Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1993, Qupperneq 32
40
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ1993
íþróttir
Spj aldakóngurinn
- Egill Már Markússon er spjaldaglaðasti dómarinn í Getraunadeildinni
ö&wjftr gsls spióldk?
2
Dómari ®
Spjöld
Orrason
Egill Már Markússon
Gísli Guömundsson
Ari Þórðarson
Sæmundur Víglundsson
Guðmundur Maríasson
Bragi Bergmann
Kári Gunnlaugsson
Eyjólfur Ólafsson
Gunnar Ingvarsson
Þorvarður Björnsson
Ólafur Ragnarsson
mmm
(Mmrnm?
mm» %%
mmm* §»13
(ms» S»®
<mm> 137®
mmim %7©
<m?_ %7§
m? %7§
mm %7§
Egill Már Markússon, knatt-
spymudómari úr Gróttu, fær þann
heiður að vera spjaldaglaðasti dóm-
arinn í Getraunadeildinni þegar 8
umferðum er lokið þar. Egill hefur
ekki verið spar á spjöldin í þeim fjór-
um leikjum sem hann hefur dæmt;
hann hefur lyft þeim 18 sinnum á
loft og fjórum sinnum hafa þau verið
í rauðum Ut sem þýðir brottrekstur.
EgiU er því samkvæmt þessu harð-
asti dómarinn í deildinni.
Reyni að leggja
ákveðna línu
„Ég veit ekki hvort ég er nokkuð
harðari en aðrir dómarar. Ég reyni
að leggja ákveðna Unu fyrir leikina
og verð að vera samkvæmur sjáifum
mér. Ég telst kannski strangur en
mér finnst ekkert að því. Alþjóða
knattspymusambandið (FIFA) hefur
sett fram mjög skýr fyrirmæU og þau
eru ströng. Þar er lagt upp að dómar-
ar séu strangir og taki fast á málum.
Dómgæslan hefur raunar breyst
mikið undanfarin 2 ár og nú er tekið
harðar á brotum en áður,“ segir Eg-
iU Már í spjalU við DV.
EgiU hefur dæmt í 1. deild 1 5 ár
og er einn af yngstu dómurunum sem
dæmt hafa í deUdinni. Hann er auk
þess með alþjóðleg línuvarðarrétt-
indi og hefur dæmt alþjóðaleiki á
erlendri grund.
„Þaö má segja að ég sé með algera
dómaradeUu. Ég tók ungUngadóm-
araprófið 1981 og sjö ámm síðar varð
ég landsdómari. Ég dæmdi síðan
minn fyrsta leik í 1. deUd í júh 1989,
þá 24 ára gamaU. Ég hef verið á kafi
í dómgæslunni síðan og reyndar
einnig dæmt í handboltanum. Ég
dæmdi þar fjögur ár í 1. deUd en síð-
ustu 2 árin hef ég einbeitt mér að
knattspymunni. Dómgæsla er í
heUdina sú sama og hugsunin er aUt-
af eins þó að reglumar séu mismun-
andi. Ég hef mjög gaman af að dæma
og ég held að þetta haldi mér hrein-
lega gangandi."
Dómari má ekki
gera mistök
„Dómari má ekki gera mistök í leik,
þá verður aUt vitlaust. Sem dómari
er maður bara eins góður og maöur
var í síðasta leik. Það skiptir engu
máli þótt maður dæmi 10 góða leiki
í röð því ef manni verða á mistök í
11. leiknum þá muna menn bara eft-
ir þeim slæma. Þetta er harður heim-
ur og það þarf ekki mikið tíl að dóm-
arinn sé dæmdur skúrkur en hann
er aldrei hetja.
Það er auðvitað misjafniega erfitt
að dæma leiki. Sumir leikmenn og
Uð eru erfiðari en önnur en dómari
á náttúrlega aldrei að láta leikmenn
eða Uö komast upp með neitt óprúð-
mannlegt. Inni á vellinum hefur
dómarinn völdin og enginn annar.
Það sem er hins vegar oft erfiðara
er mannskapurinn utan vaUar,
áhorfendur eða forráðamenn Uð-
anna. Inni á vellinum getum við
vemdáð okkur meö spjöldum en ut-
an vaUar erum við nánast vamar-
lausir. Þá em skýrslur eftirUts-
manna okkar eina vemd. Þó hafa
flest 1. og 2. deUdarhðin eflt gæslu
við vellina en sumir vellir era þann-
ig gerðir að dómarar geta lent í vand-
ræðum eftir leiki; þeir þurfa að ganga
langa vegalengd að búningsklefum
og þá oft í gengum hóp af fólki.“
Vildu selja á mig
veiðileyfi
„Axmars hef ég sem betur fer aldrei
lent í neinu slæmu utan vaUar. Það
er helst á skemmtistöðum sem menn
vUja ræða máUn en þaö er aUt í vin-
samlegum tón. Menn hafa eflaust
misjafnar skoðanir á mér sem dóm-
ara en ég hef lokað eyrunum fyrir
öUum skömmum ef þær era fyrir
hendi. Það er oft sagt að helsti kostur
dómara sé að vera heyrnardaufur.
Það er alveg ljóst að það fer enginn
í dómgæsluna tíl þess að verða vin-
sæU.
Mér finnst þó allt í lagi að dyggir
stuðningsmenn Uðanna kalU á dóm-
arann í leik ef þeir em ósáttir við
eitthvað því þetta er allt hluti af
leiknum. Mér finnst aUtaf gaman að
dæma í Eyjum því áhorfendur þar
taka ævinlega virkan þátt í leikniun.
Það var einu sinni kaUað á mig úr
stæðunum á leik í Eyjum að það
ætti að bjóða mér á þjóðhátíð og selja
á mig veiðUeyfi!"
Dómaramálin hér í
mjög góðu lagi
„Ég tel að dómaramáUn séu í mjög
góðu lagi hér heima. Dómaranefnd
KSÍ hefur starfað mjög vel undanfar-
in ár og þaö hefur skUað sér í betri
vinnubrögðum og jafnari og sterkari
hóp dómara. Ég tel aö við höfum á
að skipa góðum hópi af dómumm.
Ég held að dómararnir leggi mikið á
sig og hafi mikinn metnað til að
standa sig, ekki síður en leikmenn-
imir sjálfir. Leikmenn leggja á sig
gífurlega vinnu og við verðum ein-
faldlega að gera það sama. Það er vel
fylgst með okkur og við fáum á okk-
ur skýrslur frá eftirUtsmönnum.
Fjölmiðlar auka líka kröfuna á
dómara um að standa sig. Við erum
ekki hafnir yfir gagnrýni og við vUj-
um fá á okkur dóma en það er þó
stundum sem mér finnst við vera
gagnrýndir fullharkalega án rök-
stuðnings. Fiölmiðlar geta stimplað
ákveðinn dómara þegar þeir fjalla
um hann á annað hvort jákvæðan
eða neikvæðan hátt og það getur
haft áhrif á dómarann í næsta leik.“
Fékk fjögurra
leikja bann
„Það er dáUtið gaman að segja frá
því að ég var sjálfur enginn engiU
þegar ég lék með Gróttu í 4. deUdinni
hér áður fyrr og maður lét oft dómar-
ann heyra það. Það var í leik með
Gróttu fyrir mörgum ámm að ég
braut gróflega af mér og ólafur
Sveinsson rak mig réttilega af veUi.
Ég fékk fiögurra leikja bann og eftir
þetta sneri ég mér að dómgæslunni
og hef ekki snúið aftur síðan," segir
EgUl Már að lokum.
-RR
Egill Már Markússon með spjöldin á lofti. Egill Már hefur gefið fleiri spjöld en nokkur annar dómari í Getrauna-
deildinni - samtals 18 i fjórum leikjum. DV-mynd JAK
137 spjöld á lofti
í Getraunadeildinni
- dómarar gefa að meðaltali 3,4 spjöld í leik
Eftir 8 umferðir í GetraunadeUd-
inni í knattspymu hafa 137 spjöld
verið á lofti hjá dómurunum í þeim
40 leikjum sem leiknir hafa verið í
deUdinni. Af þeim hafa 125 veriö gul
en 12 rauð hafa fariö á loft. Það gerir
að meðaltali um 3,4 spjöld í leik. Þetta
er mjög svipað hlutfall og undanfar-
in ár og því varla hægt að segja að
deUdin sé grófari eða linari en áð-
ur.
Það er auðvitað mjög misjafnt eftir
leikjum hve mörgrnn spjöldum dóm-
arar þurfa að lyfta á loft. Sumir leik-
ir em harðari og grófari en aðrir og
dómarar taka þá að sjálfsögðu fastar
á málum og gefa þá líklega fleiri
spjöld.
Egillmeö fiest spjöld
en Ólafur meö fæst
DV tók saman hvaða 1. deUdar dóm-
arar hafa gefið flest spjöld og hveijir
fæst. Útkomuna má sjá á töflunni hér
tU hhðar.
Samkvæmt töflunni hefur EgUl
Már Markússon gefið flest spjöld í
GetraunadeUdinni eða 18 talsins en
hann hefur dæmt fióra leiki í deUd-
inni. Þar af em 4 rauð spjöld og sam-
kvæmt þessu er Egill „harðasti"
dómarinn í 1. deUdinni. Gylfi Orra-
son er þó fyrir ofan hann ef meðaltal
er tekið saman en Gylfi hefur gefið
14 spjöld í aðeins þremur leikjum eða
að meðaltah 4,6 spjöld í leik. Gylfi
hefur þó aðeins gefið gul spjöld. Ólaf-
ur Ragnarsson er hins vegar sá sem
gefið hefur fæst spjöldin. Hann hefur
aðeins þurft að lyfta 9 spjöldum í fiór-
um leikjum eða 4,25 spjöldum í leik.
Á svipuðu róli eru þeir Þorvarður
Bjömsson og Gunnar Ingvarsson
með 5 spjöld hvor en þeir hafa aðeins
dæmt tvo leiki hvor.
Harðasti leikurinn samkvæmt
spjöldum var leikur Þórs og Fylkis
en þann leik dæmdi Gísh Guðmunds-
son og gaf hann fimm gul spjöld og
tvö rauð í leiknum.
Þess má geta að í þeim 40 leikjum
sem leiknir hafa verið í Getrauna-
deildinni hefúr aðeins einn leikur
verið spjaldalaus. Hann dæmdi Eyj-
ólfúr Ólafsson og þurfti hann aldrei
að fara í vasann efiör spjöldunum.
-RR