Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1993, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
Fréttir
Slysið árið 1987 þegar 13 ára stulka lenti í drifskafti dráttarvélar:
Málfríði dæmdar
8,7 milljónir í bætur
- ekki fallist á rök VÍ S um að slysið hafi ekki hlotist af notkun dráttarvélar í umferð
Vátryggingafélag íslands hefur
verið dæmt til að greiöa Málfríði
Þorleifsdóttur, 19 ára, stúlkunni sem
lenti í óvörðu drifskafti dráttarvélar
á bænum Austurhlíð í Gnúpverja-
hreppi í júlí 1987, tæpar 9 milljónir
króna í skaða- og miskabætur með
vöxtum frá 1988.
Stúlkan, sem var 13 ára þegar slys-
ið átti sér stað, missti vinstri hand-
legg og höfuðleðrið, auk þess sem
hún hlaut fleiri líkamsskaða þegar
slysiö átti sér staö þegar verið var
að sefja hey í hlöðu. Örorka hennar
hefur verið metin 80 prósent og út-
litslýti veruleg.
Þegar Vátryggingafélag íslands
hélt uppi vörnum í málinu taldi það
að slysið hefði ekki hlotist af notkun
dráttarvélar í skilningi 67. greinar
umferðarlaga notkunar öku- eða
dráttartækis sem „er í umferð“. Þar
var átt viö að dráttarvélin hafi sjálf
ekki verið á hreyfmgu. Tryggingafé-
lagið benti á að dráttarvéhn hefði
verið kyrrstæð og hættan hefði staf-
að af drifskafti, óvörðum tengibún-
aði.
Héraðsdómur Reykjavíkur taldi að
svoköhuð hlutlæg bótaregla umferð-
arlaga gilti um öll tæki sem teljist
vélknúin og bundin við tjón sem
verður af notkun þeirra. Dómurinn
taldi að véhn hefði verið í hefðbund-
inni notkun þann dag er slysið varð
og drifskaftiö beinlínis knúið með
vélarorku dráttarvélarinnar. Jón
Finnbjömsson, settur héraðsdómari,
kvað upp dóminn.
-Ótt
Vátryggingafélag íslands hefur ver-
ið dæmt til að greiða Málfríði Þor-
leifsdóttur, sem lenti í óvörðu drif-
skatti dráttarvélar i júli 1987, tæpar
9 milljónir króna í skaða- og miska-
bætur með vöxtum frá 1988. Á
myndinni er Málfríður með barn sitt.
DV-mynd GVA.
Afgreiðsla mála að komast í eindaga á Alþingi:
Efast um að
fjárlög verði af-
greidd fyrir jól
- segirHalIdórÁsgrímsson
„Við höfum enn ekki fengið tekju-
frumvörpin tU umfjöllunar og enn
er ekki lokið umfjöllun um matar-
skattslækkunina né virðisaukaskatt
á innanlandsferðir og ferðaþjónustu.
Ég fæ því ekki séð hvernig menn
ætla að afgreiða fjárlög fyrir jól ef
svo heldur fram sen horfir," sagði
HaUdór Ásgrímsson, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþingis.
í samtaU við DV í gær.
Hann sagði að mál frá ríkisstjórn-
inni kæmu nú mjög seint fram og að
mjög margt væri óklárt af því sem
þarf að afgreiða.
Vilhjálmur Egilsson, varaformað-
ur efnahags- og viðskiptanefndar,
var ekki jafn svartsýnn. Hann taldi
að hægt væri með góðum vilja að
afgreiöa fjárlögin fyrir jólaleyfi.
„Ég tel það alveg víst að ekki verði
hætt viö að leggja virðisaukaskatt á
innlend fargjöld og ferðaþjónustu.
Það var ákveðið með lögum í fyrra
að þetta yrði svona. Mistökin voru
ef til viU að láta þetta taka gUdi um
áramót. Það hefði átt að láta lögin
taka gUdi 1. október síðasfliðinn. Þá
væri þetta ekki að tefja fyrir af-
greiðslu mála nú,“ sagði VUhjálmur.
Það er alveg ljóst að ríkisstjómin
verður aö stytta málaUsta sinn, sem
hún vUl fá afgreiddan fyrir jól, ef
takast á að ljúka fjárlagagerðinni.
Ofan á aUt bætist að heUl hópur
þingmanna er á förum tU útlanda í
dag. Þar er um að ræða þingmanna-
nefnd EFTA. Þingmennimir koma
ekki aftur heim fyrr en á sunnudag.
Þá er Jón Baldvin Hannibalsson,
formaöur Alþýðuflokksins og utan-
ríkisráðherra, erlendis og verður
fram að jólum. AUt tefur þetta mjög
alla afgreiðslu mála á Alþingi.
-S.dór
Getum ekkert
fallsboðunina
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- laun eru ekki borguð út. Þar að
ráðherra var spurður að því í gær auki tel ég að það sé ólöglegt að
hvort ríkisstiórnin gæti ekki leyst grípa inn i deUuna með lagasetn-
yfirstandandi sjómannadeUu með ingu eins og þú spuröir um, eftir
lagasetningu um bann viö því að aö verkfaU hefur veriö boöað,“
sjómenn séu látnir taka þátt í kvó- sagöi Þorsteinn.
takaupum útgerðarfélaga? Hann sagðist hafa boðist til fýrir
„í fyrsta lagi tel ég að það séu lög löngu aö aðstoöa viö lausn þessarar
sem banna þetta. Þar á ég viö að deilu með lagasetningu ef menn
það er í Éjarasamningum sjómanna væru með eitthvað tílbúið. Það
að þeir skuU ekki taka þátt í kvóta- hafi hins vegar aldrei neitt komið
kaupum. Kjarasamningar era lög- tU stjómvalda frá deUuaöUum.
vemdaðir. Það þarf því bara að „Þess vegna held ég að það sé
kæra þessi mál. Viðkomandi ekki margt sem við getum gert úr
verkalýösfélög geta svo boðaö þessu," sagði Þorsteinn.
verkfaU hjá útgerðarfélögum sem -S.dór
bijóta samningana alveg ems og ef
Mörgum Akureyringum finnst að ekki séu að koma jól fyrr en jólastjarnan
er komin upp á milli aðalbyggingar KEA og Hótel KEA fyrir neðan Akur-
eyrarkirkju. Þar er nú allt orðið uppljómað, enda jólin á næsta leiti.
DV-símamynd gk
Alþingi:
Ingi Bjöm gegn meirihlutanum
í efnahags- og viðskiptanef nd
Ingi Bjöm Albertsson hefur snúist
gegn stjómarméirihluta efnahags- og
viðskiptanefndar í virðisaukaskatt-
lagningu á ferðaþjónustuna.
Ingi Bjöm sagði í samtali við DV í
gær að hann væri algerlega andvígur
því að virðisaukaskatturinn yrði
settur þama á.
Stjómarandstaðan i nefndinni með
HaUdór Ásgrímsson, formann nefnd-
arinnar, í broddi fylkingar er þessu
líka andvíg. Afdrif málsins eru því í
óvissu eins og stendur.
-S.dór
Landabrugg:
Söluverðmæti 750 þúsund
Ætla má að söluverðmæti landa-
framleiðslu bruggara sem teknir
voru við iðju sína í Þrístiklu síðast-
hðinn laugardag hafi getað numið á
áttunda hundrað þúsund krónur á
viku. Er þá miðað við um 500 Utra
framleiðslu á viku en lagt var hald á
um 14 hundmð Utra af gambra þegar
verksmiðjunni var lokaö.
Að sögn lögreglu voru gæði land-
ans nfiög léleg og hætta á að mikið
af lélegum landa sé nú í umferð.
-PP
Stuttar fréttir
Engarreglur
Engar reglur hafa verið settar
um umferð tankskipa við íslands-
strendur. Samkvæmt Ríkissjón-
varpinu eru um 600 þúsund tonn
af olíu flutt með tankskipum til
íslands árlega.
Stórkaupmenn mótmæia
Útflutningsráð Félags íslenskra
stórkaupmanna mótmæhr
greiöslu félagsgjalda til Útflutn-
ingsráðs íslands í gegnum inn-
heimtukerfi skatta.
Örtröð eftiár matarmiðum
Mikil ásókn var í matarmiða á
skrifstofu mæörastyrksnefndar í
gær, einkum af atvinnulausum
einstæðum mæðrum, samkvæmt
frétt Stöðvar 2.
Bankarkæra lika
Aðstandendur debetkorta ætla
að senda Samkeppnisstofnun
bréf um aö hún kanni hvort
meintar markaðshindranir
Kaupmannasamtakanna í debet-
kortamálinu standist samkeppn-
islög. RÚV greindi frá þessu.
Fyrírtækitryggð
Ríkisstjómin hefur skipað
nefnd til að undirbúa lög sem
tryggja íslensk fyrirtæki m.a. fyr-
fr hugsanlegum vanefhdum í ut-
anríkisviðskiptum.
Minni ræstingar-
kostnaður
Eftir að ræstingar í framhalds-
skólum í Reykjavík vora boðnar
út hefur kostnaður við þær lækk-
að um 15 til 17%. Þetta kom fram
á Ríkissjónvarpinu.
Þorsteinnbakkar
Vegna andstööu í fjárlaganefhd
Alþingis hefur Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra hætt við
áform sin um að fækka sýslu-
mannsembættum.
mannafélag SVR
Benedikt Davíðsson, forseti
ASI, gagnrýnir starfsmannafélag
Reykjavikurborgar fyrir fram-
göngu félagsins í máU starfs-
manna SVR og segir ótækt að
starfsmenn SVR séu í tveimur
stéttarfélögum.
Enginn bókavörður
Morgunblaöið grcinir frá því aö
enginn gæti íslenskra bóka í
ComeU-háskólanum í Bandarikj-
unum, næststærsta safni ís-
lenskrabókaerlendis. -bjb