Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Side 10
10 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 Píanófrá 135.600 k Flyglarfrá450.800kr. Mikið úrval af píanóum og flyglum fyrirliggjandi á ótrúlegu verði. Teg.: GERTZ, BECHNER, J. BECKER, HELLAS, Ed. SEILER, PETROF og ASTOR. 3ja-5 ára ábyrgð Sérpöntum einnig. Stuttur afgreiðslufrestur. RAÐGREIÐSLUR HLJÓOF/ERASALA • STILLINGAR • VIÐGERÐIR Opið: Q Virka daga kl. 10-18 [ Blffl!I!71^7TCTn!n!B!H Ármúli 38 laugardaga kl. 11—14 j Sími 91-32845 Kafli úr bók Kristjáns Péturssonar tollara, Þögnin rofin: kynnt aö faðir barnsins, fyrrver- andi eiginmaður hennar, væri hugsanlega á leið úr landi með barnið. Sjaldan eða aldrei hef ég upplifað betri tiiflnningu. Ég settist niður og fann hvernig taugaspenn- an fjaraöi út, tárin runnu og félagi minn, sem var þarna inni, spurði hvort ég væri veikur. „Þetta eru víst gleðitár, því mér hefur aldrei liöið betur,“ sagði ég, tók upp sím- ann og hringdi til móður barnsins og skýrði henni frá því, aö maður og barn væru í minni vörslu hjá útlendingaeftirlitinu á Keflavíkur- flugvelli og bað hana að koma strax og ná í barniö. „Guð er þá til eftir allt saman," sagði hún. „Ég bað hann um hjálp.“ Beðinn að halda pressunni frá málinu Hún skýrði mér frá því að fyrr- verandi eiginmaður hennar, sem hún bjó með í Bandaríkjunum, heföi dvalist hér á landi í nokkra daga á Loftleiðahótelinu. Hann hefði heimsótt sig og barnið tviveg- is enda hefði hann við lögskilnað fengið úrskurðaðan umgengnisrétt við barnið. „í dag leyfði ég honum að fara með barnið niður að fjörn, en bað hann að koma með það aftur milli kl. 4 og 5. Þegar klukkan var orðin rúmlega fimm var ég orðin ótta- slegin um að hann myndi ræna barninu og hringdi til ykkar," sagði hún. „Þú hefðir nú gjarnan mátt gera það, áður en véhn fór. Ég hafði engan lagalegan rétt til að stöðva manninn, því hér var aðeins um óljósa grunsemd að ræða sem kom til vegna einstakrar árvekni af- greiðslustúlku flugfélagsins. Þegar þú kemur að sækja barniö skal ég kynna þig fyrir henni. Hún á mikl- ar þakkir skildar," sagði ég. Ég lét færa manninn til lögreglu- stöðvarinnar á flugvellinum. Seinna um kvöldið átti ég viðræður við lögreglustjóra um málið. „Þér er tamt að tefla djarft. Nátt- úrlega ætti ég að reka þig fyrir til- tækið. Þú haföir enga lagalega heimild til að stöðva manninn en hagstæð málalok bjarga þér fyrir horn að þessu sinni. Sjáðu til þess að maðurinn verði sendur úr landi okkur að kostnaðarlausu," sagði hann stuttur í spuna. „Viltu ekki fá skýrslu um atburð- inn?“ spurði ég. „Nei, ég vil enga skýrslu um þessa lögleysu og helst ekkert um þetta vita. Það er best að endirinn sé eins og upphafið í þínum hönd- um en í guðanna bænum reyndu að halda pressunni frá þessu máli,“ sagði hann og lagöi á. Umhyggja stjóra fyrir barni og móður var ekki merkjanleg af þessu samtali, hvað þá þakklætis- orð til mín eða afgreiðslustúlkunn- ar. Ef málalok hefðu orðiö önnur, hefði ég verið rekinn umsvifalaust, á því er ekki nokkur vafi, og orðið að greiða Bandaríkjamanninum háar skaðabætur. í viðræðum mínum við móður barnsins lagði hún ríka áherslu á að barnsfóður hennar yröi ekki refsað fyrir verknaðinn því þaö myndi aöeins kalla á harðari aö- gerðir af hans -hendi síðar. Hún fékkst því ekki til að kæra. Henni fannst brottvísun úr landi réttmæt málsmeðferö. Mér fannst hins veg- ar slík málalok vera alveg út í hött og ekki vera í neinu samræmi við viðurlög fyrir shkan verknað en velvilji „stjóra" og konunnar máttu sín meira en refsigleði deildarstjór- ans. Ath.: Millifyrirsagnir eru blaðsins ég rekinn fyrir að fara offari í starfi eða fengi a.m.k. áminningu fyrir tiltækið. Svitinn perlaöi á enni mér Ég taldi óráðlegt að leita til yfir- manns míns, lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli, eins og á stóð. Hann væri ekki líklegur að styðja í bók sinni Þögnin rofin segir Kristján tollari frá nokkrum saka- málum, sem ekki hefur veriö fjall- aö um opinberlega áður, og ýmsu sem miður fór í dómskerfinu. Hér á eftir fer kafli úr bókinni sem Skjaldborg gefur út. Barnsrán Sennilega eru barnsrán sá mála- flokkur, sem vekur einna mesta athygh fjölmiðla og almennings og sterk viðbrögð lögreglunnar. Við íslendingar höfum að mestu slopp- ið við afbrot af þessum toga, en þó eru nokkur dæmi þess að erlendir menn, sem eignast hafa börn með íslenskum uonum, hafi reynt að ræna þeim eftir hjónabandsslit og haft í frammi hvers konar hótanir og jafnvel ofbeldi. Ég mun hér skýra frá tveimur slíkum málum í stuttu máli. í báðum tilvikum áttu Bandaríkjamenn hlut að máli. Fyrra málið bar að með þeim hætti, aö stúlka í flugafgreiðslu, sem var að innrita farþega í síðdegisflug til New York, veitti athygh bandarísk- um manni, sem hélt á ungu bami. Þegar kom að því að afgreiða hann, framvisaði hann farseðlum fyrir sig og barnið og sýndi jafnframt vegabréf. Nafn barnsins var skráð í vegabréf hans, en það sem vakti sérstaka athygli afgreiðslustúl- kunnar var að hann hafði engan farangur meðferðis. Hún hringdi til mín á skrifstof- una í flugstööinni og vakti athygli mína á þessu. Hún lét þess jafn- framt getið, að þetta gæti allt veriö eðlilegt, en vildi samt að ég kann- aði málið. Hún skyldi benda mér á manninn, sem væri kominn í gegn- um vegabréfaskoðun og staddur í biðsal flugstöðvarinnar. Hún lét þess einnig getið, að um sjö mínút- ur væru til brottfarar. Við mæltum okkur mót við brott- fararhlið nr. 1. Við gengum síðan vítt og breitt um sahnn, en sáum hvorki manninn né barnið. Ég bað þá þann starfsmann flugfélagsins, sem sá um brottfarartilkynningu flugsins, að sjá til þess að enginn farþegi færi í gegnum brottfarar- hhð að flugstæði. Jafnframt sendi ég einn af starfsmönnum vega- bréfaskoðunar út í flugvéhna til að ganga úr skugga um, hvort maður- inn hefði komist þangað. ráðstafanir, héldum við áfram leit- inni í biðsalnum. Ég fór m.a. á karlasalemið. Sú skoðun leiddi í ljós að eitt salemið var læst. í sama mund var tilkynnt um brottfór vél- arinnar til-New York. Ég tók mér stöðu fyrir framan salernið, en af- greiðslustúlkan við brottfararhlið- ið. Eins og kunnugt er, em brottfar- ir véla tilkynntar þrisvar sinnum, og þegar kom að síðasta kalhnu og flestir farþegar vom komnir um borð í vélina, kom maður með barn á handleggnum út um salernis- dyrnar. Mér þótti strax sýnt, að hér væri um umræddan farþega að ræða og stöðvaði manninn og tilkynnti hon- um jafnframt hver staða mín væri. Afgreiðslustúlkan, sem hafði auga með mér, kinkaði kohi til mín til staöfestingar því, að ég væri með rétta manninn. Það var umtalað okkar á milli, að hún hefði ekki frekari afskipti af málinu og léti ekki samstarfsfólk sitt né aðra vita af grunsemdum okkar. Ég bað umræddan farþega að sýna mér skilríki sín. Hann afhenti mér farmiða, brottfararkort og vegabréf, sem staðfesti að hann var Bandaríkjamaður. Nafn bamsins var skráð í vegabréf hans og stað- festi það að það væri bandarískur ríkisborgari. Mér var mikill vandi á höndum og hafði enga lagalega heimild til aö stöðva brottfór hans né barnsins. Ég spurði manninn, hvenær hann og barnið hefðu komið til landsins og hvaða ástæða væri fyr- ir komu hans hingað til lands. Hann svaraði því til, að hann væri ferðamaður í einkaerindum og spurði, hvort ég hefði eitthvað við þaö að athuga. Ég kom mér undan að svara því, en spurði því næst, hvort hann hefði komið hingað áður og hvort hann þekkti ein- hverja íslendinga. Hann svaraði því engu en viðbrögö hans virtust óömgg og hikandi. Allir farþegar voru nú komnir um borð og stöðv- arstjóri flugfélagsins, sem þarna var viðstaddur, benti mér kurteis- lega á að véhn væri tilbúin til brottfarar af flugvélastæði. Ég bað hann aö láta flugvélina bíða augna- bhk. Ég hefði ákveðnar gmnsemdir um að ekki væri allt meö felldu um ferðir þessa manns. Ég átti ekki margra kosta völ. Ef ég setti tíma- bundið farbann á manninn án rök- studdra grunsemda um ólögmætan verknað hér á landi, yrði ég sjálfur að greiða honum aht það tjón, sem hann yrði fyrir og hugsanlega yrði Tók mér stöðu fyrir framan salemið Eftir að hafa gert framangreindar aðgerð mína út á ágiskun eina sam- an. Hann myndi krefjast þess að ég færi í einu og öllu eftir bókstaf laganna og maðurinn færi því með barnið úr landi. Færi ég ekki að fyrirmælum lögreglustjóra, yrði ég einnig kærður fyrir agabrot. Áhættan var mikil, óvissan um hugsanlegt barnsrán var eins og martröð og svitinn perlaöi á enni mér. Ég reyndi að einbeita mér. Hagsmunir barnsins og móður þess hiutu aö vega þyngra en mínir eig- m hagsmunir. Flugvéhn beið eftir ákvörðunartöku minni. Stöðvar- sfjórinn var eðhlega orðimróþolin- móður og ég varð að gera upp hug minn strax. Ég gekk að símanum viö af- greiðsluborðið og þóttist hringja og tala við einhvern. Síðan gekk ég til Bandaríkjamannsins og spurði hvasst, hvort hann hefði rænt barninu. Honum brá mikið og nú perluðu svitadropar á enni hans. Taugastríð okkar beggja var mikið, en hann svaraði mér engu. Við- brögð hans fullvissuðu mig um að ekki væri allt með fehdu. Ég sagði stöðvarstjóranum að láta vélina fara, farþeginn yrði eftir á mína ábyrgð og í minni umsjá. Hann hristi bara höfuðið og sagði: „Þú ert engum hkur.“ Ég fór með farþegann og barnið inn á varðstofu vegabréfaskoðunar og bað starfsmann þar að gæta hans vel, meðan ég kannaði far- þegalista og bókun yfir komufar- þega frá Bandaríkjunum síðustu daga. Ég var rétt í þann mund að hefja þá skoðun, þegar mér var fll- kynnt að móðir bamsins hefði hringt th vegabréfaskoðunar og th- Kristján Pétursson tollari rýfur þögnina. DV-mynd Brynjar Gauti Barnsræningi stöðvaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.