Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Blaðsíða 12
12 Spumingin MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994 Hvað borðar þú á aðfangadag? Kristín Guðmundsdóttir: Hamborg- arhrygg. Jón Guðmundsson: Hamborgar- hrygg. Halla Magnúsdóttir: Hamborgar- hrygg. Sigurveig Halldórsdóttir: Rjúpur og meðlæti. Hafsteinn Bjarnason: Rjúpur. Rósar Snorrason: Eitthvað gott. Lesendur Óraunhæfar væntingar í kjaramálum: Verður allt stopp til vors? Bjarni Ágústsson skrifar: Það er óumdeilanlegt aö margir þættir í efnahagslífi okkar hafa tekið stökk upp á við. Verði samið upp á þau býti að fá laun verulega hækk- uð, t.d. á borð við það sem ríkisvald- ið samdi um nýlega við hjúkrunar- fræðinga, meinatækna og nokkra aðra ríkisstarfsmenn, leiðir það til þess eins að verðbólgan fer aftur af stað, bankar hækka vextina og geng- isfelling fylgir í kjölfariö. Þetta myndi svo aftur leiöa til verri afkomu allra fyrirtækja, jafnt í versl- un sem í útflutningi, og atvinnuleysi ykist enn og er þó ekki á það bæt- andi. - Upplýst hefur verið að hækk- uðu laun almennt, t.d. um 7%, þýddi það um 10 milljarða útgjaldaauka fyrir atvinnulíf í landinu og um 4 milljarða útgjaldaauka fyrir ríkið. Hækkuðu laun meira, t.d. um 10% (sem oft er auðveld viðmiðunartala), yrði útgjaldaukinn um 20 milljarðar. Hvort tveggja er óraunhæft. Mánaðarverkfall sjúkrahða er eld- fimt og áhrifaríkt. Með einhveijum hætti verður að láta á það reyna hvort sjúkraliðar fást til að draga sig út úr baráttu sinni að svo komnu og fylgja öðrum launþegum í allsherjar- samningum. Auðvitað mætti ógilda samninga við hjúkrunarfræðinga og aðra sem nýlega hafa fengiö kjara- bætur umfram annað launafólk og láta skeika að sköpuðu um afleiðing- amar. Ástandiö verður aldrei verra en það er nú: Þaö eru allir samning- ar lausir og semja þarf að nýju. Og þar sem nú eru uppi óraunhæf- ar væntingar í kjaramálum og samn- ingalota getur dregist á langinn vegna komandi kosninga kynni svo að fara að allt yrði stopp til vors. Svo gæti því farið að einfaldasta ráðið til að flýta fyrir og koma atvinnulífinu á fullt væri að láta kjósa sem allra fyrst og vænta þess að næstu ríkis- stjórn, annarri eða endurnýjaðri, tækist að gera nýja þjóðarsátt öllum landsmönnum til bjargar. ESSO á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði: Framkvæmdir á næsta leiti Þórólfur Árnason, framkvstj. mark- aðssviðs ESSO, skrifar: i ítilefnilesendabréfsíDVsl. mánu- 1 dag, þar sem kvartað var undan hol- um í malbiki á bensínstöð ESSO við Reykjavíkurveg í Hafnarfiröi, vill Olíufélagið hf. koma eftirfarandi á framfæri. Það er rétt að staöið hefur til um nokkurt skeið aö endumýja aðstöðu Olíufélagsins hf. við Reykjavíkurveg 'í Háfnarfirði. Á það við um húsið : sjálft sem hýsir auk bensínafgreiðsl- unnar smurstöð og verslun, einnig jplanið, aðstöðu við bensíndælur og tanka. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir að þessum framkvæmdum yrði lokið nú í ár, en það hefur tékið lengri tíma en Olíufélagið hf. gerði ráð fyrir að fá öll tilskilin leyfi til framkvæmd- anna þar sem skipulag lóðarinnar er einnig háð skipulagi aöliggjandi lóða. - Nú virðist loks séð fyrir endann á bið þessari og munu því fram- kvæmdir hefjast fljótlega og ljúka fyrri hluta árs 1995. Olíufélagiö hf. hefur reynt að halda við núverandi plani með bráða- birgðaaðgerðum undanfariö vegna þessara fyrirhuguðu framkvæmda og er beðist velvirðingar á því ef það hefur ekki verið nógu vel gert. - Það er von Olíufélagsins hf. að ofan- greind skýring gefi rétta mynd af stöðu þessara mála í dag. Við þökkum sérstaklega hlý orð G.S. í garð starfsmanna ESSO og er ánægjulegt að lesa um að hann hafi notið góðrar þjónustu á Reykjavíkur- veginum. Við þökkum innlegg G.S. og vonum að við megum áfram njóta viðskipta hans á ESSO-stöðvunum. Steingrímur farinn og allt opið Ingibjörg Magnúsdóttir hringdi: Eg fagna mjög úrshtum í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjanes- kjördæmi. Að kona skuh hafa orðiö efst á lista flokksins í einu kjördæmi er mikill póhtískur sigur, ekki síst vegna þess að undirróður hafði verið talsverður af hálfu sumra forystu- manna flokksins til þess að sá sem í prófkjörinu fékk annað sætið mætti ná því fyrsta. - En það hlaut að fara sem fór og raunar munaði ekki nema ,fáum atkvæðum á konu sem hlaut þriðja sætið og karh sem hafnaði í öðru sætinu. Hringið í síma 63 27 00 milli kl, 14 og 16 eða skrifið Siv Friðleifsdóttir í efsta sæti lista Framsóknarflokksins í Reykjanes- kjördæmi. Það var sigurvissa í röddinni hjá Siv Friðleifsdóttur, sigurvegara próf- kjörsins, þegar hún sagði einbeitt í sjónvarpsviðtah daginn fyrir kjör- dag: Steingrímur er farinn og nú er aht opið. - Það hafði nefnilega ekki farið framhjá neinum að fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins hafði lagt aht kapp á að Hjálmar Árnason næði fyrsta sætinu. Nú naut ekki fyrrverandi foringja við og flokksmönnum fannst í raun aht vera opið og þeir því geta gert eins og þeir vildu. Ég reiknaði með að konur yrðu í tveimur efstu sætunum, þær Siv Friöleifsdóttir og Drífa Sigfúsdóttii^ og rétt eins að Drífa yrði efst. En þaö er satt sem Drífa sagði, flokksráð Framsóknarflokksins á Suðurnesj- um hafði reynt hvað það gat til að úthoka hana og þaö tókst en naum- lega þó. - Nú er próíkjöri lokið og Framsóknarflokkurinn á Suðurnesj- um á, þrátt fyrir undangengnar vær- ingar, von á góðum byr í komandi alþingiskosningum. - Það er fagnað- arefni að sjá konu í efsta sæti á hsta til Alþingis. Þaö hefur ekki átt upp á pallborðið í gömlu flokkunum. Kirkjanogkyn- skiptlngar Guðm. Guðlaugsson hringdi: í nýlegum sjónvarpsþætti var rætt við íslenskan karlmann sem gerðist kynskiptingur og býr nú i Svíþjóð sem kona. Fróðlegt við- tal, svo langt sem það náði. Venjulegt fólk á þó erfitt að hugsa sér aö ríki eöa skattgreiðendur eigi þama að koma th aðstoðar. Ég get þvi vel tekiö undir við- brögð biskups í þessum sama þætti, undrun og skelfingu. Ég get ekki séð aö þaö komi kirkju, riki eða ýfirleitt nokkrum öðrum við þótt örfáir einstaklingar telji sig réttbornari til annars kynferðis en þvi sem þeim var með í heim- inn stólað. Skemmtilegur trúbador G.R. skrifar: Miðborg Reykjavikur var sann- arlega lUandi sl. laugardag. Alls staðar var mannlíf, verslanir opnar og uppákomur víöa, úti og inni. Ég settist t.d. inn á Café Reykjavík þar sem fólk kom og fór og yljaði sér á heitum veigum og öðru góðgæti. Þar var hka lif- andi tónlist sem fór vel saman við þægUegt umhverfið innan dyra. Óskar Einarsson lék þar á gitar og söng hina fjölbreyttustu söngva. Það er óvanalegt að heyra svo fjölbreytta tónhst og vel flutta á kaffihúsi hér - og það af einum manni. Jólaglöggríkis- fyrirtækja Gestur Jónsson skrifar: í öllum þeim samdrætti og nið- urskurði sem ráðamenn boða er ekki úr vegi að fjölmiðlamenn kanni hve mörg ríkisfyrirtæki bjóði starfsmönnum sínum jóla- glögg fyrir þessi jól. Sum opinber stórfyrirtæki ’eru sögð halda boð fyrir starfsmenn sina og draga hvergi af. Sé þetta sannleikanum samkvæmt er hér mikiö verk að vinna við að uppræta slíkt bruðl. - Skattgreiðendur geta ekki og eiga ekki að sætta sig við að svona nokkuð sé stundað af hálfu hins opinbera yfirleitt. Jafnvægiápen- ingamarkaði Kristján Snæfells Kjartansson skrifar: Égtel aö sú einkavæðingarhug- mynd nokkurra stjómmála- manna að sefja Búnaðárbanka íslands sé mjög vanhugsuð skammtímalausn til að fá pen- inga í ríkissjóð. Ég tel að íslenska ríkið eigi að eiga tvo sterka ríkis- banka. Það er ekkert sem stendur í vegi fyrir því að flármagnseig- endur stofni fleiri einkabanka. Ég tel að hag íslenska ríkisins sé best borgið með að eiga þessa banka. Þannig mun jafnvægi haldast hvað best á peninga- markaði. Með þeim hætti er þrýstihópum peningamanna veitt visst aðhald. Sakna útvarps- þáttanna Jónína hringdi: Ég tek undír bréf Bryndísar í DV þar sem hún hrósar útvarps- stöðinni Sígilt FM sem útvarpar mikiö sígildri tónlist og léttri klassík o.fl. - Ég sakna sérstak- lega þáttanna á útvarpsstöövun- um, t.d. á Aðalstöðinni, þar sem Jóna Rúna Kvaran ræddi viö gesti sína á sinn rólega og yfirveg- aða hátt og einnig þátta Katrínar á sömu stöö. Þetta voru þættir sem féhu aö viðhorfi. venjulegs fólks og voru langt frá þeirri dep- urö sem einkennir þjóðfélagið í dag. - Upp með jákvæðnina á út- varpsstöðvunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.