Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1993, Síða 20
ao
LAUGARDAGUR 24, JÚU 1993
Kvikmyndir
Hér er Orlando með Elísabetu I Englandsdrottningu.
Aö undanfórnu hafa tvær breskar
kvikmyndir vakið nokkra athygli og
veriö sýndar á kvikmyndahátíöum
víða um heim. Það er ekki þar með
sagt að bresk kvikmyndagerð sé að
fá aftur vind í seglin heldur undir-
strikar þetta frekar að enn Mr í
gömlum glæðum. Það hefur alltaf
veriö erfitt fyrir breska kvikmynda-
gerð að rífa sig upp úr sínu hefð-
bundna munstri og höfða til fleiri en
sinna eigin landa. Breskar myndir
vilja því miður veröa allt of oft svo
„breskar“ í eðli sínu að þær ná ekki
að höfða til þeirra sem búa fyrir utan
breska landsteina. ■
Uinsjón
Baldur Hjaltason
Þótt báðar ofangreindar myndir sæki
efnisþráð sinn til þátíöarinnar að
mestu leyti hefur leikstjórum þeirra
tekist að gæða þær miklu M og í
öðru tilvikinu tengja efnið skemmti-
lega við nútímann. Myndin OR-
LANDO, sem gerð er eftir sam-
nefndri sögu Virginíu Woolf frá 1928,
hefst árið 1600 í Englandi. Ungur
aðalsmaður, Orlando að nafni,
ákveður ásamt fjölskyldu sinni að
halda dansleik heima þjá sér og býð-
ur þangað meðal annars Elísabetu
I. Englandsdrottningu. Drottning-
unni líst svo vel á hinn unga Orlando
aö hún gefur honum afsal að landar-
eign foreldra hans.
Svefninn mikli
Tíu árum síðar, eftir lát bæði
drottningarinnar og foreldra Or-
lando, er honum boðið í hóf sem
haldið er í tilefni heimsóknar rúss-
nesku konungsfjölskyldunnar. Or-
lando, sem var trúlofaður, verður
ástfanginn af rússneskri prinsessu
en þegar hún svíkur hann um stefnu-
mót leggst hann í dvala og vaknar
ekki fyrr en 1650. Þá ákveður hann
að gerast ljóðskáld sem hann og ger-
ir allt til 1700 þegar Orlando hellir
sér út í sfjómmál sem endar með því
að hann er gerður að sendiherra
Breta í Asíu.
Tíu árum síðar er erkihertogi send-
ur til að veita Orlando orðu fyrir vel
unnin störf. Rétt áður en veislan á
að hefjast brýst út stríð á svæðinu
og enginn mætir. Orlando sér fram
á að verða að taka þátt í stríðinu og
beijast en eins og áöm- fellur hann í
dásvefn þegar erfiðleikar steöja að
og vaknar síðan aftur sem kona.
Hann snýr því aftur til Englands 1750
sem hefðarmær. Hins vegcur er henni
tilkynnt þar að hún geti ekki lengur
gert tilkall til eigna ættarinnar þar
sem hún sé nú kona. Erkihertoginn
býðst til að giftast henni en hún neit-
ar því staðfastlega.
íslandsvimir
Það er ekki fyrr en 100 árum síðar
að hún hittir riddarann sinn á hvíta
hestinum. Hann heitir Shelmerdine,
bandarískur ævintýramaður. Hún
ber fram bónorð en hann neitar þótt
þau búi saman um hríð. En síðan
snýr Shelmerdine aftur til sinna
heimkynna og Orlando missir allar
eignir sínar vegna þess að hún hafði
ekki eignast son. Tíminn líöur og
þegar myndin endar erum við komin
til nútímans og Orlando býr í London
ásamt dóttur sinni.
Þetta er enginn venjulegur sögu-
þráður enda Sally Potter enginn
venjulegur leiksfjóri. Það má til gam-
ans geta þess að fyrsta mynd Potters
í fullri lengd var kvikmynduð á ís-
landi að hluta árið 1981. Þetta var
myndin THE GOLD DIGGERS sem
að mörgu leyti var tímamótaverk. í
fyrsta lagi stóð eingöngu kvenfólk
að gerð myndarinnar og er þetta
fyrsta breska myndin sem var unnin
þannig. í öðru lagi er hér um mikiö
þrekvirki að ræða af hendi Potters
því á listrænan hátt reynir hún að
endurskrifa kvikmyndasöguna út frá
sjónarhomi konunnar. Því var hér
raunar um að ræða félagslega og
pólitíska mynd, gerða innan kvik-
myndaiðnaðar sem hingaö til hefur
meira eða minna verið stjómaö nær
eingöngu af karlmönnum. Það er því
forvitnilegt að Sally Potter skuli hafa
valið Orlando sem efniviö. Söguhetj-
an virðist bæöi ódauðleg og geta skipt
átakalaust um kyn.
Undir áhrifum
Leikurinn er góður eins og við
mátti búast. Það er Tilda Swindon
sem fer með hlutverk Orlando bæði
sem karlmaður og kvenmaöur og fer
það vel úr hendi. Það er hins vegar
karlmaður sem leikur Elísabetu I.
Englandsdrottningu. Það er Quentin
Crisp og fer hann á kostum þegar
hann daðrar við Orlando.
ORLANDO minnir nokkuð á sum-
ar myndir Peter Greenaway enda
tóku þátt í gerð myndarinnar nokkr-
ir af samstarfsmönnum hans. Hins
vegar fer Sally Potter sínar eigin leið-
ir. Hún hefur þó fengið nokkra gagn-
rýni fyrir það að vera of akademísk
í myndum sínum. Það er nokkuð til
í því en í hóflegu magni getur það
gert myndirnar bitastæðari. Það má
þó segja með vissu að ORLANDO sé
engin gamanmynd fyrir íjöldann en
mun eignast sína aðdáendur hér á
landi sem annars staðar.
alþýð-
unnar
Hin breska myndin er MUCH
ADO ABOUT NOTHING þar sem
Kenneth Branagh leitar aftur á
slóðir Shakespeare eftir að liafa
reynt fvrir sér á öðrum miðum i
tveiinur siðustu myndum sínum.
Líklega hafa fáir leikarar skot-
ist eins hratt upp á stjörnuhimin-
inn og Kenneth Branagh. Hann
sló eftirmimúlega í gegn með leik
sínum, þá rúmlega þrítugur, i
myndinni HENRY V sem var
byggð á samnefndu verki Shake-
speare. Var Kenneth likt við sir
Laurence Oliver þegar hann var
upp á sitt besta í myndum eins
og OTHELLO. En eftir að hafa
leikið í og leikstýrt DEAD AGAIN
og svo PETER’S FRIENDS, þar
sem Kenneth reyndi að endur-
skapa sömu stemninguna og í
myndinni THE BIG CHILL (1983;
Lawrence Kadan), er hann aftur
kominn á heimaslóðir. Bæði DE-
AD AGAIN og svo PETER'S FRl-
ENDS voru sæmilegar en það
vantaði eitthvað upp á til að þær
næöu vinsældum, sérstaklega sú
síðarnefnda.
Sérfræðingur
í Shakespeare
Það virðast hins vegar fáir slá
Kenneth Branagh út þegar kem-
ur að því að gera Shakespeare
alþýðlegan. Hvort sem kvik-
myndahúsagestir eru kunnugir
þessu verki Shakespeare eöa ekki
geta þeir ekki annað en hrifist af
efnisþræðinum og meðferð hans
í höndum Kenneth. Ekki sakar
það aö í einu hlutverkanna er
eiginkona hans, Emma Thomp-
son, sem m.a. hlaut óskarsverð-
launin fyrir leik sinn í HOW-
ARDS END. Það virkai- hins veg-
ar ósannfærandi hvernig Kenn-
etli blandar saman breskum léik-
urum, sem hafa áður leikið í
kvikmyndum byggðum á verkuin
Shakespeare, og svo bandarísk-
um leikurum eins ogDenzelWas-
hington, Michael Keaton og Ro-
bert Sean Leonard. Þessir síðast-
nefndu virka þvingaðir á köflum
eins-og þeir finni sig ekki í leik
sinum.
MUCH ADO ABOUT NOT-
H3NG íjallar eins og mörg verk
Shakespeare um áslir, svik og
heimsku. Þegar sigúrsælir her-
menn snúa aftur heim eftir erfitt
stríð bíða þeirra konur, matur og
vin. Sögusviðið er tilbúið, nú skal
fariö að undurbúa kvöldskemmt-
un. Ekki verður farið nánar út í
söguþráðinn heldur verða áhorf-
endur að upplifa hann sjálfir þeg-
ar myndin kemur til íslands. En
einu er þó óhætt að lofa, það er
góðri skemmtun.
Hjónakornin Kenneth Branagh
og Emma Thompson tara með
hlutverk i myndinni.