Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Side 8
8
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
Vísnaþáttur
Ferskeytla
Frónbúans
Andrés Björnsson var fæddur 15.
desember 1883 á Löngumýri í Vall-
hólmi. Hann missti á fyrsta ári
móöur sína og ólst upp hjá föður
sínum, Birni Björnssyni. Haustið
1898 fór hann til síra Hálfdánar
Guðjónssonar er bjó á Breiðaból-
stað í Vesturhópi og síðar á Sauðár-
króki. Las Andrés hjá prófasti und-
ir skólapróf og vorið 1900 tók hann
inntökupróf í Lærða skólann og
settist haustið eftir í 2. bekk. Árið
1905 útskrifaðist hann með hárri
fyrstu einkunn. Sigldi hann svo um
haustið og gekk á háskólann í
Kaupmannahöfn og stundaði þá
málfræði í tvo vetur. Var hann þá
hér heima eitt ár en stundaði þá
lögfræðinám við háskólann í tvö
ár. Varð hann þá að hverfa frá námi
sökum féleysis og fluttist þá alfarið
frá Höfn vorið 1910.
Eftir það dvaldi hann í Reykjavík
við ýmis ritstörf og vann sem þing-
skrifari. Ekki varð Andrés gamall
því hann varð úti í Hafnarfjarðar-
hrauni 16. mars 1916 á leið frá
Hafnarfirði til Reykjavíkur.
Þófsamar umræður stóðu eitt
sinn yfir á hinu háa Alþingi.
Þreyttust sumir á staglinu og var
þess farið á leit við Andrés aö hann
kvæði um þetta vísu. Kvað Andrés
þá:
Þegar fer í þennan dans,
- það er gamall siður -
ætti að skera andskotans
umræðurnar niður.
Hreif þessi kraftakveðskapur og
olli því að umræðurnar hættu von
bráðar.
Næsta vísa er skammyrt lofvísa
um Þorstein Erlingsson ort í glettni
og hálfkæringi fyrir það að Þor-
steinn hafði ekki farið rétt með vísu
sem Andrés haföi botnað. Vísan
hljóðar svo:
Drottnum illur, þrjóskur þræll,
Þorsteinn snilli-kj aftur,
botnum spillir, sagna sæll, ,
Sónar fylliraftur.
Skáldið var lasið eftir drykkju og
lá í rúminu en matseljan mundi
eftir honum:
Nú er í brúki frost og fjúk,
firðar húka inni.
Fljóðin mjúku disk og dúk
draga aö lúku minni.
Þessa næstu vísu sendi hann Ein-
ari Sæmundssyni.
Þér mun ekki þyngjast geð,
þó að stytti daginn;
haustið flytur meyjar með
myrkrinu í bæinn.
Næstu tvær vísur mun Andrés
hafa skrifað í visnabók Einars:
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Móðurlaus ég alinn er
upp á pelaskarni;
en hann var fahnn fyrir mér
fjögra vetra barni.
En úr því ég hann aftur fann,
og hann vill mér þjóna,
flnnst mér illt aö fela hann
fyrir hverjum dóna.
Þessa alþekktu vísu kvað Andrés
um þjóðaríþróttina:
Ferskeytlan er Frónbúans
fyrsta barnaglingur.
En verður seinna í höndum hans
hvöss sem byssustingur.
Þegar fyrirtækið Völundur fékk
á leigu Helgustaðanámur með góð-
um kjörum réttist hagur þess svo
við að gjaldþrotalíkur voru alveg
úr sögunni. Þá kvað Andrés:
Þegar Völund þrýtur merg
þroti gjalds að hamla,
selur hann fyrir silfurberg
sálina þeim „gamla“.
m ÚTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið
„Ölkelduhálssvæði, vegur og borplarf"
Verkið felst í að leggja 3,8 km vinnuveg af Hellisheiði að
fyrirhuguðu borstæði Hitaveitu Reykjavíkurá Ölkelduháls-
svæði og byggja þar upp borplan.
Helstu magntölur eru:
Jöfnun undir burðarlag 25.000 m2
Burðarlag 16.000 m3
Verkinu skal lokið 25. nóvember 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn 15.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 12.
október 1994 kl. 11.00 f.h.
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið
„Mælaskipti“
Verkið felst í því að skipta um mæla á veitusvæði Hita-
veitu Reykjavíkur. Alls er um að ræða 2.000 mælaskipti.
Verkinu skal lokið á innan við 10 vikum.
Útboðið er opið fyrir alla pípulagningameistara sem lög-
gildingu hafa í Reykjavík.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 19.
október 1994 kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkukjiivíícji 3 - Sími 2 58 00
Matgæðingur vikuimar__pv
Innbakaðar
svínalundir
- og jarðarber á marsipanbotni
Hrafnhildur Njálsdóttir, hárskeri
og húsmóðir, segir matreiðslu vera
helsta áhugamál sitt. Hún bjó í
Danmörku nokkur ár og kveðst
hafa lært margt spennandi í matar-
gerð þar. „En Danir leggja jafn-
framt áherslu á að hafa allt sem
einfaldast. Matargerðin hjá þeim
er miklu einfaldari en hjá okkur.“
Hrafnhildur tekur það fram að
réttirnir sem hún býður upp á hér,
innbakaðar svínalundir og jarðar-
ber á marsipanbotni, séu einfaldir
í vinnslu þótt uppskriftimar virðist
langar og umsvifamiklar.
Svínalundir
2 svínalundir, 400-600 g.
Lundirnar em kryddaðar með
salti og pipar og brúnaðar. Látnar
kólna.
Smjördeig
250 g hveiti (4 dl)
1 tsk. lyftiduft
'A tsk. gróft salt
150 g kalt smjör
Vi dl köld mjólk
Allt hnoðað saman. Smjördeigið
er flatt út á ofnplötu sem bökunar-
pappír hefur verið settur á. Deigið
er haft 30 tii 40 sentímetra breitt
en lengdin fer eftir lengd svína-
lundanna.
Svínafars
500 g hakkað svínakjöt
2 msk. hveiti
1 egg
1 tsk. múskat
1 /i tsk. gróft salt
nýmalaður pipar
2 hvítlauksrif
Hrafnhildur Njálsdóttir.
1 stór laukur
250 g ferskir sveppir
1 dl ijómi eðá kaftirjómi
Laukurinn er saxaður smátt.
Sveppirnir em hakkaðir gróft og
öllu hrært vel saman.
Helmingnum af farsinu er dreift
eftir miðju deigsins. Lundirnar
lagðar ofan á þannig að mjór endi
sé við breiðan enda. Afgangurinn
af farsinu settur ofan á lundirnar
og deiginu lokað. Ef afgangur er
af deiginu er fallegt að skreyta með
honum. Penslað með eggi. Bakað í
1 klst. við 200 gráður. Deigið á að
vera fallega gullbrúnt. Álpappír
settur ofan á ef deigið verður brúnt
of snemma.
Með þessu ber Hrafnhildur gjarn-
an fram salat, bakaðar kartöflur
og kalda sósu. I sósuna eru notaðar
2 dósir af sýröum rjóma, 18%, 1
tsk. af grófu salti, 1 tsk. af múskati
og nýmalaður pipar.
Jarðarber
á marsipanbotni
'h kg kransakökumarsipan
2 eggjahvítur
1 eggjarauða
150 g suðusúkkulaði
600-750 g fersk jarðarber
Marsipanið rifið á rifjárni. Stíf-
þeyttum eggjahvítum hrært saman
við, annaðhvort með gafli eða með
handþeytara stilltum á minnsta
hraða. Hringur teiknaður á bökun-
arpappír eftir tertuformi sem er 24
cm í þvermál. Pappímum snúið við
þannig að strikin vísi niður. Helm-
ingnum af kransakökumassanum
þrýst inn í hringinn. Best er að
gera það með fingrunum. Afgang-
urinn af massanum er settur í
sprautupoka með stjörnumóti
framan á og er litlum toppum
sprautað á kantinn allan hringinn.
Penslað varlega með eggjarauðu.
Bakað við 200 gráða hita í um það
bil 15 mínútur. Gæta þarf þess vel
að botninn verði ekki of dökkur.
Hann er losaður varlega frá papp-
írnum og látinn kólna á kökudiski.
Jarðarberin eru skoluð og þurrk-
uð með eldhúspappír. Súkkulaðið
er brætt og borið á botninn. Jarðar-
berin eru sett ofan á á meðan
súkkulaðið er enn heitt.
Hrafnhildur leggur á það áherslu
á að með þessari kransaköku verði
að bera fram gott kafii. Hún skorar
á Önnu Siguriónsdóttur, hár-
greiðslumeistara í Reykjavík, að
vera næsti matgæðingur. „Anna
galdrar fram veislur og er eldsnögg
að því.“
Hinhliðin
Með hæfileg laun
- segir Sigmundur Emir Rúnarsson, varafréttastjóri Stödvar 2
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
varafréttastjóri á Stöð 2, hefur all-
oft veriö nefndur í dálki þessum
sem uppáhaldssjónvarpsmaður.
Það var því sannarlega kominn
tími til að Sigmundur sjálfur tæki
þátt og sýfidi hina hhðina og það
gerir hann nú:
Fullt nafn: Sigmundur Ernir Rún-
arsson.
Fæðingardagur og ár: 6. mars 1961.
Maki: Elín Sveinsdóttir.
Börn: Eydís Edda 9 ára, Oddur 7
ára, Birta 4ra ára, og Rúnar 2ja ára.
Bifreið: Toyota Corolla station, ár-
gerð 1994.
Starf: Varafréttastjóri Stöðvar 2.
Laun: Hæfileg.
Áhugamál: Sumarbústaðurinn,
trjárækt, landafræði, íslenska,
feröalög og fjölskyldan.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Mest íjórar og þús-
undkall í Bingó-lottói.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Standa upp frá góðu verki.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Hlusta á nöldur í fólki og
verða vitni að leti hjá fólki.
Uppáhaldsmatur: Allur þjóðlegur
matur og pastaréttir.
Uppáhaldsdrykkur: íslensk mjólk.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Valdimar
Grímsson, KA.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, vara-
fréttastjóri Stöðvar 2.
Uppáhaldstímarit: Tímarit Máls og
menningar og Árbók Ferðafélags
íslands.
Hver er fallegasta kona • sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Það eru hinar konurnar í lífi mínu,
móðir mín og dætur.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Sigmund afa minn sem er
nýlátinn.
Uppáhaldsleikari: Gene Hackman.
Uppáhaldsleikkona: Emma
Thompson.
Uppáhaldssöngvari: í íslenska
poppinu standa þeir upp úr Bjöggi
og Bubbi.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Skör-
ungurinn Aung San Suu Kyi frá
Burma.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hrollur.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir,
fréttaskýringaþættir og innihalds-
ríkar kvikmyndir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlutlaus.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég hlusta nokkuð jöfnum
höndum á Bylgjuna, rás tvö og
Aðalstöðina.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Þorgei-
ríkur.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég horfi töluvert meira
á Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ómar
Ragnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Sumar-
bústaðurinn Dyngjan á Flúðum í
Hrunamannahreppi.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KA.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Ala upp börnin mín
og sjálfan mig.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
var með græna fingur austur á
Flúðum, fór góðan túr um Vestfirði
og þegar þessar línur birtast verð
ég á leið með fjölskylduna í tveggja
vikna ferð til Flórída.
J-