Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Qupperneq 26
54
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994
propp *»o ^2
ÍSLENSKI USTINN er unninn I samvinnu DV. Bylgjunnar og CocaCola ð Islandi. Mikill fjöldi fölks tekur þótt 1 aö velja ÍSLENSKA USTANNI hverri viku.
Yfirumsjón ög handrit eru I hðndum Agústs Héöinssonar, framkvæmd i höndurp starfsfölks DV en tæknhrinnsla fyrlr útvarp
er unnin af Þorsteinl AsgeirssynU
GBTT ÚTVARPI
íslenski listinn er birtur í DV á hverjum fimmtudegi og á
fimmtudagskvöldum á milli kl. 20 og 23 kynnir Jón Axel
Ólafsson stööu laganna á Bylgjunni og greinir frá sög-
um á bakviö athyglisveröa flytjendur og
lög þeirra. Á Bylgjunni, laugardaga milli
kl. 16 og 19 er staöa laganna 40 svo
kynnt á ný og þau endurflutt.
öv
Meiming
Bókmenntir
Oddný Árnadóttir
ef maður getUr ekki sofið fyrir vondum draumum eða bara „þegar mann
langar svakalega mikið í sögu - til dæmis í þessa sögu um rúmið hans
Árna.“
Texti sögunnar er einfaldur en ekki alveg laus við hnökra. Hluti skýring-
arinnar á því gæti verið sá aö hann er fyrst og fremst skrifaöur fyrir
áheyranda en ekki lesanda. Skemmtilegar athugasemdir tljóta með eins
og þegar íjölskyldan er að skoða rúm og Árni sér eitt meö innbyggðu ljósi
og klukku. „Þarf maður klukku og ljós þegar maður sefur?“ Bubbi spilar
mikið inn á ímyndunaraflið hjá börnunum og rúminu má breyta i sjóræn-
ingjaskip, járnbrautarlest eða ílugvél svo nokkuð sé nefnt. Þannig gerir
h'ann rúmið spennandi og eftirsóknarverðan stað fyrir barnið um leið
og hann leggur áherslu á að pabbi og mamma eru skammt undan ef eitt-
hvað bjátar á.
Myndirnar hans Tolla eru mjög skemmtilegar og falla vel að efninu.
Litagleðin ræður ríkjum og myndirnar ekki fast skorðaðar í raunsæið
enda ímyndunaraflið stór þáttur textans. Útlínur hlutanna eru dregnar
frjálslega upp og þeir síðan málaðir með svolítið barnslegu frelsi.
Útkoman úr þessari samvinnu þeirra bræðra er heildstæð og læsileg
bók þó hún sé ekkert tímamótaverk. Bubbi kemst nokkuð vel frá þessu
viðkvæma máli, sem það svo oft er fyrir börnin, að sofa ein. Ég gat hins
vegar ekki varist þeirri hugsun að ef höfundar hefðu verið aðrir og óþekkt-
ir menn hefði þessi bók ekkert endilega verið gefin út.
Bubbi Morthens / Tolli
Rúmið hans Árna
Setberg 1994
Rúm er ekki bara rúm
Bubbi Morthens er þekktur fyrir allt annað en að vera rithöfundur en
hann stígur nú sín fyrstu skref á þeim vettvangi með barnasögu sem
Tolli bróöir hans myndskreytir.
Árni litli er núfluttur heim til íslands frá Þýskalandi þar sem pabbi
hans var í myndlistarnámi. íbúðin sem þau bjuggu í var svo lítil að Árni
þurfti að sofa uppi í rúmi hjá pabba og mömmu þar sem ekki var pláss
fyrir fleiri rúm. Þau þurfa því að byrja á því að kaupa rúm handa honum
og Árni fær að velja þaö sjálfur. Það eru viðbrigði fyrir hann að sofa einn
og ekki laust við að hann sé svolítið myrkfælinn en þá er bara hægt að
rölta yfir til pabba og mömmu, í öryggið og ylinn.
Sagan af Árna er nokkuð dæmigerð kvöldsaga fyrir börn enda segir
höfundur í bókarlok að það sé ágætt að skreppa yfir til pabba og mömmu
Bubbi Morthens er þekktur tyrir allt annað en að vera rithöfundur.
Anna Ringsted verslunarkona:
...ég fylgist
með Tímanum...
- hin hliðin á málunum
Sími 63 16 00