Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1994, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1994, Page 20
20 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1994 Kvikmyndir Atriði úr Getaway. Ein þeirra erlendu kvikmynda sem hafa farið sigmrför um heiminn að undanförnu og sópaö tíl sín verðlaun- um á erlendum kvikmyndahátíöum er nýjasta mynd pólska leikstjórans Krzysztof Kieslowski sem ber heitíð Blue. Þetta er fyrsta myndin í þrennu en myndirnar bera sama heiti og litirn- ir í franska þjóðfánanum, þ.e. Blue, White og Red. Myndin hefst á bílslysL Bíl er ekið á tré eftir að bílstjórinn hefur misst vald á bílnum. Út úr ijúkandi bílflakinu rúllar bolti, málaður í frönsku fánalit- inum. Þessi opnun myndarinnar segir töluvert til um handbragö Kieslowski og gefur tóninn. Nýttlíf Boltinn er tákn um frelsið og þótt að þetta óhapp hafi oröið þá heldur lífið áfram að rúlla. Eigandi boltans, stúlkubamið Anna, ferst hins vegar í bOslysinu ásamt föður sínum Patrice, frægum tónlistarmanni, meðan móðir- in, Julie, er sú eina sem lifir þetta af. Blue fjallar síðan um baráttu hennar við að ná áttum í lífinu og jafna sig eftir þennan hörmulega atburð. Fyrir slysið átti hún yndíslega íjölskyldu og mögulegan frama sem tónlistarkona en nú ekkert nema lífið sjálft. Hún spyr því sjálfa sig hver sé tOgangurinn með lífinu og reynir aö finna svarið. Eftir misheppnaðar sjálfsmorðstil- raunir fer hún að byggja upp líf sitt aö nýju. Góðurleikur Aðalhlutverkiö í myndinni er í hönd- um Juliette Binoche, sem sló í gegn á sínum tíma með leik sinum í myndinni The Unbearable Lightness of Being. Hún vakti einnig athygh með leik sín- um í Luis Malle myndinni Damage. Þeir sem sáu á sínum tima myndina The Double Life of Veronique munu sjá aö Kieslowski beitir likum stfl i báðum myndunum. Hann er afskap- lega vandaður kvikmyndagerðarraað- ur enda hefur hann fengið góða skólun í Póllandi. Hann er þegar byijaöur á næstu myndinni í röðinni, Hvítt, sem gerist aö mestu leyti i Póllandi. White segir frá manni sem snýr aftur til Póllands eftir .aö hafa yfirgefiö franska eiginkonu sfna sem í sífellu úthúðaði honum fýrir getuleysi og aumingjaskap. í hinu nýja Póllandi fær hann tækifæri tíl að rífa sig upp úr meðalmennskunni og sýna hvað í hon- um býr. Það verður gaman að fygljast með þessari þrennu Kieslowski því hér er kvikmyndagerðarmaður á heims- mælikvarða að verki. Atriði úr Blue. Áflótta Eitt umtalaðasta parið í HoUy- wood um þessar mundir eru þau Kim Basinger og Alec Baldjvin. Þeirra leiðir lágu saman í Walt Disney myndinni The Marrying Man sem endaði með brúökaupi á síðasta ári. Það hafði margt gengið á í lífi þeirra áður en þau giftust. Basinger haföi leikið í röð mynda sem fengu frekar slæma dóma og Utla aðsókn eins og Cool World og The Real McCoy og sleppt tilboöum um að leika í myndum eins og Sle- epless in Seattle sem varð ein vin- sælsta myndin í fyrra. Basinger fór einnig út í fasteignabrask með bróð- ur sínum en ætlunin var að byggja upp landsvæði í Georgia þar sem Umsjón Baldur Hjaltason hún er fædd og uppaUn. Til að kór- óna aUt saman lýsti Basinger sig persónulega gjaldþrota eftír aö hafa lennt í málaferlum og tapað út af myndinni Boxingh Helena. Hún haföi lofað framleiðanda myndar- innar munnlega að leika í myndinni en hætti síðan við aUt saman á síð- ustu stundu, ekki síst vegna efnis myndarinnar sem fjallaði um mann sem sker bæði hendur og fætur af ástmey sinni til að hún yfirgefi hann ekki. Madonnu haföi einnig verið boðið hlutverkið en hún hafn- að því en þess má geta að leikstjór- inn er dóttir hins þekkta kvik- myndaleikstjóra David Lynch. Misjafn árangur Það hefur gengið eitthvaö betur hjá Alec Baldwin en hjá Basinger. Hann náði vinsældum með mynd- um eins og Working Girl og ekki síst The Hunt for Red October. En hann hafði orð á sér að vera erfiður í umgengni og dyntóttur í samstarfi við leikstjóra. Hann geröi án efa mistök að hafna aðalhlutverkinu í myndinni Patriot Games, sem var gerð eftir samnefndri metsölubók John Grisham. Handritíð var skrif- að með það í huga að Baldwin léki í myndinni en eins og flestir vita var þaö Harrison Ford sem hreppti hnossið. Þess í stað skeUti Baldwin sér á fjaUrnar í Broadway og lék þar í leikrití eftír Tennesse WUl- iams. í fyrra lék hann í myndinni MaUce sem var hvorki fugl né fisk- ur. Mikið í húfi Þaö er því mikiö í húfi fyrir þau skötuhjú að endurlífga upp á ímyndina og vinsældimar með nýj- ustu mynd sinni Getaway. Eins og nafnið bendir tfl er hér um að ræða endurgerð á einni vinsælustu spennumynd síðari tíma þar sem Steve McQueen og AU MacGraw urðu ódauöleg með leik sínum und- ir sterkri stjóm Sam Peckinpah. Það var Walter HOl sem skrifaði handritið eftír samnefndri bók Jim Thompson. Það var einnig hann sem hafði 19 ámm síðar samband við þau skötuhjú og vfldi láta endur- gera myndina. Hann haföi aUan þennan tíma verið sáraóánægður með hve mikið af handritínu haföi verið endurskrifað vegna tilmæla Peckinpah. Því vUdi hann gera mynd sem byggðist á hans upphaf- lega handriti. Nútíma útlagar En Basinger var ekki of hrifin af hugmyndinni. Henni fannst lítið bitstætt í kvenhlutverkinu þar sem aUt snerist um skotbardaga og elt- ingaleik þar sem karlmaðurinn var í sviðsljósinu. Hún samþykktí þó að lesa bókina og komst að því að þessi nýja útgáfa legöi meiri áherslu á persónulegt samband söguhetj- anna þar sem dregið væri úr hasar- myndayfirbragðinu. Raunar má segja að þessi nýja útgáfa nálgist meira myndina um Bopnie og Clyde (1967) sem var að mörgu leyti fyrir- mynd þeirra sem stóðu að gerð Getaway. í þeirri mynd fjallaði leik- stjórinn Arthur Penn um samnefnd bandarísk skötuhjú sem gerðu garðinn frægan upp úr 1920 sem bankaræningjar. Þau urðu nokkurs konar þjóðsagnapersónur vegna þess hve mikið umtal þau fengu og Það eru þau Alec Baldwin og Kim Basinger sem fara með aðalhlutverkin. hve lengi þeim tókst að forðast arm laganna. Sitt af hverju tagi Getaway fjallar um smáglæpa- mann og konu hans sem fremja bankarán þar sem aUt fer úrskeiðis. Áður en þau vita af eru þau komin á flótta undir lögreglunni. Það sem gerði myndina fræga á sínum tíma fyrir utan góðan leik var ekki síst eltíngaleikur sem fór fram á götum San Franciscoborgar. Atriðin voru einstaklega vel sviðsett, þó sérstak- lega eltingaleUcurinn sem virkaði mjög raunverulegur enda voru kvikmyndatökumennimir í sjálfum bílnum í sumum atriðanna. Ekki sakaði það að Steve McQueen var áhugamaður um kappakstur og ók bflnum sjálfur. Auðvitað er ekki hægt að endurtaka þessi atriði og því hefur verið dregið úr mikflvægi þeirra, tíl aö gera samanburðinn ekki of einhæfan. Kyntákn Leikstjóri myndarinnar er Roger Donaldson. Hann hefur gert ýmsar spennumyndir sem í sjálfu sér hafa ekkert skarað neitt fram úr en veitt góða skemmtun eins og No Way Out, CoctaO og svo White Sands. Hann ber þeim Alec Baldwin og Kim Basinger söguna vel og segist ekki kannast við neina samskipta- öröugleika. Þau hafi unnið verk sitt mjög vel og vilji auðsýnOega eyða þeim orðrómi að það sé ekki hægt að starfa með þeim. Hvort það hafi veriö ætlunin eða ekki að notfæra sér Basinger sem kyntákn, samanber mynd hennar 9 % Weeks, þá voru í handritinu nokkuð djörf ástaratriði. Þau Bas- inger og Baldwin voru ekkert feim- in-við þessi nektaratriði en þegar leikstjórinn fór að skoða mynd- skeiðin fannst honum þessi atriði draga of mikla athygU frá heOdar- svip myndarinnar og gæti skapaö rangar hugmyndir um efhi hennar svo hann lét khppa flest þeirra burtu. * Getaway verður varla neitt meist- arverk en gætí þó markað ákveðiö upphaf að endurkomu þeirra skötu- hjúa á hvíta tjaldið. Bseði eru góðir leikarar og eiga vonandi eftír að gleðja augu kvikmyndahúsagesta á næstu árum. Það er alltaf erfitt að endurgera myndir sem hafa skapaö sér fastan sess í sögu kvikmynd- anna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.