Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994
Fréttir
Líkur á neikvæðri umsögn Náttúruvemdarráðs um fyrirhugaða efnistöku úr Seyðishólum í Grímsnesi:
Hreppurinn vill selja
12 milljónir rúmmetra
Seyðishólar í Grímsnesi. Efst á myndinni vinstra megin má sjá Kerhól sem er á náttúruminjaskrá. í forgrunni eru námur sem tekiö hefur verið úr í áratugi.
Nú eru heimamenn með hugmyndir um að flytja út allt að 30 milljónir rúmmetra úr hólnum hægra megin sem mundi hafa í för með sér verulegar lands-
lagsbreytingar. DV-mynd Ragnar F. Kristjánsson
„Þetta eru í kringum 30 milljónir
rúmmetra sem hugmyndin er að
taka á þessu svæði. Okkar skerfur
af því er um 12 milljónir rúmmetra
sem ættu að geta geíið sveitarfélag-
inu tekjur upp á 600 milljónir," segir
Böðvar Pálsson, oddviti Grímsnes-
hrepps, vegna fyrirhugaðrar efnis-
sölu hreppsins úr Seyðishólum.
Hann segir að sú tala sé miðuð við
að hver rúmmetri verði seldur á 50
krónur og hugsanlegt sé að flytja út
þetta magn á 10 árum.
Böðvar segir að hreppurinn muni
einungis selja námuréttinn en verk-
takar muni sjá um efnistökuna og
sölu efnisins og mikUl áhugi sé á
þessum viðskiptum. Hugmyndir séu
um að flytja efnið til Svíþjóðar og
Hollands þar sem það yrði notað til
vegagerðar.
Hreppurinn hefur sótt um leyfi til
efnistöku úr þessum hólum til um-
hverfisráðuneytisins. Ráðuneytið
benti umsækjandanum á að láta fara
fram umhverfismat lögum sam-
kvæmt. Ekki þarf að fara fram um-
hverfismat nema um sé að ræða
meira en 150 þúsund rúmmetra. Þeg-
ar umhverfismat hefur farið fram
þarf hreppurinn að sækja formlega
um leyfi til skipulagsstjóra ríkisins
sem ber að leita umsagnar Náttúru-
vemdarráðs og hagsmunaaðila. Úr-
skurði þess embættis er síðan hægt
að áfrýja til umhverfisráðherra sem
hefur síðasta úrslitavald. Það á við
hvort sem skipulagsstjóri gefur já-
kvæða eða neikvæða umsögn.
Seyðishólamir eru austan við Ker-
ið margfræga í Grímsnesinu. Fræg-
astur þeirra er gígurinn Kerhóll sem
er á náttúruminjaskrá en ekki er
ætlunin að flytja hann út. Þarna hef-
ur verið tekið efni um áratugaskeið
og er þegar um að ræða veruleg land-
spjöll á svæðinu. Það efni sem tekið
hefur verið hefur farið í vegagerð og
á heimreiðir að sumarbústöðum.
Aðalheiður Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndarráðs,
segir að náttúruminjaskráin sé
stefnuyfirlýsing Náttúruverndar-
ráðs og þess vegna væri ráðið ekki
sjálfu sér samkvæmt ef þaö legöist
ekki gegn efnistöku á stöðum sem
eru á skránni.
„Ég hugsa að það séu líkur á nei-
kvæðri umsögn Náttúruverndarráðs
vegna þess að þetta er á náttúru-
minjaskrá," segir Aðalheiður. -rt
LJÖMA
% %
LjomanöU jolaJetfóur
VINNINGSHAFAR ÞRIÐJUDAGINN13. DESEMBER19941
KITCHENAID HRÆRIVÉl.
Svanfríður Jóhannsdóttir, Helgafellsbraut 15, 900 Vestm.
ELDHUSVOGIR
Sigriður Oddsdóttir, Dunhaga 11,107 Reykjavík
Erla Magnúsdóttir, Hæðargarði 29,108 Reykjavík
SODASTREAM TÆKI
Sigriður H. Aðaisteinsdóttir, Hraunbrún 12, 220 Hafnarf.
Ingibjörg Óskarsdóttir, Hlein, 225 Bessastaðahr.
Eygerður Þórisdóttir, Túngötu 28, 820 Eyrarbakki
24 EITRAR AF SAEA AD EICIN VAI.I
Jóhanna Oddsdóttir, Grandargata 10, 400 ísafjörður
Snjólaug Óskarsdóttir, Álakvísl 44, 110 Reykjavik
Guðrún Gunnarsdóttir, Hfaunbæ 30,110 Reykjavík
Áslaug Kristinsdóttir, Ránargötu 3,101 Reykjavík
Gunella Vigfúsdóttir, Hvammsgerði 3,108 Reykjavík
Ósk Bergþórsdóttir, Þórólfsgötu 21 A, 310 Borgarnes
Lilja Friðriksdóttir, Heiðargerði 2, 230 Keflavík
Stefania Karlsdóttir, Veghúsum 3,112 Reykjavík
Guðfinna Sigurðardóttir, Dvergholti 3, 220 Hafnarfjörður
Þórleif Hjartardóttir, Fögrukinn 23, 220 Hafnarfjörður
VINNINGA MÁ VITJA í SÓL HF., ÞVERHOLTI 19-21, SÍMI 626300
Stórvaxandi útflutningur á vikri:
Allt að fjórfalt meira
magn en í fyira
- útflutningsverðmæti rúmar 300 milljónir
„Þetta er stórvaxandi útflutningur.
Ég gæti trúað að þetta gæti fjórfald-
ast í ár ef miðað er við meðaltal fyrri
ára. Fyrstu átta mánuði ársins voru
flutt út 85 þúsund tonn. Meðalverð
er þó mjög svipað og veriö hefur,“
segir Sveinn Þorgrímsson, verkfræð-
ingur og deildarstjóri í iönaðarráðu-
neytinu, um útflutning á vikri.
Sveinn segir að meðaltal undanfar-
inna ára sé á bilinu 35 til 45 þúsund
tonn en nú stefni í að minnsta kosti
150 þúsund tonna útflutning. Hann
segir að verðið á tonninu sé um 2100
krónur fob. Samkvæmt því hefur
verðmæti þessa útflutnings vaxið úr
því að vera um 77 milljónir í fyrra í
að vera 315 milljónir nú. Náttúru-
verndarráð og fleiri hafa áhyggjur
af efnistöku víða þar sem þrýstingur
eykst á að fá nýtingarrétt. Þessi út-
flutningur er þó ekki óþrjótandi frek-
ar en aðrar auðlindir og það tekur
langan tíma að endumýja þær nám-
ur sem eru uppumar.
„Það er staðreynd að þessi góði
hvíti vikur á Heklusvæöinu er til í
takmörkuðu magni. Við teljum aö
hann sé um 30 milljónir tonna. Við
erum með þessi mál í skoðun með
tilliti til sem bestrar nýtingar nám-
anna,“ segir Sveinn.
Hann segir að stærstu svæðin sem
nýtt eru séu í kringum Heklu þar
sem þrjú fyrirtæki eru við efnistöku.
Það em Jarðefnaiðnaður hf., Vikur-
vörur hf. og Vikur hf. Á Snæfellsnesi
eru tvö fyrirtæki, Nesvikur hf. og
Vikuriðnaður hf., í þessum iðnaði. -rt
Vikurútflutningur 1983 t'94
m.
.. n %
* i
Viö OíafsvjM
Stærstu
vinnslusvæðin
: =»• 56,8 "