Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1993, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
Stuttar fréttir
Utlönd
Engir augljósir möguleikar eru
á samkomulagi millí Jeltsíns
Rússlandsforseta og þingsins.
KohlogClintoii rólegir
Helmut Kohl,
kanslari
Þýskalands,
segir ástæðu-
laust aö gera of
mikið úr sigri
þjóðemissinna
í Rússlandi.
Clinton Banda-
ríkjaforseti er á sömu skoðun.
Hræðast Zhirínovskí
Ráðamenn í lýðveldum Sovét-
ríkjanna gömluhafa lýstótta sín-
um yfir íylgi Zhírínovskís.
Forsætisráöherrar Breta og íra
ræða í dag um írlandsmáliö.
BaristíBosníu
í morgun var hart barist í Bosn-
iu eins og undanfarna daga.
Útlagarnir heim
Seinustu palestínsku útlagarn-
ir fá að fara heim frá Suður-
Lábanon á föstudaginn.
Clinton Bandaríkjaforsetisegir
að ástæðulaust sé að hækka vexti
af ótta við verðbólgu.
Utiiógnaf N-Kóreu
John Shalik-
ashvili, forseti
bandariska
herráðsins,
segir aö lítil
ógn stafi af
herliði Norð-
ur-Kóreu-
manna þótt
ráðist verði inn í Suður-Kóreu.
Fríðarfundur i dag
ísraelsmenn og Palestíumenn
ræða um fríö á fundl I dag.
HeimfráAlsá
Kanadískir sendimenn verða
kallaðir heim frá Alsír.
ÞernasáJacksonaðleik
Fyrrum þerna hjá Michael
Jackson segist hafa séð hann
nakinn með ungum drengjum.
Verkfaili lokið
Starfsfólk á Arlandaflugvelli í
Stokkhómli er hætt 1 verkfalli.
Bændur bölva G ATT
Norskir bændur segjaað GATT
ríði þeim að fullu.
Æfirútíkvótann
Norskir trillukarlar hafa lýst
fullri andstöðu við kvótakefið.
Norski skipakóngurinn Kloster
hefur selt helming af flota sínum.
Stórstjarna deyr
Bandaríska
leikkonan
Myma Loy er
látin í New
York eftir löng
veikindi. Hún
lék í um 124
myndum á 60
árum, þar
meðal stónnyndunum The Jazz
Singer og The Tin Men.
Ráðherra í vitnastúku
Andreotti, fyrrum forsætisráð-
herra á Ítalíu, var yfirheyrður
vegna mafiumála í gær.
Balladur trúir á GATT
Balladur, forsætisráöherra
Frakklands, er viss um þing-
meirihlutra fyrir GATT.
Reuter, TT og NTB
Tugir manna fórust og 50 er saknað eftir einstætt grjóthrun í Egyptalandi:
Fólk kramið undir
3000tonna bjargi
- steinninn lagði níu hús í Kaíró 1 rúst áður en hann brotnaði í sundur
„Þetta eru ótrúlegar hörmungar,"
sagöi borgarstjórinn í Kaíró í Egypta-
landi éftir að í þaö minnsta 25 menn
létu lífið þegar um 3000 tonna bjarg
féll á hús í úthverfi borgarinnar. Um
fimmtíu manna er saknað og er talið
ólíklegt að nokkur þeirra finnist á
lifi.
Aðeins hefur tekist að bjarga þrem-
ur íbúum húsanna undan molunum
úr steininum. Stórvirkar vinnuvélar
eru notaðar við verkið og fjöldi fólks
er að róta í rústunum í leit að ættingj-
um sínum. Mikil skelfmg greip um
sig meðal fólks í hverfmu. Þó er ekki
talin hætta á að fleiri steinar falli.
Slysið er rakið til jarðskjálftans
mikia í Kaíró á síðasta ári. Þá losn-
aði steinninn úr klettum yfir út-
hverfinu og lenti á sorphaug. Þaðan
haggaðist hann ekki fyrr en í gær
eftir að eldur var lagður að sorpinu.
Fólk, sem lifir á haugunum, var að
róta í þeim og kveikti í því sem ekki
reyndist nýtilegt.
Þegar sorpið rýrnaði í eldinum valt
bjargið og yfir byggðina. Alls uröu
níu hús undir steininum og flöttust
þau öfl út. Fimm hús önnur eru illa
farin.
Steinninn var i heilu lagi þegar
hann valt af stað en brotnaði síðan
í marga hluta og er enn verið að velta
molunum af rústunum í von um að
einhveijir finnist á lífi. Ekki er vitaö
nákæmlega hve margir voru innan-
dyra þegar bjargið féll.
Alls búa um 250 þúsund manns í
úthverfinu þar sem steinninn kom
niður. Lengi vel var taliö ótryggt að
búa þama vegna hættu á gijóthruni
en fyrir um þremur áratugum var
fólki heimilað að setjast að undir
klettunum, sem nú hafa fallið yfir
byggðina. Hörmungamar nú era
taldar með þeim verri í sögu Egypta-
lands. Reuter
Björgunarmenn segja aö bjargið hafi veriö um þrjú þúsund tonn að þyngd þegar þaö féll yfir úthverfi Kairó. Níu
hús flöttust alveg út undir steininum og eru lík 25 manna þegar fundin. Óttast er að fimmtíu til viöbótar hafi kramist
til bana. Bjargið losnaði þegar verið var að brenna sorp. Það molnaöi í.sundur við lendinguna. Sfmamynd Reuter
Undarleg ævi Vladiimrs Zhírínovskí, leiðtoga rússneskra þjóðernissinna:
Fann Rússland í stað eiginkonu
„Ef ég hefði fúndiö konu sem
elskaði mig þá heföi ég sóað allri
orku minni í hana,“ skrifar rúss-
neski þjóðemissmninn Valdimir
Wolfowítsj Zhirínovskí í sjálfsævi-
sögu sinni.
Söguna kallar hann Síðasta leik
suðurs. Henni er líkt við Mein
Kampf Adolfs Hitler og er það ekki
eina samlíkingin sem menn sjá
með þessum tveimur ákafamönn-
um í þjóðemishyggju.
Ástleysi alitfrá æsku
Zhírínovskí gefur í skyn í bókinni
aö hanti hafi fundið Rússland í stað
trúrrar eíginkonu og Rússlandi
ætli hann aö þjóna. Eina hjónaband
kappans reyndist ástlaust og
óhamingjusamt. Hann segist ekki
heldur hafa eignast vini sem vert
sé aö nefha enda til lítils að eyða
orku sinni á dauðlega menn þegar
Rússland kreíst alls.
„Ég fann aldrei til hlýju í upp-
vextinum, ekki frá foreldrum min-
um, ekki frá vinum og ekki frá
kennurum," segir Zhirínovskí i
ævisögunni. Hann hæiir sér af af-
burða frammistöðu í skóla og segist
vera fjölmenníaðri en aðrir stjóm-
málamenn i Rússiandi.
Hann segist hafa fagnað öllum
sigmrn. sínum á námsbrautinni
einn. „Ég fór einn heim í herbergi
mitt á heimavistinni. Þar var eng- :
inn til að samfanga, enginn til aö
drekka kampavin með. Ég var al-
veg einn.“
Þessi einfari hefur nú náö mikl-
um áhrifum 1
rússneskum
stjómmálum.
Kjósendur féllu
unnvörpum
fyrir áróöri
hansumcndur-
reisn Rúss-
lands. Hann Zhirínovskí.
gefur fyrirheit
um að Rússar öðlist fyrri virðingu
og þeir ráði á ný fyrir stórveldi eins
og. „sagan hefur alltaf ætlað þeim“.
í haust sagði Zhírínovskí að eðli-
legt væri aö Þjóöverjar og Rússar
ættu landamæri saman. Þá er ekk-
ert pláss eftir fyrir Austur-Evrópu.
Hann hefur þó ekki í hyggju að
taka lönd slava og balta með her-
valdi.
„Við munum beita efhahags-
þvingunum og þá koma þessar
þjóðir og biðja Rússa um að taka
við sér,“ sagði Zhírínovskí sigur-
viss. Svo virðist sem fiöldi Kússa
trúi þessu.
Besti vinur Saddams
Zhirínovski fór aö svipasf um eft-
ir samherjum í baráttunni í útiönd-
um. Þar fann hann vin og félaga í
Saddam Hussein íraksforseta.
Honum rann til rifja að stjómin í
Kreml stóð ekki með irökum þegar
Vesturlönd ákváöu að refsa þeim
fyrir aö hertaka Kúveit. Síöar hefur
Zhírinovskí farið til íraks og Sadd-
am veit að hann á hauk í homi í
Kreml komist oddviti rússneskra
þjóöemissinna til valda.