Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Page 49
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994 57 Símatorg DV: Hagnýtar upplýsingar allan sólarhringinn segir JóhannaÁ.H. Jóhannsdóttir, deildarstjóri Símatorgs Jóhanna Á.H. Jóhannsdóttir, deildarstjóri Símatorgs DV sem tekið verður i notkun á mánudag. „í Símatorgi DV eru hagnýtar upp- lýsingar fyrir notendur. Töluvert af þessum upplýsingum hefur birst í blaðinu áöur. Kappkostað er að hafa upplýsingar nýjar og þarflegar fyrir neytendur," segir Jóhanna Á.H. Jó- hannsdóttir, deildarstjóri Símatorgs sem formlega verður tekiö í notkun á mánudag. Jóhanna veitir forstöðu Símatorgi DV sem er upplýsingakerfi á fyrir- fram ákveönum og uppteknum efnis- flokkum. Talað er inn á tölvu eða talvél og mjög auðvelt og fljótlegt er að uppfæra efnið. í simatorginu fær hringjandinn upplýsingarnar strax og alltaf nýjar. í byrjun verður fjallað um íþróttir, það er úrslit og fréttir af þeim. Einn- ig verða neytendaupplýsingar og innan þess flokks eru vikutilboð stórmarkaðanna og uppskriftir. í dagbók verður læknavaktin, apótek- in og gengið og í afþreyingu er um að ræða dagskrá Sjónvarpsins, Stöðvar 2, rásar 1, myndbandalista vikunnar, myndbandagagnrýni, ís- lenska hstann og tónlistargagnrýni. Inni í flokki skemmtana verður það sem er að gerast á kránum, dansstöð- unum, leikhúsunum, leikhúsgagn- rýni, bíó og kvikmyndagagnrýni. Einnig verður hægt að fá upplýs- ingar um vinningsnúmer Lottós, Víkingalottós og Getrauna. Einfalt í notkun „Það er mikilvægt að vera ahtaf með nýjustu upplýsingarnar í Síma- torginu og það er mjög einfalt í notk- un. Notendur hringja í 99-1700 og borga fyrir það 39,90 á mínútuna. Þá er vahnn flokkur 3000 en síðan er hægt að velja á mhli sex flokka: íþrótta, neytenda, dagbókar, afþrey- ingar, skemmtana og vinningsnúm- era. Innan þessara yfirflokka velur notandinn þann undirflokk sem hann vill hlusta á. Hægt er að hraða sér í gegnum upplýsingaflæöið með því að ýta á stjörnu. íþróttafrétta- menn DV vinna á kvöldin og um helgar þegar mest er að gera á þeim vettvangi. Þeir munu lesa inn úrsht strax og þau eru orðin kunn,“ segir Jóhanna. Símatorgi DV er ætlað að veita les- endum betri þjónustu hkt og önnur dagblöð gera í Bandaríkjunum og Evrópu. Blaðið fær nýjan vettvang fyrir efni og það lifir lengur. Fyrir- myndin er bandarísk en Jóhanna hefur aðlagað kerfið aðstæðum á DV. „Þótt fyrirmyndin sé amerísk þá höfum við mótað þetta algjörlega að okkar þörfum og því efni sem er í blaðinu og við getum tengt við kerf- ið. Þetta er annað form á þeim upp- lýsingum sem DV er þekkt fyrir að veita og afgreiðslan er hraðari," seg- ir Jóhanna. 88 klukkustundir talaðs máls Til að byrja með voru settar inn þær upplýsingar sem auðveldast var að nálgast og halda utan um. Síðar verður fleiri bætt við. Tölvan getur geymt 88 klukkustundir af töluðu máli þannig að plássið er ekki vanda- mál. Mikilvægast er að halda alltaf inni nýjum upplýsingum og henda út þeim gömlu. „Það verður kannski svolítið erfitt að halda utan um þetta til að byrja með en síðan á þetta að rúlla. Þegar frumsýning er í leikhúsi og leikhús- gagnrýni hefur birst í blaðinu þá veröur hún einnig komin inn á kerf- ið. Einnig dettur út umsögn um sýn- ingar sem eru hættar. Vinna mín er fólgin í því að safna saman efni og tala það jafnóöum inn á tölvuna," segir Jóhanna. Rödd fólksins Oft er fljótlegra að hringja eitt sím- tal og leita eftir upplýsingum heldur en að leita að þeim í blaðinu. Ef les- andinn ætlar í leikhús eða á bíó getur hann hlustað á gagnrýni á myndinni eða leikhúsverkinu áður. Sjálfvirk svarþjónustu fyrir smáuglýsingarnar er hluti af þessu nýja símakerfi. Svarþjónustan hefur verið starfandi í rúman mánuð og gengið vel að sögn Jóhönnu. Auk fyrrnefndra upplýsinga hefur verið í gangi Rödd fólksins én þar tekur fólk afstöðu til einstakra áhtamála eða íþróttaspurningar og annars slíks. „Það er merkilegt hvað fólk er til- búið til þess að tjá sig í þessu formi um einhver álitamál. Við byrjuðum með spurningu um það hvort Guð- mundur Árni ætti að segja af sér. 680 hringdu og svöruðu, þar af voru 78% sem sögðu að hann ætti að segja áf sér. Ef málið er mjög heitt og skoðan- ir mjög skiptar þá eru hkur á því að fleiri hringi og tjái sig á þennan hátt,“ segir Jóhanna. Möguleiki er einnig aö halda í gangi leikjum á fjórða símanúmerinu. Þeir sem eru inni í stafræna kerfinu og hafa tónvalssíma geta nýtt sér kerfið. Allir landsmenn borga það sama fyr- ir símtahð. AEmæli Til hamingju með afmælið 12. nóvember 85 ára Indiana Sturludóttir, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. 80 ára Valdimar Vigfússon, Mararbraut 11, Húsavík. Guðrún Tryggvadóttir, Kambsvegi 16, Reykjavík. Sigurður Ingólfsson, Norðurtúni 8, Keflavík. Andrés Kristjánsson, Skólastig 15, Stykkishólmi. Guðjóna Kristín Hauksdóttir, Innri-Múla, Barðastrandarhreppi. Rosmary Vilhjáimsdóttir, Lyngási 3, Holta- og Lands veit. Jónina S. Björnsdóttir, ísólfsstöðum, Tjörneshreppi. 70 ára_______________________ Stefanía Ágústsdóttir, Ásum, Gnúpverjahreppi. Eysteinn Guðmundsson, Flókagötu 66, Reykjavík. 60ára Sveinbjörn Jónsson, Kleppsvegi 142, Reykjavík. Kjartan Vignir Dagbjartsson, Ljósheimum 2, Reykjavík. Anna Margrét Ragnarsdóttir, Aðalgötu 5, Stykkishólmi. Konráð Aðalsteinsson, Hrísalundi 18j, Akureyri. 50 ára __________________ Ólafur Róbert Ólafsson, Hringbraut 76, Keflavík. 40ára Sigurður Örn Hektorsson, Kaplaskjólsvegi 65, Reykjavík. Heigi Stefnir Kjœmested, Útgarði 6, Egilsstööum. Magna Fríður Birnir, Borgarhhð 6c, Akureyri. Brynja Kristjánsdóttir, Lyngbraut 13, Garði. Sigrún Kristjánsdóttir, Miðvangi 6, Hafnarfirði. Magnús Rögnvaldur Birgisson, Eyrarholti 2, Hafnarfirði. Guðlaugur H, Kristmundsson, Lækjarbotnum, Holta- og Land- sveit. Rúnar Hannesson, Njálsgötu 20, Reykjavík. Viðar Hannes Sveinsson, Þihuvöllum35, Neskaupstað. Gunnar Flóvenz Gunnar Flóvenz, formaður Síldar- útvegsnefndar, Kópavogsbraut 88, Kópavogi, verður sjötugur á morg- un. Starfsferill Gunnar er fæddur á Siglufirði og ólst þar upp. Hann brautskráðist frá Verslunarskóla íslands 1946 og stundaði nám í hagfræði við Ham- borgarháskóla 1949-50 og aftur 1959 í sérstöku boði háskólans. Hann kynntisér sjávarútvegs- og fiskiðn- aðarmál í boði þýskra stjómvalda, m.a. hjá Institut fúr Fischverarbeit- ung. Gunnar starfaði sem fulltrúi hjá Síldarútvegsnefnd 1946A9 og var ráðinn forstööumaður skrifstofu Síldarútvegsnefndar í Reykjavík frá stofnun skrifstofunnar haustið 1950-59. Hann var ráðiim fram- kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar frá 1959-90 en frá þeim tíma hefur Gunnar verið stjómarformaður Síldarútvegsnefndar. Gunnar hefur í áratugi átt sæti í fjölda samninganefnda um viðskipti við erlend ríki á vegum íslenskra stjómvalda og starfað í flölda nefnda varðandi sjávarútvegsmál og utanríkisviðskipti. Hann var í stjóm Rannsóknastofnunar fiskiðn- aðarins 1977-90 og átti þátt í stofnun Félags síldarsaltenda á Suður- og Vesturlandi 1954 og hefur í áratugi starfað fyrir þaö félag svo og Félag síldarsaltenda á Norður- og Austur- landi sem stofnað var tveim árum síðar. Gunnar hefur ritað fjölda greina, bækhnga og álitsgerða um sjávarútvegs- og utanríkisviðskipta- mál í innlend og erlend blöð og tíma- rit. Fjölskylda Gunnar kvæntist 7.10.1950 Sig- rúnu Ólafsdóttur, f. 17.8.1927, hús- móður. Hún er dóttir hjónanna Bjöms Ólafs Gíslasonar, f. 4.9.1888, framkvæmdastjóra útgerðarfélags- ins Kára í Viðey, og Jakobínu Dav- íðsdóttur, f. 1882, húsmóöur. Börns Gunnars og Sigrúnar: Ólaf- ur, f. 22.5.1951, dr. í jarðeðhsfræði, kvæntur Sigurrós Jónasdóttur meinatækni, þau eru búsett í Reykjavík; Brynhildur, f. 12.3.1954, lögfræðingur, gift Daníel Friðriks- syni, skipatæknifræðingi, þau eru búsett í Kópavogi; Margret, f. 14.8. 1959, viðskiptafræðingur og löggilt- ur endurskoðandi, gift Tryggva Stefánssyni verslunarmanni, þau em búsett í Kópavogi; Gunnar, f. 19.3.1963, eðhsfræðingur og Gunnar Flóvenz. menntaskólakennari, kvæntur dr. Beru Pálsdóttur eðhsfræðingi, þau eru búsett í Kaupmannahöfn. Foreldrar Gunnars vom Steinþór Hahgrímsson, f. 15.10.1896, og kona hans, Jakobína Ingibjörg Flóvenz, f. 3.9.1903, húsmóðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.