Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
Fréttir
Óvenjulegt ástand 1 nýju íjölbýlishúsi 1 Kópavoginum:
Fjölskyldur f lýja vegna há-
værra ástaleikja nágranna
Inga Björk Steinsdóttir og Birna Höskuldsdóttir hata þurtt aö (iýja íbúðir sinar ásamt fjölskyldum sínum og búa nú
hjá ættingjum. DV-mynd Ægir Már
„Við höfum þurft aö þola þvílík
óiiljóð þrisvar á dag að við gáfumst
að lokum upp og höfum flutt út. Þetta
ástand hefur varað í sjö mánuði eða
frá þvi flutt var í blokkina. Við höfum
ítrekað reynt að ná fram rétti okkar
án árangurs," segja þær Inga Björk
Steinsdóttir og Bima Höskuldsdóttir.
Þær hafa ásamt fjölskyldum sínum
þurft að flýja úr glænýrri blokk í
Kópavoginum vegna tíðra og há-
værra ástaleikja nágranna sinna.
Báðar þessar íjölskyldur voru að
stækka við sig innan félagslega kerf-
isins og segjast hafa verið mjög
ánægðar að hafa loks fengið fjögurra
herbergja íbúðir en þá dundi þetta
yfir. „Það er ekki búandi í þessum
stigagangi," segja þær. Húsnæðis-
nefnd hefur ekki boðið þeim annað
húsnæði.
„Óhljóðin glumdu um húsið“
„Við fluttum inn sl. haust ásamt
íbúum í fjórum öðrum íbúðum. Strax
á öðru degi fórum við að heyra óhljóð
úr einni íbúðinni. Við héldum fyrst
að þar væri einhvers konar ofbeldi á
ferðinni. Óhljóðin glumdu um húsið.
Síðan fórum við að átta okkur á að
þetta væri ekki olbeldi heldur kyn-
lífsstunur eða öliu heldur óp sem
enduðu með einhvers konar gráti.
Það má helst líkja þessum hljóðum
við gelt í hundi og er mjög hvimleitt
til lengdar að hlusta á þetta. Við
þurftum að þola þetta þrisvar sinn-
um á dag stundum þrjá tíma í einu.
Við höfum vaknað upp á nóttunni
við óhljóðin, síðan byijar þetta aftur
árla morgims og loks eftir hádegi.
Þetta fólk er ekki útivinnandi. Þar
sem við erum heimavinnandi urðum
við mest varar við þetta á daginn og
bömin auðvitað líka. Börnin eru
mikið spurð um þetta í skólanum því
þetta er farið að berast út um hverf-
ið,“ segja þær.
„Það halda kannski einhverjir að
þetta sé grín en það er ekkert grín
að búa við þetta enda höfum við gef-
ist upp. Við erum búnar að leita til
fjölskyldudeildar Félagsmálastofn-
unar Kópavogs, til lögreglu, hús-
næðisnefndar og jafnvel félagsmála-
ráðuneytisins. Það virðist enginn
gera neitt í málunum. Barnavemd-
amefnd heimsótti fólkið í kjölfar
kvörtunar okkar, þar sem þau eru
með ung böm, og skoðaði aðstæður
en urðu ekki vitni að hávaðanum.
Það urðu hins vegar menn frá hús-
næðisnefnd. Auk þess höfum við tek-
ið upp óhljóðin á segulband og spólan
er hjá Félagsmálastofnun. Það er
ömurlegt fyrir okkur að vera á göt-
unni með fjölskyldur okkar en við
gátum ekki búið við þetta lengur. Því
miður er eins og ekki sé tekið mark
á okkur,“ segja þær Inga og Birna.
Seglst ekki geta að þessu gert
Þær segjast hafa rætt við þessa
hávæm íbúa en án árangurs.
„Konan sagði aðeins að hún gæti
ekkert að þessu gert. Hún hefði reynt
að bíta í kodda en þaö dygði ekki,“
segja þær. „íbúarnir eru gjörsamlega
búnir að fá nóg enda getur ekki nokk-
ur maður ímyndað sér hvað það er
hvimleitt aö hlusta á þetta. Mann
langar ekkert til að heyra í fólki
stimda kynlíf sitt enda á það aö vera
einkamál hvers og eins,“ segja þær.
„Það er sannarlega ekkert einkamál
þegar það heyrist út á bílaplan.“
„Það verður að’gera eitthvað fyrir
þetta fólk því ekki getur þetta gengið
til lengdar. Vandamáhð verður alltaf
fyrir hendi ef ekkert verður gert í
þessu."
Dæmi um verðmun áfengra drykkja
— hæsta verö/lægsta verö —
900 krónur ----------------------———--------—
800
700
600
500
400
300
200
100
Verðkönnun Samkeppnisstoöiunar á veitingahúsum:
Verðlækkun á bjór
TvM. vodkl
i kók
Whlte
Russlan
Tuborg
grön
Irlsh
Coffeo
hef ur ekki skilað
sér til neytenda
- verðmunUr á gosglasi getur verið allt að 111 %
í nýrri verðkönnun Samkeppnis-
stofnunar í 107 veitingahúsum á höf-
uðborgarsvæðinu kemur fram að
verðlækkun á bjór hjá ÁTVR hafi
ekki skilað sér nema að óverulegu
leyti til neytenda. Heineken og
Beck’s hafa t.d. lækkað að meðaltali
um rúm 5% hjá ÁTVR frá því 1 júlí
1992 en ekki nema um tæplega 1% í
veitingahúsum á sama tímabili. Með-
alhækkun á sterkum drykkjum í
veitingahúsum er hins vegar svipuð
hækkunum ÁTVR.
Könnunin náði til allmargra áfeng-
istegunda, gosdrykkja og bjórs og
athygh vakti að verðmunur á hæsta
og lægsta verði á gosglasi getur verið
allt að 111%. Hæsta verð var hjá
Holiday Inn, Hótel Borg og í Perl-
unni, eða 190 kr. glasið, en lægsta
verðið var hjá American Style í Skip-
holti, 90 kr. glasið. Mestur var verð-
munurinn á glasi af Dry Martini eða
125%. Það kostaði á bilinu 400-900
krónur.
Formannsskipti á miðstj ómarfundi Framsóknarflokksins:
Halldór vill þing-
kosningar í haust
- segir samningaviöræður við Evrópusambandið kalla á kosningar
„Við framsóknarmenn höfum
ávallt trúaö á mátt þjóðarinnar
sjálfrar til að bjarga sér án utanað-
komandi hjálpar. Við höfum hins
vegar getað aðlagað hugsjónir okkar
að breyttu alþjóðlegu umhverfi og
við þurfum að gera það í æ ríkari
mæli,“ sagði HaUdór Ásgrímsson í
sinni fyrstu ræðu sem formaður
Framsóknarflokksins.
Miðstjómarfundur Framsóknar-
flokksins hófst síðdegis í gær á þvi
aö Steingrímur Hermannsson sagði
af sér formennsku í flokknum. Frá
og með morgundeginum tekur Stein-
grímur við starfi bankastjóra í Seðla-
bankamun og hættir þar með bein-
um afskiptum af stjómmálum. Miö-
stjómarfundinum lýkur í dag.
í rseðu sinni sagði Halldór það eitt
af mikilvægustu verkefnum næstu
mánaða að ganga til samninga við
Evrópusambandið. í slíkum viðræð-
um yrði að ganga út frá þeirri afstöðu
Alþingis að hafna aðild. Hann undir-
strikaði þó að reynslan af samstarfi
íslendinga við nágrannaþjóðir sýndi,
svo ekki yrði um villst, að alþjóðlegt
samstarf hefði styrkt menningu og
sjálfstæði þjóðarinnar.
Halldór sagöi líklegt að viðræður
viö Evrópusambandið kæmust á
skrið næsta haust og vetur. Við slík-
ar aðstæður væri eðlilegt að kosning-
ar færa fram þegar í haust. Viðkom-
andi ríkisstjórn yrði að hafa skýrt
Á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gær sagði Steingrimur Hermanns-
son af sér eftir 15 ára formennsku. Halldór Ásgrímsson varaformaður tók
við formennsku. Eins og sjá má á myndinni var létt yfir þeim Steingrími
og Halldóri við þessi timamót.
umboð til samningaviðræðna og eins
væri eðlilegt að stjórnmálaflokkar
útskýrðu fyrir kjósendum hver
stefna þeirra væri.
Dijúgur hluti ræðu Halldórs fjall-
aði um efnahags- og atvinnumál á
íslandi. Hann lagði áherslu á aö setja
þyrfti leikreglur í þjóðfélaginu sem
ykju jöfnuð og jafnrétti. Þá sló hann
á ótta manna við erlendar fjárfest-
ingar hér á landi og sagði þær nauð-
synlegar til að vinna á atvinnuleys-
inu.
„Uppgangur óheftrar markaðs-
hyggju hefur verið mikill í heiminum
en staðreyndin er sú að slíkar stefnur
era á undanhaldi. Gróðahyggjan
veldur því að fleiri og fleiri samfé-
lagsþegnar verða undir og það skap-
ar slíkan óróa í samfélögunum að
ekkert verður við ráðið.“