Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994
3
Fréttir
Fjármál menningarfulltrúans 1 London:
Vantar átta milljónir
til að endar nái saman
- einkaaðilar munu ekki hafa staðið við loforð um stuðning
Samkvæmt heimildum DV hafði
Jakob Frímann Magnússon, menn-
ingarfulltrúi í London, fengið vilyrði
nokkurra einkaaðila um fjárhagsleg-
an stuðning viö lýöveldishátíöina í
London en ekki fengið þegar til átti
að taka. Það er meginástæðan fyrir
þeim rúmu 8 milljónum sem saman-
tekt DV sýnir að vanti til að endar
nái saman við 18 milljóna króna út-
gjöld embættis menningarfulltrúans
á þessu ári.
Fjárveiting frá ríkinu var upp á 9
milljónir, þar af 2 milljónir í styrk
vegna markaösstarfs á EES-svæðinu.
Menningarfulltrúinn, Jakob Frí-
mann Magnússon, hefur látið hafa
eftir sér að styrkir frá atvinnulífinu
upp á 6 milljónir króna komi á móti
umframútgjöldunum sem einkum
hafa verið vegna lýðveldishátíðar í
London. Alls gerir þaö 15 milljónir.
Enn vantar klárlega 3 milljónir og
skiptingin á þessum 6 milljónum
liggur ekki öll fyrir. DV hefur aðeins
tekist að fá staðfesta af þeirri upphæð
900 þúsund króna styrki frá nokkr-
um aðilum. (Sjá nánar meðfylgjandi
graf.) Þvf bætist við þessar 3 milijón-
ir óútskýrður munur upp á 5,1 millj-
ón sem gerir alls rúmar 8 milljónir.
Jakob vildi ekki ræða þessi mál við
Sigbjöm Gunnarsson, formaður Qárlaganefndar:
Hugsanlegt að leggja
tannlæknadeildina niður
- tel það koma til greina, segir menntamálaráðherra
„Eg tel koma til greina að hætta
að kenna tannlækningar við Háskóla
íslands og það hefur raunar komið
til tals innan Háskólans," sagði Ólaf-
ur G. Einarsson menntamálaráð-
herra eftir að Ingibjörg Pálmadóttir
hafði spurt hann um málið.
Nokkur umræða átti sér stað í gær
á Alþingi um að til greina kæmi að
leggja tannlæknadeild Háskóla ís-
lands niður og semja við háskóla í
einhverju nágrannalandi okkar um
að taka við þeim sem vilja læra tann-
lækningar. Menntamálaráðherra,
Ólafur G. Einarsson, tók undir þetta
sem fyrr segir.
Það var Sigbjörn Gunnarsson,
þingmaður Alþýðuflokksins og for-
maður fjárlaganefndar, sem fyrstur
nefndi þetta við 2. umræðu fjárlaga-
frumvarpsins í gær. Hann taldi að
her a landi væri fé illa varið til rann-
sókna og forgangsröðun í kennslu
HÍ væri ekki rétt, verið að veita fé
til rannsókna sem búið væri að vinna
einhvers staðar úti í heimi. Síðan
spurði hann hvort skynsamlegt væri
að kenna allar þær greinar sem nú
eru kenndar við HÍ. Nefndi hanp þar
tannlækningar sérstaklega vegna
þess hve dýr tannlæknadeild HÍ
væri.
Ýmsir gripu þetta á lofti og ræddu
málið og lögðust stjórnarandstæð-
ingar gegn hugmyndinni.
Nú munu 49 nemendur vera við
nám í tannlæknadeild HÍ. Árlega eru
6 nemendur útskrifaðir og nemur
fjárveiting til tannlæknadeildarinn-
ar á milli .46 og 47 milljónum króna
á ári.
Meirihluti fjárlaganefndar:
Niðurgreiðsla húshit-
unar skilar sér ekki
Meirihluti fjárlaganefndar Alþing-
is leitar nú leiöa til þess að það fjár-
magn, sem fer til niðurgreiðslu á
húshitunarkostnaði út á landi, skili
sér til neytenda. Fullyrt er að RARIK
og Landsvirkjun hirði hana mestalla
með hærra orkuverði. Niðurgreiðsla
til húshitunar hefur hækkað um 81
prósent á síðustu árum. Gunnlaugur
Stefánsson, alþingismaður og full-
trúi í fjárlaganefnd, fullyrðir að of
lítið hafi skilaö sér til neytenda.
Samkvæmt fjárlögum á að setja 150
milljónir króna á næsta ári til að
greiða niður húshitun. Gunnlaugur
sagðist vera tilbúinn til að lækka þá
upphæð ef hægt væri að tryggja að
hún færi öll til neytenda.
Gunnlaugur segir að RARIK hafi
hirt mjög stóran hluta af því fé sem
notað hefur verið til niðurgreiöslu
með því að hækka orkuverð og
Landsvirkjun með því að neita að
gefa afslátt á raforku til húshitunar.
Samkvæmt heimildum DV mun
meirihluti fjárlaganefndar æúa að fá
iðnaðarráðherra í lið með sér til að
koma þessum málum á hreint.
Bruggverksmiðjan:
Einn viðurkennir eign
Karlmaöur hefur viðurkennt aö
eiga og starfrækja bruggverksmiðj-
una sem lögreglan lokaöi fyrir helgi
á Fiskislóð. Maðurinn var nýlega
dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands
fyrir aö brugga og selja ólöglegt
áfengi. Ekki tókst að færa sönnur á
að þrír aðrir menn, sem grunaöir
voru um að eiga verksmiðjuna í fé-
lagi við manninn, væru eigendur
hennar.
Leigubílstjórinn sem handtekinn
var á staðnum viðurkenndi að hafa
ekiö hundruð lítra til sölumanna og
einnig aö hafa aflað fanga fyrir eig-
endur verksmiðjunnar með því að
sækja sykur, ger og umbúðir fyrir
framleiðsluna.
Menningarfulltrúinn í London
— tekjur upp í útgjöld ársins 1994 —
Markaðsstyrkur
v/EES
Staðfestir styrkir
RvíKurborg 0,4
Isl. sjávarafuröir 0,25
SH í Grimsby 0,15
ísberg í Hull 0,1
Fjárveitingar
frá ríkinu
Heildarútgjöld: 18 milljónír
DV
DV þegar náðist í hann í gær. Hann
sagðist ætla að gefa Ríkisendurskoð-
un sín svör og síðan yrði að bíða eft-
ir skýrslu hennar um fjárhag og bók-
hald embættisins.
Jakob hefur sagt að Flugleiðir hafl
styrkt lýðveldishátíðina en sá styrk-
ur er í formi afsláttar á fargjöldum
og ekki með í þessum 6 milljónum
frá atvinnulífinu.
Fram kom í DV í gær að Reykjavík-
urborg hefur styrkt lýðveldishátíö-
ina um 400 þúsund krónur á þessu
ári, auk 600 þúsund króna styrks á
síðásta ári vegna heimsóknar
breskra blaðamanna til Reykjavíkur.
Hjá íslenskum sjávarafurðum feng-
ust þær upplýsingar að 250 þúsund
króna styrkur hefði verið veittur á
þessu ári til „kynningarstarfs" hjá
menningarfulltrúanum. Þá hefur
fyrirtækið ákveðið að veita aðrar 250
þúsundir í sama skyni á næsta ári.
Dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í Grimsby styrkti
hátíðina um 150 þúsund krónur og
styrkur upp á um 100 þúsund krónur
kom frá Isberg í Hull sem er í eigu
Péturs Bjömssonar.
Aðilar eins og Eimskip, Samskip
og Útflutningsráð, sem víða hafa
styrkt landkynningar á erlendri
grund, hafa ekki styrkt uppákomur
Jakobs í London á árinu, samkvæmt
upplýsingum frá þessum aðilum.
Hins vegar mun Samskip hafa styrkt
einhverja listviðburði í London árin
1992 og 1993.
.. .með geisladrifi
og hátölurum!
Við bjóðum einnig fjölbreytt úrval CD-ROM-
geisladiska allt frá barnaleikjum til orðabóka
og allt þar á milli. Svo geturðu einnig spilað
venjulega hljómgeisladiska með drifinu.
Sýning 12. til 17. desember,
Apple-umboðið hf.
Skipholti 21, simi: (91) 62 48 00