóttu Hólmvík-
inga á dögunum í sólskini og blíð-
viðri. Aldrei hefur það áður gerst
að 12 flugvélar væm á Hólmavík-
urflugvelh samtímis og líklegt er
að einhver bið verði á því aö það
gerist aftur.
Stærsti atburður dagsins var
óumdeilanlega koma rússneskrar
tvíþekju af gerðinni Antonow. Er
hún bæði stór og tignarleg en þó
ekki alveg ný af nálinni. Innan-
borðs voru ekki ómerkari gestir en
íslenskumælandi sendiherra Rúss-
lands á íslandi ásamt eiginkonu og
fylgdarhði.
Ungum sem öldnum stóð til boða
smáflugferð yfir næsta nágrenni í
vélum flugklúbbsins og þágu það
flestir. Fóm þar margir í sína
fyrstu flugferð en varla þá síðustu.
ærar þakkir til ykkar sem biðjið um
að andvirði afmælisgjafa renni til krabba-
meinssjúkra barna.
Tækifæriskort SKB fást á skrifstofu félagsins,
Hafnarstræti 20 (3. hæð), Reykjavík, S. 91-
676020. Opið mánudaga 13.00-15.00 og mið-
vikudaga 15.00-17.00. Reikningur nr. 545 í
Búnaðarbanka íslands, Austurstræti. STYRKTARFÉLAG
KRABBAMEINSSJÚKRA BARNA
n
Rússneska tvíþekjan af gerðinni Antonow vakti mikla athygli Hólmvík-
inga. DV-mynd Guðfinnur