Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1993, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ1993
Alda Sigurðardóttir er aðalleikkona kvikmyndarinnar Hin helgu vé sem frumsýnd verður í haust:
„Ég leik Helgu, heimasætuna á
bænum. Hún er hlý og hún er góð,
ljúf og eðlileg. Ég held að Helga
geymi mikið af sveitinni í sér. Úti á
landi finnst mér eins og hægist á tím-
anum,“ segir Alda Sigurðardóttir,
tvítug aðalleikkona nýjustu myndar
Hrafns Gunnlaugssonar. Hún er
ómenntuð í list sinni; hefur blá,
tindrandi augu og fallegt bros.
„Hin helgu vé er svolítið frábrugð-
in öðrum myndum Hrafns. Hún er
falleg." Og Alda hlær. „Þetta hljóm-
aði nú líklega undarlega." Hin helgu
vé geyma ekkert ofbeldi, hrottaskap
eða morð. „Stráknum verður rétt
flökurt einu sinni.“
Hin helgu vé
„Hin helgu vé eru víkingahaugur á
einni af Breiðafjaröareyjunum. Þjóð-
trúin segir að ef grafið er í hauginn
þá brenni bærinn sem við hann
stendur. Myndin fjallar um borgar-
barnið Gest sem kynnist sveitalífinu.
Hún snýst um samband níu ára
drengs og tvítugrar heimasætu sem
fóstrar hann.“ Hrafn skrifar handrit-
ið og byggir það aö einhveiju leyti á
eigin reynslu og æskuminningum.
Sögusviðið er í nútímanum þótt yfir
því hvíli fornlegur ævintýrablær.
„Strákurinn tekur ástfóstri við
heimasætuna en hún er hrifin af
ungum manni á nálægri eyju. Af-
brýðisemi og kvöl kviknar þess
vegna hjá drengnum. Þegar parið
unga giftir sig tekur hann til sinna
ráða. Brúðgumann leikur Valdimar
Örn Flygenring."
Pilturinn Gestur er leikinn af ung-
um Reykvíkingi, Steinþóri Rafni
Matthíassyni. „Hlutverk okkar
Steinþórs eru líklega stærst. Aðrir
sem koma mikið við sögu eru karlinn
á bænum, sem Helgi Skúlason leik-
ur, kærastinn Hjálmtýr og Kolla sem
er lítil stúlka sem verður vinkona
Gests.“ Átta ára snót, Tinna Finn-
bogadóttir, leikur þessa jafnöldru
sína. Með hlutverk móður Gests fer
Edda Björgvinsdóttir. Ömmu hans
leikur sænsk revíuleikkona.
Hvíturvíkingur
„Ég hafði unnið með Hrafni áður
en ég fékk hlutverkið í Hinum helgu
véum.“ Alda fór með hiutverk í síð-
ustu mynd hans, Hvíta víkingnum.
Hún lék víkingsdóttur sem haldið
var í gíslingu í nunnuklaustri. Þar
mátti hún dúsa ásamt Emblu, heit-
mey víkingsins hvíta, og þriðju vík-
ingsdótturinni.
„Ég hét líka Helga í þeirri mynd,
hvort sem það er tilviljun eða ekki.
Helga þýðir heilög. En varla eru afiar
Helgur þó ljóshærðar." Andlitið er
fullt af lífi þegar hún segir frá og svo
þessi dillandi, bjarti hlátur.
Alda er dóttir Sigurðar Guðjóns-
sonar leigubílstjóra og Steinunnar
Gísladóttur sjúkrahða, næstelst í
hópi þriggja systkina. Hún ólst upp
á Réttarholtinu og sótti bamaskóla í
Bústaðahverfinu. Hún stefnir nú að
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól-
anum í Armúla en var áður í Versl-
unarskólanum.
1300 stúlkur
vildu hlutverkið
„Ég var búin með eitt ár í Versló
Úr Hinum helgu véum sem frumsýnd verður í haust. „Hin helgu vé fjalla um níu ára dreng sem verður hugfanginn
af heimasætunni þar sem hann er í sveit.“ Alda Sigurðardóttir og Steinþór Rafn Matthíasson í hlutverkum sinum.
Stolt meö vel verkaða grásleppu. „Ég var viku í Flatey
til að læra réttu handtökin."
Alda eignaðist tígur sem hún gaf nafnið Víkingur. „Ég
færi nú ekki langt með hann í dag.“
„Nekt þarfnast hugrekkis og er alls ekkert sjálfsagt mál,“ segir Alda m.a. í viðtalinu. Alda nakin (til vinstri) í hlut-
verki sínu í Hvíta víkingnum.
þegar Hrafn valdi mig í Hvíta víking-
inn. Hann auglýsti í Morgunblaðinu
og200 íslenskar stelpur svöruðu. Mér
skilst að í Noregi hafi þær verið 500
og 600 í Svíþjóð." Hún lætur á engu
bera. „Auðvitað var mikið ævintýri
að vera valin úr svona stórum hópi.
Það var þó verið að prófa í fleiri hlut-
verk en það sem ég fékk. Við vorum
látnar hvæsa eins og kettir og gelta
eins og hundar - sýna reiði og blíðu.
Og svo tóku við fleiri próf.“ Sjálf
vinnan við myndina var þó ekki ein-
tómur dans á rósum.
„Langerfiðast var atriði þar sem
við vorum skírðar í klausturlaug-
inni. Við áttum nefnilega að vera
allsnaktar. Spennan magnaðist því
við þurftum að bíða lengi á sloppun-
um.“ Og nú er andlitið alvarlegt.
„Það vildi til að norska mótleikkonan
mín brotnaði gjörsamlega saman. Ég
einbeitti mér þess vegna að því aö
hughreysta hana og varð rólegri
sjálf.
Öll atriðin mín í Hvíta víkingnum
voru tekin upp í Noregi. Mér fannst
rosalega stór hópur vinna við mynd-
ina og ég hitti ekki næstum því alla.
Þegar ég rakst á Helga Skúlason á
frumsýningunni var hann til dæmis
mjög lengi að átta sig á því hver ég
væri.“ Alda hlær hvellt. „Og svo
sagðist hann bara ekki hafa þekkt
mig í fóturn." Helga var þó vorkunn
því Alda va/Tiær hárlaus og auk
þess haugskítug í hlutverki sínu.
„í Hinum helgu véum voru hins
vegar bara átta bak við myndavélina.
Við vorum nær ekkert förðuð og
hópurinn bæði lítill og samstæður.“
Ævintýraþrá
og sjálfstæði
„Ætli ég hafi ekki tekið þátt í Hvíta
víkingnum í leit að ævintýrum. Ég
missti töluvert úr skólanum meöan
ég var í Noregi. Ég fómaði því þó-
nokkru til að vera með og fór að
vinna þegar heim kom um haustið."
Alda hefur sterka skapgerð og ein-
beittan vilja. „Ég held ég hafi alltaf
verið sjálfstæð og hef lengi unnið
fyrir mér.“ Hún leigði herbergi ein
síns liðs „á þrjóskunni einni" aðeins
sextán ára gömul.
„Á þeim árum vann ég svo mikið
á varaorkunni að ég gat sofnað alls
staðar - meira að segja í prófum.“
Nú býr Alda hjá móður sinni og á
kærasta. Hann heitir Ómar Kaldal
og þau hafa verið saman í eitt og
hálft ár.
„Ég vann lengi á veitingahúsinu
Ítalíu. Það þótti nú ekkert slor af
fimmtán ára stúlku. Svo var það einu
sinni að ég þjónaði enskri fjölskyldu
til borðs. Þau báðu mig að skrifast á
við dótturiha sem er á mínum aldri.
Og það varð úr.“
Tígurinn Víkingur
Englendingarnir reyndust eiga
dýragarð í Bretlandi. Álda fór utan
veturinn eftir ævintýrið kringum
Hvíta víkinginn og gerðist au pair í
London. Um sumarið vann hún í
dýragarði vinaijölskyldu sinnar.
„Þetta var ótrúlegt sumar. í þess-
um dýragaröi er meðal annars
stærsta slöngusafn í Evrópu. Ég var
hins vegar svo heppin að fá að hirða
tígrisdýraungana og sjá um þá. Við
vorum reyndar mjög fá sem fengum
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
37
að koma nærri þeim.“ Alda fékk svo
einn ungann að gjöf í lok sumarsins.
„Ég hefði aldrei getað tekið hann
með mér heim. Fyrir utan vinnu og
fyrirhöfn kostar tæpa milljón að
fæða fullvaxinn tígur í eitt ár. En ég
gaf honum nafn. Hann heitir Víking-
ur.“
Flatey, Grótta
og grásleppa
„Tökur á Hinum helguvéum fóru
allar fram síðasta sumar. í júní voru
æfingar en upptökur stóðu frá byrj-
un júlí og fram í miðjan ágúst." Með-
al annars var myndað á Vestfjörðum,
Amarstapa og á eyjum Breiðafjarð-
ar. Mestur hluti myndarinnar var
þó tekinn í Gróttu. „Hún hentaði
myndinni geysilega vel - enda Grótta
alveg ekta Breiðaflarðareyja."
Alda dvaldist í Flatey í viku áður
en tökur hófust. „Það er atriði í
myndinni þar sem Helga verkar grá-
sleppu. Ég hafði hins vegar varla
komið nálægt fiski. Hafsteinn bóndi
úr Skáley var því fenginn til að
kenna mér réttu handtökin. Hjá hon-
um var Hrafn einmitt í sveit sem
strákur.
Ég lærði þó ekki bara að verka fisk
heldur líka að tína egg og borða sel.
Þetta var frábær tími,“ segir Alda og
viðurkennir fúslega að hún væri lík-
lega blómstrandi sveitastúlka ef ör-
lögin hefðu ekki sett hana niður á
Réttarholtinu.
Nekt var skilyrði
„Ég hef engin efni á að segjast
ætla að verða stjama. Þetta er bara
tækifæri sem ég fékk.“ Alda segir að
Hrafn hafi verið búinn að láta sig
hafa handritið að Hinum helgu véum
áður en hlutverkið var auglýst.
Fjölmiðlar fluttu á þessum tíma
fréttir af því að Linda Pétursdóttir,
fyrrverandi fegurðardrottning, hefði
hafnað hlutverkinu. Var sagt að það
væri vegna nektarsenu í myndinni
sem hún hefði ekki getað sætt sig við.
„Það var auðvitað svolítil pressa á
mér út af þessu. Nekt þarfnast hug-
rekkis og er alls ekkert sjálfsagt
mál. Satt að segja leist mér ekki á
þetta fyrst." Alda bætir þó grallara-
lega við: „Maður er kominn á vafa-
sama braut, farinn að fækka fótum
í hverri mynd.“ Hún skiptir þó fljótt
um svip.
„Ég get vel skilið að Linda hafi vilj-
að snúa þessu máli sér í hag. Kannski
er erfitt að verða aftur sveitastelpa
eftir að hafa verið glæsikona í stór-
borgum - jafnvel svo erfitt að borgar-
barn eins og ég getur leikið það bet-
ur. Það er eitt að sitja fyrir og annað
að leika.“
Það er auðsætt að Alda getur haft
ákveðna skoðun þótt brosið sé sjald-
an fjarri. Hún strýkur mikið, ljóst
háriö aftur og horfist í augu við
heiminn án þess að blikna.
Ást á tjaldi
„Þegar fiarar út myndast pollar
í klöppunum við sjávarmálið. Þar
baðar heimasætan sig nakin. Atriðið
finnst mér reyndar bæði eðlilegt og
mjög fallegt." Litli strákurinn verður
áhorfandi að athöfninni og heillast
af þessari sjón. „Við Steinþór
sjáumst reyndar bæði ber í mynd-
inni. En það má ekki misskiljast,"
segir hún og hlær, „það er hvort í
sínu lagi.“
Ástaratriði á móti Valdimar Emi
Flygenring fannst Öldu þó ekki síður
reyna á. Hann leikur ástmann
heimasætunnar Helgu.
„Við vorum þó vel búin undir tökur
á öllum atriðum myndarinnar. Það
skiptir ekki minna máli en handritið
sjálft." Alda segir að hjálp Maríu Sig-
urðardóttur hafi þar oft skipt miklu
en hún aðstoðaði við leikstjórn.
„Hópurinn var reyndar bæði fá-
mennur og góður.“
„Þaö er þó áreiðanlega miklu erfið-
ara að horfa á sjálfan sig á tjaldi fyr-
ir fullu húsi en að leika fyrir lítinn
hóp og myndavél. Og svo er hitt;
þótt að ég sé ekki afbrýðisöm hugsa
ég að mér þætti erfitt að sjá kærast-
ann í faðmlögum - jafnvel þótt það
væri í kvikmynd." Álda segir að sér
hafi þó reynst auðvelt að skilja að líf
og leik.
Alda Sigurðardóttir, ný stjarna Hrafns Gunnlaugssonar. „Ég hef engin efni á að segjast ætla að
fengi annað tilboð myndi samhengið skipta miklu máli. Ég vil ekki festast í einhverju hlutverki."
verða stjarna. Þetta er bara tækifæri sem ég fékk. Ef ég
DV-mynd JAK
Hið ósagða
oft sterkast
„Mér finnst oft of mikil mötun í
kvikmyndum. Það þarf ekki að sýna
allt. Hið ósagða og það sem gefið er
í skyn er oft sterkara en það sem
sést eða heyrist." Og hún heldur
áfram er talinu víkur að kvikmynd-
um;
„Það er annars jákvætt hvað ís-
lenskar kvikmyndir eru orðnar fyr-
irferðarmiklar. Eitthvað nýtt er
komið fram. Þær fialla miklu meira
en áður um það sem er að gerast í
dag. Mér finnst þær margar mjög
skemmtilegar."
Alda segir að samstarf þeirra
Hrafns hafi gengið vel. Þar geti þó
verið flestra veðra von. „Hann vinn-
ur sína vinnu og gerir vel. Hrafn
sveiflast þó stundum hratt milli ofsa-
kæti og hálfgerðrar fýlu.“ Og hún
hugsar sig um: „Hrafn er bara Hrafn.
En það segir nú kannski ekki mikið?
Og þó.“
„Maður lærir að líta á gagnrýni
sem leiðsögn þegar maður er undir
leikstjórn. Leikstjórinn ræður. Ef
hann segir mér að gera eitthvað get
ég voða htlu breytt. Það kom þó fyrir
að ég sagði stopp."
Alda segist eiga auðvelt með að
vinna með fólki svo lengi sem það
sé sanngjarnt. Það sé þó gott að hafa
skap. „Mamma hefur alltaf sagt að
skapmesta fólkið sé duglegasta fólk-
ið. Og þessu trúi ég.“
Þýtur blóð í æðum
„Það getur oft verið erfitt að leika
Alda uppáklædd i hlutverki Heigu og Hrafn Gunnlaugs-
son leikstjóri: „Hrafn sveiflast hratt milli ofsakæti og
hálfgerðrar fýlu.“
og vinnudagurinn er langur. Ná-
kvæmnin þarf að vera mikil. Aht
krefst aga. Eins þarf maður alltaf að
vera tilbúinn í slaginn þótt álagið sé
mikið. Ég ákvað snemma að drekka
ekki áfengi þennan tíma. Enda held
ég að mér hafi aldrei verið boðið jafn-
oft í glas.“ Hún brosir að minning-
unni. Vætir varirnar.
„Fátt er þó eins gaman og að leika.
Maður finnur blóðið þjóta um
æðarnar. Sífeht kynnist maður nýj-
nm hhöum á sjálfum sér. Þetta hefur
verið mjög lærdómsríkt. Ég var í
Hvíta víkingnum mest af ævintýra-
þrá. í Hinum helgu véum vissi ég
miklu betur um hvað þetta snerist.
Alda og Steinþór í Gróttu. „Steinþór hefur mikla hæfi-
leika. Það er frábært að vinna með börnum og finna
hvernig allt sem þau gera og segja kemur frá hjartanu
- jafnvel leikinn texti.“ DV-mynd JAK
Þetta er einlæg mynd og ljúf. íslend-
ingar eiga þó kannski eftir að flækj-
ast í því að hún er eftir Hrafn. Ég
óttast þaö.
En ég er ekki hrædd við gagnrýn-
ina þótt ég viti að hún getur verið
hörð. Ég hugsa að ég vegi hana og
meti eins og tilsögn og kennslu. Hún
getur verið mjög gagnleg ef hún er
ekki ósanngjöm."
í framtíðinni hefur Alda hug á að
halda áfram aö leika. „Annaðhvort
fer ég í leikhst eða sálfræði. TU þess
langar mig mest. Mig skiptir það
meira máh en flest annað hvað mig
langar. Ég er rómantísk og lifi lífinu
frá degi til dags.“ -DBE
En kannski er ég fyrst núna fullfær
nm að leika Helgu." Hún þagnar eins
og til að endurhfa hðinn tíma.
„Viðhorfin breytast við það að
leika. Ég held að ég eigi miklu auð-
veldara með að sefia mig í annarra
spor nú. Og það er gott að vinna með
leikurum og kvikmyndafólki. Þau
líta heiminn öðrum augum. Leikarar
hafa til dæmis sjaldnast efni á að
hugsa um veraldleg gæði. Þeir fá svo
Ula borgað." Og aftur glettinn hlátur.
Vé í skugga Hrafns
„Ég hef trú á Hinum helgu véum.