Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1994, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1994, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1994 Fréttir 11 ára drengur nefbrotinn og bólginn í andliti: Sleginn með lurk í and- litið af jaf naldra sínum - móðirdrengsinskærðiárásinatillögreglu Móöir 11 ára drengs hefur kært til lögreglu árás á son sinn sem átti sér stað um helgina fyrir utan heimili hans. Drengurinn var sleg- inn með lurk í andlitið þannig að hann nefbrotnaði og bólgnaði mik- ið í andliti. „Hann var að leika sér fyrir utan heima hjá sér. Þeir voru að slást héma einhverjir strákar, eins og gengur og gerist, og allt í einu tók einn þeirra upp hluta af jólatré, sem lá þama, og sló piltinn í andlit- ið. Það er agalegt að sjá drenginn. Hann er fjólublár í framan," segir Elín Sigurðardóttir, móðir piltsins. Drengurinn neíbrotnaði við höggið og er stokkbólginn og fer líklega til aðgerðar á Borgarspítal- anum í dag ef bólgan fer úr andlit- inu. Elín segist varla geta trúað því að svona lagað geti gerst. Böm slá- ist og hafi alltaf gert en þegar of- beldið taki á sig þessa mynd sé of langt gengið. Hún hafi reynt að ræða við móður piltsins sem sló son hennar en hún hafi ekki verið reiðubúin að ræða málið. Það sé hins vegar ljóst að ekkert réttlæti svona áverka. Ekki tókst að ná sambandi við móður piltsins í gær. Leifur Jónsson, sérfræðingur á slysadeild, sagði í samtali við DV í gærkvöld, að það væri ekki algengt að böm á grunnskólaaldri leituðu til lækna slysadeildar með áverka eftir jafnaldra sína. Um væri að Það sér verulega á andliti sonar Elínar. DV-mynd GVA ræða innan við 10 atvik á ári og sér vitandi hefði aldrei verið um var- anlega áverka að ræða. Út frá þess- um fjölda segist hann ekki treysta sér til að dæma um það hvort atvik- um sem þessum fari fjölgandi en ljóst sé að þau séu ekki algeng meðal þessa aldurshóps. Það sé hins vegar greinilegt að árásum hafi fjölgað meðal næsta aldurs- hóps. Omar Smári Armannsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn og yfir- maður forvamadeildar lögregl- unnar í Reykjavík, sagðist ekki kannast við þetta einstaka mál en greinilegt væri að áhrifa kvik- mynda væri farið að gæta. Böm væm farinn að leita fyrirmynda sinna í kvimyndum í meira mæli. Þar væri raunveruleikinn oft firrt- ur. Oft sæi ekki á mönnum eför verulegar barsmíðar og hjá ungum bömum væri kannski ekki að undra aö þeirra raunveruleiki væri sá raunveruleiki sem mörg þeirra ælust upp við í bíómyndum. Eins og fyrr sagði fer sonur Elín- ar til aðgerðar í dag en þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann verð- ur fyrir áverkum í andliti. Fyrir 7 árum hljóp skot úr loftriffli í andlit- ið á honum með þeim afleiðingum að hann missti annað augað. -PP / Guðmundur Magnússon: Þriðji frétta- stjóriDV - Haukur Helgason ritstjóri Úrvals Guðmundur Magnússon þjóð- minjavöröur hefur verið ráðinn sem fréttastjóri að DV frá og með 1. maí nk. Mun hann starfa við hlið þeirra fréttastjóra sem þegar starfa á blað- inu, þeirra Elísar Snælands Jónsson- ar aðstoðarritstjóra og Jónasar Har- aldssonar fréttastjóra. Guðmundur er fæddur árið 1956. Hann er menntaður í sagnfræði og heimspeki frá Háskóla Islands og London School og Economics, lauk B.A. prófi frá Háskóla íslands árið 1980 og M.Sc. prófi frá London School of Economics árið 1982. Guðmundur starfaði mikið að blaðamennsku á árunum 1978-1987, fyrst á Dagblaðinu sumrin 1978-1980, síöan á Sunnudagsblaði Tímans 1982-1983 og á Morgunblaðinu 1983- 1987. Guðmundur Magnússon hefur gegnt margvíslegum öðrrnn störfum. Hann var stundakennari við Háskóla íslands 1984-1985, aðstoðarmaður menntamálaráðherra 1987-1988 og síðan starfsmaður Sjálfstæðisfiokks- ins um skeið. Vorið 1992 var hann settur þjóðminjavörður í tveggja ára rannsóknarleyfi Þórs Magnússonar og hefur á starfstíma sínum þar kom- ið í framkvæmd verulegum breyting- um á rekstri og starfsemi Þjóðminja- safnsins. Eiginkona Guðmundar er Vaka H. Hjaltalín og eiga þau fimm böm. Jafnframt hefur Haukur Helgason, að- stoðarritstjóri DV, verið ráð- inn ritstjóri tímaritsins Úr- vals sem einnig er gefið út af Frjálsri fjölm- iðlun hf., út- gáfufélagi DV, og mun Hauk- ur taka við því starfi hinn 1. maí nk. Frjáls fjölm- iðlun hf. býður þá Guðmund Magnússon og Hauk Helgason báða velkomna til nýrra starfa. Haukur Helgason. Guðmundur Magnússon. Mikinn snjó hefur tekið upp i Tungudal siöustu daga og er nú stórhættulegt að fara um dalinn. Spýtnabrak, glerbrot og húsgögn um allan dal. Margir hafa þó fariö og komið aö sumarhúsum sínum í rúst eftir snjóflóðið og tekið til hendinni. Hins vegar hefur bæjarstjóm ísafjarðar enn ekki beitt sér fyrir sérstökum hreinsunardögum og verð- ur beðið meö það þar til snjóa leysir betur. Myndin að ofan var tekin yfir dalinn á sunnudag. DV-mynd Sigurjón J. Sigurðsson, ísafirði Kaupfélag Eyfirðinga og dótturfyrirtækin: 246 milljóna króna tap á síðasta ári Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri; Ársreikningar Kaupfélags Ey- firðinga eru nú tilbúnir fyrir aðal- fund félagsins sem verður haldinn nk. laugardag. Þar kemur fram að rekstrartap KEA á síðasta ári nam 51 milljón króna samanborið við 12 milijóna króna hagnað árið 1992. Afkoma dótturfyrirtækja KEA er hins vegar mun verri og er hlut- deild KEA í tapi þeirra á síðasta ári 1% milljónir króna. Samtals er því tap KE A og hlutdeild þess í tapi dótturfyrirtækjanna 247 milljónir króna. Magnús Gauti Gautason kaupfé- lagsstjóri segir meginástæðuna fyrir tapi KEA á síðasta ári vera versnandi afkoma í úrvinnslu landbúnaðarafurða og þess að á árinu 1992 kom greiðsla úr verð- jöfnunarsjóði sjávarútvegsins sem fiskvinnslan náöi ekki að vega upp á síðasta ári. Langmestan hluta á tapi dóttur- fyrirtækjanna má rekja tÚ vatnsút- flutningsfyrirtækisins AKVA sem tapaði 135 milijónum króna á síð- asta ári. Rekstur annarra dóttur- fyrirtækja gekk betur á síðasta ári en 1992 að Dagsprenti undanskildu en tap þess á síðasta ári nam 21 milljón króna. Tap AKVA stafar að mestu á miklum kostnaði við markaðssetn- ingu vatnsins í Bandaríkjunum. Nú stendur yfir lokað hlutafjárút- boð á markaði vestanhafs upp á 300-400 milljónir króna og hefur niðurstaða þiess útboðs úrslitaáhrif á stefnu KEA varðandi áframhald- andi markaðssetningu AKVA í Bandaríkjunum. f Stuttar fréttir Vísaðtil félagsdóms Flugleiðir hafa vísað verkfalls- boðun flugvirkja til félagsdóms og segja hana brot á fyrra sam- komulagi. Kvótaverðlð hækkar Leiguverð á þorskkvóta er um 70 krónur fyrir hvert kíló. í febrú- ar var leiguverðiö 54 krónur. Morgunblaðiö skýröi frá þessu. í umhverfisráðuneytinu er nú i undirbúningi að leggja skila- gjald á einnota umbúðir, hjól- barða, landbúnaðarplast og bíla. Þá stendur til að leggja sérstakt gjald á vörur sem verða aö spilli- efnum. Mbl. greindi frá þessu. Útfaurðum fjölgar Útburöarbeiðnum í félagslega íbúðarkerfinu hefur fjölgaö tals- vert undanfarin þrjú ár. Bylgjan skýrði frá þessu. Uitktelðskýrsla Fjárlaganefnd tekur ákvörðun í dag um hvort skýrsla Ríkisend- urskoðunar um söluna á SR- mjöli veröi opinberuð. Ríkisend- urskoöun neitar að birta skýrsl- una þar sem salan er nú til meö- feröar hjá dómstólum. Samið um tækjabúnað Póstur og sími hefur gengið frá samníngi við Tæknival um kaup á tölvu- og fjarskiptabúnaði fýrir 48 póststöðvar. Tilboð Tæknivals hjjóöaöi upp á 50, miUjónir. Mbl. greindi frá þessu. Litt beisluð orka Búið er að nýta 8% vatnsork- unnar og 1,5% jarðvarmans. Þetta kom fram í skýrslu iðnaðar- ráöherra um nýtingu innlendra orkulinda til raforkuframleiðslu. Spjöll hafa verið unnin á hluta útivistarsvæðisins í EUiðaárdal. Samvæmt Sjónvarpinu hafa skemmdarvargar komið sér upp bæli í einu rjóörinu og svalaö fikn sinniáplöntumogtrjám. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.