Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1993, Page 40
Frjálst,óhaö dagblaö
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993.
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
l ..■■■■....-..... .... .....................................................
Eldur í rusla-
tunnu og bíl
Nýleg Mercedes Benz bifreiö
-skemmdist talsvert þegar kveikt var
í ruslatunnu við Fjölnisveg á þriðja
tímanum í nótt. Bíllinn stóð við hlið
tunnunnar og náðu eldtungur að
sleikja hann en slökkviliði, sem kom
fljótt á staðinn, tókst að slökkva eld-
inn. Málið er til rannsóknar hjá RLR.
Að sögn Þráins Tryggvasonar,
varðstjóra hjá slökkviliðinu, hefur
verið töluvert um að" kveikt hefur
verið í ruslafötum undanfarið. Hann
segir að af þessu geti stafað mikil
hætta því að oft séu þær í námunda
við glugga og eigi eldur því oft auð-
veltmeðaðbreiðastút. -pp
Mengunarslys
Nokkurt magn af hráolíu fór í höfn-
ina í Ólafsvík í morgun. Verið var
að dæla olíu í skip þegar olían lak í
höfnina.
Ákveðið var að bíða þess að olían
brotnaði niður og hafast ekki frekar
aðímálinuíbiii. -pp
ÞREFALDUR1. vinningur
Fuglarnir heim
Um 40 dauðir íslenskir fuglar, sem
smyglað var frá Akureyri fyrir
'nokkru í farteski íslensks sjómanns,
til Noregs, voru sendir til landsins í
gær. Sjómaðurinn reyndist saklaus
af verknaðinum en Akureyringur,
sem var handtekinn, viðurkenndi
verknaðinn.
Fuglarnir verða sendir til náttúru-
fræðistofnunar þar sem þeir verða
tegundargreindir og umsögn gefin
um ástand þeirra stofna sem þeir
voru af og sagt til um hvort þeir séu
í útrýmingarhættu. Þá verður einnig
reynt að segja til um á hvaða árstíma
þeir voru drepnir og hvernig þeir
vorudrepnir. -pp
Sjávarútvegsnefnd krata:
Fundi sjávarútvegsnefndar Al-
þýðuílokksins var frestað í gær að
beiðni forystumanna flokksins. Var
búist við að á fundinum segði hluti
nefndarinnar af sér vegna samkomu-
lags sem sjórnarflokkarnir hafa gert
um sjávarútvegsfrumvörpin þijú á
þingi. Verður fundur í nefndinni
haldinnásunnudag. -hlh
Þungirábensíninu
Lögreglan í Reykjavík var við
hraðamælingar í gærkvöldi og stöðv-
aði á skömmum tíma 18 ökumenn
fyrir of hraðan akstur. Þrátt fyrir
mikinn hraða var enginn þeirra
svipturökuleyfmu. -pp
Gjaldtaka af debetkortum:
Samráð
er bannað
- segir Samkeppnisstofnun
Samkeppnisstofnun hefur sem
kunnugt er fengið erindi frá Kaup-
mannasamtökunum annars vegar og
ASÍ, BSRB og Neytendasamtökunum
hins vegar þar sem farið er fram á
rannsókn á debetkortunum.
Að sögn Guðmundar Sigurðssonar
hjá Samkeppnisstofnun hafa að-
standendur debetkortanna tveggja
vikna frest til að koma sínum sjón-
armiðum á framfæri við stofnunina.
Eftir það verður máliö tekið til ítar-
legrar skoöunar hjá Samkeppnis-
stofnun. Reikna má með niðurstöðu
í byrjun næsta árs.
Meðal þess sem ofangreindir aðilar
vilja að Samkeppnisstofnun skoöi er
hvort samráð og samstarf banka-
stofnana um gjaldtöku af debetkort-
um standist samkeppnislög.
„Hvað varðar gjaidtöku þá er það
ljóst að allt samráö um hana er bann-
að samkvæmt samkeppnislögum.
Það er nú meðal annars það atriði
sem við erum að afla upplýsinga um.
Önnur atriði eru kannski háð mati,“
sagðiGuðmundur. -bjb
LOKI
Er þetta kerfi læknanna
ekki sjúklegt?
Þaö er margt freistandi á jólatrénu og biðin eftir jólunum orðin löng. Leikskólabörn á Rofaborg styttu biðina í gær
með því að heimsækja jólasveinaland á Hótel Loftieiðum. Börnin fengu sér jólakakó í leiðinni. Hér skoða þær
Guðrún Selma og Margrét jólatréð og láta sig dreyma. DV-mynd Brynjar Gauti
Veðriðámorgun:
Talsvert
frost
Á morgun verður norðaustlæg
átt, víðast fremur hæg. Bjartviðri
og talsvert frost sunnanlands og
vestan en dálítill éljagangur á
norðausturhominu og frost þar á
bilinu 2-7 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36
Fastráðnir læknar
i marafaldri vmnu
w
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um
greiðslur til lækna var kynnt opin-
berlega í morgun af Guðmundi
Áma Stefánssyni heilbrigðismála-
ráðherra. Skýrsla þessi mun án
vafa valda miklu umróti i þjóö-
málaumræðunni á næstunni.
í skýrslunni kemur fram, meðal
annars, dæmi af lækni sem er x 100
prósent starfi á sjúkrahúsi og hefur
10,4 milljónir króna í árslaun. Af
þessum heildarlaunum fær hann
3,1 milljón frá sjúkrahúsinu, sem
er 30,2 prósent af heildarlaunum
hans. Og þar af eru 1,2 mílljónir
fyrir aukavinnu. Harm fær þvi tæp
70 prósent launa sinna utan sjúkra-
hússins. Þau laun korna frá Trygg-
ingastoínun rikisins 980 þúsund,
greiðslur frá sjúklingum 360 þús-
und, tveimur opinberum stofnun-
um 94 þúsund, sjúkrastofnun 9.500
og frá fyrirtæki í læknaþjónustu
fær hann 5,8 milljónir.
Dæmi er líka af öðrum fastráðn-
um sjúkrahúslækni sem er með 8
milljónir í árslaun og fær af þvi 7
milJjónir frá sjúkrahúsinu. Af þess-
um 7 milljónum eru 4,8 milljónir
fyrir aukavinnu.
í skýrslunni segir aö í mörgum
tilvikum, þar sem læknar gegna
aðalstarfi inni á sjúki-astofnunum,
séu laun þeirra utan stofnxmarinn-
ar óeðlilega há. Þetta veki upp
spurningar um ábyrgð og eftirlit
stjórnenda viðkomandi sjúkra-
stofnana. Einnig segir að ætla megi
að vegna þess hve launa- og gjald-
skrárkerfi lækna er flókiö og marg-
brotið hati heilbrigðisyfirvöld
skort þá heildaryfirsýn, sem nauð-
synleg sé til þess aö sinna eftirlits-
skyldu sinni með þessum útgjalda-
þætti heilbrigðisþjónustunnar.
Þá er greint frá því í skýrslunni
að eftir því sem Rikisendurskoðtm
kemst næst hafi 854 læknum verið
greiddar 3,6 milljarðar í laun árið
1992. Meðal árslaun lækna Iiafi því
verið 4,2 milljarðar á ári.
Einnig er skýrt frá því að sam-
kvæmt kjarasamningum lækna
geti þeir faiáð í 15 daga námsferðir
á ári á fullum launum. Námsferðin
er greidd, það er flugfar, nám-
skeiðsgjöld og dagpeningar.
Einnig er í kjarasamningum
lækna gert ráð fyrir ökutækjastyrk
fyrir 8 þúsund kílómetra akstur á
ári. Þetta er óháð því hvort læknir-
inn á bifreið eða ekki. Að auki fá
þeir greitt eftir aksturbók ef þeir
aka eitthvað utan leiðar á milli
vinnustaðar og heimihs.
Ljóst er af þessari skýrslu að eft-
irlit stjómenda sjúkrahúsa og
stofnana með viðveru og störfúm
fastráðinna lækna er lítið eða ekk-
ert.
-S.dor
lll
ALPJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ
Lágmúla 5, s. 681644
Þegar til lengdar lœtur