Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Page 56
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokaö
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 63 27 77
KL. 6-8 LAUGARDAGS- 06 MÁNUDAGSMORGNA
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994.
Guðmundur Ámi Stefánsson félagsmálaráðherra sagði af sér í gær:
Dæmið ekki svo að þér
verðið ekki sjálf ir dæmdir
„Með vísan til þessa óska ég því
eftir lausn frá störfum sem félags-
málaráðherra í ráðuneyti Davíðs
Oddssonar. Guömundur Árni Stef-
ánsson félagsmálaráðherra."
Þannig lýkur bréfi því sem Guð-
mundur Árni skrifaði forsætisráð-
herra í gær og las upp á vægt sagt
dramatískum fréttamannafundi. í
bréfinu rakti ráðherra aðdraganda
og ástæður þess að hann biðst
lausnar.
Eftir að hafa svarað gagnrýni
sem fram kemur í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar og lesið upp bréfið
til forsætisráðherra neitaði Guð-
mundur Árni að svara spurningum
fréttamanna. Hann sagðist ekki
ætla að gera það fyrr en fréttamenn
hefðu lesið skýrslu Ríkisendur-
skoðunar og borið hana saman við
skýrslu sína frá í sumar.
Þegar Guðmundur Ámi hafði les-
ið upp bréfið til forsætisráðherra
kom í ljós að ekkert fararsnið er á
honum úr stjórnmálum:
„Eins og fram kemur í þessu bréfi
hef ég með tilvísan til þess er að
framan greinir óskað eftir lausn frá
embætti. Ég hygg að með því hafl
ég brotið enn eitt blaðið í stjórn-
/ Pallvogir
/ Pökkunarvélar
ROKRAS HF.
Bíldshöfða 18 ‘S 671020
voru lokaorð ráðherrans á dramatískum fréttamannafundi
„Ég svara engum spurningum fyrr en fréttamenn hafa kynnt sér skýrslu Ríkisendurskoðunar og borið hana
sarr.an við skýrslu mína frá þvi í haust,“ sagði Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra þegar frétta-
mannafundi hans lauk i gær. Hann stóð við það og gekk út.
málasögunni með því að án sakar-
gifta hafi ég tekiö sjálfstæða
ákvörðun án þrýstings um það að
láta meiri hagsmuni víkja fyrir
minni. Ég horfi til míns flokks sem
á hefur verið hamrað sýknt og heil-
agt. Ég vil freista þess að hann fái
hlutlægari og sanngjarnari um-
fjöllun. Ég mun gera það sem í
mínu valdi stendur sem þingmaöur
og varaformaður til að tryggja að
svo verði.
Þessa ákvörðun tek ég einn og
óstuddur og án nokkurs þrýstings
eftir aö hafa ráðfært mig við fjöl-
marga stuðningsmenn mína, þar
sem eru skiptar skoðanir urn hana.
Ákvörðunin er min. Hana tek ég
sáttur í hjarta og umfram allt sátt-
ur viö samvisku mína og þau störf
verkefni. En um þau mál sem að
mér hafa lotið og verið fariö mikið
með síðustu mánuði vil ég segja við
þá sem haldið hafa þeim á lofti,
stjórnmálamenn, einstaklinga eða
flölmiðla: Hví sérð þú flísina í auga
bróður þíns en ekki bjálkann í þínu
eigin? Og aö lokum þetta: Dæmið
ekki svo að þér verið ekki sjálfir
dæmdir," sagði Guðmundur Árni.
DV-mynd GVA
sem ég hef innt af hendi. Ég mun
nú snúa mér að hefðbundnum
þingstörfum og freista þess að
tryggja minn sess í Reykjaneskjör-
dæmi, öflugasta vígi Alþýðuflokks-
ins. Ég mun gegna mínum skyldum
sem varaformaður flokksins og
berjast í því að ná honum upp úr
þeirri fylgislægð sem hann hefur
átt við að stríða. Það er verðugt
Rannveig Guðmundsdóttir.
Rannveig
Þingflokkur Alþýðuflokksins
ákvað á fundi sínum í gær aö
Rannveig Guðmundsdóttir tæki
við embætti félagsmálaráðherra
af Guðmundi Árna Stefánssyni.
Þingflokkurinn kom saman
klukkan fjögur í gær eftir að af-
sögn Guðmundar Árna lá fyrir.
Boðað hefur verið til ríkisráðs-
fundar í dag klukkan eitt þar sem
gengið verður frá þessum breyt-
ingum á ráðherraliði krata.
- sjá nánar á bls. 2,4 og 54
LOKI
Eins dauði er annars brauð!
söriö á sunnudag og mánudag:
myjast sunnanlands
Á sunnudag verður norðaustanstrekkingur á Vestíjörðum en annars fremur hæg austan- og suðaustanátt. Slydda eða snjókoma norðvestan til en
dálítil súld eða rigning í öörum landshlutum. Hiti 0-6 stig, hlýjast um landið sunnanvert. Á mánudag verður fremur hæg austlæg átt, skýjað með
köflum vestanlands, snjó- eða slydduél um landið norðanvert en skúrir suðaustanlands. Hiti -3 til + 5 stig, kaldast norðanlands en hlýjast suðaustan til.
Veðrið í dag er á bls. 61.