Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
15
í hópi fj allhressra
„Ég er Andrésar andar-meistari,“
sagöi dóttir mín lítil um síðustu
helgi er hún fann að hún gat rennt
sér hjálparlaust niður brekku Hhð-
arfjalls á Akureyri. Það má til
sanns vegar færa að hún hafi verið
meistari þótt hún hafi ekki tekið
þátt í keppni eldri barna á skíða-
leikum Andrésar andar. Eldri syst-
ir hennar keppti en sú yngri var
að stíga sín fyrstu spor á skíðunum
og fagnaði þeim áfangasigri að
halda jafnvægi niður byrjenda-
brekku. En hún var ekki sú eina í
fjölskyldunni sem var völt á fótun-
um í nefndri brekku. Faðir hennar
haföi látið véla sig til svigskíðaiðk-
unar og enginn ruglaðist á honum
og Andrésar andar-meisturum.
Ég hef ekki stigið á svigskíði frá
því að ég var barn. Innra með mér
hafði ég tekið þá ákvörðun að fara
í gegnum þetta jarðlíf án skíða-
kunnáttunnar. Ég keypti að vísu
gönguskíði fyrir nokkru og hef lítil-
lega stautað á þeim. Það sport sá
ég að var ekki lífshættulegt. Allt
öðru máh gegndi um brun og svig.
Þar þjóta menn niður brekkur á
ógnvænlegum hraða og útlimir all-
ir í bráðri hættu. Ég eftirlét því
öðrum þessar hundakúnstir. Ég
var að vísu einn í minni fjölskyldu
með þessa sérvisku en það varð að
hafa það.
Vélabrögð
Andrés önd varð mér hins vegar
að falli eða öhu heldur umboðs-
maður hans innan stórfjölskyld-
unnar. Svih minn stóð í sömu spor-
um og ég. Hann átti börn sem
kepptu á Andrésarleikunum en
hann kunni ekki að standa á skíð-
um frekar en ég. Raunar var staða
hans enn verri en mín því hann
hafði aldrei á shk prik stigið. Hann
ákvað að gera eitthvað í máhnu.
Hann byrjaði á því að fara í skíða-
búð og keypti aht settið, skíði, bind-
ingar, skó og gaha. Hann fékk
starfsfélaga sinn til hins sama.
Skíðakunnátta þess ágæta manns
var á sama plani, sem sé engin. Því
næst leigði hann sér skíðakennara.
Ég fylgdist með þessu úr fjarlægð
og vorkenndi manninum. Hann var
greinilega að tapa glórunni með
aldrinum. Ég uggði ekki að mér og
gerði góðlátlegt grín að þessum th-
burðum öhum. Svilinn kom þá með
óverjandi leik. Hann manaði mig
fyrir framan konu og börn th að
taka þátt í þessum æfingum. Þar
sem ég er fæddur undir merki
ljónsins stóöst ég ekki þessi frýjun-
arorð og sló th. Kennarinn var til-
búinn samdægurs.
Kennari í Bláfjöllum
Ég átti hvorki skíði né galla. Því
var snarlega bjargað. Ég mátaði
græjur af syni mínum og virtist
passa í settið. Hann lánaði mér líka
jogginggaha enda sagði hann það
ekki tíðkast að fara í jakkafötum á
skíði.
Kennarinn beið og við héldum til
fjaha undir kvöldmat á fimmtu-
degi. Þokuslæðingur var á Blá-
fjallaafleggjara og ég vonaði að svo
dimmdi af þokunni að ófært yrði.
Mér varð ekki að ósk minni. í Blá-
fjallaskála fengu skíðastúdentarnir
þrír þægUegar mótttökur. Það var
látið hta svo út að það væri eðhleg-
asti hlutur í heimi að fá þrjá imba
á góðum aldri í skíðanám. Kennar-
inn, ung kona, kynnti sig og lét
ekki á neinu bera. í hópinn bættist
kona sem haldin var sömu mennt-
unarþrá og við félagarnir.
Út var haldið og við spenntum á
okkur skíðin. Ég var svolítið púkó
í gamla jogginggahanum en bekkj-
arsystkin mín öh smart í nýjum
göllum um leið og stimdi á nýju
skíðin. Kennarinn fór með okkur
að skíðalyftu. Það þyrmdi yfir okk-
ur. Við höfðum ahs ekki reiknað
með því að fara í slíkt apparat fyrr
en að loknu grunnnámi. Starfsfé-
laga svha míns var svo brugðið að
hann mótmælti opinskátt. Kennar-
inn tók ekki mark á andmælunum.
Okkur var sagt að þetta væri
barnalyfta og okkur tæplega of-
viöa. Við komumst klakklaust upp.
„Leggið nú frá ykkur stafma,"
sagði kennarinn án þess að depla
auga. „Stafina," átum við hver upp
eftir öörum. „Þeir eru okkar eina
hald og traust. Hvernig eigum við
að halda jafnvægi án þeirra?"
„Þetta kemur aht í ljós,“ sagöi læri-
meistarinn. „Nú æfum við plóg.“
Konan skíðaði örhtið neðar í
brekkuna og breiddi út faðminn á
Ég taldi nóg að gert og mat stöð-
una þannig að ég gæti útskrifast
þetta kvöld. Mér tíl skelfingar
heyrði ég svilann semja við kenn-
arann um að leigja SkálfeUið næsta
kvöld fyrir okkur eina og fá kenn-
ara th viðbótar þannig að þetta
yrði nánast maður á mann. Undan-
komu varð ekki auðið.
Þrátt fyrir heitt bað og koníak
voru harðsperrurnar ógurlegar
næsta dag. Það breytti því þó ekki
að það sama fostudagskvöld vorum
við félagar mættir í Skálafell. Þar
biðu okkar kennararnir tveir, kon-
an frá kvöldinu áður og karlmaður
sem var tilbúinn að fóma sér í þetta
þróunarstarf. í hópinn bættust og
tvær konur. Þær gátu ekki á sér
setið og settu út á gaUa undirritaðs
þar sem ég stóð með skartklæddum
félögum mínum í nýju göhunum.
Þessar góðu konrn- héldu jafnvel
að mér yrði kalt í þessu þunrúldi.
Það voru þó óþarfa áhyggjur. Mér
hitnaði jafnvel við tílhugsunina um
brattar brekkur Skálafehsins.
Ámóti
náttúrulögmálum
Kennaramir skiptu hði og karl-
inn tók okkur drengina í fram-
haldsnám í beygjulistum. Hann
reyndi það ómögulega. Kúnstin var
sú, að sögn mannsins, að færa
þungann á neðra skíðið og haha sér
um leiö undan brekkunni. Það
sáum við, nemendur hans, að þetta
var á móti náttúrlögmálum. Sé
maður staddur í brekku, að ekki
sé talað um brattri brekku, þá hah-
ar maður sér á móti brekkunni til
að halda jafnvægi. Þetta skifja flest-
ir en kennarinn boðaði aðrar
kúnstir. Það veit guð að við reynd-
um en afleiðingamar mátti auðvit-
að sjá fyrir. Við misstum jafnvægið
og duttum, hausinn sneri niður og
skíðin upp. Kennarinn var hörku-
tól og gaf sig ekki. Við reyndum
aftur og aftur og aumari urðu lend-
arnar eftir byltumar. Strengir í
kálfum og lærum, frá kvöldinu áð-
ur, ágerðust.
Við sluppum óbrotnir úr brekk-
um Skálafellsins og enn var bent á
töfralausnina: Bað og koníak. Um
leið og við kvöddum kennara okkar
bentu þeir okkur á að komið væri
að okkur sjálfum. Nú væri rétt að
við færum sjálfir á skíði og æfðum
það sem okkur hafði verið kennt.
Við tókum þessari áskorun með
hóflegum gleðhátum.
Aftur í Bláfjöll
Það ótrúlega gerðist samt. Strax
daginn eftir var ég með fyrstu
mönnum í Bláfjöll. Svo var ég ákaf-
ur að aðrir í fiölskyldunni undmð-
ust. Ég reyndi hæfni mína aðeins í
bamabrekkunni en mér til nokk-
urar sáluhjálpar fann ég að ég gat
staðið niður brekkuna, beygt í báð-
ar áttir og jafnvel stoppað ef á
þurfti að halda. Ég segi ekki að
stíhinn hafa borið af en skítt með
það.
Og loks í Hlíðarfjall
Þetta var lokaæfing min fyrir
Andrésar andar-leikana. Þegar
haldið var norður var ég svo bratt-
ur að ég tók með mér svigskíðin
og skhdi gönguskíðin eftir. í brekk-
unum þar tréysti ég á að enginn
þekkti mig þannig að ég klæddist
óhræddur gamla jogginggallanum.
Ég æfði mig í bamabrekkunni með
dóttur minni, sem er á fimmta ári.
Fyrst í stað lét ég hta svo út að ég
væri að leiðbeina baminu. Það
gekk aðeins í stutta stund þar sem
barnið tók mun meiri framforum
en ég.
Það varð því að grípa til róttækra
ráðstafana. Þegar eiginkona mín
og mágkona orðuðu það að fara
með mig í stólalyftuna í Hhðarfiahi
lét ég slag standa. Ég sá ekki betur
en flestir kæmust heilir út úr því
ferlíki. Ég gerði það líka og komst
meira að segja niður án þess að
detta.
Það sem mér þótti hins vegar
skrítið var það að svih minn, sem
plataði mig í skíðakemisluna, bar
við fótarmeini í Hhðarfialh. Konan
hans stóð með honum og sagði
hann segja satt.
Svih minn lá því í tölvuleikjum á
meðan ég tókst á við náttúmöfl- og
lögmál. Það sérkennilega var að ég
sá ekki að hann gengi haltur að eða
frá tölvunni.
Laugardagspistill
Jónas Haraldsson
fréttastjóri
móti okkur. Okkur bar að setja
skíðin saman að framan og stefna
síðan beint á hana. Það verður að
játast að þetta var vel boðið af ungri
konunni. Við létum því vaða og
okkur til hróss skal þess getið að
við slösuðum ekki stúlkuna. Ég
mæh þvi með kvenkennurum í
þetta, svona í fyrsta tíma.
Tveir kennarar
í Skálafelli
Áfram var haldið og plógurinn
æfður auk þess sem okkur var
kennt að beygja. Það gekk nú svona
og svona. Mikhvægast var að kenn-
ari vor kenndi okkur að detta. Ekki
var vanþörf á. Það verður að segj-
ast eins og er að fljótlega tóku kálf-
ar og læri að kveinka sér. Undir lok
tímans var á mörkunum að við
nýnemarnir gætum staðið í lapp-
irnar. Við komumst þó óbrotnir
aftur í skálann. Kennarinn sá að
við vorum undnir og tuskulegir,
jafnvel hka þessir í nýju göhunum,
og ráðlagði því heitt bað og koníak
þegar heim kæmi. Við fórum svika-
laust eftir þessum leiðbeiningum
kennarans.