Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Page 31
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 39 Nemendumir á Laugum deyja ekki ráðalausir: Jóhanna S. Sigþórsdóttir, DV, Laugum; „Þegar viö fórum af staö með þetta kafEihús var það fyrst og fremst liður í því að efla félagslífið hér um helg- ar. Frá því að skólinn var stofnaður fyrir tæpum 70 árum hefur félagslífið alltaf verið blómlegt. Þessi rekstur er okkar þáttur í því að viöhalda því,“ segja þau Dögg Matthíasdóttir og Elmar Viðarsson, sem bæði eru nemendur við Framhaldsskólann á Laugum. Það má segja að það sé orðin eins konar tíska meðal menntaskólanema í þéttbýlinu að setjast inn á kaffihús og ræða máhn yfir bolla af rjúkandi „espresso". Það þykir eiginlega eng- inn maður með mönnum nema hann eða hún láti sjá sig reglulega á slíkum stöðum, enda er það þar sem fólk framtíðarinnar hittist og andi visk- unnar svífur yfir vötnunum. Tekið fagnandi Vitaskuld hafa nemendur úti á landsbyggöinni ekki haft sömu möguleika á að stunda þennan þátt félagslífsins og jafnaldrar þeirra í Reykjavík. Því var það að Lauga- nemendur tóku til sinna ráða í haust og settu á laggirnar eigið kaffihús, Kaffi Laugar, sem þeir reka að öllu leyti sjálfir. Þessari nýjung hefur verið tekið fagnandi og aðsóknin ver- ið eftir bví. „Kaffihúsin eru í tísku núna og þeim hefur farið sífjölgandi, bæði í Reykjavík og úti á landsbyggðinni," segir Dögg. „Við hugsuðum sem svo að auðvitað væri hægt að reka kaffi- hús hér. Svo við slógum bara til.“ Allttil staðar „Við erum með mjög góða að- stöðu," bætir Elmar við. „Hér er stórt, fullkomið eldhús, með öllum tækjum og tólum, sem hefur verið notað við kennslu á ferðamálabraut- inni en ekkert umfram það. Það var mál til komið að nota þaö meira. Hér er því allt til staðar og við þurfum ekki að gera neitt annaö en að kaupa hráefnið og koma því í ætilegt form!“ Það er hópur nemenda á þriðja og fiórða ári á íþróttabraut og ferða- málabraut framhaldsskólans sem sér um kaffihúsið. Tveir sjö manna hóp- ar skiptast á þá daga sem opið er, þrír þjónar og fiórir í eldhúsi. „Við mætum svona fiórum tímum áður en opnað er og byrjum að baka, dekka borðin og gera allt klárt,“ seg- ir Elmar. „Þjónarnir sjá um salinn en hinir ákveða hvað er á matseðlin- um og sjá um aö útbúa það.“ Gómsætar veitingar Það er ýmislegt á boöstólum í Kaffi Laugum, svo sem heitar vöfflur með ís eða rjóma, ýmsar gómsætar kökur og brauð. Krakkarnir segjast hafa verið að fikra sig áfram og auka úr- valið. Nú sé til dæmis farið að bjóða upp á ís hússins sem sé mjög vin- sæll. Einnig sé fyrirhugað að bjóða upp á fleiri tegundir kaffidrykkja og jafnvel pitsur. „Viö höfum fengið góða hjálp við þetta því Erla Sigurðardóttir, kenn- arinn okkar á ferðamálabraut, og matreiðslumaðurinn hérna, hann Kristján Guðmundsson, hafa aðstoð- að okkur á allan máta." Uppábúnirþjónar Þegar komið er inn á Kaffi Laugar tekur á móti gestunum lágvær tón- list, uppábúnir þjónar og auðvitað rjúkandi kaffiilmur. Húsnæðiö er notalegt og þaö er auðvelt að láta fara vel um sig við kertaljós á dúk- uðu borði. Það hefur einkum komiö í hlut strákanna að bera fram og því Það er handagangur í öskjunni hjá þjónaliðinu þegar aðsóknin er mikil, Dögg og Helena Ósk taka girnilega eplaköku úr ofninum. Elmar mátti ekki vera að því að líta upp enda hætt við að ísinn bráðni á heitum vöfflunum ef menn fara að taka sér góðan tíma til að brosa framan i myndavélina. Nemendur kunna vel að meta þá nýjung að geta sest inn og keypt sér veitingar á vægu verði. DV-myndir JSS liggur beinast við að spyija þau Dögg og Elmar hvort gamla skiptingin ráði ríkjum í kaffihúsinu, strákamir í salnum og stelpumar í eldhúsinu. Þau þvertaka fyrir það og segja að strákamir taki ekkert síður þátt í eldhússtörfunum en stelpurnar. Til- viljun hafi eiginlega ráðið því að strákarnir hafi séð um þjónustuna, ....og svo era þeir auðvitað rosa- lega myndarlegir í svörtu og hvítu," bætir Dögg við. Þau era sammála um að kaffihúsið hafi gengið miklu betur en búist hafi verið við í fyrstu. Kaffihús fyrir alla „Við fóram út í þetta dæmi með það fyrir augum að bæta félagslífið og hafa fyrir kostnaði. En þetta hefur farið fram úr björtustu vonum. Það er aðeins eitt sem við söknum og þaö er að fólkið úr sveitinni hér skuli ekki mæta oftar en raun ber vitni. Viö höfum sent dreifibréf á alla bæi í nágrenninu og það hafa fáeinir komið og fengið sér kaffi, - en þeir eru alltof fáir. Fólkið sem býr hér á Laugum hefur aftur á móti verið duglegra við aö líta inn til okkar. Þetta kaffihús er ekkert bara fyrir okkur í skólanum. Það gegnir ná- kvæmlega sama hlutverki og versl- unin, pósthúsið og bankinn hér á staðnum. Þetta er kaffihús fyrir alla.“ Aðspurð hvort einhver afgangur verði af rekstrinum segja þau Dögg og Elmar að það verði aldrei mikið því verðinu á veitingunum sé mjög stillt í hóf. „En ef við fáum einhveijar krónur út úr þessu þá mun hópurinn kannski skella sér í einhveija menn- ingarreisu, fara til dæmis út að borða,“ segir Dögg. „Það yrðu okkar laun fyrir vinnuna við kaffihúsið því við vinnum þetta allt í sjálfboða- vinnu.“ Hæfileikaríkt fólk Á Kaffi Laugum er boðið upp á lif- andi tónlist sem nemendur sjá að sjálfsögðu um sjálfir. ' „Við eigum fullt af hæfileikaríku fólki hérna og hyggjumst virkja sem flesta í þetta með okkur. Við erum með fullt af hugmyndum fyrir fram- tíðina og það mætti hugsa sér alls konar uppákomur. Nú stendur til að endurskipuleggja feröamálabrautina allverulega og komið hefur upp sú hugmynd að rekstur kaffihússins verði einn liður í verklega náminu. En þetta er einungis hugmynd enn sem komið er. í byijun desember koma hingað Halldór Skaftason, veit- ingastjóri í Perlunni, og Gísli Thor- oddsen matreiðslumeistari. Við eig- um að undirbúa veislu undir þeirra leiðsögn. Þetta er einn liður i kennsl- unni, að nota þá góðu aðstöðu sem er hér og fá hingaö fagfólk, eða með öðrum orðum að láta fjallið koma til Múhameðs. Þessir fagmenn dusta okkur til og kenna okkur margt nýtt, sem síðan kemur meðal annars að góðum notum við rekstur kaffihúss- ins.“ Hausttilboð ^ á verkfærum Fræsari, 450 w, land og fræsitennurfylgja, kr. 10.850 stgr. Rafhlöðu- borvél í tösku, 12 V, skrúfbitar og borar fylgja, kr. 11.200 stgr. Járnrennibekkur, 40 cm milli odda, kr 79.800 stgr. Trérennibekkur m/kóperingu, 4 hraðar, 1 m milli odda, kr. 44.300 stgr. Rafmagnsborvélar, 500-900 W, verð frá kr. 3.700 stgr. Slípirokkar, verð frá 4.400 Smergill,200-800 w, verð frá 3.250 stgr. Hjóisög, 1300W, kr. 8.920 stgr. Súluborvélar m/skrúfstykki, verð frákr. 9.950 stgr. Trérennibekkur, 4 hraða, 1 m milli odda, kr. 11.900 stgr. 9//ó/ Faxafen 9, s. 887332 Opið mánud.-föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.