Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1994, Side 18
18
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1994
Dagur í lífl Páls Óskars Hjálmtýssonar tónlistarmanns:
í leit að draumarúminu
ur tekið með sér hvert á land sem
er, og svo erum við eiginlega alveg
búnir að ákveða litina á veggjunum
og gólfteppunum. Bingó.
Eftir svona árangursríka en þó
þymum stráða bæjarferð urðu
manneskjumar tvær sem hana fóm
að verðlauna sig með að kýla sig út
af hnausþykkum mjólkursjeik og
leið líka yndislega eftir á. Þetta er
eiginlega það skemmtilegasta sem ég
geri, að láta allt megrunarhjal sem
vind um eyru þjóta og hreinlega éta
og éta þangaö til ég neyðist til að
jórtra kortérsgamla fæðuna sem get-
ur ekki blandað geði við frönsku
kartöflumar og núðlurnar í einum
og sama maganum.
Með varadekkin
í lauginni
Ég skutla Maríusi í söngtíma og
dirfist svo að láta sjá mig í Vestur-
bæjarlauginni með varadekkin út í
loftiö eftir allt átið yfir daginn. Ég
hreinlega varð að kíkja á íbúðina á
eftir, svona rétt til þess að fullvissa
mig um að við hefðum ákveðið rétta
hti á teppin og svo tekur alvara lífs-
ins við. Eg átti að sprella smá í Versló
um kvöldið og það gekk vonum fram-
ar. Af einhverjum orsökum fann ég
fyrir einhverju stressi í þetta sinnið
en það gerist nær aldrei. En það
þýddi bara að ég var með athyglina
í lagi og skemmtunin tókst bara bet-
ur fyrir vikið. Svo pillaði ég mig
heim. Eftir skemmtanir finnst mér
„dagurinn" loksins vera búinn og ÉG
get tekið við. Gert bara það sem mér
sýnist. Þess vegna vaki ég kannski
alltaf svona lengi fram eftir. Sit bara
og hlusta á músík eða horfi á ógeðs-
legar videomyndir sem fást ekki
nema með einhverjum absúrd leið-
um, eða kjafta bara. Það tekur langan
tíma og ég sofna ekkert fyrr en milli
4 og 5. Það er ekki seinna vænna því
síminn hringir eftir smástund.
En þið heppin. Dagurinn í gær varð
einmitt hálfgerður þverskurður af
mínu lífi, ári gríns. Svona líður næst-
um hver einasti dagur hjá mér, með
nokkrum safaríkum undantekning-
um þó. (Það skal tekið fram að DV
bað mig um að segja frá VIRKUM
degi í lífi mínu, þannig að hér verður
ekki sagt frá óþarfa upptroðslum eða
öðru helgarvaggi.) Þetta byrjar alltaf
á því að ég er vakinn upp við ómþýða
símhringingu, oftar en ekki af ein-
hverri kolóðri manneskju sem hrein-
lega verður að ná í mig klukkan 10.14
vegna einhverrar góðgerðarsam-
komu sem fara á fram tveim vikum
seinna. Þá er ég búinn að sofa í 6-6
tíma því ég er nátthrafn af guðs náð
og fhinst voða gott að dúlla mér við
hitt og þetta þar til sólin sést.
Ég stend því oftast í hörku samn-
ingaviðræðum, nývaknaður og
ferskur eins og glæný ýsa og jarma
mína hlið á máiinu af svo miklum
þokka að viðmælandann grunar það
aldrei að ég lít út eins og sveskja sem
einhver steig á. Viðmælandinn er
oftar en ekki einhver unglingur sem
vill endilega sjá mig sprella í ein-
hverri félagsmiðstöðinni eða á
menntaskólaballi og það er bara allt
í lagi. Þ.e.a.s. ef ég hef tíma. Ég syng
nefnilega líka með Milljónamæring-
unum, (þið vitið, hinni upprunalegu
hljómsveit Bogomils Fonts) og kúnst-
in er að samræma þessi tvö stóru
djobb, mig og þá.
Er aðflytja
með Maríusi
Svo bara fer ég í bæinn. Panta mér
ljósatíma, (sem ég kem alltaf of seint
í), fæ mér að borða í Núðluhúsinu
við Vitastíg (algjört æði) og svo hitti
ég Maríus. Við erum að flytja þessa
dagana og við viljum hafa íbúðina
eins glamúrus og frekast er unnt.
Þannig að við megum engan tíma
missa og brunum á nýju drossívmni
minni húsgagnaverslananna á milli
og spáum og spáum eins og tvær
völvur í áramótapartíi. Fólkið í mál-
arabúðunum á Grensásvegi er farið
aö kannast við okkur og við fílum
það líka í botn.
Ég þarf persónulega að fjárfesta í
hinum ýmsu innanstokksmunum
fyrir íbúðina, og framtíðina, og fann
í þessari bæjarferð alveg geggjað
rúm í IKEA sem ég hreinlega verð
að splæsa í þegar pyngjan nennir.
Maríus fann fataskáp, sem hann get-
Páll Oskar i draumariiminu sem hann fann í Ikea.
Finnur þú fimm breytingai? 246
Þú getur ekki ímyndað þér hve ég nýt friðarins og kyrrðarinnar hér uppi! Nafn:......
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáö kemur í ljós aö á mynd-
inni til hægri hefur fimm atriðum
verið breytt. Finnir þú þessi fimm
atriði skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að tveimur
vikum liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun: Rummikub-spiiið,
eitt vinsælasta fjölskylduspil í
heimi. Það er þroskandi, skerpir
athyglisgáfu og þjálfar huga-
reikning.
2. verðlaun: Fimm Úrvalsbækur.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Mömmudrengur, Þrumu-
hjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn
þrá. Bækumar em gefnar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 245
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð fertugustu og fjórðu get-
raun reyndust vera:
1. Sumarliði Póll,
Drangavöllum 2,230 Keflavík.
2. Ásthildur Thorsteinsson,
Hurðarbaki, 320 Reykholt.
Vinningamir verða sendir
heim.
Heimilisfang:................................................