Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Side 56
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá I síma
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 63 27 00
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokaö
Mánudaga: 6-20
Þriöjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 63 27 77
KL. 6-8 LAUGARDAGS- OG MANUDAGSMORGNA
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994.
Bellþyrlan:
Kostar
145 þúsund
á tímann
Bellþyrlan, sem Egilsstaðabæ
stendur til boða að leigja frá Gron-
landsfly í vetur, mun kosta 145 þús-
und krónur á tímann fyrir þá aðila
sem munu njóta þjónustu hennar.
Þetta fékk DV staðfest hjá umboðsað-
ila Bell.
Aðspurður hvort þyrlan yröi með
lækni um borð, sigmann, spilmann
og annað sem Landhelgisgæslan hef-
ur óskað svara við sagði umboðsaðil-
inn að ræða þyrfti við bæjaryfirvöld
eystra um fyrirkomulag læknamála
- væntanlega myndi sjúkrahúsið á
Egilsstöðum sjá um slíkt í samráði
við bæinn. Varðandi læknisbúnað,
t.d. súrefnistæki og annað, sagði
umboðsaðilinn að slíkt þyrfti að
ræða við Gronlandsfly þegar og ef
að samningi kæmi. Um áhöfnina
'sagði hann að öðru leyti að hún ætti
að vera vön björgunarstörfum.
Breskir sjónvarpsmenn:
Trúiá
og dverga
- segir Jeni Barnett
„Við erum komin hingað til að
fjaila um álfa og gnóma. Við tökum
innskotið upp í Hafnarflrði með að-
stoð leiðsögumanna okkar. Ég trúi á
álfa og gnóma þó að ég hafi aldrei séð
þá. Já, ég trúi líka á risa. Eru þeir
til hérna?“ sagði Jeni Barnett, sjón-
varpskonan þekkta við Good Morn-
ing TV á sjónvarpsrásinni BBC 1 í
Bretlandi, skömmu áður en hún tók
viðtal viö Erlu Stefánsdóttur sjáanda
og Kolbrúnu Þóru Oddsdóttur lands-
lagsarkitekt fyrir framan álfakirkju
sem er í hrauninu við Mánastíg í
Hafnarfirði í gær.
Fjögurra manna sjónvarpshð
framleiðanda, hljóðmanns og kvik-
myndatökumanns breska morgun-
þáttarins Good Morning with Ann
and Nick auk sjónvarpskonunnar
Jeni Barnett hóf í gær tökur í Hafn-
arfirði vegna innskots um álfa sem
sýnt verður á sjónvarpsrásinni BBC
1 á næstu vikum. Sjónvarpsmennirn-
ir hófu tökur á Víðistaðatúni og við
Arnarhraun í gær og ætla að fara
vítt og breitt um álfabyggðirnar í
Hafnarfirði í dag. Þá kynna þau sér
álfabrúður og dverga sem hafa verið
framleiddar.
Morgunþátturinn Good Morning
with Ann and Nick er sýndur daglega
milli klukkan 10 og 12 á rás 1 hjá BBC
og geta allir íbúar á Bretlandseyjum
séð hann. Sjónvarpsfólkið fer alftur
utan á morgun.
LOKI
Kannski gætum við farið að
flytja út álfa í stórum stíl? Það
er alla vega nóg til af þeim!
Fjármálaráðuneytið tók Geir goða GK á uppboði fyrir tveimur árum:
Seldur fyrri
eiganda aftur
hálfvirdi
„Ríkið fékk allt sitt til baka með
því aö sefja okkur bátinn. Þeir voru
mjög harðir í samningum við okk-
ur. Það eina sem er óvenjulegt við
þetta er það hve langan tíma þetta
tók. Það liðu 2 ár frá því ríkið tók
skipið á nauðungaruppboði þar til
við keyptum það aftur," segir Ólaf-
ur B. Ólafsson, framkvæmdastjórí
Miöness hf. í Sandgerði.
Miönes hf. missti bát sinn, Geir
goða, á nauðungaruppboði til ríkis-
sjóðs í október 1992.1 framhaldinu
var gerður leigusamningur viö fyr-
irtækið þar sem kveðið var á um
að leiguverð gengi upp i kaupverð
ef fyrirtækið keypti bátinn síðar.
Nú, tveimur árum síðar, kaupir
Miðnes bátinn aftur á verði sem er
bersýnilega langt undir markaðs-
verði eða 98 milljónir. Bátnum fylg-
ir kvóti upp á 660 þorskígildi sem
gæti verið á markaðsverði upp á
rúmlega 120 milljónir, miðað við
aö hvert þorskígildiskíló seljist á
185 krónur. Geir goði er 160 tonna
stálskip og miðað við að verð á slík-
um skipum sé helmingur af trygg-
ingamatsverði má reikna með að
hann gæti kostað í kringum 30
milljónir. Verð á skipi og kvóta
ætti því að vera 150 milljónir ef um
ftjálsa sölu væri að ræða í stað 95
milljóna sem inniheldur reyndar
leiguverðið lika þannig að raun-
verulegt söluverð er 81 milljón eða
rúmlega hálfvirði,
- Hvað lagði fjármálaráðuneytið
til grundvallar?
„Rikið fór fram á að fá allar sínar
kröfur og við höfðum ekki aðra
stöðu núna en að standa viö gerðan
leigusamning," segir Magnús Pét-
ursson, ráðuneytisstjóri ífjármála-
ráðuneytinu.
Það sem þykir sérstakt við þetta
mál er að þarna skapar ríkið for-
dæmi fyrir því að að sá sem missir
eign á uppboði til ríkisins fái eign-
ina umsvifalaust leigða til baka á
góðum kjörum og síðan í fyllingu
tímaiLS keypta á verði sem ein-
göngu miðast við þá kröfu sem varð
til þess að eignin fór á uppboð.
Stálu fötum á
áHöfnogvoru
sett í rútuna
Par á unglingsaldri var sent til
Reykjavíkur með rútu í gær frá Höfn
í Hornaflrði af lögreglunni á staön-
um eftir að upp hafði komist um
stuld þess á fótum og ýmsu fleiru af
gistiheimilinu Ásgarði.
Par þetta telst til hinna svokölluðu
vandræðaunglinga. Það hafði fyrir
nokkrum dögum komið til Hafnar frá
Breiðdalsvík og fengið vinnu hjá
Borgey en var þar nýlega sagt upp
störfum. Þetta eru þau sömu og voru
að verki á Breiðdalsvík á dögunum
þegar brotist var inn í heilsugæslu-
stöðina og stolið þaðan lyfjum.
Beðið eftir
geimverum
Töluverður fjöldi fólks kom saman
við rætur Snæfellsjökuls, norðan-
megin, í gærkvöld til að koma auga
á geimverur. Skúli Alexandersson,
fyrrum þingmaður, skipulagði sam-
komuna likt og í fyrra.
„Fólk er þegar mætt á staðinn.
Nokkrir hafa haft samband við mig
og séð óeðlilega mikinn ljósagang í
norðaustri. Þetta er ekki spurning
um að taka í hendur á geimverum
heldur að finna fyrir nærveru
þeirra,“ sagði Skúli við DV.
—
-
„ | ||
p
f
f
f
Þ
f
f
i
i
i
i
i
é
Breska sjónvarpskonan Jeni Barnett
í hrauninu við Mánastíg í Hafnartirði.
BBC1 á næstu vikum.
tók í gær viðtai við Erlu Stefánsdóttur sjáanda og Kolbrúnu Þóru Oddsdóttur landslagsarkitekt fyrir framan áifakirkju
Viðtalið verður hlut' af innskoti um álfa i breska morgunþáttinn Good Morning with Ann and Nick sem sýnt verður á
DV-mynd GVA
Veðrið á sunnudag
og mánudag:
slydduél
Á sunnudag og mánudag verð-
ur hæg, breytileg átt og bjart veð-
ur víða norðan- og austanlands
en suðaustan kaldi, skýjað með
köflum og skúrir eða slydduél
öðru hverju með suðvestur-
ströndinni. Hiti frá 4 stigum suð-
vestanlands en vægt frost í inn-
sveitum norðanlands.
Veðrið í dag er á bls. 61
MEISTARAFELAG
RAFEINDAVIRKJÁ
S-91-616744
Viðurkenndur
RAFEINDAVIRKI