Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1993, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
Spumingin
Fylgist þú með
NBA-boltanum?
Sigriður Lára Andrésdóttir: Já,
stundum.
Valgerður Þorsteinsdóttir: Já, stund-
um.
Fríða Sigurðardóttir: Já, svolítið, alla
vega úrslitunum.
Bylgja Guðmundsdóttir: Já, ég fylgist
með NBA.
Hrönn Guðmundsdóttir: Já, en ekk-
ert mjög mikið.
Ingvi Þorsteinsson: Já, það kemur
fyrir.
Lesendur
Stórsveit Reykjavíkur og aðrar slikar:
Ráðhúsið tilvalinn
hljómleikastaður
G.A. skrifar:
Margar hafa „sveitimar“ verið
stofnaðar til að koma lífi í djass og
dægurlagaflutning með „big-band“
sniði. Rikisútvarpið hefur t.d. stofn-
að nokkrar en þær hafa illu heilli
ekki átt langa lífdaga. Nú er enn
komin fram ný sveit, Stórsveit
Reykjavíkur, sem hélt tónleika í Ráð-
húsinu laugard. 4. des. sl. Þetta voru
tímamót því þótt þama hafi komið
fram hljómsveitir af þessari tegund
áður minnist ég ekki að svipuð ís-
lensk hljómsveit hafi leikið þama
fyrr. Það era yfirleitt engir tónleikar
af þessari tegund haldnir hér. Samt
eigum við lúðrasveitir en þær leika
aldrei úti undir berum himni nema
1. maí og 17. júní og þá marsa og
Öxar við ána.
Tónleikamir í Ráðhúsinu áður-
nefndan laugardag undir stjóm Sæ-
bjamar Jónssonar og með söngvur-
unum Lindu Walker og Ragnari
Bjarnasyni vora vel heppnaðir og vel
þegnir. Svona tónleikar hefðu mátt
vera hvern laugardag til jóla a.m.k.
Bæta má við einu og einu lagi, hljóm-
sveitin æfist, styrkist og fær meira
sjálfstraust. Auðvitað er erfitt að
halda þessari tegund tónhstar í
gangi. Það má enginn vera að neinu,
útsetjarar fást ekki ókeypis og menn
í fullri vinnu. En þetta er nú leggj-
Stórsveit Reykjavíkur á fullu undir
Ragnari Bjarnasyni söngvara.
andi á sig sem fríshmdagaman, er
það ekki?
Sannleikurinn er sá að svona stór-
sveitartónleikar era að verða eftir-
sóttir af öllum fjöldanum, hinum
þögla meirihluta sem vill stíl og reisn
yfir flutningi djass og dægurlaga.
„Big-band“ er ekki „big-band“ fyrr
en það er komið í 15 - helst sem
næst 20 manns. Annaö er fátækra-
tóniist. Þessi gömlu sígildu dægurlög
og eðaldjassinn krefst mannskaps,
ekki einyrkja. Meira að segja Oscar
stjórn Sæbjarnar Jónssonar og með
Peterson var löngu hættur að leika
nema undir stórsveit.
Nú veit ég ekki hver eða hvort ein-
hver greiðir Stórsveit Reykjavíkur
laun en áreiðanlega myndu fáir mót-
mæla því þótt Reykjavíkurborg
„eignaðist" eða styrkti svona hljóm-
sveit verulega til æfinga og gætu þá
tónleikar orðið nokkuð reglulegir
viðburðir í Ráðhúsinu, utan- eða inn-
andyra. Upp með „brassið" á ný.
Megi Stórsveitin dafna undir styrkri
stjóm.
Lífsliáskalegir banndagar krókaleyf isbáta
Jón Sigurðsson skrifar:
Engu er líkara en frumvarp sjávar-
útvegsráðherra sé dregið upp úr
skrifborðsskúffu LÍÚ til að fækka
krókaleyfisbátum í eitt skipti fyrir
öll með góðu eða illu. En tímabundið
væri hægt að sættast á 106 banndaga
í stað 146, frá 15. nóv. til 15. febrúar
og um eina viku um páska og aðra
viku um verslunarmannahelgi.
Sjö banndagar í lok hvers mánaðar
þýðir mikið kapphlaup smábátasjó-
manna við veðurguðina, sem aftur
þýðir í raun lífsháskalega sókn smá-
báta. Nú þegar hafa of margir ís-
lenskir sjómenn verið teknir burt í
blóma lífsins í baráttunni við Ægi
og því algjörlega óásættanlegt að lög-
binda frumvarpsdrög um stjóm fisk-
veiða sem stuðlar að auknum slysiun
á sjó.
Sjávarútvegsráðherra er greinilega
á miklum villigötum með frumvarp
sitt um sljóm fiskveiöa smábáta og
greinilegt að þar fer maður með htla
reynslu í baráttunni við Ægi kon-
ung. Nokkrir túrar á krókaleyfisbáti
út af Vestfjörðum í nóvember eða
desember ehegar einn túr á togara í
Smugunni myndi nægja til að kynn-
ast þessari baráttu.
Fjöldi banndaga í framvarpi sjáv-
arútvegsráðherra þýðir í raun að
smábátar muni eiga mjög erfitt að
ná 10 þús. tonnum á veiðiárinu að
mati þeirra sem gleggst þekkja. Vin-
sælasta veiðiaðferðin er tvímæla-
laust krókaveiðar en óvinsælustu
veiðamar era veiöar togara uppi í
landsteinum þar sem þeir snúa öllu
við í vistkerfi sjávarins með togveið-
um. - Það er löngu tímabært að færa
togarana lengra frá landi, t.d. 30 míl-
ur eða svo og láta krókaveiðum eftir
svæðið út að 30 mílum.
Auglýsingafrdsi á áfengi
Stuðlar auglýsingabann á áfengi að spillingu í innflutningi, sölu og dreif-
ingu áfengis hér á landi?
Jón Ólafsson skrifar:
Að undanförnu hefur nokkuð öi lað
á því í umræðunnni (t.d. í lesenda-
bréfum DV og e.t.v. víöar) að létta
þurfi af ýmsum boðum og bönnum
og afnema reglugerðir sem ekki era
lengur í takt við tímann og era raun-
ar tíl skaða þar sem þær stangast á
við hehbrigða skynsemi og mismuna
ennfremur landsmönnum gróflega
gagnvart erlendum aðhum. - Þar
hefur fyrst og fremst verið tekið
dæmi af banni við auglýsingmn á
áfengi í íslenskum fjölmiðlum.
Ahir vita að erlendir fjölmiðlar, þ.á
m. allra þjóða tímarit, svo og erlend-
ar sjónvarpsstöðvar sem hér nást
beint án mihigöngu ríkisfjölmiðl-
anna miðla auglýsingum um áfengi
og tóbak th landsmanna. Einnig era
um borð í íslensku flugvélunum
tímarit, innlend og erlend, sem aug-
lýsa þessar vörategimdir og skyldi
maður þó halda að um borð í íslensku
loftfari væri maður enn á íslensku
yfirráðasvæði.
í síðasta vikuriti Pressunnar var
fiallað um þessi mál, bæði af Andrési
Magnússyni blaðamanni og svo í al-
mennri fréttaskýringu Páls H. Hann-
essonar. Eftir lestur þessara tveggja
greina, sem vöktu upp enn fleiri
spumingar en þær svöraðu, hggur
beinast fyrir að spyija: Vhja Islend-
ingar ekki einfaldlega viðhalda þeirri
mismunun sem auglýsingar útlend-
inga á áfengi og tóbaki setja íslend-
ingum í eigin landi? Er ekki ÁTVR
bara sú stofnun sem íslenskir inn-
flytjendur áfengis og tóbaks sætta sig
ágætlega við og vhja frekar nota aug-
lýsingafé hinna erlendu framleið-
enda th að hygla starfsfólki ÁTVR
með ferðum og ýmsum uppákomum.
Og svo yrði nú ekki gæfulegt ef nýir
innflytjendur áfengis færa að keppa
við þá sem era búnir að ná sér í
þæghegt sæti!
Snorri Sigurðsson hringdi:
Fólki getur varla staðið á sama
um þá umræðu sem fram fer í
þjóðfélaginu þessa dagana og vik-
umar. Maður opnar varla blað
eða lhýðir á útvarp án þess að
þessi umræða sé efst á baugi. Og
í viðtalsþáttum og þjóðarsálum
er reynt að fá einhverja th viðtals
sem geta lýst ofbeldi sem best og
skýrast. Þessi ofbeldisumræöa er
orðin ógnvænleg og verkar öfugt
við það sem henni er þó e.t.v.
ætíað að gera. - Það eina sem gild-
ir er að taka rækilega á ofbeldis-
mönnum og þyngja refsingar.
menníbiðstödu
Valdimar skrifar:
Það var skynsamlegt af vcst-
firskum sjómönnum að fella th-
löguna um verkfall sjómanna,
a.m.k. aö svo komnu máli. Með
þessu eru vestiirskir sjómenn í
biðstöðu og að mínu mati geta
þelr ráðið meira og minna gangi
mála þjá hinum sjómannafélög-
unum með þessum hætti. Það er
nefnilega ekki séð hvernig þessi
mál þróast í kringum áramótin.
Ég á von á þvi að þá verði komið
annað hljóð í strokkinn hjá verk-
fahsboðendum og memr vilji
draga th baka verkfallsboðunina
sem er vægast sagt afar óskyn-
samleg.
eftirlitíMoskvu
Pétur Guðmundsson hringdi:
Tveir íslenskir menn vora
sendir héöan til Rússlands til að
hafa eftirlit - ásamt mönnum frá
öðram þjóðum - með kosningum
í þessu víðfeðma og fyrrum vold-
uga ríki. Lítið fer þó fyrir fréttum
frá Rússlandi nema með beinum
viðtölum við Ríkisútvarpsms við
Ölaf Ragnár Grimsson alþm. sem
liefur sínar skýringar á gangi
mála. Morgunblaðiö birtir hins
vegar viðtal við hinn aðilann sem
sendur var héðan, Magnús Ósk-
arsson, en með milligöngu frétta-
ritara Mbl. í Moskvu. Mér finnst
óeðlhegt að RÚV skihi ekki ræða
jafnt við þessa sendimenn okkar.
Anna Magnúsdóttir hringdi:
Ég skora á aha sem tök eiga á
að þrýsta á stjórnvöld um að
breyta skylduáskrift að Sjón varpi
ríktsins i frjálst val, líkt og gerist
hjá Stöð 2 og mun ghda um hvaða
aðra fjölmiðla i framtíðinni. Ég
tek undir með konunni sem hóf
þessa umræðu í lesendadálki DV
hinn 7. des. sl. og gaf upp síma-
númer hjá sér fyrir fólk th að
hringja í þar sem hún hefur út-
búið undirskrifíalista til söfnun-
ar undirskriftum. -En síminnhjá
áðurnefndri konu er 676759. Þetta
mál veröa stjórnvöld að hlusta á.
leyfum óhefta
Ragnar Jónsson hringdi:
Eg fegna eindregið tónum nýju
sphakössum Háskóla íslands og
tel núklar framfarir felast í þess-
ari nýju Lækni. Ég er einn þeirra
sem hræðist ókki ásókn ungra
krakka eða unglinga í svona
spilakassa. Ég veit ekki betur en
bæði spilakassar og jafnvel spila-
víti tíökist í flestum nágranna-
Jöndum og uppeldismál þar þó i
ágætum farvegi. Ég sé ekki meiri
hættu í því fyrir fólk hér á landi
aö eyöa nokkrum krónum í spha-
kassa en bara að fara meö þær í
verslanir. Það er þóalltaf einhver
hugsanlegur ávinnlngur úr köss-
unum.Égmælimeð óheftri spila-
starfsemi hér.