Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Qupperneq 4
4 , LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 Fréttir Meðferðarstofnunin að Sogni til að hjálpa ósakhæfum afbrotamönnum: Sjaldgæft að sjúklingar fremji af brot eftir meðferð „Ég held ekkl að það komi til með að stafa hætta af J>ví fólki sem er útskrifað af Sogni. Eg held að það séu meiri vandræði með þá sem sleppt er úr almenna fangelsiskerfinu. Rannsóknir sýna fram á að það er mjög sjaldan sem fólk sem sætt hefur meðferð á lokuðum meðferðarstofn- unum fremur glæp aftur,“ segir Grétar Sigurbergsson, yfirlæknir á meðferðarstofnuninni á Sogni. Grétar segir að starfsemi meðferð- arstofnunarinnar á Sogni sé fólgin í því að hjálpa þeim sem dæmdir hafa - segir Grétar Sigurbergsson, yfirlæknir á Sogni verið til vistunar þar aftur til heilsu. Staðurinn sé ekki geymslustofnun fyrir ósakhæfa afbrotamenn eins og fram hefur komið í fjölmiðlum að sé skoðun einstakra aðifa innan heil- brigðisráðuneytisins. Sjaldnast sé það þó svo að menn nái fullum bata en þörf sé að fólk sé einkennalaust eða einkennalítið til að það sé út- skriftarhæft. Hann segir að vel hafi tekist til með rekstur stofnunarinnar miðaö við hvernig málum var háttað fram til þess tíma. Nú hefur einn sjúklingur, eins og Grétar orðar það, verið útskrifaður einkennalítill og von er á að tveir til þrír sjúklingar til viðbótar verði út- skrifaðir á næstunni. Sá sem hefur verið útskrifaður var dæmdur fyrir líkamsárás með vopni en hinir fyrir önnur afhrot, þar á meðal morð. Það eru ekki einsdæmi að ósakhæfir ein- staklingar séu útskrifaðir af lokuð- um meðferðarstofnunum en fjórir ósakhæfir afbrotamenn hafa verið útskrifaðir af geðdeild sem er starf- rækt á Akureyri. Venjan er sú að menn séu dæmdir til vistunar í ótilgreindan tíma á stofnunum sem Sogni. Um leið og dómur gengur er þeim skipaður til- sjónarmaður sem sér um hvenær mál er tekið upp. Mat sérfræðinga, í tilviki sjúkhnga á Sogni mat yfir- læknis stofnunarinnar og félagsráð- gjafa viðkomandi er sent dómsmála- ráðuneyti sem svo aftur sendir það dómara. Hann úrskurðar um hæfi viðkomandi einstaklings til að takast á við lífið utan veggja stofnunarinn- ar. „Það er mjög einstaklingsbundið hvernig eftirliti með útskrifuðum einstaklingum er hagað. Það er bæði um heimsóknir félagsráðgjafa og læknisviðtöl að ræða. Síðan er þess gætt að sjúklingar fylgi fyrirmælum um lyijameðferð og síðast en ekki síst að fólki líði vel.“ Grétar segir að um náið eftirlit sé að ræða og ef eitthvað bendi til þess að heilsu fyrrum vistmanna hraki sé gripið til viðeigandi ráðstafana. Oft sé ákvæði í útskriftarúrskurði þess efnis að viðkomandi eigi að vera undir lækniseftirliti. Einn sjúklinga á Sogni tveggja manna bani: Dæmdur ósakhæf ur eftir fyrra morðið - en seinna sleppt út af stofnun fyrir geösjúka afbrotamenn Einn sjúklinga á Sogni hefur tví- vegis verið dæmdur ósakhæfur eft- ir manndráp. Áriö 1973 var sjúklingurinn, sem er kona, fundinn sekur um að hafa stungið eiginmann sinn með egg- vopni og sært hann til'ólífis. Konan var úrskurðuð ósakhæf og dæmd til vistunar á viðeigandi stofnun fyrir geðsjúka afbrota- menn. Slík stofnun var ekki til á íslandi svo konan var send til Sví- þjóðar. Þar var hún vistuð til ársins 1981. Þá komust læknar að þeirri niðurstööu að engin ástæða væri til að halda henni lengur á þeirri stofnun og hún var látin laus. Náinn aðstandandi konunnar sagði í viðtali við DV árið 1991 að læknar í Svíþjóð hefðu sagt konuna eiga við geðklofa að stríða. Læknar heima hafi víst ekki verið á einu máli um hvað væri að henni. Að- standendur hafi upplifað ástandið á þann hátt að menn hafi lokaö augunum fyrir sjúkleika konunn- ar. Konan hafi verið veik, verið látin sjá um sig sjálf og stundum verið án lyfjagjafar. Konan var dæmd til vistar á lok- aðri stofnun eftir að hún banaði manni öðru sinni, í Reykjavík árið 1991, og hefur verið vistuð á Sogni frá því stofnunin tók til starfa. Sleppt eftir tilefnislausa hnífstunguárás: Læknaður af stjórn- semi gamalla sálna - skalþósætaeftirlitisamkvæmtdómsúrskurði Maðurinn, sem sleppt hefur ver- ið úr haldi, var dæmdur fyrir nokkrum árum fyrir að stinga sak- lausan vegfaranda með hníf og valda honum hættulegum áverka. Dómsúrskurður í máli hans gekk 11. maí síðastliöinn. Þar kemur fram að við geðrannsókn, sem Rannsóknarlögreglan fór fram á aö yrði gerð í kjölfar hnífstunguárás- arinnar, að maðurinn hafi verið geðveikur, geðklofi og með „að- sóknarhugmyndir". Þær ein- kenndustu fyrst og fremst af mikl- um ranghugmyndum, ofskynjun- um, og rangtúlkunum. Ástand hans gæti leitt til þess að viðbrögð hans yrðu óútreiknanleg, honum fyndist hann vera í hættu staddur og vera ofsóttur. Sjálfur lýsti sjúkl- ingur ástandi sínu svo að „nokkrar sálir, misgamlar, stjómuðu gerð- um hans og væru þær ýmist góðar eða vondar." Fyrir dómi fullyrti geðlæknir mannsins að maðurinn væri „ekki lengur hættulegur umhverfi sínu sökum geðsjúkdóms og í raun mjög ólíklegur til að sýna af sér of- beldi.“ í raun myndi frekari vistun að Sogni tefja meiri bata. Meöal annars í ljósi þessa úrskurðaði dómari að maðurinn skyldi útskrif- aður £if Sogni en þó sæta eftirliti geðlæknis, félagsráðgjafa og hjúkr- unarfræðings. Einn sem hyggst sækja um upptöku máls síns: Var dæmdur fyrir hrottalegt morð Annar þeirra vistmanna á Sogni sem hyggst sækja um að mál sitt veröi tekið aftur fyrir hjá dómstól- um var dæmdur ósakhæfur í kjölf- ar eins hrottalegasta morðs á ís- landi á seinni tímum. Aöfaranótt 15. nóvember 1988 réðst hann að Kaiii Jóhanni Júl- íussyni meö eggvopni á heimili hans og réð honum bana. Lík Karls Jóhanns var illa leikið. Maðurinn var dæmdur ári seinna til að sæta öryggisgæslu ótíma- bundið á viðeigandi hæh en ekkert slíkt var að finna hér á landi á þess- um tíma. Hann hefur hins vegar verið vistaður á Sogni frá því með- ferðarheimihð tók til starfa. Sævar Gunnarsson, nýkjörinn forseti Sjómannasambandsins, og Óskar Vigfússon, fráfarandi forseti, takast i hendur eftir að ijóst var að Sævar sigraði í slagnum um forsetaembættið. DV-mynd ÞÖK Tillaga um sölu „sumarhallar for- ingjanna" felld - felld tiilaga um að kaupa íbúð fyrir almúgann Tillaga frá Sjómannafélagi Reykja- víkur um að sumarhöll foringjanna yrði seld var feUd með 32 atkvæðum gegn 14 á þingi Sjómannasambands Islands í gær. Þá var tiUaga um að kauþa íbúð fyrir hinn almenna félaga einnig felld. TiUagan gerði ráð fyrir að íbúðin yrði í Reykjavík og sjó- menn af landsbyggðinni, sem ættu í veikindum, gætu haft íbúðina tU af- nota. Gárungamir höfðu á oröi aö meöan foringjarnir fengju höU til að búa í þá ætti að hola hinum óbreyttu niður í blokk. Sævar Gunnarssson frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur var kosinn forseti Sjómannasambands íslands á þingi sambandsins í gær. Hann bar sigurorð af Sigurði Ólafs- syn frá ísafirði. Sævar fékk 40 at- kvæði en Sigurður 18. Konráð Al- freðsson, Akureyri, var kosinn vara- forseti. Þá var Elías Bjamason, Vest- mannaeyjum, kosinn ritari stjórnar og Jónas Garðarsson, Reykjavík, gjaldkeri. Nokkur átök vom í kringum stjómárkjör að ööm leyti þar sem hluti austfirsku fuUtrúanna vildi ekki una tiUögu uppstiUingamefnd- ar og gaf því kost á sér tU stjórnar- setu. Þeir féllu í kosningu og var tU- laga uppstiUingamefndar samþykkt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.