Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
11
Fréttir
DV
Hitaveituneöidin:
„Menn eru
nánastfalln-
ir á tíma“
Stjóm Hitaveitu Akraness og
Borgamess hefur sent frá sér
ályktun þar sem lýst er yfir von-
hrigðum með það hve hægt hefur
miðaö i vinnu hitaveitunefiidar
iðnaðarráðuneytisins. Nefndin
átti að koma með tillögur um það
hvemig lækka mætti húshitun-
arkostnað á Akranesi og í Borg-
amesi en hefur ekki náð neinni
niðurstöðu. Stjórnin áréttar
brýna nauðsyn þess að lækka
gjaldskrána þar sem óbreytt
orkuverð frá 1987 hamli starfsemi
veitunnar.
„Þetta er svo viðkvæmt, fiókið
og erfitt mál. Skipulag orkumála
þama er flókið og hagsmunir eig-
endanna fara ekki alltaf saman.
Við höftnn lagt fram margar til-
lögur og reynt að finna lausn en
það hefur ekkert gengið. Það er
ómögulegt að segja hvenær fæst
niðurstaða í málinu," segir Sigfus
Jónsson, formaður hitaveitu-
nefndar iðnaðarráðuneytisins.
„Menn eru nánast fallnir á tíma
því að það er farið að styttast í
sveitarstjómarkosningamar í
vor,“ segir Ingólfur Hrólfsson,
hitaveitustjóri hjá Hitaveitu
Akraness ogBorgarfiarðar. -GHS
Framhaldsskólinn:
Styttðng getur
strandað
á kjara-
samningum
„Það er flókið mál að stytta
námstímann til stúdentsprófs,
ekki síst vegna kjarasamninga
við kennara. Verið getur að þær
hugmyndir strandi á kjaramál-
unum en umræðan um þá hlið
hefur ekki verið mikil,“ sagði
Bjöm Teitsson, skólameistari
Menntaskólans á ísafirði, um
nýtt lagaframvarp um fram-
haldsskólana þar sem gert er ráð
fyrir styttingu náms undir stúd-
entspróf úr 4 ámm i 3.
Bæði Björn og Tryggvi Gísla-
son, skólameistari Menntaskól-
ans á Akureyri, töldu samræmd
stúdentspróf geta aðeins gengið
upp í nokkrum námsgreinum.
„Breyttir atvinnuhættir kalla á
breytt framhaldsskólakerfi en
það er tómt mál að tala um að
bæta og breyta skólakerfi meðan
kjör kennara verða ekki bætt,“
sagði Tryggvi og bætti við að sam-
ræming allra stúdentsprófa væri
erfið og þung I vöfúm og kostaði
nákvæmt og dýrt eftirlit. -hlh
Magnús Óskarsson:
Tilbreytingað
ráðasérsjálfur
„Ég ætla ekki aö fara að vinna
mig í áht í lögfræðibransanum,
það er of seint En ég fæ aðstöðu
til að dunda mér við lögfræðistörf
á lögfræðiskrifstofunni sem son-
ur minn, Óskar Magnússon, var
á. Uppsögnin er í samræmi við
ævagamla ákvörðun mina um að
sitja ekki fram á sjötugsaldur og
láta síðan henda mér út. Eftir 38
ár $ sama starfi er tilbreyting í
því að ráða sér sjálfur,“ sagði
Magnús Óskarsson borgarlög-
maður en hann hefur sagt starfi
sínu lausu.
Uppsagnarfresturinn er þrír
mánuðir. Magnús sagði mörg lög-
frasðileg mál í gangi og að hann
mundi hætta í samráði við vinnu-
veitendur og arftaka sinn. Þá
ætti hann inni orlof.
Magnús gafekki mikiö fyrir póli-
tískar vangaveltur varðandi upp-
sögn sina. ,JÉg iæt skoöanakannan-
irekkistjórnaminulífi." -hlh
Maður sem var hætt kominn við björgun konu 1 Reykjavíkurhöfn:
Láta mig borga fyrir
að hætta Ivfi mínu
- sendur reikningur fyrir sjúkrabíl, klæddur í larfa og útskrifaður
„Þetta er sárt. Mér er alveg sama
um þennan pening. Þetta em ekki
nema 5000 krónur. Þeir geta kannski
notað þetta í eitthvað en mér dettur
ekki tii hugar að borga þetta. Það er
prinsippmál. Ég hætti lífi mínu til
að hjálpa konunni svo á að láta mig
borga fyrir það. Það er tómt rugl,“
segir Óskar Montes, sjómaður um
borð í Vestmannaey.
Óskar, sem er frá Spáni en hefur
búið hér í 9 ár, var hætt kominn í lok
desember þegar hann kastaði sér eft-
ir konu sem hafði fallið á milh skips
og bryggju í Reykjavíkurhöfn. Konan
hafði verið um borð í Vestmannaey,
togara sem Óskar er skipverji á. Ósk-
ar, sem er ósyndur, lét það ekki aftra
sér frá að henda sér í sjóinn. Honum
tókst að kafa á eftir konunni og halda
henni á floti í talsverðan tíma.
Fékk reikning
Þegar aðrir komu á vettvang var
Óskar hins vegar orðinn örmagna
og gafst hreinlega upp. Honum var
bjargað á land ásamt konunni, sem
hann hafði bjargað, og fluttur með
sjúkrabíl á Borgarspítala. Fyrir
sjúkrabílinn fékk Oskar svo sendan
nýlega 5000 þúsund króna reikning
sem hann talar um hér að framan.
„Mér hður aldrei vel á sjúkrahús-
um þannig að ég spurði hvort ég
mætti ekki fara. Svarið var jú. Galla-
buxurnar mínar, skyrta og skór vom
sett rennblaut í plastpoka. Ég var
klæddur í svakalega stórar nærbux-
ur, stórar gammosíur, sokka og
plastboka yfir þá. Yfir mig fékk ég
svo stórt teppi og var sagt að fara
út. Ég fór niður og hringdi á leigubíl
sem keyrði mig niður í skip. Leigubíl-
inn þurfti ég svo að borga sjálfur.
Þetta mundi aldrei koma fyrir á
Spáni. Ég var reiðubúinn að fóma
lifi mínu og svona er komið fram við
mann. Ég er ekki að óska eftir heið-
ursmerki en þetta fannst mér fúh-
gróft,“ segir Óskar.
Þurfti lækni og lyf
Óskar eyddi svo gamlárskvöldi á
hótelherbergi á Hótel Borg þar sem
hann veiktist eftir volkið í sjónum.
Hann fór til vinafólks síns í Mos-
fehsbæ og þar var kallaö á lækni því
alltaf versnaði heilsan. I ljós kom að
hann hafði fengið snert af taugaá-
falh. Hann þurfti að kaupa lyf, sem
hann borgaöi sjálfur, því hann fékk
martraðir í langan tíma á eftir. í sam-
tals tvær vikur lá hann í veikindum
en var ekki frá vinnu þar sem sjó-
mannaverkfalhð stóð yfir þegar þetta
var. Loks má geta þess að hann týndi
hnsum, sem hann notar, þegar hann
stakk sér í sjóinn eftir konunni og
þurfti að kaupa nýjar fyrir 20 þúsund
krónur.
Þrátt fyrir þetta segist Óskar munu
endurtaka þetta ef á þurfi að halda
en menn ættu þó að hugsa hvernig
komið er fram við þá sem em að
reyna að koma einhverju góðu til
leiðar. -pp
Erlend myndsjá
Elisabet Engiandsdrottning hefur verið á ferðalagi um fyrrum nýfendur sinar i Karibahafi að undanfornu og Þyska stórfyrirsætan Claudia
var þessi mynd fekln af hennl þegar hún heimsótti saumastofu á Jamafku þar sem ein saumakvennanna Schiffer sprangar um i nýjum kjól
sýnir henni afrakstur vinnu sinnar. Símarnynd Reuter frá ítölsku tiskudrottningunni
Lauru Biagiotti á sýningu i Milanó.
Simamynd Reuter
Gamta bláeygða kempan, Frank Sinatra, og irski söngvarinn Booo tak-
ast i hendur á grammy-verðlaunahátiöinni þar sem þeir hlutu báðir
viðurkenningar, enda miklir afreksmenn hvor á sfnu tónlistarsviöi.
Simamynd Reuter
Þeir hafa fuila ástæðu til að vera svona kampakátir, þeir Alois Mock,
utanrikisráðherra Austurríks, og Wolfgang Schussel elnahagsráðherra.
Myndin var nefnilega tekin ettir aö samningar náðust um inngöngu
Austurrikis i Evrópusambandið. Simamynd Reuter