Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 Utlönd Stuttarfréttir x>v Ung móðir í Bandaríkjunum játar á sig morð á komungum bömum sínum: Myrti báða synina að ósk kærastans Rollsí sæluna hjá Benz Sterkar líkur eru á að Benz- verksmiðjurnar þýsku kaupi hlut í Rolls Roys. Mubarak i heimsókn Hosni Mu- barak Egypta- landsforseti fór í gær að kynna sér ástandiö á hörmungar- svæðunum í suðurhluta landsins. sjötta hundrað manna flóðum og eldum þa - bjó til sögu um að bræðrunum hefði verið rænt fyrir níu dögum Susan Smith hefur nú játað að hafa ráðið tveimur kornungum sonum sínum bana til aö þóknast væntanlegum eiginmanni. Hún bjó til sögu um aö drengjunum hefði verið rænt og í niu daga var þeirra leitað af lögreglu og sjálfboðaliðum. Símamynd Reuter Forsætisráðherra Dana vill taka vægt á syndum Færeyinga: Vitringarnir þrír fá engu að ráða „Það er ótrúlegt að Susan skyldi geta gert þetta. Hún sem var alltaf svo góð móðir," segir Sarah Singel- ton, amma tveggja drengja sem fund- ust eftir níu daga umfangsmikla leit í vatni nærri heimili þeirra. Móðir þeirra, Susan Smith, hefur viður- kennt að hafa ráðið þeim bana. Saga bræöranna, 3 ára og 14 mán- aða, hefur vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum. Allt þar til í gæi naut móðirin þó óskiptar samúðar Hún sagði að ókunnur maður hefði ruðst inn í bíl hennar þar sem hún beið eftir manni sínum fyrir utan verslun í bænum Union í Suður- Karólínu, kastað sér út úr bílnum og ekið á brott með synina. Upphófst nú mikil leit að drengjun- um og birtu fjölmiðlar vestra ótt og títt fréttir af hvemig leitinni miöaði. Lögreglan sagðist vera komin á spor ræningjans og móðirin flutti þeim kveðjur í sjónvarpi og bað þá að vera hughrausta. Þar kom þó á níunda degi að Susan gafst upp. Hún játaði fyrir lögregl- unni að hún hefði sjálf myrt syni sína og ekið bíl sínum með líkum þeirra í út í vatn. Áður var lögreglan farin að gruna móðurina um græsku. Susan segir að hún hafi losað sig við drengina að kröfu kærasta síns. Hún og maður hennar voru að skilja og vildi væntanlegur eiginmaður •ekki að hún hefði með sér börn úr fyrra hjónabandi. Fremur en að láta nýja kærastann róa réðst Susan í það voðaverk að myrða syni sína. Lögreglan lét Susan tvívegis taka lygapróf. Hún féll á þeim báðum. Eftir það fékk lögreglan heimild til húsrannsóknar. Ekkert fannst en nú voru kraftarSusan á þrotum og hún játaði á sig verknaðinn. „Ég elskaði syni mína eins mikið og nokkurt foreldri getur elskað börn sín,“ sagði Susan þegar hún var leidd frá heimili sínu. Reuter Flugræninginn varvopnlaus Norska lögreglan hefur upplýst aö Bosníumaðurinn, sem rændi SAS-þotu í innardandsflugi í fyrradag, hafi verið vopnlaus með öllu. Þá þykir sannað að hann hafi veriö einn að verki. Maðurinn hefur verið úrskurð- aöu 1 mánaðar gæsluvaröhald. Hann á yfir höfði sér alit að 10 árafangelsi. NTB Vöruverð erlendis: Hráolían hækkar Hráolía á markaði í London var í gærmorgun komin í 18 doUara hver tunna að meðaltali. Á einni viku hef- ur tunnan hækkað um rúman 1 doll- ar, eða um 6 prósent. Veröiö hefur smám saman verið að stíga síðustu vikumar en markaðssérfræðingar reikna ekki með meiri háttar hækk- unum á næstunni. Bensín á Rotterdam-markaði hefur sömuleiðis verið á uppleið undanfar- iö. 92 og 98 oktana bensín hefur náð svipuðu verði aftur og var á mark- aönum í haustbyijun. Hlutabréfaverð í helstu kauphöll- um heims hefur haldist svipað í þess- ari viku frá þeirri síðustu. Að lokum skal geta þess aö tölur um kaffi- og sykurverð hafa ekki borist blaðinu. Reuter „Við munum taka fullt tillit til þess sem færeysku landsstjórinni er fært að gera,“ sagði Poul Nyrup Rasmus- sen, forsætisráðherra Dana, á fundi í Ræreyjum í gær. Hann hefur verið þar á ferð síðustu daga til að und- irbúa viðræður landsstjórnarinnar og dönsku ríkisstjórnarinnar um stuöning við eyjaskeggja. Af orðum Pouls Nyrups má skilja að ekki verið farið aö ráöum sér- stakrar ráðgjafarnefndar sem nýver- iö skilaði af sér tillögum um lausn á efnahagsvanda Færeyinga. í nefnd- inni sátu þrír menn og voru þeir jafn- an kallaöir vitringamir þrír. Nefndin mælti með stórfelldum niðurskurði útgjalda landssjóðsins og hækkun skatta. ÁUt heimamanna var að þetta væri ógerlegt með öllu og nú staðfesti Poul Nyrup að Færey- ingar þyrftu ekki að kvíða „hrossa- lækningum" þótt vandi þeirra væri mikill. Ritzau taa- Slagurí Afganisfan Harðir bardagar geisuöu í gær í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Fögnuður í Sarajevc íbúar Sarajevo fógnuöu í gær sigrum herliðs músllmaí bardög- um við Serba síðustu daga. Karadízic í vígahug Karadizic, leiðtogi Bosníu- Serba var í vígahug í gær. Von var á yfirlýsingu um allsherjar- stríð. Engin vopntil Bosniu Öryggisráð SÞ hefur fellt tillögu Bandaríkjaraanna um að aflétta vopnasölubanni á Bosniu. Meira í herinn Suður-Kóreustjóm ætlar að auka framlög til hermála þrátt fyrir friðvænlegt ástand. Plágan af staðin Indlandsstjórn hefur lýst yfir að svartidauði ógni ekki lengur lífi manna í landinu. Nýr Kínaleiðtogi? Sögureru tun að Jing Zemin, forseti Kína, njóti stuðnings helstu valda- manna i land- inu og flokkn- umsemarftaki Deng Xiaoping sem mun mjög sjúkur. SamiðíHongKong Stjórnir Kína og Bretlands hafa samið um fjárframlög til lagning- ar flugvallar í Hong Kong. Hagnaður Japana af viðskipt- um viö útlönd minnkar nú ört. KosiðíSlóvakíu Afráðið er aö efha til þing- og forsetakosninga í Slóvakíu eftir afsögn forsetans í gær. Grohundskömmuð Gro Harlem, forsætisráðherra Noregs, liggur nú undir ámæli fyrir að beita grófum hræðsluá- róðri í ESB-baráttunni. Fleirifáatvinnu Dregið hefur úr atvinnuleysi í Danmörku í haust. Munar pró- senti frá september til október. Mickey Rourke í ham Letkaranum Mickey Rourke var i gær sparkaö út af Plaza-hótelinu í New York vegna slæmrar umgengni. Hann munhafa brotiö allt og bramlaö á fylliríi í svitu hótelsins. Demókratar sækja á Fylgi demókrata í Bandarikjun- um eykst nú lítillega en ósigur vofir yfir í þingkosningum á þriðjudag. Reuter, Ritzau og NTB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.