Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Blaðsíða 28
56 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994 Fyrir þá sem fylgjast með Auðbrekku 14, sími 64 21 íteíriíMííar: ak vieníípiirríi Marcello Mastroianni og Sophia Loren á bekk í einu atriða nýjustu myndar Roberts Altmans um tisKuneimtnn. Robert Altman með nýja mynd: Tískuheimurinn tekinn á beinið taHt Schwarzk^f Hárlakk - Froður - Gel Gœði á góðu verði - Fæst í næstu Jllétur i f | versiun lætursson hl Mikill fjöldi prúöbúins fólks kom í Ziegfield-leikhúsið í New York á mánudagskvöld til að vera viðstatt frumsýninguna á nýjustu mynd bandaríska kvikmyndaleikstjórans Roberts Altmans. Myndin heitir Ready to Wear, eða Pret-a-Porter eins og það er upp á frönskuna. AJtman tekur tískuheiminn á bein- ið í þessari nýjustu mynd sinni, alveg eins og hann tók Hollywood á beinið hér um árið í Leikmanninum. Úrvalslið leikara fer meö hlutverk í tískumyndinni, þar á meðal ítölsku risarnir tveir, þau Marcello Mastro- ianm og Sophia Loren. Allnokkuð er síðan þau sáust saman á hvíta Ijald- inu en ef að líkum lætur fara þau á kostum. Af öðrum sem fram koma í myndinni má nefna sveitasöngvar- ann vinsæla Lyle Lovett frá Texas, eiginmann Juliu Roberts, en hann gerði stormandi lukku í Leikmann- inum þar sem hann lék rannsóknar- lögreglumann og félaga Whoopi Goldberg. Kvennabósinn Richard Gere: Ný stúlka á hverjum degi Kvennabósinn Richard Gere sést í fylgd með nýrri stúlku á hveijum degi núna. Eftir að hann og fyrirsæt- an Cindy Crawford slitu sambandinu fyrir nokkrum vikum var leikarinn frægi í nokkra daga með kornunga, breska fyrirsætu upp á arminn en sú heitir Laura Bailey og þykir sér- lega glæsileg. Hann skildi hana hins vegar eftir í London og hélt til Holly- wood þar sem hann skemmtir sér nú með stúlku sem heitir Anne Mad- elaine. Þau hafa sést saman á nætur- lífinu og auk þess fór Gere með stúlk- una út að versla og keypti víst ekki lítið. Anna þessi var áður með leikar- anum Kiefer Sutherland. Búðarmaður einn, sem afgreiddi skötHhjúin, segir að parið hafi faðm- ast og kysst allan tímann meðan þau voru í búðinni og hann hafi keypt heilu tonnin af fótum á hana. Richard Gere er ekki við eina fjölina felldur í kvennamálum um þessar mundir. Tónllstarmenn í Los Angeles héldu fjörugt teiti fyrir helgina þegar tónlistarverölaunin sem kennd eru viö tímarit- ið Blllboard voru afhent en tímarit þetta er eins konar biblía skemmtanaiönaðarins. Fjöldi alþýöulistamanna kom þar við sögu, þar á meðal þessi vígalegi náungi. Hann heitir R. Kelly og var útnefndur ryþma- og blúslistamaður árslns 1994 á samkomunni. Hann sýndi að sjálfsögðu mikil tilþrif, svo og dansararnir sem dilla sér á bak við hann. Sfmamynd Reuter NýrBondfar- inn í bakinu Stórajósnarinn James Bond og útsendari hennar hátignar er með fimari mönnum og harðari af sér í hverri raun. Það er því ekki nema von að þeir sem túlka hann á hverjum tima þurfi aö vera jafn miklir stálkarlar. Þess vegna fór nýi Bondlnn, Pierce Brosnan, i bakaðgerð ádögunuin. Hún var þó ekki meiri en svo að hann gekk óstuddur út af sjúkra- húsinu eftir 36 klukkustundir. Brosnan verður því kominn í toppform þegar tökur hefjast á Gullinauga i janúar. Emma Thompson á Broadway Orðrómur er á kreiki meðal leikhúsfólks í Ameríku að Emma Thompson muni taka að sér að leika hlutverk Mary Poppins á Broadway. Fulltrúar leikkon- unnar segja að ekkert slikt sé á döfinni að svo stöddu en aðrar heimildir herma að þaö verði ekki fyrr en eftir tvö ár eða þar um bil. Tommy Lee Jones hefur_gert þaö gotf upp á síðkastið, leikið í hverri myndmni á fætur annarri, og yfirleitt staðið sig með afbrigð- um vel. Svo ánægðir eru menn með stráksa að honum er spáð óskarsverðlaunum fyrir leik í myndinni Cobb sem er um fræga liafnaboltahetju. Corazon Aquino, fyrrum forseti Filippseyja, er hreint ekki ánægð meö dóttur; sína þessa dagana. Ástæðan er einí'aldlega sú áð dóttir hemiar, leikkonan Kris Aquino, á von á barni með kvæntum manni sem er tuttugu árum eldri. Sá er kvikmyndaleik- arinn Philip Salvador. Kris ílutti að heiman fyrir rúmum mánuði og Iiafa majðgumar ekki ræöst við síðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.