Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994 Skák Heimsmeistarar berjast um yöldin - Samtök Kasparovs og Shorts beina athyglinni að styttri skákum Nú ber vel í veiði fyrir íslenska skákunnendur því að FIDE-heims- meistarinn Anatoli Karpov er vænt- anlegur til landsins á morgun, sunnudag. Karpov mun tefla í at- skákmóti í Sjónvarpinu á mánudags- kvöld en það verður sýnt í beinni útsendingu. Karpov mun tefla við stórmeistar- ana Hannes Hlífar Stefánsson, sigur- vegarann á opna Reykjavíkur- og Kópavogsmótinu, Helga Ólafsson, skákmeistara íslands, og Margeir Pétursson, íslandsmeistara í atskák. Vfótið verður með sama sniði og at- ikákmót Mjólkursamsölunnar í ýrra þegar Judit Polgar vann hugi Dg híörtu landsmanna. Egiil Eð- varðsson stjómar útsendingunni og umsjónarmaður er Hermann Gunn- arsson. Fyrirhugað var að eldhúsdagsum- ræðum frá Alþingi yrði sjónvarpað beint þetta kvöld en nú hefur þeim verið frestað. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skák hefur áhrif á störf Alþingis. Frægt er að þegar heims- meistarinn Alexander Aljekín kom hingað til lands 1931 og tefldi fjöltefli var hlé gert á þingstörfum svo að þingmenn gætu fylgst með. Dagskrá Karpovs er þrautskipu- lögð en hingað til lands kemur hann beint frá stórmeistaramóti í Sevilla á Spáni. Þó hefur veriö reynt að fá hann til þess að framlengja dvöl sína hér á landi og taka þátt í 44. helgar- skákmótinu sem fram fer á Suöur- eyri við Súgandaflörð 6.-8. maí, á vegum tímaritsins Skákar og heima- manna. Karpov „endurheimti“ heims- meistaratitilinn í fyrra eftir að Kasp- Umsjón Jón L. Árnason arov og Short klufu sig frá FIDE og stofnuðu eigin samtök atvinnustór- meistara, PCA. Karpov er farsælasti mótaskákmaður allra tíma og er skemmst að minnast yfirburðasigurs hans á stórmótinu í Linares í febrú- ar. Hann er vitaskuld einnig frábær atskákmaður en yfirburöir hans á því sviði eru þó ekki eins áberandi og í lengri skákum. Hann er sem sagt einn þeirra (fáu) skákmanna sem bæta árangur sinn við að hugsa! Atskákmót í Kreml Skákir meö styttri umhugsunar- tíma virðast smám saman vera að ná yfirhöndinni miöað við hefð- bundnar kappskákir. Þær sýnast lík- legri til þess aö höfða til almennings, eru frábært sjónvarpsefni og þar liggja peningamir. Samtök Kasp- arovs og Shorts hafa t.a.m. gert samning við Intel-tölvufyrirtækið bandaríska sem tekur að sér - auk kostunar á „áskorendaeinvígjunum" - að standa fyrir keðju atskákmóta í Moskvu, New York, London og París og hraðskákmóti í Múnchen í maí. Þessi samningur PCA við Intel, sem hljóðar upp á um 400 milljónir íslenskra króna, er ómetanlegur fyr- ir þá félaga Kasparov og Short sem eiga í harðri samkeppni um tilveru- rétt við FIDE. Þetta er ekki síður mikilvægt fyrir Kasparov nú eftir að Karpov gaf honum „langt nef ‘ með glæsilegum sigri sínum í Linares. Keppni FJDE og PCA er um leið valdabarátta Karpovs og Kasparovs. Atskákkeppni PCA í fyrmefndum stórborgum er um leið heimsbikar- keppni í atskák. Fyrir hvert þessara móta fer fram opið úrtökumót, þar sem átta efstu menn vinna sér sæti í aðalkeppninni. Átta stórmeistarar til viðbótar eiga fast sæti: Kasparov, Short, Adams, Sírov, Kamsky, Kramnik, Anand og Kortsnoj. I hverju móti nemur verðlaunaupp- hæðin ríflega ellefu milljónum ísl. króna og sigurvegari í hefldina hreppir rúmar sjö milljónir til við- bótar. Fyrsta mótið í röðinni var haldiö í Moskvu um síöustu helgi og móts- staðurinn var ekki af verri endanum. Teflt var í Kreml - þaöan sem Sovét- veldinu var stýrt hér í eina tíð. Hætt er við að Viktor Kortsnoj, sem tefldi nú í Rússlandi í fyrsta skipti síðan Sovétríkin voru og hétu, hafi ekki liðið allt of vel í návist „krumlunnar í Kreml“, eins og Högni heitinn Torfason komst að orði. Kortsnoj kvaðst hafa kynnst ýmsu um dag- ana, m.a. komið í yfirheyrsluher- bergi KGB en til Kremlar hefði hann aldrei komið fyrr. Leikar fóru svo að Indverjinn Viswanathan Anand sigraði, eftir úrshtaeinvígi viö Vladimir Kramnik. Anand, sem ætíð hefur verið þekktur fyrir að tefla hraðar en auga á festir, virðist á góðri leið með aö verða kon- ungur atskákmótanna. Nýveriö sigr- aði hann á öflugu móti í Monaco þar Karpov FIDE-heimsmeistari tekur þátt i atskákmóti í Sjónvarpinu sem sýnt verður i beinni útsendingu á mánudagskvöld. sem blandað var saman atskák og blindskák. Kasparov sló Timman út í fyrstu umferð en tapaði síðan fyrir Kramn- ik. Lok þeirrar fjörugu skákar birt- ust í DV í vikunni. Athygli vakti framganga Nigels Shorts en hann hefur ekki teflt opinberlega eftir ein- vígið við Kasparov í fyrra. Short sló Ehlvest út 1 fyrstu umferð á laglegan hátt en varð síðan aö játa sig sigrað- an gegn Ivanfjúk og þar með var hann úr leik. Skoðum seinni skákina við Ehlvest sem úrshtum réð en fyrri skákinni lauk með jafntefli: Hvítt: Nigel Short Svart: Jaan Ehlvest Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 Fischer hafði líka dálæti á þvi að setja biskupinn á þennan reit. Með þessari leikaðferð gegn Sikfleyjar- vöm tókst Short að leggja Kasparov í einvígi þeirra 1 London í fyrra. 6. - e6 7. Bb3 b5 8. 0-0 Be7 9. Df3 Dc7 10. Hel Short frestar um stund að setja drottninguna á g3 sem alla jafna er gert í þessari stöðu. 10. - 0-0 11. a3 Rc6 12. Rxc6 Dxc6 13. Dg3 Rh5 14. Dh3 Rf6 15. Bg5 Bb7 16. He3 Hfe8 17. Hael Kh8 18. Dh4 Rg8 19. Hg3 Dc5 20. Hee3 h6 21. Bxe7 Rxe7 22. Df4 Hf8 23. Hh3 Rg6? Tapleikur. Nauðsynlegt var 23. - De5. 8 7 6 5 4 3 2 1 24. Hxh6+! gxh6 Ekki gengur 24. - Kg8 25. Hxg6! fxg6 26. Bxe6+ Kh7 27. Hh3+ og vinnur. 25. Dxh6+ Kg8 26. Bxe6! Þar lá hundurinn grafinn! Hins vegar ekki 26. Hh3 Hfe8 og riddarinn á g6 forðar máti. Nú er fátt um vam- ir því að 26. - fxe6 27. Dxg6+ Kh8 28. Hh3+ verður mát. 26. - De5 27. Dxg6+ Dg7 28. Dh5 fxe6 29. Hg3 Hf7 30. Dh6 Dxg3 31. hxg3 Tveir hrókar eru meira en jafnokar drottningar að öðru óbreyttu. Hér hefur hvítur haft of mörg peð upp úr krafsinu. Svarta staðan er töpuð. 31. - He8 32. f3 Hee7 33. g4 Bc6 34. Re2 Hh7 35. Dd2 d5 36. e5 Be8 37. c3 Hhf7 38. Rf4 Hg7 39. Kf2 a5 40. De3 a4 41. Db6 Kf7 42. Rh5 Hg5 43. De3 - Og Ehlvest gafst upp. Bridge Islandsbankamótið í tvímenningi: Ásmundur og Karl sluppu með skrekkinn Pörin sem voru í þremur efstu saetunum á íslandsbankamótinu í tvímenn- ingi. Frá vinstri eru Bragi Hauksson og Sigtryggur Sigurðsson sem enduðu í þriðja sæti, Karl Sigurhjartarson og Ásmundur Pálsson sem urðu í fyrsta sæti, Jón Baldursson og Sævar Þorbjörnsson sem enduðu í öðru sæti. DV-mynd JAK Það ríkti mikfl spenna í lokaumferð íslandsbankamótsins í tvímenningi því að þrátt fyrir gott forskot Ás- mundar Pálssonar og Karls Sigur- hjartarsonar á Jón Baldursson og Sævar Þorbjömsson var ljóst að sig- ur þeirra fyrrnefndu hékk á blá- þræði. Karl varð fyrir því óláni að ruglast á rauðu gosunum í fyrsta spili loka- umferðarinnar og það breytti góðu spfli í afar slæmt. Jón og Sævar vom hins vegar að skora grimmt gegn Jóni Hjaltasyni og Jóni Inga. Þegar upp var staðiö áttu Ásmund- ur og Karl eitt stig tfl góða og það nægði tfl þess að vinna íslandsmeist- aratitilinn. Ásmundur vann nú sinn áttunda titil í tvímenningskeppninni og skaust fram úr makker sínum til margra ára, Hjalta Elíassyni, meðan Karl var að vinna sinn annan titil. Á fiöratíu og einu ári hafa 50 ein- staklingar unniö þennan eftirsótta titfl en þessir hafa unnið oftast: Ásmimdur Pálsson 8 sinnum Hjalti Elíasson 7" Jón Baldursson 4" Valur Sigurðsson 3 " Þórarinn Sigþórsson 3" Við skulum skoða eitt gott spfl hjá sigurvegurunum. Umsjón Stefán Guðjohnsen N/allir ♦ Á73 ♦ KIO ♦ Á832 + K1072 * DG4 f Á763 ♦ D4 + DG54 * 10986 f DG854 ♦ 10975 + - Með Ásmund og Karl í n-s og Jónas P. Erlingsson og Ragnar Magnússon í a-v gengu sagnir á þessa leið : Norður Austur Suður Vestur llauf pass lhjarta pass lgrand pass 21auf* pass 2tíglar** pass pass pass * Biður um tvo tígla ** Sjálfsagt Karl var að taka nokkra áhættu með því að stýra spilinu í tígulsamn- ingi þegar hjartasamningur gat verið betri. En allavega gat hann ekki setið í einu grandi. Jónas spflaði út spaðadrottningu sem fékk aö eiga slaginn. Hann fann nú að spila tíguldrottningu í öðmm slag og Ásmundur drap slaginn. Hann spilaði síðan hjartakóng, sem Jónas drap með ás. Tromp er nú besta framhaldið, en Jónas valdi spaðagosa. Það var nóg fyrir Ás- mund. Hann drap á ásinn, tók hjarta- tíu og trompaði lauf. Síöan kom hjartadrottning, Ragnar trompaði meðan Ásmundur losaði sig við spaðatapslaginn. Ragnar reyndi lítið lauf, en Ásmundur var á sigurbraut og lét kónginn. Það var síðan forms- atriði að trompa lauf og trompa spað- ann frían. Þrír tíglar unnir og það gaf 19 stig af 30 mögulegum. íslandsmót í para- tvímenningi íslandsmótið í paratvímenningi verður haldiö á Akureyri dagana 12.-13. maí. Spilamennskan hefst klukkan 11 en nánari tímaáætlun verður gerð um leið og íjöldi para er ljós, en skráningarfrestur er til hádegis þriðjudaginn 10. maí. Spilaöur er barómeter og fer fjöldi spila mflli para eftir fjölda þátttakenda. Miðaö er viö að spila minnst 100 spil. Spilað er um gull- stig og Evrópustig í þesssari keppni. Keppnisgjald er krónur 6.600 á parið og greiðist viö upp- haf keppni. Skráning er á skrif- stofu BSÍ i síma 91-619360. í fram- haldi af paratvímenningnum heldur Bridgefélag Akureyrar upp á 50 ára afmæli sitt 14. og 15. mai með stórmóti meö veglegum peningaverölaunum. Skráning í bikarkeppni BSÍ er nú bytjuö og stendur tfl miðviku- dagsins 11. maí. Dregið veröur í fyrstu umferð í lok afinælismóts Bridgefélags Akureyrar. Eins og undanfarin ár verða spflaðir 40 spfla leikir og sú sveit sem dregin er á undan á heimaleik og sér um að koma leiknum á. Gefinn er ákveðinn tími til að spila hveija umferð og á fyrstu umferð að vera lokið 26. júní, annarri um- ferö 24. júlí, þriðju umferö 21. ágúst og fjórðu umferð 11. sept- ember. Undanúrslit og úrslit verða spfluö helgina 22.-23. okt- óber. Spilaö er um gullstig í hverri umferð og keppnisgjald er greitt fyrir hveija umferð sem spiluð er. Skráð er á skrifstofu BSÍ. f 92 ♦ KG6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.