Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Blaðsíða 26
34 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994 Sviðsljós Ólyginn ... að Ralph Fiennes, sem leikur í Lista Schindlers, væri nýkvænt- ur leikkonunni Alex Kingston og byggi i London. Hann er elstur sex systkina í listamannafjöl- skyldu. Þótt hann sé kurteis og rólegur á yfirborðinu sjóða tll- finningarnar undir niðri, að þvi er haft er eftir leikstjórum. ... að Rosie Óttalaus með Isabellu Rossellini og Jeff Bridges, hefði verið orðin fikniefnaneytandi þegar hun var 12 ára og stundaö þjófnað. Móð- ir Rosie var einstæð móðir með 11 börn og fátæktin var mikil. Rosie komst þó í menntaskóla en uppgötvaðist á dansgólfi. ... að það hefði verið Rebecca Broussard sem rak Jack Nlchol- son á dyr. Jack varð svo æstur eftir atburðinn að hann réðst á bíl saklauss ökumanns með golf- kylfu. Rebecca fær um 50 millj- ónir á ári i meðlag með sér og börnunum, auk hússins sem þau búa i. Kennedy væri öskureiöur yfir þvi að verslanak- eðjan Hennes & Mauritz notaói látna bræður hans í auglýsingu um bómultarbuxur og að meint ástkona þeirra, Marilyn Monroe, syngi hugljútt lag f auglýsing- Barist um frægð ogvöld Aðstæður Gere-hjónanna þykja dæmigerðar fyrir lifið í Hollywood. Aðskilnaður hjóna vegna vinnu var- ir oft vikum saman, vinnan er erflð og freistingarnar margar. Og skiln- aðirnir ófáir. Hjónabandseijurnar hjá kvik- myndastjömunum í Hollywood eru sagðar erfiðari en eijur venjulegra hjóna. Því er haldið fram að stjörn- urnar skipti sér meira af því í hvers konar fatnaði makinn gengur eða hvemig hann lítur út. Stjörnurnar rífast einnig meira um hvert eigi að fara út að borða og við hvaða borð eigi að sitja á veitingastað. Og svo hafa þær áhyggjur af því á hvaða frumsýningar þeim er boðið og ekki boöið. Stórt áhyggjuefni er hvort hjón- anna eigi fleiri aðdáendur. Holly- woodhjón nokkur, sem era með sama umboðsmann, eru sögð hringja í hann sitt í hvoru lagi á hveijum degi til að spyija hvað þau hafi feng- ið mörg aðdáendabréf hvort um sig síðasta sólarhringinn. Það er mikil áhersla lögð á að líta út sem „fullkomið" par. Og það reyn- ist oft þrautin þyngri þegar innbyrð- is er barist um frægð og völd. Tilefni stórra fyrirsagna Don Johnson og Melanie Griffith era núna tilefni stórra fyrirsagna og það er ekki í fyrsta sinn. Fyrir mán- uði var hjónaband þeirra nærri farið út um þúfur eftir að Melanie hafði sett út á drykkju Dons. Hjónaband þeirra er dæmi um leik- arahjónaband þegar stjarna annars dvínar á meðan stjarna hins rís. Melanie og Don giftust ung en skildu. Hann varð alþjóðleg stjama vegna hlutverks síns í Miami Vice sjón- ... að daglega hringdi fjöldi manna til Gracelands, heimilis Elvis Presley, tii að fá að tala við rokkkónginn sjáifan. Að sögn starfsmanna Gracelands fá hinir sömu taugaófall þegar þefm er sagt að átrúnaðargoð þeirra hafi l.í lv It«. ij Cindy Crawford og Richard Gere hafa litinn tima til að vera saman. Seinna hjónaband Melanie Griffith og Don John- son er sagt vera i hættu. Tom Arnold og Roseanne Barr eru nú að reyna ElizabethTaylorogRichardBurtonskildutvisvar. að ná sáttum. tfi 15 tmtiiifirfvntti niivifrrfri’irinlíiii i fiítnttiiitfnitíiötwtftmotfjimmiiii s varpsmyndaflokknum. 1989 giftust þau aftur og eignuðust dótturina Dakota sem nú er fjögurra ára. Framleiðslu Miami Vice þáttanna var hætt og stjama Dons dvínaöi á meðan Melanie fékk viðurkenningar fyrir kvikmyndaleik. Eftir að hafa veriö edrú í tíu ár fór Don að drekka aftur. Melanie, sem sjálf hefur verið áfengissjúklingur, sá hættumerki og sótti um skilnað fyrir mánuði. Jack Nicholson og Rebecca Brouss- ard skildu þegar hún tilkynnti að hún ætlaði út á vinnumarkaðinn aft- ur eftir að hafa verið heima og sinnt tveimur bömum þeirra. Nicholson vildi hafa konu sína heima. Allir stóðu í þeirri trú að hjóna- band fyrirsætunnar Christie Brin- kley og söngvarans Billy Joel væri til fyrirmyndar. Þau hafa nú tilkynnt að þau ætli aö skilja eftir níu ára hjónaband. Roseanne Barr var í fréttunum í síðustu viku eftir aö hafa sótt um skilnaö frá manni sínum Tom Amold sem hún hefur verið gift í fimm ár. Þau era nú að reyna Billy Joel og Christie Brinkley hafa tilkynnt um skilnað. að ná sáttum. Meðal umtöluðustu hjónaskilnaða í kvikmyndaheiminum era skilnaðir Elizabeth Taylors og Ricards Burt- ons og Franks Sinatra og Ava Gardn- er. Hjá þeim fyrrnefndu var valda- baráttan sögð hörö. Hjá þeim síðar- nefndu skein frægðarsól Gardner hæst áður en Sinatra náði sér á strik með From Here to Etemity. Þetta var álag sem þeirra hjónaband þoldi ekki. Hollywood: Frægðin fer illa með hiónaböndin Fyrir nokkrum vikum kvaddi Ric- hard Gere konu sína, Cindy Craw- ford, og hélt til Indlands. Kveðju- stundin fór reyndar ekki fram á flug- vellinum heldur rétt náðu þau að segja nokkur orð hvort við annað áður en Cindy lagði sig eftir erfiðar myndatökur. Stuttar samvistir Gere og Crawford hafa kynt undir orðrómi um að hjónabandið standi á völtum fótum. Fullyrt er að þau hafi í raun flutt hvort frá öðru og séu að undirbúa skilnað. Cindy er sögð hafa snætt kvöldverð með Randy Gerber, mann- inum sem hún átti vingott viö fimm áram áður en hún giftist Gere í des- ember 1991.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.