Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1993, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
15
Sighvatur og samviskan
Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra sagði ósatt þegar
hann hélt þvi fram að Alþýðu-
bandalagið væri á móti GATT á
fundi í Reykjavík í sl. viku. í grein-
argerð þingflokks og framkvæmda-
stjórnar Alþýðubandalagsins
vegna EES-málsins 1992 er því sleg-
ið föstu að flokkurinn sé fylgjandi
þróun í átt að opnara hagkerfi á
Islandi og frjálsri skipan verslunar
og viðskipta í heiminum.
„Flokkurinn leggur áherslu á að
samkomulag náist innan ramma
Almenna samkomulagsins um
tolla og viðskipti (GATT) svo kom-
ist verði hjá því að veröldin skipt-
ist í andstæðar og harðsviraðar
viðskiptablokkir. Mikilvægt er aö
tryggja réttláta skipan i samskipt-
um iðnríkja og þróunarríkja og
koma í veg fyrir að hagkerfi verald-
KjaUaiinn
Einar Kari Haraldsson
framkvæmdastjóri
Alþýðubandalagsins
„Mergurinn málsins er sá að fylgi inn-
lend atvinnuuppbygging ekki 1 kjölfar
opnara hagkerfis snýst ódýr innflutn-
ingur upp í eymd og volæði í stað þess
að tryggja aukna hagkvæmni og meiri
velsæld.“
arinnar ógni lífríki og umhverfi
jarðarinnar."
Þróunariönd munu hagnast
Augljóst er að þróunarlönd munu
hagnast af fijálsari heimsviðskipt-
um þar sem iðnríkin og efnahags-
bandalög þeirra lækka varnar-
múra sína kringum landbúnað og
heimamarkaði. Jafn víst er að frí-
verslunin opnar dyr fyrir sterka
auðhringi til þess að drottna yfir
þjóðríkjum og mörkuðum. Margir
óttast að misskipting auðæfa
heimsins muni fara vaxandi og að
aukin heimsviðskipti muni ganga
enn nær lífríki jarðar en orðið er.
Samt sem áður hefur ekki tekist
að koma fótum undir aðrar betri
lausnir á vandamálum heimsins
heldur en hagvaxtarleið sem tekur
meira tillit til lífríkis jarðar.
Athyghsvert er að bæði Norð-
menn og Finnar ætla sér meiri
vernd fyrir sinn landbúnað heldur
en íslendingar samkvæmt GATT-
tilboðum þeirra, og að íslenskum
garðyrkjubændum er ætlað að vera
berskjaldaðri fyrir erlendri sam-
keppni heldur en frændum þeirra
í Skandinavíu.
Það er mikil kokhreysti af smá-
þjóð við ysta haf að ætla sér ekki
aðeins að vera samstiga heldur
ganga feti framar en næstu grann-
ar okkar í innflutningi á sam-
keppnisvöru í landbúnaði. Sérstak-
lega þegar tekið er tillit til þess að
Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra. - .....sagði ósatt þegar
hann hélt þvi fram að Alþýðubandalagið væri á móti GATT ...,“ segir
Einar Karl m.a. í grein sinni.
við erum stórinnflytjendur að
kornvöru og ávöxtum og leggjum
þannig okkar litla lóð á vogarskál-
ar réttlátrar heimsverslunar og
skynsamlegrar verkaskiptingar.
Efast má um Alþýðuftokkinn
GATT-samkomuIagið kemst von-
andi í farsæla höfn þó að mörgum
spurningum sé enn ósvarað um
hversu sanngjarnt og réttlátt það
reynist verða. En það verður ekk-
ert simsalabimm fyrir okkur nema
vel sé á íslenskum hagsmunum
haldið. Efast má um Alþýðuflokks-
krata í þeim efnum. Þar er arfurinn
frá hinum margrómuðu viðreisn-
arárum þeim þungur í skauti, þeg-
ar þeir í 12 ár bundu hendur íslend-
inga í landhelgismálum og töfðu
fyrir útfærslu landhelginnar og
uppbyggingu íslensks sjávarút-
vegs.
Þá héldust ekki í hendur aukiö
fijálsræði og efling íslenskra at-
vinnuvega. Þetta vill gleymast í
umræðum um viðreisnarárin.
Mergurinn málsins er sá að fylgi
innlend atvinnuuppbygging ekki í
kjölfar opnara hagkerfis snýst ódýr
innflutningur upp í eymd og volæði
í stað þess tryggja aukna hag-
kvæmni og meiri velsæld. Útflutn-
ingsleið Alþýðubandalagsins mið-
ast við þennan kjarna og setur
krata um leiö úr jafnvægi, enda
hafa þeir vonda samvisku út af
horfum í íslenskum atvinnuveg-
um.
Einar Karl Haraldsson
Heilbrigðiskerfi
á brún hengif lugs
Þann 17. nóv. sl. var í Sjónvarp-
inu þáttur sem fjallaði m.a. um
lækningakosti sjúklinga. í fram-
haldi af því ætla ég að fjalla um
andstæðurnar heföbundnar og
óheföbundnar lækningar, en merk-
ing hugtakanna markast af sam-
henginu, t.d: eru nálastimgulækn-
ingar heföbundnar í Kína en vest-
rænar lækningaaðferðir óhefö-
bundnar. Síðustu árin hafa þessar
andstæður skerpst og kristallast f
átökum Hallgríms Þ. Magnússonar
læknis og landlæknis.
Eru læknar óþarfir?
Aðferð Hallgríms er einföld og
byggist á tveimur grunnþáttum:
Að næra ljósið í okkur og gæta að
salt og sýrumagni líkamans. En
þetta er ekki í bókum landlæknis
og þess vegna er því hafnað. Emb-
ættið hefur e.t.v. litla fjárveitingu
til bókakaupa! Læknismenntun
Hallgríms og það að hann snýr
baki við heföinni gerir hann mark-
tækan. Hann þekkir baksviðið og
klæki læknastéttarinnar. Það þarf
kjark til að snúast gegn slíku og
helga sig náttúrulækningum.
Hjón, sem stjórnendur þáttarins
ræddu við, lýstu þrautagöngu dóttur
sinnar um læknafhimskóginn. Hún
var komin í hjólastól vegna gigtar og
Kjallarinn
Magnús Gestsson
verkamaður og sagnfræðinemi
komið á ról eftir nokkra mánuði.
Hrokinn í svari landlæknis og
Péturs Péturssonar læknis var með
ólíkindum, en hann sagði meöal
amiars: „Sem betur fer læknast
allir sjúkdómar af sjálfu sér og þess
vegna er hægt að koma með einstök
dæmi. Sú þekking sem ekki byggist
á fyrirferðarmiklum vísindalegum
rannsóknum þar sem læknir hefur
ekki heinlínis áhrif á niðurstöðu
rannsóknarinnar eru einskis
virði.“ Eftir þessu að dæma eru
læknar óþarfir. En Pétur getur
eflaust nefnt dæmi og lagt fram
sannanir byggðar á rannsóknum
orðum sínum til stuðnings.
Hæg heimatökin
Þegar hræða á almenning frá því
að leita sér lækninga utan heil--
Það vill svo vel til aö ég þekki ágætt
dæmi um slíkt.
Maður nokkur greindist með
„collitis ulserosa" fyrir um tíu
árum, var settur á lyf og lagður inn
á sjúkrahús nokkrum sinnum til
1989. Þrátt fyrir lyfin batnaði hon-
um ekki. Dag einn var hann skor-
inn upp, megnið af ristlinum fjar-
lægt og sett upp stóma. En sjúk-
dómurinn hélt áfram. Meira af lyfj-
um og nýr uppskurður í sjónmáfi.
Þá sagði maðurinn nei!
Meltingarsérfræðingurinn sem
„átti“ hann reiddist og spurði:
„Veistu hvað þú ert að gera, þá tek
ekki ábyrgð á þér?!“ „Gott og vel,“
sagði okkar maður „ég tek sjálfur
áhyrgð á mér.“ Hann hætti að éta
lyfin og leitaöi- til Hallgríms, skipti
um lífsmynstur og síðan hefur heil-
brigðiskerfið verið laust við útgjöld
vegna hans.
Fólk er farið aö spyija lækna-
veldið og hikar ekki við að leita
nýrra leiða. Þess vegna er tíma-
bært að leyfa náttúrulækningar
sem eðlilegan valkost í heilbrigðis-
kerfinu og bjóða nám í náttúru-
lækningum. Þar eru hæg heima-
tökin því heföin og reynslan eru
fyrir hendi. Að öðrum kosti lokasí
læknar inni í hrokavirkjum sínum.
Magnús Gestsson
„Fólk er farið að spyrja læknaveldið
og hikar ekki við að leita nýrra leiða.
Þess vegna er tímabært að leyfa nátt-
úrulækningar sem eðlilegan valkost í
heilbrigðiskerfinu. “
læknamir stóðu ráðþrota. Enþáleit- brigðiskerfisins byrja heilbrigðis-
uðu þau til Hallgríms og bamið var stéttimar að tala um peningaplokk.
Meðog
ámóti
Aukið mikilvægi Vamarliðs
eftír kosningar í Rússlandi
Vekurmenn
tilum-
hugsunar
„Ef svo fer
fram sem
horfir eftir
kosningarnar
í Rússlandi,
að þar komist
í oddaaðstööu
á þinginu að-
ilar sem
stefna að þvi
að stækka
Russland og
ná undirtökunum í nágranna-
ríkjum, hlýtur það að vekja menn
tíl. umhugsunar, ekki aðeins hér
á íslandi heldur hvarvetna í Evr-
ópu og hvarvetna í nágrenni við
Rússland.
Bjöm Bjarnason at-
þingismaöur.
ísland er á Norður-Atíantshaf-
inu en öflugasta herstöð Rúss-
lands er á Kólaskaga, við Bar-
entshaf og í nágrenni Noregs.
Þaðan fara flugvélar og skip
Rússa út á Atlantshafið. Menn
hljóta nú eins og áður að taka
mið af því varðandi öryggi ís-
lands jaftit og allra annarra ríkja
sem em í nágrenni við Rússland.
Varnarsamningurinn við
Bandaríkin hefur mikið gildi og
það minnkar ekki vegna kosning-
anna í Rússlandi. Ekki hefur
staðið tfl að breyta honum í
nokkru tilliti. íslendingar hafa
varanlegra vamarhagsmuna að
gæta og viðbúnaður hér þarf að
vera í samræmi við þá.“
her ekki
aukist
„Ég tel af og
frá að þörf
; fyrir her hafi
aukist á ís-
landi vegna
þessara kosn-
inga. Reyndar
tel ég að her-
stöð verði
þeim mun
hættulegri
fyrir íslend- ur'
inga sem meiri líkur eru á ófriði
í heiminum.
Þar fyrir utan er ég ekkert viss
að þessi sigur Zhirinovskys auki
likur á ófriði í heiminum. Það er
óskaplega erfitt að dæma þaö.
Þessi nýja stjórnarskrá sem
Jeltsín var að setja er óskaplega
einræðissinnuð en hann var aö
beijast fyrir því aö verða einræð-
isherra í Rússlandi. Nú hafa
vopnin aöeins hafa snúist í hönd-
unum á honum þar sem allt eins
líklegt virðist aö einhver annar
höndfi þetta einræði sem Jeltsin
var að berjat fyrir. í sjálfii sér
getur það einnig orðiö þriðji að-
ili, eki endilega þessir aðilar,
Það sem mér finnst vera hættu-
legast varðandi atburðarásina í
Rússlandi nú er aö Jeltsin og
fleiri viröast í sókn í að koma á
einræði í landinu. Það er mjög
hættulegt, fyrst og fremst fýrir
rússneska þjóð og hennar stöðu.
Hitis vegar þykir mér ólíklegt að
það auki i sjálfu sér líkur á að
Rússar láti mikið á sér kræla er-
Iendis.
Ef menn telja virkilega aö nú
horfi ófriðlegar en áöur ættum
viö enn frekar að losa okkur við
herinn. Það er einmitt 1 stríði sem
þessi herstöð hér verður segul-
stöð. Þá er hætta á að við lendum
milfieldanna.“ -hlh
Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafraBðing-