Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
35
B,'.,-. 1 ~' 1 I ^pi || Wií fÆ Jm p js Hf íWBB Wg ps'íI,
-fl * • /S : Á-y \ 7 m /m
Annars ætti hann á hættu að gleymast jafn snarlega og Júróvísjónlag að aflokinni keppni.
Hvað er lífið?
Nökkvi læknir hefur um langt
skeið látið sig dreyma um einhvers
konar ódauðleika. Hann hefur
reynt fyrir sér á ýmsum sviðum;
gefið út bækur, staðið fyrir góð-
geröarsamkomum og tískusýning-
um, margsinnis sótt um að gerast
frímúrari, leikiö jólasvein, veriö
kynnir á fegurðarsamkeppni úti á
landi, talað í útvarp og sjónvarp
og boðist til að halda hátíðaræðu á
Þingvöllum 17. júní en ódauðleik-
inn lætur bíða eftir sér.
Örlagarík
kvöldskemmtun
Fyrir nokkru hélt Nökkvi fyrir-
lestur hjá valinkunnu kvenfélagi á
glæsilegum skemmtistað hér í höf-
uðborginni. Hann átti að koma
fram á ákveðnum tíma en mætti
með fyrri skipunum. Hann stóð við
barinn til að láta gestina dást að
sér og beið þess að hefja mál sitt.
Nokkrar léttdrukknar glæsikonur
komu þá aðvífandi og báðu hann
að redda einhverjum smámunum
fyrir sig á borðin; ein vildi fá ísfötu
undir kampavín, önnur krafðist
þess að fá fleiri serviettur og sú
þriðja spurði með þjósti hvort hús-
ið byði ekki upp á annað en skel-
fisksúpu. Nökkvi hváði hissa og
komst aö því sér til mikiliar hreli-
ingar að allar héldu konurnar að
hann væri þjónn eða yfirreddari á
staðnum. Engin virtist gera sér
grein fyrir því að þarna væri kom-
inn sjálfur Nökkvi læknir, mann-
vinur með meiru. Hann fylltist
beiskju sem endurspeglaðist í ræð-
unni en hún vakti litla hrifningu.
Eftir þetta skfidi Nökkvi að hann
yrði að taka ódauðleikann alvar-
lega og vinna einhver þau andans
afrek sem uppi yrðu meðan ísland
byggðist. Annars ætti hann á hættu
að gleymast jafn snarlega og Júró-
vísjónlag að aflokinni keppni. „Ég
verð að finna tilgang lífsins eða
leysa sjálfa lífsgátuna,“ sagði hann
við Bergdísi, konu sína, síðar þetta
sama kvöld. Hún lét sér fátt um
finnast eins og svo oft áður. „Ég
verö að skilgreina lífið í einni setn-
ingu og öðlast þannig heimsfrægð.
Þá verð ég ógleymanlegur, bætti
hann við í hrifningarvímu." „Það
Á laáknavaktiniii
Óttar
Guðmundsson
læknir
kæmi sér vel,“ sagði Bergdís kulda-
lega. „Þú ert farinn að gleymast hér
í fjölskyldunni enda ertu aldrei
heima.“
Lífið er saltfiskur
Hann skoðaði það sem aðrir
höfðu gert. Halldór Laxness sagði
að lífið væri saltfiskur. Aðrir höfðu
sagt að lífið væri eins og tennisleik-
ur, knattspyma eða bridge. Ein-
hver Eugene Hare sagði að lífið
væri eins og spil. Spilin væm
stokkuð og gefin í upphafi vega en
síðan skipti mestu að halda vel á
spilunum sínum. Þetta þótti
Nökkva bæði flöt og lítil speki enda
var þessi Héri öllum gleymdur.
Annar spekingur líkti lífinu við
geimferð. „Jörðin er eins og geim-
far sem kom án leiðbeiningabækl-
ings.“ Þetta fannst Nökkva fyrst og
fremst hallærislegt. Þeir Karl Marx
og Henry Ford voru sammála um
það að lífið væri fyrst og síðast
vinna en Lisa Minnelli líkti lífinu
við kabarett. Söngtríóið Þrjúá palh
kvað lífíð vera lotterí. Rómverjinn
Seneka líkti lífinu við leikrit og
Kirk Douglas sagði að lífið væri
eins og handrit að annars flokks
kvikmynd. Aðrir hafa líkt lífinu við
hljóðfæri: „Það er eins og tromp-
et,“ sagði maður að nafni W.C.
Handy. „Þeir sem ekki láta neitt í
það fá ekkert út úr því.“ Steinn
Steinarr sagði lífið vera eins og
fálska nótu. Lærður skólamaður
líkti lífinu við staf í stafrófinu:
„Hann getur verið gjörsamlega
þýðingarlaus eða staðið sem hluti
af mikilli speki eða einhverjum
tímamótamarkandi texta.“ Enn
annar líkti lífinu við lauk. Hann
sagði að fólk skrældi hvert lagið
af öðru af lauknum og stundum
færu menn að gráta. Þetta fannst
Nökkva lækni óvenju heimskuleg
líking. „Þettaer endalaust," sagði
Nökkvi við Bergdísi. Öll andans
stórmenni hafa haft einhverja
skoðun á lífinu sem útgefendur
hafa tekið upp í uppsláttarbækur
eftirminnilegra setninga og orðatil-
tækja. Lítilsigldir menn geta síðan
flett í þessum bókum og notað ein-
hveijar tilvitnanir í flatar og til-
komuhtlar tækifærisræður sínar.
Hann lagði sál sína í þetta verkefni
næstu daga, vikur og mánuði. Eftir
mikil heilabrot kom hann loksins
fram með þessa lífsspeki: „Lífið er
eins og mubbla frá Ikea, það vantar
stundum eitthvað í pakkann, leið-
beiningarnar eru ekki nægilega
greinagóðar, samsetningin er erfið
og lokaútkoman er engan veginn
eins og maður hefði óskaö sér.“
Bergdís lét sér fátt um finnast.
„Hvaðan stalstu þessu, Nökkvi
minn. Þú hefur aldrei skrúfað sam-
an neitt frá Ikea.“ En Nökkvi var
alsæll með lífsspeki sína og bíður
nú sæhi en áöur þeirra endaloka
sem blasa við okkur öhum.
Lausafjáruppboð á óskilamunum
Eftir beiðni lögreglustjórans í Reykjavík fer fram uppboð á ýmsum óskila-
munum, m.a. reiðhjólum, úrum, fatnaði og fleiri munum.
Uppboðið fer fram í uppboðssal Vöku hf. að Eldshöfða 4, Ártúnshöfða,
laugardaginn 7. maí 1994 og hefst það kl. 13.30. Greiðsla við hamarshögg.
Næg bílastæði.
Sýslumaðurinn í Reykjavik
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða fóstrur í fullt starf á eftirtalda leikskóla:
Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230
Fellaborg v/Völvufell, s. 72660
Fífuborg v/Fífurima, s. 684515
Holtaborg v/Sólheima, s. 31440.
Einnig óskum við að ráða fóstru eða þroskaþjálfa í
stuðningsstarf á leikskólann Rofaborg v/Skólabæ, s.
672290.
Þá vantar yfirfóstru á leikskólann Fellaborg v/Völvu-
fell, s. 72660.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
SOLU «««
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis
þriðjudaginn 3. maí 1994 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu
vora að Borgartúni 7 og víðar.
1 stk. Jeep Cherokee 4x4 bensín 1989
1 stk.Toyota Hilux 4x4 bensín 1990
1 stk. Mitsubishi L-200pickup 4x4 bensín 1989
1 stk. Mitsubishi L-300minibus 4x4 bensín 1986
3 stk. Subarustation 4x4 bensín 1988-89
1 stk.ToyotaTercel 4x4 bensín 1987
1 stk. Chevrolet Suburban 4x4 bensín 1981
1 stk. ChevroletSuburban 2x4 dísil 1987
1 stk. Mazda B-2000 pickup 2x4 bensín 1986
1 stk. Lada Sport 4x4 bensín 1989
1 stk. Audi200 bensín 1986
1 stk. Honda Civic LSi bensín 1992
1 stk. Volvo 240 G L fólksbifreið bensín 1991
1 stk.Toyota Corolla bensín 1991
1 stk. Suzuki Swift bensín 1989
1 stk. Nissan Micra bensín 1988
1 stk. Plymouth Volaréstation bensín 1980
3 stk. Lada station bensín 1986-88
3stk. Ford Econoline bensín 1977-87
1 stk. Mercedes Benz 303 dísil 1988
fólksflbifr., 33 farþ.
1 stk. Mercedes Benz 1928 dísil 1986
dráttarbifreið
1 stk. Mercedes Benz 1626 dísil 1976
með framdr. og krana
1 stk. Arctic Cat vélsleði bensín 1987
1 stk. Shetland Fishing bensín 1975
17 feta plastbátur á vagni (vél Yamaha 70 hö., ný)
Til sýnis hjá Skógrækt ríkisins, Vöglum, Fnjóskadal,
1 stk. Volvo Lapplander 4x4 bertsín 1981
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Patreksfirði
1 stk. vatnstankur, 10.0001, án dælu
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Hólmavík
1 stk. rafstöð, 32 kW, í skúr, á hjólum 1982
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Selfossi
1 stk. rafstöð, 30 kW, í skúr, á hjólum 1980
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði
1 stk. veghefill, Champion, 740-A, 6x4 1982
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30
að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna til-
boðum sem ekki teljast viðunandi.
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844,
JÆÖ ! tTz-j BRÉFASlMI 91-626739