Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Qupperneq 30
38
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994
/
A mánudögum verður DV komið í hendur áskrifenda á suðvestur-
horninu um klukkan 7.00 að morgni og aðrir áskrifendur fá
blaðið í hendur með fyrstu ferðum frá Reykjavík út á land.
Helgarblað DV berst einnig til áskrifenda á sama tíma á laugardögum.
BREYTTUR AFGREIÐSLUTÍMI:
Blaðaafgreiðsla og áskrift:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
Helgarvakt ritstjórnar:
Sunnudaga 16-23
Smáauglýsingar:
Laugardaga: 9-14
Sunnudaga: 16-22
Mánudaga - föstudaga: 9-22
Ath.: Smáauglýsing í helgar-
blað verður að berast fyrir
klukkan 17 á föstudag.
63*2 7»00
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU:
63 27 77
Svidsljós
Það eru fleiri hjón en Karl og Diana sem taka hliðarspor.
Konurnar fyrri
til að
taka hliðarspor
Áður voru það karlar sem voru
fyrri til að taka hliðarspor. Nú eru
konumar í fararbroddi. Samkvæmt
rannsókn breska félagsfræðingsins
Annette Lawson, sem starfar í Kali-
fomíu, heldur meðalkonan í fyrsta
sinn fram hjá manni sínum eftir 4,5
ára hjónaband. Karlinn tekur hins
vegar ekki hhöarspor fyrr en eftir 5
ára hjónaband. Við rannsókn sína
tók Lawson viðtöl við 600 bresk hjón.
En þó svo að konurnar séu fyrri til
þá eru enn miklu fleiri karlar ótrúir.
Yfir helmingur allra giftra karla
heldur fram hjá, en um þriðjungur
giftra kvenna. Þetta er einnig niður-
staða bandarískrar könnunar.
í umfjöllun danska blaðsins Jyl-
landsposten um þessar kannanir er
það haft eftir dönskum sálfræðing-
um að framhjáhald leiði í flestum til-
fellum til þess að hjónabandið eyði-
leggist. „Það sem hjónabandið bygg-
ist á - traustið - er ekki lengur til
staðar og í fæstum tilfellum er hægt
aö bjarga hjónabandinu. Framhjá-
hald þarf ekki að enda með skilnaði
en hjónabandið verður í mörgum til-
fellum slæmt,“ segir Grethe Nissen.
Finn Byrgesen, sem eingöngu
starfar sem hjónabandsráðgjafi, seg-
ir að framhjáhald maka geti grafið
svo djúp sár að það geti leitt til skiln-
aðar mörgum árum eftir aö það átti
sér stað. „Það getur verið fimm eöa
tíu árum seinna og oft gera hjónin
sér ekki grein fyrir því að það var
eftir hliðarsporið sem sambandið fór
að versna."
Byrgesen segir að það séu í raun
ekld til nein „lítil“ og „saklaus" hlið-
arspor. Það sé einhver ástæða fyrir
þeim öllum, að það sé eitthvað aö
heima. Aðalástæðan sé að hjónin tali
ekki út hvort við annað um það sem
þeim þykir vera að.
Hjónabandsráðgjafinn Kirsten Pet-
ersen er á þeirri skoðun að hliðar-
spor þurfi ekki að eyðileggja hjóna-
band. Aðalatriðið sé að það sé tekið
alvarlega og að viðkomandi setjist
niður og geri upp við sig hvers vegna
það átti sér stað. Þegar niðurstaða
sé fengin eigi að tala við maka sinn
um það sem manni þykir vera að í
sambandinu. Ef þetta er ekki gert er
hætta á að hliðarsporunum fjölgi, að
mati Petersen.
Sumir viðurkenna hliðarsporið um
leið og þeir koma inn um dymar
heima hjá sér en aðrir segja aldrei
frá því. Samkvæmt niðurstöðum
bresku rannsóknarinnar vita um 60
prósent maka af því að verið er að
fara á bak við þá. Karlar hafa meiri
tilhneigingu en konur til að segja frá
framhjáhaldi sínu.
Sálfræðingar og hjónabandsráð-
gjafar segja þörf fyrir meiri spennu
oft vera ástæðu framhjáhalds, neist-
anum í sambandinu sé ekki haldið
nægilega lifandi.
Fyrir 20 árum sýndu rannsóknir
að karlmenn fóru ekki að vera ótrúir
konum sínum fyrr en eftir 7 ára
hjónaband og konur ekki fyrr en eft-
ir 8 ár. Fyrir 30 árum héldu karlarn-
ir fyrst fram hjá eftir 11 ár en kon-
umar að meðaltali eftir 14,5 ár.
Sérfræðingar segja skýringuna á
því að þetta gerist fyrr nú vera þá
að konur hafi streymt út á vinnu-
markaðinn. Rannsóknimar sýna
nefnilega líka aö þeir sem halda fram
hjá gera það oft með einhverjum sem
þeir hafa samband við vegna vinnu
sinnar.