Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Síða 29
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
37
Núna í vikunni kom út önnur plata The Boys á Islandi.
Söngfólk
óskast í nýjan kór Áskirkju í Reykjavík. Ósk-
að er eftir ungu fólki, helst með nokkra kunn-
áttu í söng og nótnalestri.
Upplýsingar hjá organista kirkjunnar í síma
42558 eða 814035 kl. 19-20.
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp við Lögreglustöðina á Höfn laugardag- inn 15. október 1994 kl. 13.00:
DR-799 FU-987 IÖ-346 IP-550 GÖ-473 GT-956 GV-365 HB-452 HK-069 JÖ-074 JR-884 MB-956 R-69729 SF-021
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á HÖFN 7. október 1994
The Boys í haustfríi á íslandi:
Fermast í kirkjunni
Þó að The Boys, Amar og Rúnar
Halldórssynir, séu vanir sviðsljósinu
þá er ekki laust við að þeir séu örlit-
ið kvíðnir vegna morgundagsins því
að þá fermast þeir báðir í Langhoits-
kirkju.
„Við erum svolítið hræddir um að
gleyma einhvetju af því sem við eig-
um að kunna utan að. Það væri svo-
lítið óþægilegt ef það gerðist í kirkj-
unni. Þetta gerist stundum þegar við
erum að syngja en þá förum við bara
aö hlæja og höldum áfram. Við verð-
um bara að brosa í kirkjunni ef við
gleymum einhverju," segja þeir
bræður.
Fermingarundirbúningurinn hjá
þeim hefur verið svolítið öðruvísi en
gengur og gerist því þeir hafa ekki
gengið til prests heldur lesið kverið
sitt heima í Noregi. „Við hittum
prestinn áðan og hann sagði að við
þyrftum að kunna trúarjátninguna
og faðirvoriö utan að. Það er auðveld-
ara aö læra faðirvorið á norsku. Það
eru ekki eins erfiö orð í því á
norsku," segja Amar og Rúnar sem
búið hafa í Noregi síðastliðin átta ár.
Öðruvísi ferming
í Noregi
Arnar er tólf ára og Rúnar verður
íjórtán ára síðar í þessum mánuði. í
Noregi fermast börn ári eldri en ís-
lensk böm. „Vinir okkar í Noregi
ætluðu ekki að trúa mér þegar ég
sagði að ég ætti að fermast núna á
íslandi," segir Arnar sem fær að
fermast um leið og stóri bróðir. Rún-
ar tekur það fram að í Noregi sé
- sem afinn byggði
meira um að vera í sambandi við
sjálfa ferminguna, að minnsta kosti
í þeirra heimabyggð. Þar sé færður
upp söngleikur af fermingarbörnun-
um. Hér séu aftur á móti stærri veisl-
ur.
Þrátt fyrir örlítinn kvíða þá hlakka
þeir báðir til að fermast í „fjölskyldu-
kirkjunni". Afi Arnars og Rúnars,
Kristinn R. Sigurjónsson, var bygg-
ingameistari við smíði Langholts-
kirkju. Faðir þeima, Halldór Krist-
insson, fermdist í kirkjunni og hjálp-
aði til viö byggingu hennar. Halldór
og Eyrún Antonsdóttir giftu sig í
Langholtskirkju og þar létu þau
skíra syni sína.
Áður en fermingardagurinn renn-
ur upp verða The Boys þó búnir aö
koma fram á tónleikum í Langholts-
kirkju til styrktar 'orgelkaupum.
Strákarnir segjast vonast til að kom-
ið verði nýtt orgel í kirkjuna þegar
þeir láta gifta sig þar. „Við ætlum
að láta gifta okkur hér ef við verðum
ekki komnir til Ástralíu eða Jap-
ans,“ segja þeir hlæjandi. Reyndar
hafa þeir mikinn hug á því að flytj-
ast til íslands þótt það verði ekki fyrr
en þeir eru orðnir fullorðnir.
Raddirnar að breytast
Fullorðinsárin eru aðeins farin að
gera vart við sig því að raddir strák-
anna eru að breytast. „Þetta getur
stundum verið erfitt á háu tónun-
um,“ segir Rúnar. Hann getur þess
að tónleikum þeirra bræðra fækki
líklega bráðum vegna þess að þeir
eru að fara í mútur. Síðastliðið sum-
ar voru þeir í tónleikaferðum víða
um Noreg og aðdáendabréfin
streyma enn til þeirra. í Noregi eru
The Boys geysilega vinsæhr meðal
stelpna á aldrinum 10 til 16 ára og
hafa verið myndaðir sérstakir aðdá-
endaklúbbar undir heitinu The Girls.
Það var fyrir þremur árum sem
Arnar og Rúnar slógu í gegn í Nor-
egi. Halldór faðir þeirra, sem margir
muna eftir úr Tempó og Þremur á
palli, hafði kennt þeim gamla slagara
og popp frá sjötta og sjöunda ára-
tugnum sem þeir tróðu upp með í
söngvakeppni úti í Noregi. I kjölfarið
voru strákarnir meöal tíu þátttak-
enda sem voru valdir ti! að syngja á
ýmsum tónleikum í Þelamörk í Nor-
egi. Norskir fjölmiðlar hafa síðan
fylgst grannt með þeim. Sjálfir segj-
ast þeir hafa gaman af þeim lögum
sem þeir flytja en í uppáhaldi hjá
þeim eru Michael Jackson, Sound
Garden og Nirvana.
Skólinn í fyrsta sæti
Tónleikahaldið hefur ekki orðið á
kostnað skólanámsins, að því er Am-
ar og Rúnar fullyrða. „Skólinn er í
fyrsta sæti,“ leggja þeir áherslu á.
Þeir gera ekki ráð fyrir að leggja söng
fyrir sig í framtíðinni. „Eg ætla
kannski að læra arkitektúr eða ein-
hvers konar hönnun. Ég gæti líka
hugsað mér að verða ljósmyndari eöa
leikari," segir Rúnar. „Ég er að hugsa
um að verða lögfræðingur eða leik-
ari,“ segir Arnar. En núna er það
ferming og vikufrí á íslandi sem er
efst í huga þeirra.
Fermingarkyrtlarnir mátaðir. The Boys, Arnar og Rúnar Halldórssynir,
hlakka til að fermast í Langholtskirkju á morgun en eru hræddir um að
gleyma einhverju af því sem þeir eiga að kunna utan að. DV-mynd GVA
Veiðimenn
Allt í rjúpuna
Laugavegi 178,
> símar 16770 - 814455
Rjúpnaskot í úrvali
34g-42g
Verð frá kr. 750
Baikal tvíhleypur og
einhleypur.
CBC einhleypur 3"
BRNO tvíhleypur
E Rizzini tvíhleypur
Bakpokar í rjúpnaveiði
Verð frá kr. 3.690
Legghlífar
Skotvettlingar, húfur hettur
og göngujakkar
Rjúpna-gönguskór
Verð frá kr. 7.900-12.400
ara
IÐNSKÓUNNI REYKJAVlK
1904 — 1994
90 ára afmælinu verður fagnað með sýningu helgaðri iðnmenntun
á þessari öld. s
Sýningin verður í Iðnskólahúsinu á Skólavörðuholti laugardaginn a
8. október kl. 12-17.
Allir sem áhuga hafa á iðnmenntun eru hvattir til að koma.