Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1994, Side 25
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1994
25
Menning
Menningarverðlaunahafi DV í byggingarlist:
íslenska sagan
er sterk í manni
- segir Högna Sigurðardóttir, arkitekt í París
Einbýlishús í Garðabæ sem Högna teiknaði á sjöunda áratugnum.
„Ég er mjög ánægð og glöð yfir að fá
þessi verðlaun. Það er mér mikill
heiður," segir Högna Sigurðardóttir,
arkitekt í París og menningarverð-
launahafi DV í byggingarhst. Högna
hefur búið í París friT ármu 1949 er
hún hóf nám í arkitektúr í Beaux-
Arts listaskólanum, þá tvítug.
í umsögn dómnefndar sagði: „Þótt
Högna hafi lengstum starfað sem
arkitekt í París eru verk hennar hér
á landi rammíslenskari í eðli og
hugsun en flest það sem byggt hefur
veriö hér á landi á síðari tímum."
„Ég hef ekki teiknað mörg hús á
íslandi, aðeins nokkur einbýlishús
auk sundlaugarinnar í Kópavogi sem
enn er ekki fullbyggð," segir Högna.
Einbýhshús þau sem hún teiknaði
og byggð voru á sjöunda áratugnum
vöktu mikla athygh vegna sérstæðs
byggingarstíls þar sem leitað var í
náttúruna. „fslenska náttúran,
landslagið og sagan er svo sterk að
hún býr ahtaf í manni og brýst fram
þegar maður leitar að einhveiju
nýju. Ég veit ekki hvort ég leita í ís-
lenska náttúru, hún hýr hara í mér.“
Unnið til verðlauna
Högna hefur rekið arkitektastofu í
París í samfélagi með þremur öðrum,
Jean-Pierre Humbaire, André Cresp-
el og Bernard Ropa. „Við höfum unn-
ið saman í nokkur ár og öh þau verk
sem ég hef unnið hér í Frakklandi á
undanfornum árum eru þeirra verk
líka.“
Högna og félagar hennar hafa unn-
ið th fjölda verðlauna. í Frakklandi
er alltaf samkeppni um opinberar
byggingar og hafa þau oft orðið hlut-
skörpust. Högria sigraði fyrst í sam-
keppni árið 1967 en þá starfaði hún
með arkitekt sem heitir Fainsilber.
Þau lögðu fram hugmynd um endur-
skipulag borgarhverfis norður af
París þar sem feha átti háskóla inn
í skipulag borgar. Nú er hún að vinna
yið stækkun háskólans París-Daup-
hine. „Við erum aðallega aö vinna
við þrjú verk núna. Það er mjög mik-
ið að gera við þessi verkefni og því
höfum við ekki tekið þátt í neinni
keppni undanfarið," segir hún. „Það
fer allur okkar tími í þessi verkefni.
Hér á stofunni starfa einungis sex
manneskjur," útskýrir hún.
Högna hefur ekki unnið að neinu
verkefni á íslandi frá því hún teikn-
aði sundlaugina í Kópavogi. „Aðeins
hluti þeirrar byggingar er kominn
upp. Keppnislaugin er tilbúin en
byggingarnar eru aðeins að litlum
hluta reistar," segir hún.
Högna segist ekki hafa ætlað sér
að setjast að í Frakklandi þótt þannig
hafi það æxlast. „Ég gifti mig hér úti
og eignaðist tvær dætur. Þær eru nú
uppkomnar og eru mikhr íslending-
ar. Báðar tala þær íslensku enda hef
ég lagt áherslu á að þær héldu þeim
arfi sínum. Við höfum aha tíð um-
gengist íslendinga mikið hér í Par-
ís,“ segir Högna.
lensku þrátt fyrir áratuga fjarveru
frá landinu. „Við segjum það hér að
íslenskan og franskan séu svo ólík
mál að það sé ekki nokkur hætta á
að þau renni saman. Ég býst við að
það hafi hjálpað," segir hún.
Högna kemur th íslands á hverju
ári og heimsækir ijölskyldu sína. „Ég
á mína kærustu fjölskyldu, fyrir utan
dætur mínar, á íslandi," segir hún.
í september sl. sýndu fimm nor-
rænir arkitektar verk sín á Kjarvals-
stöðum og var Högna meðal þeirra.
Hús sem hún teiknaði fyrir þijátíu
árum þykja enn sérstök og nútímaleg
þar sem hún blandar saman torfi og
steinsteypu. Högna notar ekki mikla
liti í verkum sínum og lætur náttúru-
litina njóta sín.
í viðtali við Morgunblaðið í sept-
ember, þegar sýningin stóð yfir, var
Högna spurð hvort hún héldi að fólki
liði vel í húsum úr steinsteypu þar
sem litir eru fáir og formin gróf. Hún
svaraði: „Aðaláhugamál mitt er fólk.
Öll mín hugsun gengur út á það að
gera það sem ég held að sé gott fyrir
fólk. Þegar ég teiknaði þessi einbýlis-
hús sem þú ert með í huga, leitaði
fólkið til mín því það vissi hvernig
ég teiknaði. Ég hef reynt að koma til
móts við þær lífsvenjur sem fólkið
átti.“ -ELA
Högna Sigurðardóttir, arkitekt í Paris, hefur vakið mikla athygli fyrir sérstæð-
an byggingarstíl. Sl. vor tók hún sæti í Akademíu franskra arkitekta.
Sýndiá
Kjarvalsstöðum
Sjálf talar Högna lýtalausa ís-
Helga Ingólfsdóttir semballeikari:
Vil nýta krafta mína hér
„Ég hef ekki lagt upp úr því að halda
tónleika erlendis. Eg á svo djúpar
rætur hérna á íslandi og vil að kraft-
ar mínir nýtist sem mest hér. Ég hef
næg verkefni. Staríið í Skálholti er
afar umfangsmikið, auk þess sem ég
er með hálfa stöðu í Tónlistarskólan-
um í Reykjavík," segir Helga Ingólfs-
dóttir semballeikari sem hlýtur
Menningarverðlaun DV fyrir sem-
baUeik sinn á síðasta ári og framlag
sitt til tónleikahalds í Skálholti.
Helga hefur áður hlotið menningar-
verðlaun DV, en árið 1980 hlutu hún
og Manuela Wiesler flautuleikari
þau.
„Sumartónleikarnir í Skálholts-
kirkju hafa nú verið haldnir í 19 ár.
Ég dvel aö mestu á staðnum meðan
þeir standa yfir. í sumar lék ég
óvanalega mikið sjálf því ég flutti
Goldberg-tilbrigðin eftir Bach sem er
eitthvert stærsta sembalverk sem
samið hefur verið. Ég hafði tekið þá
ákvörðun fyrir mörgum árum að ég
hefði ekki nógan þroska til að flytja
þau fyrr en ég væri orðin fimmtug.
Þetta er geysimikið verk og það lang-
erfiðasta sem ég hef nokkum tíma
fengist við. Ég sé eftir að hafa ekki
tekið til við að vinna það fyrr, vegna
þess að nú urðu fyrir mér margs
konar tæknivandamál, sem ég hefði
betur átt að kljást við og leysa þegar
ég var yngri. Það hefði gert mér
ýmislegt auðveldara."
Kær staður
Staðurinn Skálholt er Helgu mjög
kær. Þangað kom hún fyrst 1975 eftir
að hafa dvalið langdvölum erlendis.
Þaðan í frá og til dagsins í dag hefur
hún verið listrænn stjórnandi Sum-
artónleika Skálholtskirkju. Með ár-
unum hefur þessi tónlistarhátíð þró-
ast út í að vera bæði kirkjutónlistar-
og.barokkhátíð.
„Þegar ég kom að Skálholti vorið
1975 uppgötvaði ég að ég hafði ekki
fyrr heyrt svona góðan hljómburð.
Þó hafði ég verið viðstödd óhemju
marga tónleika á erlendri grund. Þá
fann ég að það var enginn betri stað-
ur fyrir mitt hljóðfæri, sembalinn,
sem er hljómlítið, en þarf á sama
hljómburði að halda og söngröddin,
svo að kostir þess komi í ljós. Ég hef
því tekið ástfóstri við Skálholt og
verið þar mestan part með mína
spilamennsku. Þar hefur verið minn
strangasti og besti skóli.
Þarna hjálpast allt aö, kirkjan,
hljómburðurinn, staðurinn, saga
hans, helgi og aðstaða öll. Ég fékk
mjög góðar móttökur starfsmanna
strax í byijun og í tímans rás hafa
margir lagt hönd á plóg með mér,
þarna er samvinna margra ólíkra
aðila. Hversu vel hefur til tekist á ég
þessu fólki að þakka. Mér frnnst
Menningarverðlaunin ekki vera síð-
ur til þeirra heldur en til mín.“
En hvernig skyldi það hafa atvikast
að Helga hóf að læra á sembal?
„Þegar ég var ung heyrði ég oft
semballeik í útvarpinu en hann höfð-
aði ekki sérlega til mín þá. Þegar ég
hélt til náms í Þýskalandi hugðist ég
leggja stund á píanóleik. Þá sá ég
sembal í fyrsta sinn og hreifst mjög
af því hljóðfæri. Ég fann að þetta var
hljóðfærið mitt og uppgötvaði að bar-
okktónlist hljómar sem ný á sembal.
Seinna vaknaði áhugi minn á að
heyra þessa tónlist leikna einvörð-
ungu á gömul hljóðfæri. 1986 stofn-
uðum við Bachsveitina í Skálholti.
Reyndar kom fyrsti hljómdiskur
okkar á markað í haust.“
Fyrsti sembal-
leikarinn
Þegar Helga kom aftur heim að
námi loknu erlendis, var hún fyrsti
lærði semballeikarinn hér á landi.
„Það var ótrúlegt hvað þetta hljóð-
færi fékk fljótt hljómgrunn hér.
Strax þegar ég fór að halda tónleika
fékk ég góða aðsókn. Ekki var síðra
að tónskáld fengu áhuga á sembaln-
um, þannig að ég hef getað frumflutt
mörg sembalverk.
Þá er ánægjulegt hve margir semb-
alar eru komnir til landsins, bæði í
tónlistarskóla og kirkjur. Hins vegar
finnst mér þróunin vera nokkuð hæg
að því leytinu til að ég vildi sjá fleiri
nemendur í tónlistarskólum leggja
stund á sembalnám. Ég er nú með
þijá nemendur í semballeik og ég
má vera ánægð ef ég miða við Tón-
listarskólann í Munchen því þegar
ég var að læra voru fimm slíkir nem-
endur þar. í allt erum við nú fjórar
konur sem erum starfandi sembal-
leikarar hér á landi.“
Sumartónleikarnir hafa vakið at-
hygh erlendis. Á síðasta ári heim-
sótti Helgu tveir erlendir blaðamenn
frá virtum tónlistartímaritum og
áttu við hana viðtöl. Þá birti banda-
rískt tónhstartímarit lista yfir
áhugaverðar tónhstarhátíðir og þar
gaf að líta Sumatónleikana í Skál-
holti.
„Ég vona að ég geti enn um hríð
helgað mig starfinu í Skálholti," seg-
ir Helga. „Jafnframt mun ég sem
hingað til reyna að bæta mig sem
sembaheikari, en í listum verður
aldrei neinu lokatakmarki náð.“
-JSS
DV-mynd BG
Helga Ingólfsdóttir semballeikari.